Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Loðnuleiðangur Hafró og New European Bauhaus
    Fimm skip taka þátt í rannsóknarleiðangri Hafrannsóknastofnunar í næstu viku. Í honum á að kanna stöðu loðnustofnsins sem heldur til fyrir norðan landið þessa dagana. Niðurstöður verða nýttar til að veita ráðgjöf um hve mikla loðnu verður heimilt að veiða í ár. Loðnan er verðmætur fiskur og ríkir spenna fyrir niðurstöðunum. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir talar við Guðmund J. Óskarsson sviðsstjóra hjá Hafró um leiðangurinn og loðnuna sjálfa, sem er nokkuð frábrugðin öðrum fisktegundum sem við Íslendingar veiðum.
    New European Bauhaus er verkefni á vegum Evrópusambandsins þar sem markmiðið er að gera búsetuumhverfi borga og bæja sjálfbærara, fallegra og aðgengilegra. Hér á Íslandi eru byggingar og verkefni sem eru sagðar í anda New European Bauhaus, og sumir vonast jafnvel til þess að verkefnið geti lagað þau vandamál sem við erum að glíma við hér á Íslandi. En hvað er New European Bauhaus? Í dag fáum við til okkar tvo gesti frá félagssamtökunum Grænni byggð – sem taka þátt í verkefni sem tengist New European Bauhaus á Norðurslóðum – til að ræða þetta nánar. Það eru þær Katarzyna Jagodzinska framkvæmdastjóri og Elín Þórólfsdóttir stjórnarformaður Grænni byggðar.
    Tónlist:
    Bergman, Natalie - Shine Your Light On Me.
    Moses Hightower - Búum til börn.
    Parton, Dolly - These old bones.
    Girl in Red - Hemingway
    59 min
  • Fornverk í Höfnum, aðlögun að loftslagsbreytingum og sjálfstæði Grænlands og auðlindir
    Þegar Sveinn Enok Jóhannsson kom sér upp heimili í Höfnum á Reykjanesskaga vildi hann læra að hlaða og lagfæra gamlar hleðslur í garðinum sínum. Þegar það reyndist erfitt að komast á námskeið brá hann á það ráð að finna sérfræðing, halda sjálfur námskeið og bjóða öðrum að koma og læra með sér. Heyrum af þessu á eftir.
    Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur og pistlahöfundur Samfélagsins, flytur okkur pistil um miðbik þáttar. Í dag fjallar hann um hvað það kostar að aðlaga samfélagið að loftslagsbreytingum.
    Og í lok þáttar ætlum við að rifja upp viðtal sem var flutt hér í Samfélaginu í mars síðastliðnum. Þá, fyrir næstum því ári síðan, var Grænland í brennidepli vegna yfirlýsinga Bandaríkjaforseta um að leggja landið undir sig. Síðan þá hefur forsetinn margítrekað vilja sinn til að ná yfirráðum yfir Grænlandi, nú af meiri krafti en áður. Í þessu ljósi finnst okkur tímabært að rifja upp viðtal Arnhildar Hálfdánardóttur við Rachael Lornu Johnstone, prófessor í lögfræði og sérfræðing í þjóðarrétti við Háskólann á Akureyri og Illisimatursafik-háskóla á Grænlandi, um sjálfstæði Grænlands og auðlindir.
    Umsjón: Elsa María Guðlaugs Drífudóttir
    Tónlist í þættinum:
    Lovin' Feeling - French 79
    Secret Garden - Lamomali
    Fer sem fer - Moses Hightower
    No Reason - Big Thief
    Pivfit Nunat - Sumé
    59 min
  • Reglugerð um ljósvist, sniðganga og áhrif streitu á krabbameinsfrumur
    Ljósvist er nú í fyrsta sinn skilgreind í byggingarreglugerð og settar fram kröfur um ásættanleg birtuskilyrði í nýbyggingum. Mannvirkjahönnuðir þurfa þannig að sjá til þess að dagsljós sé ásættanlegt í vistarverum fólks og að skuggavarp og byggingamagn nýrra hverfa hamli því ekki. Ásta Logadóttir verkfræðingur hefur talað fyrir þessum breytingum á reglugerðinni um langt skeið og við ræðum við hana í upphafi þáttar.
    Um miðbik þáttar setjumst við niður með Ragnhildi Hólmgeirsdóttur og Hólmfríði Jónsdóttur frá íslensku sniðgönguhreyfingunni fyrir Palestínu. Þær ætla að segja okkur frá stöðu sniðgönguhreyfingarinnar í dag, þremur mánuðum eftir að vopnahlé tók gildi á Gaza.
    Og Edda Olgudóttir sest hér hjá okkur í vísindaspjall í lok þáttar. Hún ætlar að segja okkur frá áhrifum streitu á krabbameinsfrumur.
    Tónlist úr þættinum:
    Lisa Ekdahl - Vem vet.
    Khruangbin - People Everywhere (Still Alive).
    59 min
  • Surtseyjarrannsóknir og farsældarhyggja
    Surtseyjarfélagið gaf nýverið út ritið Surtsey Research í sextánda sinn. Ritið er safn vísindagreina um eyna, jarðfræði hennar og lífríki. Tíu manna handvalinn hópur heimsækir Surtsey í júlí ár hvert og sinnir þar rannsóknum sem síðar rata í ritið.
    Í þætti dagsins spjöllum við við Hólmfríði Sigurðardóttur formann Surtseyjarfélagsins og Bjarna Diðrik Sigurðsson ritstjóra Surtsey Research og gjaldkera félagsins.
    Og í lok þáttar ræðir Páll Líndal vellíðan og farsældarhyggju í sínum reglubundna pistli. En við byrjum á Surtseyjarrannsóknum.
    55 min
  • Menntamál, stúdentar og safn RÚV
    Kerfið hefur alfarið og algjörlega brugðist börnunum okkar sagði Inga Sæland formaður Flokks fólksins og nýorðinn mennta- og barnamálaráðherra um menntakerfið fyrir helgi. Orð Ingu hafa vakið mikla umræðu um málaflokkinn og eru ekki allir sammála um hvort þau máli rétta mynd af stöðunni. Sigrún Blöndal, kennari á Egilsstöðum finnst þau ekki endurspegla það sem hún sér í vinnunni á hverjum degi og vill minna á að á heildina litið gangi börnunum vel. Við spjöllum við Sigrúnu í upphafi þáttar.
    Og við höldum áfram að ræða menntamálin þegar Lísa Margrét Gunnarsdóttir, forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta, kemur til okkar. Hún ætlar að fara með okkur yfir það helsta í hagsmunabaráttu stúdenta, meðal annars rannsóknir á áhrifum námslánakerfisins á stúdenta.
    Helga Lára Þorsteinsdóttir hefur grafið upp gimstein úr lakkplötusafni RÚV til að spila fyrir okkur. Að þessu sinni er það ódagsett viðtal Baldurs Pálmasonar við Sigríði Eiríksdóttur hjúkrunarkonu.
    En við byrjum á menntamálunum.
    Umsjón: Pétur Magnússon og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir
    Tónlist:
    Lose control - VÖK
    Old moon - BSÍ
    1 hr
  • Konukot í nýju húsnæði, upplýsingaóreiða og gervigreind, Kvæðamannafélagið Iðunn
    Konukot, neyðarskýli fyrir heimilislausar konur, opnaði á nýjum stað í Ármúla í gær. Skýlið hafði verið til húsa í Eskihlíð í um tvo áratugi en nýja húsið er stærra og hentar betur þörfum starfseminnar. Þetta eru mikil tímamót fyrir Konukot og Rótina, félagssamtökin sem reka Konukot, og Kristín I. Pálsdóttir, framkvæmdastýra Rótarinnar ætlar að setjast hjá okkur í upphafi þáttar og segja okkur hvað þetta hefur í för með sér.
    En það er sífellt erfiðara að greina á milli hvers er satt og logið á samfélagsmiðlum; talað er um vaxandi upplýsingaóreiðu og hugtök eins og netsvik, falsfréttir og rangupplýsingar heyrast gjarnan í þessu samhengi og gervigreindin virðist bara ætla að gera illt verra. Haukur Brynjarsson, og Skúli Bragi Geirdal frá Netvís ætla að kíkja til okkar og fjalla um þetta.
    Og í lok þáttar ætlar Bára Grímsdóttir, formaður kvæðamannafélagsins Iðunnar, að heimsækja okkur og fara yfir kvæðamálin. Fyrsti viðburður ársins hjá félaginu verður haldinn í kvöld, þar sem gestir geta kveðist á og fræðst um forna vætti og lírukassa.
    Tónlist úr þættinum:
    Dina Ögon - Milton.
    Oyama hljómsveit - The Bookshop.
    David Bowie - Breaking Glass
    55 min
  • Endurhæfing kvenna í fangelsum og niðurstaða í stóra sundlaugarmálinu í Mývatnssveit
    Hópastarf gegnir lykilhlutverki í endurhæfingu kvenna í fangelsum. Í fangelsinu á Hólmsheiði eru haldin Konukvöld alla þriðjudaga þar sem tveir sjálfboðaliðar frá Rauða krossinum hitta konur í afplánun. Markmiðið er að efla tengsl, hæfni í samskiptum og draga úr félagslegri einangrun en margar konur í fangelsum hafa ekki áður fengið tækifæri til að læra heilbrigð samskipti eða byggja upp traust í öruggu umhverfi. Tinna Eyberg Örlygsdóttir, verkefnastjóri hjá Rauða krossinum í verkefninu Aðstoð eftir afplánun, ræðir þessi mál við okkur.
    Og síðan leiðum við til lykta mál sem við opnuðum fyrir meira en ári síðan, mál sundlaugarinnar í Reykjahlíð í Þingeyjarsveit sem var fjarlægð af óljósum ástæðum fyrir næstum því áratug síðan í óþökk íbúa á svæðinu. Í september 2024 fórum við norður til að fjalla um örlög sundlaugarinnar, en nú, meira en ári síðar, er loksins komin einhvers konar niðurstaða í málið. Við fjöllum meira um það í seinni hluta þáttar. En við byrjum á endurhæfingu kvenna í fangelsum.
    59 min
  • Gervigreind og vísindaspjall
    Við fáum heimsókn Ólaf Andra Ragnarsson, tölvunarfræðing, frumkvöðul og gervigreindarsérfræðing, sem hefur um margra áratuga skeið sinnt rannsóknum á nýjustu tækni og framtíð hennar. Undanfarið hefur hann, eins og margir aðrir, mest velt fyrir sér gervigreindinni, og meðal annars skrifað um hana vikuleg fréttabréf sem lesa má á Substack. Í lok síðasta árs og byrjun þess nýja skrifaði hann tvær greinar annars vegar um þróun gervigreindar árið 2025, sem var viðburðarríkt á því sviði, og hins vegar um framtíð gervigreindar, á árinu 2026 og lengra inn í framtíðina. Við ákváðum að nýta tækifærið og fara yfir málin, gríðarlega hraða þróunnar gervigreindar síðustu ár, lygilega innviðauppbyggingu sem tengist gervigreind, gervigreindarkapphlaup heimsvelda, stöðu Evrópu í gervigreindarmálum, og hvort gervigreindin sé búbbla. Við förum vítt og breitt í þætti dagsins með Ólafi Andra Ragnarssyni.
    Og í lok þáttar kom Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins með upprifjun á árinu 2025.
    Umsjón: Ástrós Signýjardóttir og Pétur Magnússon.
    Tónlist þáttarins:
    THE BEATLES - And Your Bird Can Sing.
    1 hr
  • Skiptar skoðanir um Kársnesstíg og það vinsælasta á Vísindavefnum árið 2025
    Aðgreindur hjóla- og göngustígur, Kársnesstígur, hefur verið tilefni umræðna meðal íbúa Kópavogs undanfarnar vikur. Stígurinn á að tengjast Fossvogsbrú, fyrstu stóru framkvæmdinni í fyrsta áfanga Borgarlínu, sem tengir vesturhluta Kópavogs og Reykjavíkur yfir Fossvog. Í nóvember samþykkti bæjarstjórn Kópavogs tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir stíginn, Kársnesstíg, sem kynnt var fyrir íbúum í lok sama mánaðar. Finnur Pálmi Magnússon, hjólreiðamaður, Kópavogsbúi og stjórnarmaður í Útivistarsamtökum Kársness, fór yfir kosti og galla nýs Kársnesstígs með okkur.
    Jón Gunnar Þorsteinsson, ritstjóri Vísindavefsins kíkti við í síðari hluta þáttar og sagði okkur hvað vakti mesta athygli á Vísindavefnum árið 2025. Þar var ýmislegt sem tengist samfélagsumræðunni á árinu en annað sem kom skemmtilega á óvart.
    Umsjón: Ástrós Signýjardóttir og Pétur Magnússon.
    Tónlist þáttarins:
    BENNI HEMM HEMM feat. RETRO STEFSON - FF ekki CC.
    LOU REED - Caroline Says II.
    Fleet Foxes - Helplessness Blues (#6 plata vikunnar (Helplessness Blues) maí 2011).
    59 min
  • Bandaríkin og alþjóðalög, textíl og einokunarverslun á 18.öld og Er ekki allt í lagi heima hjá þér?
    Á laugardag gerði Bandaríkjaher árásir á Venesúela og handsamaði forsetann, Nicolas Maduro. Búist er við því að Maduro komi fyrir dóm í New York í dag. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði Bandaríkin ætla að stýra landinu og að bandarísk fyrirtæki myndu endurreisa olíuiðnað landsins. Viðbrögð alþjóðasamfélagsins hafa verið alls konar – meðal annars hefur því verið haldið fram að árás Bandaríkjahers á Venesúela sé jafnframt árás á alþjóðaréttakerfið. Dr. Þórdís Ingadóttir, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík og forstöðumaður Alþjóða- og Evrópuréttarstofnun HR, ræddi stöðuna í alþjóðamálunum.
    Við heimsóttum Þjóðskjalasafn Íslands, þar sem Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður tók á móti okkur og sýndi okkur áhugaverð skjöl sem tengjast textíl og einokunarverslun á Íslandi á 18.öld.
    Um jólin var heimildaleikhúsverkið Er ekki allt í lagi heima hjá þér, um fjórar manneskjur sem ólust upp hjá móður með alvarlegan geðsjúkdóm, flutt á Rás 1. Umfjöllunarefni þáttanna hefur vakið athygli og Eva Rún Snorradóttir, leikstjóri og handritshöfundur verksins, ræddi við okkur um mikilvægi þess að opna umræðuna um geðræn veikindi og hvaða afleiðingar það hefur fyrir börn að alast upp með andlega veiku foreldri.
    Umsjón þáttar: Ástrós Signýjardóttir og Pétur Magnússon.
    Tónlist þáttar:
    Joni Mitchell - California.
    Crospy, Stills, Nash & Young - Helpless.
    1 hr

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners