Myrka Ísland

Myrka Ísland

By Sigrún ElíasdóttirComedyScienceSocial SciencesHistory
Download on the App Store

Myrka Ísland episodes

  • Torfi í Klofa

    Mig langaði svo að finna eitthvað áhugavert og skemmtilegt að segja ykkur Önnu frá 15. öldinni, sem er kennd við Englendinga og er yfirskyggð af því leiðinlegasta sem til er í allri sagnfræði; Verzlunarsögu!! En ég fann rustamenni og dólg þar sem varð að þjóðsagnapersónu þótt hann hafi sannarlega verið til í alvöru. Torfi heitir maðurinn, kenndur við Klofa! Hann reið um héruð Sunnanlands og var rosa mikið aðal kallinn.

    1 hr 7 min
  • Þverárundrin

    Við hefjum 5.þáttaröð með ógeði! Það er kannski viðbúið en mér finnst þetta samt óvenju ógeðfellt mál vegna þess að það inniheldur ill örlög dýra.  Það sat í mér þegar ég var krakki. Spakir menn eru kallaðir saman til að leika rannsóknarlögreglur í breskum sjónvarpsstíl þegar kindur taka að hrökkva upp af með ónáttúrlegum hætti á Litlu-Þverá í Húnavatnssýslu. Er illskeyttur ærsladraugur á ferðinni  eða mannlegt skrímsli?

    1 hr 13 min
  • Frostaveturinn 1918

    Síðasti þáttur í fjórðu þáttaröðinni okkar! Við reynum að vera jólalegar og fundum kuldalega stemningu í frostavetrinum 1918. Skoðum aðeins þennan alræmda vetur sem í rauninni var aðeins fáránlega kaldur janúarmánuður þar sem hvert kuldametið á fætur öðru var slegið.  Eins komumst við að því til hvers vesti eru. 

    1 hr 13 min
  • Valtýr á grænni treyju

    Það er frjálslegt spjall um þjóðsögu/morðmál frá Austurlandi í dag. Saga sem ég  heyrði nýlega vegna þess að hinn harði vetur sem brast á eftir aftöku Valtýs var kallaður Valtýsvetur. Sitt sýnist hverjum um sannleiksgildi þjóðsögunnar og Sigrún hefur, ótrúlegt en satt, skoðanir á því hver hafi myrt Símon sendisvein.

    1 hr
  • Velkomin í Barbaríið!

    Eftir að Grindvíkingum, Austfirðingum og Vestmannaeyingum hafði verið smalað eins og búfénaði ofan í maga austurlensku víkingaskipanna, tók við hryllilegt ferðalag í hið svokallaða Barbarí; Sjálft Tyrkjaveldið. Örlög hinna 350 Íslendinga og Dana sem rænt var góðviðris sumarið 1627 urðu æði misjöfn.

    1 hr 27 min
  • Tyrkjarán hið fyrra

    Einn áhugaverðasti og magnaðasti viðburður Íslandssögunnar (ég veit að ég segi þetta oft...) er klárlega Tyrkjaránið! Það sem færri kannski vita er að áður en "Tyrkirnir" fóru til Vestmannaeyja létu þeir greipar sópa annarsstaðar á Íslandi. Þar leynast margar æsilegar sögur og óhugnaður. Sigrún talar svo mikið, er með óvenju mikið málstol, aðdraganda, og sögulegan bakgrunn, að við náum ekki einu sinni að komast til Vestmannaeyja í þessum þætti! Að ógleymdum tæknilegu örðugleikunum!

    57 min
  • Sígildar draugasögur

    Er ekki kominn tími á einn laufléttan fliss þátt um sígilda íslenska drauga eftir allt dramað undanfarið?  Við skoðum hvernig hin íslenska draugasaga varð til og þróaðist með tímanum. Heyrum af Höfðabrekku-Jóku, Írafells-Móra og að sjálfsögðu Djáknanum af Myrká.

    59 min
  • Móðuharðindin

    Hér kemur þá hinn helmingurinn af Skaftáreldasögunni; sjálf Móðuharðindin, sem eru merkilegt nokk, ekki harðindi einnar slæmrar móður eins og einhverjir hafa haldið! Þetta er sá hörmungartími sem felldi sennilega hvað mest af íslensku þjóðinni og ekki síst af búfénaði landsins og herti genamengi íslenskra húsdýra til muna. Kafið í móðuna með okkur!

    1 hr 7 min
  • Skaftáreldar

    Það er komið að máli málanna! Skaftáreldarnir, gosið í Lakagígum 1783, eitt stærsta hraungos mannkynssögunnar, hvorki meira né minna! Fylgjumst með frásögn eldklerksins Jóns Steingrímssonar af því þegar iður jarðar opnast í "eldsveitunum" í Skaftafellssýslum. Ef einhvern tíman var tími til að trúa á heimsendi, þá var þetta líklega tíminn.

    58 min
  • Aftökur

    Létt og skemmtilegt spjall um íslenskar aftökur fyrr og síðar! Íslendingar náðu að taka um 250 manns af lífi á snörpu aftökutímabili, nokkuð sem hefur verið skoðað í áhugaverður verkefni sem heitir Dysjar hinna dæmdu. Kafið í drykkingarhylinn og klifrið upp í gálgann með okkur!

    53 min

About Myrka Ísland

From the publisher's feed

Fyrir alla þá sem hafa gaman af hörmungum Íslandssögunnar, hvort sem það eru stórslys, morðmál, draugasögur, galdrar eða þjóðtrú.

More shows like Myrka Ísland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Draugar fortíðar by Hljóðkirkjan

Draugar fortíðar

72 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

True crime Ísland by True Crime Ísland

True crime Ísland

2 Listeners