Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Vindmyllur. Íbúðaskipti.Kína
    Þóroddur F Þóroddsson : Landvernd gaf nýlega út stefnumótunar- og leiðbeiningarrit um virkjun vindorku á Íslandi. Rit sem ekki síst er ætlað sveitarfélögum og stjórnvöldum . Þóroddur samdi texta ritsins og ræðir um tilurð þess og hvaða leiðbeiningar felast í því. Snæfríður Ingadóttir: Íbúðaskipti eru að verða æ algengari. Snæfríður hefur drjúga reynslu af þeim og hefur samið bók um íbúaskipti. Friðrik Páll: Stjórnarskránni í Kína hefur verið breytt. Áður mátti forseti aðeins sitja tvö kjörtímabil í röð. Nú getur hann, með stuðningi kommúnistaflokksins, setið í þrjú kjörtímabil ...eða ævilangt. Breytingin eykur völd Xi Jinpings, leiðtoga Kína, en vekur jafnframt gagnrýni. Vestrænir stjórnmálaskýrendur tala um lýðræðislega afturför.
    55 min
  • Vindorka, konur í kvikmyndum, málfar og vísindi.
    Ketill Sigurjónsson: Vindorka, vindmyllur og framtíðarmöguleikar á Íslandi. Guðrún Ragnarsdóttir kvikmyndaleikstjóri: staða kvenna innan kvikmynda, úthlutun styrkja, sértækar aðgerðir og ástæður kynjamismununar Málfarsmínúta. Edda Olgudóttir: Vísindaspjall: áhrif áfengisdrykkju og snemmbær elliglöp
    55 min
  • Líðan þjóðar. Líkaminn. Dýraþjófnaður
    Sigrún Daníelsdóttir verkefnisstjóri Landlæknisembætti: Í könnun á líðan og heilsuhegðun ísleninga árið 2017 kemur meðal annars í ljós að ungt fólk er bæði óhamingjusamara og frekar einmana en þeir eldri. Kristín Briem prófessor í sjúkraþjálfun HÍ: Hin ýmsu kerfi líkamans þurfa að vinna saman í daglegri hreyfingu mannsins en stoðkerfiskvillar eins og slitgigt í hné hafa áhrif þar á. Kristín ræðir hreyfivísindi og hversu nauðsynleg dagleg hreyfing er. Vera Illugadóttir: Hún segir frá bíræfnunm þjófnaði úr dýraathvarfi og endurteknum stuldi á eftirsóttum silkiöpum.
    55 min
  • Örplast. Bráðamóttakan. Gervigrasvellir
    Íris Þórarinsdóttir tæknistjóri fráveitu Veitna: Stærsta uppspretta örplasts í fráveitukerfi Veitna er frá bíldekkjum. Gervigrasvellir koma næst og síðan gerviefnaföt. Í nýjustu rannsóknum mældust um 1500 agnir af örplasti í hverjum rúmmetra. Hrönn Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur: Hrönn segir frá nýju verklagi sem nú er verið að taka upp á bráðamótttöku Landspítalans í tengslum við heimilisofbeldismál. Allir starfsmenn hljóta núna sérstaka þjálfun í móttöku þolenda. Stefán Gíslason: Til að koma í veg fyrir að plastkurl frá gervigrasvöllum berist út í náttúruna hafa Svíar sett fram sérstakan leiðrvísi fyrir rekstraraðila þeirra.
    55 min
  • Snjalltækni götulýsinga. Vannæring eldri borgara. Loðnuhrogn
    Svanborg Hilmarsdóttir rafmagnstæknifræðingur: Snjalltækni í lýsingu gatna og göngustíga er það sem koma skal. Þá er hægt að stýra bæði lýsingarstyrk og stefnu mun betur og orkukostnaðaður getur minnkað um tugi prósenta. Berglind Soffía Blöndal næringarfræðingur: Svokallað næringarástand hjá eldri borgurum hér á landi er lítt rannsakað viðfangsefni. Nýleg rannsókn á þessu sýnir þó grafalvarlega niðurstöður um stöðu þessa hóps og benda til alvarlegrar vannæringar hjá þátttakendum rannsóknarinnar. Málfarsmínúta Benedikt Jóhannsson hjá landvinnslu Eskju: Hvernig fer vinnsla loðnuhrogna fram?
    55 min
  • Rangfeðrun. Svifryk. Populismi
    Dögg Pálsdóttir lögfræðingur: Rætt við hana um stöðu rangfeðraðs fólks hér á landi og bága réttarstöðu feðra til að höfða faðernismál undir vissum kringumstæðum. Hrund Ólöf Andradóttir prófessor HÍ: Um 80% af því svifryki sem liggur yfir höfuðborginni við ákveðnar aðstæður ákemur frá bílaumferð. En fíngerði hluti útblástursins er sá varhugaverðasti og það eru ekki síst stórir flutningabílar eða gamlir díselbílar sem eiga sök á honum. Friðrik Páll: Popúlistar sækja fram í Evrópu, þeir sem eru andvígir innflytjendum og Evrópusambandinu. Í kosningum á Ítalíu fyrir skömmu fengu popúlistaflokkar fleiri atkvæði en hefðbundnir flokkar.
    55 min
  • Starfsmannaleigur. Skíðafélag. Vísindi
    Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunnar: Erlendur starfskraftur er nauðsynlegur fyrir íslenskt samfélag og hér eru stærstu mannvirkjaframkvæmdirnar algjörlega háðar erlendu vinnnuafli. Stærsti hluti þess fólks er ráðið með beinum samningum, ákveðinn hluti í gegnum starfsleigur. Og hjá hluta þeirra er farið á svig við lög og reglur. Þessu þarf að breyta m.a. með breyttum reglum. Guðmundur Valgeir Magnússon formaður Skíðafélags Vestfjarða: Hann segir frá tækifærum í gönguskíðamennsku á suðurfjörðum Vestfjarða. Edda Olgudóttir: Í vísindaspjalli dagsins er fjallað um rannsóknir á því hvað gerist í líkama fólks við reglulega hreyfingu og sjónum beint að eldra fólki.
    55 min
  • Íslenskupróf. Gagnaver. Evrópska rafmagnið
    Eiríkur Rögnvaldsson prófessor: Samræmt próf í íslensku sem klúðraðist af tæknilegum orökum, er gagnrýnt af Eiríki, þau segi ekkert um málkunnáttu eða málnotkun nemenda en dragi hins vegar úr áhuga þeirra á móðurmálinu. Gunnar Örn Guðmundsson tæknistjóri RÚV: Hann leiðréttir frétt um að leit og streymi tiltekins lags í gagnaverum hafi kolefnisspor á við 16 þúsund bíla á ári. Vera Illugadóttir: Stafrænum klukkum í ýmsum heimilistækjum í Evrópu hefur seinkað undanfarið um 6 mínútur. Ástæðurnar má rekja til deilu Serbíu og Kósovó um rafmagnsframleiðslu.
    55 min
  • Svalbarði.Jarðefnavísindi.Lestur.Mörgæsir
    Sólveig Anna Þorvaldsdóttir tannlæknir: Sólveig býr á Svalbarða og í dag, 8.mars, sést þar aftur til sólar eftir margra mánaða vetrarmyrkur. Sigurður Reynir Gíslason vísindamaður HÍ : Rætt við Sigurð Reyni Gíslason vísindamann um bindingu koltvíoxíðs í bergi og áhrif gosösku á umhverfi og samfélag manna. Sigurður fær í ár ein virtustu verðlaun sem veitt eru á sviði jarðefnafræði í heiminum fyrir rannsóknir sínar á því sviði. Brynhildur Þórarinsdóttir dósent HA: Að lesa fyrir börn. Hafdís Hanna Ægisdóttir: Í pistli sínum í dag fjallar Hafdís um mörgæsir, sögu þeirra og nýuppgötvaða mörgæsabyggð við Suðurskautið.
    55 min
  • Vantraust. Málfar.Læsi
    Eva Heiða Önnudóttir stjórnmálafræðingur: Um vantraust . Í tilefni af vantrauststillögu á dómsmálaráðherra. Málfarsmínútan Rúnar Sigþórsson prófessor HA og Rósa Eggertsdóttir : Umræða um stöðuna í læsismálum barna og ungmenna. Útskýrt út á hvað aðferðin Byrjendalæsi gengur.
    55 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

472 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners