Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Aðlögun að loftslagsbreytingum, hlaðvarp um fornleifafræði og ADHD
    Loftslagsbreytingum fylgja ýmsar áskoranir sem þarf að bregðast við, meðal annars þarf að tryggja að húsin okkar standi aukið álag af sér. Það var til umræðu í erindi Elínar Þórólfsdóttur teymisstjóra hjá húsnæðis- og mannvirkjastofnun á málþingi um aðlögun að loftslagsbreytingum á dögunum. Við tölum við Elínu í upphafi þáttar.
    Heiðnar grafir á Íslandi, landnám Reykjavíkur og Grænland og Ameríka eru meðal umfjöllunarefnis Moldvarpsins, hlaðvarps sem fjallar um íslenska fornleifafræði. Fornleifafræðingarnir Arthur Knut Farestveit og Snædís Sunna Thorlacius halda Moldvarpinu úti og ætlum við að spjalla við þau um miðbik þáttar.
    Í lok þáttar fáum við Eddu Olgudóttur til okkar í sitt reglulega vísindaspjall. Umræðuefnið í dag eru heilsukvillar sem geta fylgt ADHD.
    En við byrjum á aðlögun að loftslagsbreytingum.
    Tónlist í þættinum:
    This must be the place - Talking Heads
    Time of the season - The Zombies
    Umsjón: Elsa María Guðlaugs Drífudóttir
    1 hr
  • Smáforritið Bati, Persónuvernd í 25 ár, ljótt og flott umhverfi
    Í dag ætlum við að kynna okkur smáforritið Bata, sem hefur það markmið að styðja við fólk með fíknisjúkdóma. Þórdís Rögn Jónsdóttir, annar stofnenda fyrirtækisins Rekovy á bak við smáforritið, ætlar að setjast hjá okkur í upphafi þáttar og segja okkur meira.
    Á morgun verður haldið upp á 25 ára afmæli Persónuverndar – stofnunin býður til afmælismálþings í Eddu, húsi stofnunar Árna Magnússonar, þar sem fjallað verður um stöðu persónuverndar í síbreytilegum heimi. Margt hefur breyst síðan stofnunin var sett á stofn og Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar ætlar að kíkja við og spjalla um það.
    Síðan fáum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi og pistlahöfundi Samfélagsins.
    Tónlist úr þættinum:
    PAUL SIMON - You Can Call Me Al.
    OYAMA - Vinur vina minna.
    59 min
  • Arkitektúr, 5G og Húsmæðraþættir
    Við ætlum að halda áfram að ræða hið byggða umhverfi á Íslandi, eins og við höfum gert talsvert mikið síðustu vikur. Við höfum verið að reyna að skilja betur hvers vegna byggða umhverfið okkar er eins og það er, hvernig okkur líður í því og hvernig við tölum um það. Í dag fáum við sjónarhorn arkítekta, þegar Björg Torfadóttir, framkvæmdarstjóri Arkitektafélags Íslands sest hjá okkur til að ræða þessi mál.
    5G er næsta skref í fjarskiptum hér á Íslandi og annars staðar í heiminum. 5G hefur verið kallað límið í fjórðu iðnbyltingunni og á að vera stökk frá fyrirrennurum sínum 2, 3 og 4G. Innviðauppbygging hefur átt sér stað undanfarin ár og stendur nú til að slökkva á síðustu 2G og 3G sendunum til að gera pláss fyrir nýja kerfið. Ólafur Magnússon frá fjarskiptafyrirtækinu NOVA kemur fræðir okkur um þetta á eftir.
    Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, ætlar að flytja gullmola úr safni RÚV, eins og hún gerir hér í Samfélaginu annan hvern mánudag. Í dag rifjar hún upp gamlan dagskrárlið á Rás 1 sem bar nafnið Húsmæðraþættir.
    Tónlist í þættinum:
    Hjálmar - Kindin Einar.
    Hill, Lauryn - Can't take my eyes off you.
    Polo and Pan - Canopée.
    La Havas, Lianne - Disarray.
    1 hr 1 min
  • Óskarsverðlaunin á Youtube 2029, stefna í áfengis- og vímuvarnarmálum og endurheimt vistkerfa
    Nýlega var tilkynnt að Óskarsverðlaunin árið 2029 verða sýnd á Youtube, vídeómiðli í eigu Google. Hvað segir það okkur um umhverfi fjölmiðla og kvikmynda að einn stærsti sjónvarpsviðburður ársins verði sýndur á miðlum tæknirisa? Við ætlum að velta þessu fyrir okkur með Eyrúnu Magnúsdóttur, gervigreindarfréttaritara Samfélagsins, í upphafi þáttar.
    Á miðvikudaginn voru niðurstöður starfshóps um stefnu í áfengis- og vímuvarnarmálum til ársins 2035 birtar til umsagnar á samráðsgátt stjórnvalda. Starfshópurinn hefur verið að störfum í næstum því tvö ár, enda voru verkefni hans stór; að kortleggja stöðu áfengis- og vímuefnamála á Íslandi og bregðast við stefnuleysi sem hefur ríkt í málaflokknum. Kristín I. Pálsdóttir, formaður starfshópsins, sest hjá okkur í dag og ræðir drögin.
    Gömul stífla í ánni Melsá í Ytri-Hraundal á Mýrum í Borgarfirði var fjarlægð við lok síðasta árs. Markmiðið var að endurheimta vatnasvæði árinnar fyrir fugla og fiska, og gera meðal annars sjóbirtingi kleift að ganga upp ána. Fuglavernd stóð fyrir verkefninu í samstarfi við Land og skóg og Hafrannsóknastofnun. Við hringjum í Jóhannes Guðbrandsson frá Hafrannsóknastofnun við lok þáttar og fáum að heyra af þessu.
    Tónlist úr þættinum:
    ASAP Rocky - Punk Rocky (Lyrics!).
    Svavar Knútur Kristinsson - Soundtracks.
    Eels - Novocaine for the soul.
    58 min
  • Bómullarkynslóðin endurskoðuð og gervigreindarhæp
    Í dag ætlum við að líta um öxl og rifja upp eldri umfjallanir sem hafa staðið tímans tönn. Fyrst flytjum við pallborðsumræður sem við vorum með hér í Samfélaginu í september 2024 þar sem fjallað var um kynslóðir. Við fengum til okkar nokkra góða gesti af nokkrum kynslóðum, spjölluðum við þau um skilning þeirra á kynslóðarmun og meintan ríg milli kynslóða.
    Síðar í þættinum flytjum við viðtal við írskan gervigreindarsérfræðing sem við fluttum í mars árið 2025. Þar fjölluðum við um hugtakið gervigreindarhæp.
    55 min
  • Mannvæn mannvirki, læsi, lestur og svefnleysi
    Hvers vegna líður okkur oft ekki vel í byggða umhverfinu okkar? Þetta er spurning sem margir spyrja sig að þessa dagana, við í Samfélaginu þeirra á meðal. Við ætlum að halda áfram að fjalla um byggðarmál – í dag frá sjónarhorni arkítekta. Arnhildur Pálmadóttir arkítekt ætlar að setjast hjá okkur í upphafi þáttar til að ræða mannvæn mannvirki, sjálfbærar byggingaraðferðir, fagurfræði, nostalgíu, skipulagsmál, og ýmislegt fleira.
    Síðan ætlum að ræða lestur og læsi. Hver er munurinn á þessu tvennu? Hvað þarf til að geta lesið sér til gagns? Hvað vitum við í raun og veru um stöðu læsis og lesturs á Íslandi? Sigríður Ólafsdóttir, dósent á menntavísindasviði Háskóla Íslands, ætlar að segja okkur meira.
    Og í lok þáttar er það hið vikulega vísindaspjall. Edda Olgudóttir kíkir við og segir okkur frá nýlegum rannsóknum á áhrifum svefnleysis á heilann.
    1 hr
  • Jöklar, sveitarstjórnarkosningar og kynjakvótalögin
    Okjökull fyrrverandi og Hofsjökull eystri eru viðfangsefni vísindagreinar sem birtist nýverið í alþjóðlega vísindaritinu annals of glaciology. Því var lýst yfir fyrir tólf árum að Okjökull væri horfinn. Hofsjökull eystri tórir enn, en talið að hann muni hverfa að óbreyttu eftir þrjátíu og fimm til fjörutíu ár. Eyjólfur Magnússon frá Jarðfræðistofnun háskóla íslands og Hrafnhildur Hannesdóttir frá Veðurstofu Íslands eru meðal höfunda greinarinnar. Við spjöllum við þau í upphafi þáttar.
    Við hringjum síðan austur á land og heyrum í Jóni Birni Hákonarsyni, formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga. Sambandið er að fara af stað með átak til að auka þátttöku almennings í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Meira um það um miðbik þáttar.
    Við ræðum síðan jafnrétti kynjanna í lok þáttar. Í fyrra voru liðin fimmtán ár frá setningu laga um hlutföll kynja í stjórnum fyrirtækja. Þau fara fram á að hlutfall kvenna sé þar 40%. Ásta Dís Óladóttir prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og fleiri birtu grein á dögunum í ritinu Stjórnmál og stjórnsýsla. Þar er farið yfir þróun mála frá setningu laganna fyrir fimmtán árum, áhrif þeirra og viðhorf til frekari aðgerða. Ásta Dís ætlar að segja okkur frá niðurstöðunum á eftir.
    En fyrst eru það jöklarnir.
    Tónlist í þættinum:
    Right Down the Line - Bonnie Raitt
    Heat Lightning - Mitski
    55 min
  • Sjálfbærni, áhrif loftslagsbreytinga á hönnun samgönguinnviða og safn Annie Leifs
    Í dag ætlum við að taka púlsinn á sjálfbærnimálum. Stærsti sjálfbærniviðburður ársins er að nálgast, það er Janúarráðstefna Festu, miðstöðvar um sjálfbærni. Þema ráðstefnunnar í ár er umbreyting, en meðal annars verður fjallað um sjálfbærni á tímum geópólitískrar óvissu, loftslagsbreytinga og hraðrar tækniþróunar. Elva Rakel Jónsdóttir, framkvæmdastýra Festu, kíkir til okkar í upphafi þátta til að segja okkur meira.
    Gera þarf ráð fyrir loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra í hönnun samgönguinnviða hjá Vegagerðinni. Páll Valdimar Kolka Jónsson, verkefnisstjóri umhverfismála, segir að hluti af því sé að sætta sig við óvissu í hönnunarferlinu. Við fáum að heyra betur af því á eftir.
    Í lok þáttar heimsækjum við Þjóðskjalasafnið. Að þessu sinni ætlar Sigríður Hjördís Jörundsdóttir skjalavörður að sýna og segja frá safni sem kemur frá Annie Leifs, eiginkonu Jóns Leifs tónskálds, dætrum þeirra og fjölskyldu.
    1 hr

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners