Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Unglingar.Heyrn.Rússland
    Ester Ingvarsdóttir sálfræðingur Foreldrahúsi: Um uppeldi unglinga og leiðir sem foreldrar geta nýtt sér til að styðja við þroska þeirra og bæta samskipti. Ingibjörg Hinriksdóttir yfirlæknir Heyrnar- og talmeinaastöðinni: Því er spáð að fólki með heyrnarvandamál í heiminum muni fjölga ört á komandi árum. Talið er að á Íslandi séu um 20 þúsund manns heyrnarskertir en þeir sem leita sér aðstoðar eru miklu færri. Fyrir nokkrum árum var ákveðið af landlæknisembætti að hætta að heyrnarmæla börn í skólum sem tíðkast víðast annarsstaðar. Ingibjörg segir að þetta hafi verið stórt skref afturábak. Friðrik Páll: Það er engin óvissa um úrslit forsetakosninganna í Rússlandi eftir tæplega hálfan mánuð. Skoðanakannanir sýna að Vladímír Pútín forseti er með 70 prósenta fylgi. Kjörtímabilið er sex ár og Pútín verður því leiðtogi Rússlands fram til ársins 2024
    55 min
  • Matur á netinu, nýting almenningssvæða og örverur.
    Brynja Laxdal, verkefnastjóri matvælalandsins Íslands: mat úr næsta nágreni og sala, netsala og markaðssetning Ólafur Ingibergsson, sérfræðingur hjá Reykjavíkurborg: Torg í biðstöðu, um möguleika og nýtingu almenningssvæða Edda Olgudóttur, vísindaspjall: örveruflóran og heilsan.
    55 min
  • Karlar gegn ofbeldi. Föt og vatn. Viska
    Hjálmar Gunnar Sigmarsson ráðgjafi: Námskeið fyrir karla sem vilja beita sér gegn kynbundnu ofbeldi. Þórey Svanfríður Þórisdóttir: Fataiðnaðurinn er næststærsti iðnaður heimsins. Vatnsnotkun hans er gífurleg og stefnir í óefni ef fram fer sem horfir. Þórey rannsakar í doktorsnámi sínu hvort og hvernig fataiðnaðurinn er að taka þá þessu. Vera Illugadóttir: Hún segir frá albatrosakerlingingunni Visku sem er 67 ára gömul.
    55 min
  • Gróður og svifryksmengun, þrákelni feðraveldisins og lyktarefni.
    Þröstur Þorsteinnson, prófessor í umhverfis og auðlindafræði við HÍ: Rannsóknir á áhrifum gróðurs á svifryksmengun. Cynthia Enloe: Þrákelni feðraveldisins og áhrif metoo byltingarinnar Stefán Gíslason: Umhverfispistill: lykt í alls kyns neysluvörum, hvaðan kemur hún og hvaða áhrif hafa þessi efni á okkur?
    55 min
  • Giftingar.Skemmtiferðaskip.Fæðingar
    Ágústa Linda Leifsdóttir og Anna Ýr Böðvarsdóttir Sýslumannsembætti höfuðborgarsvæðisins: Hjónavígslum hjá sýslumanni hefur fjölgað mjög síðustu árin. Hjá sýslumannsembætti höfuðborgarsvæðisins er fólk gift nánast daglega. Þórný Barðadóttir Rannsóknamiðstöð ferðamála: Mikil fjölgun hefur verið síðustu ár í komum skemmtiferðaskipa til landsins. Samkvæmt rannsókn Þórnýjar virðist skorta nokkuð á skýrar reglur og leiðbeiningar um umferð og komur þeirra almennt. Ólöf Ásta Ólafsdóttir ljósmóðir Síðustu tíu árin hafa sífellt fleiri börn fæðst að sumri til sem er breyting frá því sem var fyrir 50 árum.
    55 min
  • Orkukostnaður.Geðheilbrigði.Pólland
    Benedikt Guðmundsson verkefnisstjóri Orkustofnun: Orkukostnaður heimila landsins er ákaflega mismunandi eftir því hvar þau eru og mestur milli dreifbýlis og þéttbýlis. Munurinn getur verið allt að 130% milli hæsta og lægsta verðs. Benedikt útskýrir hvernig raforkukerfið skiptist í dreifingaraðila og orkusala og hversu óþarflega flókið kerfið er. Elísabet Sigfúsdóttir Sigfúsdóttir félagsráðgjafi geðsviði Landsspítala: Elísabet stýrir teyminu"foreldraar,meðganga og barn" og aðstoðar verðandi eða nýbakaða foreldra sem hafa sögu um geðranan vanda eða fíknivanda. Friðrik Páll: Þjóðernissinnuð hægri stjórn Póllands hefur sett lög sem gera það refsivert að halda því fram að Pólverjar hafi átt þátt í útrýmingu gyðinga í síðari heimsstyrjöldinni. Lagasetningunni hefur verið mótmælt víða um heim. Pólverjar eru sakaðir um að vilja endurrita söguna, og samskipti pólsku stjórnarinnar og Ísraels hafa kólnað verulega.
    52 min
  • Hæfnisetur ferðaþjónustunnar og menndurtekningar og hrútskýringar.
    Haukur Harðarson hjá Hæfnissetri ferðaþjónustunnar: bætt vinnubrögð og betri upplifun ferðamanna af íslenskri ferðaþjónustu. Helga Bragadóttir, prófessor í hjúkrunarfræði við HÍ og meðlimur í SKVÍS, samtök kvenna í vísindum: Hrútskýringar og menndurtekningar, námskeið um skilgreiningar, dæmi og möguleg viðbrögð. Vera Illugadóttir: Einmana dýr: Súlukarlinn Nigel og tilrauni nýsjálenskra fuglafræðinga til að tæla súlur að eyju.
    55 min
  • Sýnileiki lögreglunnar, Landsýn og Ghana.
    Jónas Orri Jónasson og Rannveig Þórisdóttir, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu: Viðhorf Íslendinga í garð lögreglu: Hefur sýnileiki lögreglunnar áhrif á ótta við afbrot? Charlotta Oddsdóttir: Um Landsýn, samráðsþing sjö stofnanna sem hafa aðkomu að afurðaframleiðslu og umhverfismálum, hvort sem er í landbúnaði, fiskeldi, annars konar landnýtingu og umhverfismálum. Hafdís Hanna Ægisdóttir. Umhverfispistill: Ghana og baráttufólk fyrir umhverfinu.
    55 min
  • Leifsstöð.Upplýsingatækni.Hreindýr
    Þröstur V Söring rekstrarstjóri Leifsstöð: Veturinn í vetur hefur verið erfiður fyrir millilandaflugið og það hefur farið úr skorðum nokkrum sinnum. Tafirnar sem af því hljótast hafa áhrif bæði á farþega og og þá aðila sem þjónusta flugstöðina. Þröstur lýsir slíkum degi. Hrafnhildur Peiser ráðgjafi: Upplýsingatæknin er mikilvægt verkfæri í heilbrigðiskerfinu. En upplýsingarnar í kerfinu eru vannýtt auðlind segir Hrafnhildur og betri nýting myndi skila bæði skilvirkara og hagkvæmara heilbriðgðiskerfi. Skarphéðinn Þórisson hreindýrasérfræðingur Náttúrustofu Austurlands: Hreindýrakvóti ársins er nú boðinn út. Skarphéðinn segir frá því hvernig hann er fenginn og ýmsu öðru sem snertir hreindýrahjarðir landsins.
    55 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

472 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners