Indriði Þorláksson formaður félags leiðsögumanna og Bjarni Sigtryggsson leiðsögumaður: Ferðamenn um hátíðarnar og starf leiðsögumannsins. Guðbjörg S Bergsdóttir verkefnastjóri hjá Ríkislögreglustjóra: Rýnt í nýbirtar bráðabirgðatölur um afbrot í landinu árið 2017 Friðrik Páll Jónsson: Fjallað um þá fjölgun ríkja í Bandaríkjunum sem leyfa neyslu kannabis ekki aðeins til lækninga, heldur einnig til frjálsra nota.
Jóhann Friðrik Friðriksson og Svava Jónsdóttir, vinnueftirlitinu: Kynferðisleg áreitni, kynbundið ofbeldi og einelti á vinnustöðum: Forvarnir, aðgerðir og framvinda mála Málfarsmínúta Einar Sveinbjörnsson: frostaveturinn 1918, aðdragandi og veðurfar. Edda Olgudóttir: Sameindalíffræði í geiminum og hrávatn.
Sindri Sigurgeirsson form. Bændasamtakanna: Rætt við Sindra um dýravelferð og meðferð húsdýra. Elsa B Valsdóttir skurðlæknir: Elsa segir frá tveimur erlendum rannsóknum en niðurstöður þeirra gefa til kynna að mögulega séu konur betri læknar en karlar. Vera Illugadóttir: Vera rekur ýmsar tegundir megrunarkúra frá fyrri öldum.
Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri: Skarphéðinn var um áramótin ráðinn sem ferðamálastjóri til næstu fimm ára. Rætt er við hann um ferðaþjónustuna, helstu verkefnin og hvaða þætti hann vill leggja áherslu á. Vera Knútsdóttir hjá félagi Sameinuðu Þjóðanna á Íslandi : Gæti kjarnorkustríð brotist út í heiminum í dag? Og ef svo , hvernig yrði það þá? Umhverfisspjall um orkuuppsprettur næstu áratuga.
Breki Karlsson, forstöðumaður stofnunar um fjármálalæsi: borga skuldir og safna í sjóði - hvernig gerum við það? Hólmfríður Guðmundsdóttir tannlæknir hjá landlæknisembættinu: tannlækningar barna yngri en 18 ára eru gjaldfrjálsar. Fjallað var um hvaða þýðingu það hefur og hver tannheilsa ungmenna á Íslandi er. Málfarsmínúta Hilmar Snorrason, skólastjóra slysavarnarskóla sjómanna: Árið 2017 var fjórða árið frá upphafi skráningar sem enginn fórst við störf á sjó. Rætt var við HIlmar um stöðuna og horfur til framtíðar.
Guðný Nielsen og Íris Ólafsdóttir stjórnarkonur í Velbú, samtökum um velferð í búskap: Verður dýravernd og dýravelferð eitt þeirra stóru mála sem verða áberandi í umræðunni framundan? Edda Olgudóttir : Í vísindaspjalli dagsins ræðir Edda um jákvæðar fréttir úr vísindaheiminum árið 2017. Friðrik Páll: Það ríkir bjartsýni í Evrópu á nýju ári varðandi þróun efnahagsmála. Friðrik Páll fer yfir málið.
55 min
About Samfélagið
From the publisher's feed
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.