Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Fyrir alla þá sem hafa gaman af hörmungum Íslandssögunnar, hvort sem það eru stórslys, morðmál, draugasögur, galdrar eða þjóðtrú.... more
FAQs about Myrka Ísland:How many episodes does Myrka Ísland have?The podcast currently has 105 episodes available.
October 27, 2022GullskipiðÍ upphafi 6. seríu förum við í fjársjóðsleit! Því fyrir 400 árum strandaði glæsilegt hollenskt skip á Suðurlandi sem hvarf svo bara í sandinn og enginn lagði á minnið hvar það sást síðast. Um það hafa síðan spunnist sögur og vonir og þrár ævintýra og athafnamanna um að finna óskemmt skipið í sandinum, fullt af gersemum. ...more1h 15minPlay
July 15, 2022Sumarauki 22Til að sanna að við séum enn á lífi gerðum við þátt um ferðalög, lífið, baska og ekkert! Ég fann 20 ára gamalt háskólaverkefni sem ég varð að deila með Önnu og öðrum sem vilja heyra um samskipti Íslendinga við Baska. Haturspóstar vegna "á Bolungarvík" vinsamlegast afþakkaðir. Við vitum þetta en virðumst samt sem áður eiga erfitt með að gera þetta rétt......more58minPlay
May 12, 2022Guríður SímonardóttirFimmtugasti Myrki þátturinn fjallar um Guðríði "bad ass" Símonardóttur sem var rænt ásamt tæplega 400 Íslendingum af sjóræningjum árið 1627 og flutt í þrælahald í Barbaríinu í Algeirsborg. Af þessu heyrðum við í tveimur þáttunum í 4. seríu. En þar endar saga Guðríðar alls ekki því hún átti eftir að komast aftur til Íslands löngu síðar og hneyksla landann. Glöggir áheyrendur geta heyrt al íslenskt haglél bylja á upptökustúdíóinu. Fullkomin leið til að þakka fyrir veturinn og bjóða vorið velkomið með þessum síðasta þætti í bili....more1h 37minPlay
May 05, 2022Þorir þú til læknis?Það er heldur betur flissþáttur í dag! Annað er varla hægt þegar kafað er ofan í kukl og kerlingabækur á Íslandi á 18. og 19.öld. Ég leyfi mér að efast um andlega og líkamlega heilsu landsmanna í ljós þeirra fráleitu hugmynda um lækningamátt hinna ýmsu saurtegunda og dýrainnyfla. Við skoðum allskonar hugmyndir um "lækningar" samkvæmt Jónasi frá Hrafnagili, hvort sem þær voru mikið eða lítið stundaðar, því það vitum við því miður alls ekki....more1h 14minPlay
April 29, 2022Fyrstu ÍslandsvinirnirStundum er gestsaugað glöggt og í gegnum tíðina höfum við bæði elskað og hatað að lesa lýsingar erlendra gesta á landi og þjóð. Fátt gleður okkur og móðgar okkur jafn mikið og það sem sá mikilvægi hópur hefur að segja um okkur. Við skoðum nokkra af breskum fyrirmönnum sem komu hingað á 18. og 19. öld og höfðu skoðanir á lifnaðarháttum okkar og hvað það er sem helst hefur nýst nútíma sagnfræðingum af því efni sem þeir skildu eftir sig....more1h 18minPlay
April 22, 2022Einar, Sólborg og HöfðiMálið er stórt í dag! Fáir menn hafa gnægt svo yfir þjóðlífinu á Íslandi eins og Einar Benediktsson var um aldamótin 1900. Hann var allstaðar og hafði skoðanir á öllu. Aflaði sér mikilla vina og mikilla óvina. Enda var hann stórbrotinn hæfileika maður á mörgum sviðum. En stórbrotið fólk er líka brothætt og það var Einar líka. Við skoðum hið svokallað Sólborgarmál í Þistilfirði sem hafði mikil áhrif á sálarheill Einars og sögurnar sem fylgdu þeim báðum og þjóðinni með draugasögum úr Höfða....more1h 12minPlay
April 14, 2022Af Stuttu SigguEnn er ég rám sem regindjúp en það stoppar okkur ekki í að segja ykkur frá lífi og örlögum óvenjulegrar konu sem kölluð var Stutta Sigga. Uppeldi hennar var nöturlegt og hluta af ævi sinni tilheyrði hún hinu alræmda flökkufólki sem var þjóðflokkur sem Íslendingar óttuðust meira en heimsendi og gera kannski enn í dag. Við lesum söguna upp úr Grímu hinni nýju og heyrum mörg ljómandi falleg íslensk orð í kaupbæti....more52minPlay
April 07, 2022Sæmundur fróðiÞátturinn okkar í dag er tileinkaður minningu helstu klappstýru þessara þátta og vini okkar Önnu, honum Árna pípara sem lést fyrir stuttu. Til að við hefðum einhverja burði til að halda uppteknum hætti ákvað ég að taka fyrir létt efni, en það eru þjóðsögur af Sæmundi fróða sem uppi var á 11. og 12. öld. Helst segir frá viðureignum hans við kölska sjálfan sem ekki virtist nú vera skarpasta ljósaperan í ljósabekknum, blessaður....more1h 6minPlay
March 18, 2022Miklabæjar SolveigLöng og flókin ástarsaga beinagrinda gæti verið ágætis lýsing á sögu Solveigar og séra Odds á hinni skelfilegu 18.öld. Þetta var harmsaga sem ásótti sveitir norðanlands í marga áratugi, jafnvel árhundruð. Hversu margar beinagrindur er hægt að finna óvænt í kirkjugarði og hver á hvaða bein?...more1h 1minPlay
March 10, 2022Þarf alltaf að vera morð?Já, Anna mín, það þarf allavega að vera morð öðru hverju í ógeðisþáttum eins og okkar. Við bregðum okkur í sakamála leik vegna tveggja morðmála. Þau eiga ekkert sameiginlegt nema það að hafa bæði verið framin það herrans ár 1704. En við getum lofað þungaðri konu, framhjáhaldi, líkskoðunum, dularfullri hempu og það sem allir elska; manni sem klikkar á tylftareið! Ekki reið, nei; eið!!...more1h 9minPlay
FAQs about Myrka Ísland:How many episodes does Myrka Ísland have?The podcast currently has 105 episodes available.