Myrka Ísland

Myrka Ísland

By Sigrún ElíasdóttirComedyScienceSocial SciencesHistory
Download on the App Store

Myrka Ísland episodes

  • Ertu geðveikur?

    Geðveila, sturlun, geðveiki, sinnisveiki, brjálsemi; allt eru þetta dásemdir sem mannshugurinn hefur boðið okkur upp á svo lengi sem maðurinn hefur verið við lýði. Við Anna skoðum meðferð og kenningar um andleg veikindi á fyrri öldum því við höfum á þeim skoðanir, í bland við almenna útúrdúra um tannviðgerðir. 

    1 hr
  • Myrki Bubbi

    Fyrsti þáttur í 4. seríu var tekinn upp í beinni á Bara Bar í Borgarnesi þannig að það er smá umhverfishljóð í kringum okkur en færir okkur Bara stemningu. Bubbi Morthens hefur verið manna duglegastur að yrkja um hörmungar Íslandssögunnar og tilvalið að skoða aðeins hvað hefur orðið honum innblástur. Tónlistaratriðin hafa verið klippt út.

    1 hr 21 min
  • Spánverjavígin

    Fyrir rúmum 400 árum tóku nokkrir vaskir menn á Vestfjörðum upp á því að murka lífið úr tugum skipbrotsmanna sem höfðu orðið þar strandaglópar yfir vetur. Atburðurinn hefur gengið undir nafninu Spánverjavígin þótt þar hafi alls ekki verið um Spánverja að ræða, heldur baskneska hvalveiðifangara. Um er að ræða einstakt fyrirbæri í íslenskri sögu; fjöldamorð á erlendum borgurum. Það er áhugavert að reyna að komast til botns í þessu máli, í okkar síðasta þætti í þriðju seríu Myrka Íslands.

    1 hr 27 min
  • Sölvi Helgason

    Við erum voða lítið myrkar í dag, bara frekar bjart yfir okkur! Við skoðum aðeins lífhlaup okkar frægasta sérvitrings, Sölva Helgasonar. "Var hann helgur maður eða latur flækingshundur?" spurði Magnús Eiríksson og það er ágæt spurning og svarið er sennilega að hann var hvorugt  en samt svo miklu meira. Sennilega hittu Sólstrandargæjarnir frekar naglann á höfuðið því Sölvi var klárlegar "Rangur maður á röngum tíma, í vitlausu húsi"

    53 min
  • Blóðskömmin og Sunnefa

    Íslenska orðið blóðskömm var notað yfir samlífi fólks sem ekki mátti sænga saman samkvæmt kirkjunni.  Slíkt komst yfirleitt ekki upp nema barn kæmi undir og refsingar við slíku voru harðar og skipti engu hvort samþykki eða ofbeldi hefði komið við sögu.  Í þessu samhengi skoðum við eitt langdregnasta sakamál Íslandssögunnar, Sunnefumálin svokölluð, þar sem systkinin Sunnefa og Jón Jónsbörn voru sökuð um að eignast börn saman.

    1 hr 4 min
  • Hrakningar á heiðum

    Við vitum flest hvernig íslensk veður og villur geta leikið fólk, hvort sem er í fortíð, nútíð eða framtíð. Þess vegna skoðum við nokkur gömul og góð heilræði varðandi útbúnað og viðbrögð ef fólk kemst í hann krappann í íslenskri náttúru og heyrum svo ótrúlegu söguna af honum Kristni, manninum sem gekk í öfuga átt.

    1 hr 8 min
  • Niðursetningar og níðingsverk

    Okkur er alls ekki hlátur í hug í dag! Niðursetningar voru þeir lægstu af þeim lágu í gamla íslenska bændasamfélaginu og örlög þeirra voru algjörlega háð góðvild þeirra sem tóku þá að sér. Hinn 10 ára Páll Júlíus var ekki heppinn í úthlutun húsbænda um aldamótin 1900 og við vörum við viðfangsefni þáttarins sem inniheldur misþyrmingar á barni. Vinsamlegast knúsið börnin ykkar aukalega í dag!

    1 hr
  • Fróðárundrin

    Nú skoðum við það sem kallað hefur verið "einn magnaðasti draugagangur íslenskrar bókmenntasögu". Það voru undarlegir atburðir sem gerðust á Snæfellsnesi í kringum árið 1000 og hafa verið nefnd Fróðárundrin. Erum við að tala um illa anda, sefasýki alls heimilisfólksins eða bara sjúkdóm vegna óhreinlætis?

    1 hr 1 min
  • Eyvindur og Halla

    Það er komið að okkar eigin útileguglæpapari sem arkaði um hálendi Íslands fram og til baka, hvort sem var gangandi, ríðandi eða á handahlaupum; Eyvindi og Höllu. Þau náðu að búa áratugum saman  að mestu utan samfélags mannanna á 18.öld. Við reynum að fá einhvern botn í sögu þeirra, líf, bústaði og ákvarðanatökur og síðast en ekki síst að reyna að skilja þjóðsögurnar frá raunveruleikanum.

    1 hr 29 min
  • Kynjaskepnur á landi

    Léttur og ljúfur þáttur um þjóðsagnakenndar furðuskepnur sem geta sést á landi en dvelja alla jafna í vatni.  Förum yfir hvernig hægt er að þekkja þær og bregðast við árásum þeirra eða kænsku. Kannski höfum við kenningar um uppruna og ástæður þessara sagna, kannski alls ekki.

    59 min

About Myrka Ísland

From the publisher's feed

Fyrir alla þá sem hafa gaman af hörmungum Íslandssögunnar, hvort sem það eru stórslys, morðmál, draugasögur, galdrar eða þjóðtrú.

More shows like Myrka Ísland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Draugar fortíðar by Hljóðkirkjan

Draugar fortíðar

72 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

True crime Ísland by True Crime Ísland

True crime Ísland

2 Listeners