Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Úthverfi.Orðabækur.Geimnámur
    Sigurður A. Þorvarðarson, umferðar- og skipulagsverkfræðingur: Sem hugmynd í byggðarþróun teljast úthverfi enn vera tilraun, og hingað til sem tiltölulega misheppnuð tilraun á ýmsa vegu segir Sigurður. Hagnaður sveitarfélaga af byggingu úthverfa nægir ekki til að standa undir viðhaldi og endurnýjun eldri innviða. Jón Hilmar Jónsson orðabókaritstjóri: Jón stendur að baki fjölda rita og orðabóka eins og Orðastaður, Orðaheimur og Stóra orðabókin um íslenska málnotkun. Nýjast á þeim vettvangi er Íslenskt orðanet, stafræn orðabók á slóðinni ordanet.is. Friðrik Páll: Einkafyrirtæki bíða nú leyfis til þess að mega rannsaka og nýta auðlindir á tunglinu, og vinna dýrmæt jarðefni úr smástirnum í hagnaðarskyni. Þetta er nú talinn raunhæfur möguleiki, þótt námavinnsla hefjist að líkindum ekki fyrr en eftir 15 til 25 ár. Skýrar reglur eru ekki til um vinnslu af þessu tagi.
    55 min
  • Starfsmenntun.Skógafoss.Vísindi
    Hildur Elín Vignir framkv.stjóri Iðunar: Iðan er fræðslusetur sem huin ýmsu stéttarfélög í iðnaði og Samtök iðnaðarins reka. Þar er m.a. sinnt símenntun í ýmsum greinum með námskeiðahaldi . Frá árinu 2007 hafa rúmlega tvö þúsund einstaklingar farið í gegnum raunfærnimat hjá Iðu og um helmingur þeirra hefur annaðhvort lokið sveinsprófi eða er á leið í það. Hákon Ásgeirsson Umhverfisstofnun: Unnið er að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir náttúruvættið Skógafoss. Á síðasta ári var Skógafoss settur á rauðan lista Umhverfisstofnunnar vegna ágangs ferðafólks. Engar nákvæmar tölur eru til um fjölda gesta en Hákon segir að þær geti nálgast fjöldan við Geysi og Gullfoss á góðum sumardegi. Edda Olgudóttir: Í Vísindaspjalli að þessu sinni ræðir Edda forvitnilega aðferð sem vísindamenn beittu nýlega við að leita að nýju sýklalyfi sem gæti unnið á sýklalyfjanónæmri bakteríu.
    55 min
  • Lögreglan.Náttúran.Dýrin
    Sigurður Jónasson lögreglumaður: Hvernig er það fyrir lögreglumann af landsbyggðinni að vera einn á vakt í stóru umdæmi? Jón Geir Pétursson Umhverfisráðuneyti: Í gær var kynnt landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarminjum til 12 ára . Jafnframt var kynnt verkefnaáætlun til næstu þriggja ára. Jón Geir lýsir hugmyndafræðinni að baki áætluninni og segir frá helstu nýmælum í áætluninni. Vera Illugadóttir: Dýr hafa látið til sín taka í stjórnmálunum og nú hefur verið reynt að fá þau samþykkt sem fullgilda frambjóðendur til embætta á fleiri en einum stað.
    55 min
  • Brottfall, innbrot og flóttamenn.
    Kristjana Stella Blöndal dósent HÍ: Um rannsóknir á ástæðum brottfalls í framhaldsskólum og hvernig hægt er að stemma stigu við því. Stella segir líka frá stórri alþjóðlegri rannsókn sem hún tekur þátt í um menntun til jafnaðar. Auður Lilja Davíðsdóttir Öryggismiðstöðinni: Rætt um innbrotahrinuna sem gengið hefur yfir á höfuðborgarsvæðinu. Bryndís Friðgeirsdóttir svæðisfulltrúi Rauða krossins á Vestfjörðum: 23 flóttamenn frá Sýrlandi og Írak eru væntanlegir til Vestfjarða síðar í mánuðinum. Bryndís segir frá undirbúningi vestra og þeirri reynslu sem er til staðar eftir mótttöku flóttamanna þar áður.
    55 min
  • Geimferðir, strandarusl og pólitískar íþróttir.
    Ari Kristinn Jónsson rektor HR: Sitthvað um geimerðir og bíla sem sendir hafa verið út í geim. Tómas J Knútsson Bláa hernum: Rusl á ströndum landsins safnast upp þrátt fyrir hreinsanir. Ruslbókhald Bláa hersins er merkileg heimild. Friðrik Páll: Ólympíuleikarnir í S-Kóreu eru ekki aðeins vettvangur íþrótta, þar fara líka fram pólitískar viðræður um málefni Kóreuríkjanna.
    55 min
  • Skyndihjálp, Húsdýragarðurinn og nakta moldvörpurottan
    Gunnhildur Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri skyndihjálpar hjá Rauða Krossinum: skyndihjálp, námskeið og skyndihjálparmanneskja ársins. Tómas Óskar Guðjónsson, forstöðumaður fjölskyldu og húsdýragarðsins: um sögu garðsins og þróun. Vera Illugadóttir: nakta modvörpu rottan
    55 min
  • Ríkisborgararéttur.Leikskólar.Umhverfisspjall
    Björg Thorarensen prófessor í lögfræði: Lög og reglur sem gilda um ríkisborgararétt á Íslandi Guðrún Alda Harðardóttir doktor í leikskólafræðum: Rannsókn um birtingu kyngervis barna í leikskóla þar sem hlutfall karla er hátt í starfsmannahópnum Rannveig Magnúsdóttir: Umhverfisspjall um ráðstefnuna World cleanup day í Tallin þar sem 115 lönd voru að skipuleggja alheimshreinsun þann 15. september n.k
    55 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

472 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners