Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Útrás jólabókaflóðsins, leikskólaheimsókn og púlsinn í desember
    Þessar vikurnar streyma nýútgefnar bækur í bókabúðir og verslanir um allt land í hinu svokallaða  jólabókaflóði . Hugtakið vísar til þess þegar nýjar bækur „flæða“ inn á markaðinn rétt fyrir jólin – þetta hugtak er að sjálfsögðu að löngu orðið rótgróið í íslenskri tungu, en á undanförnum árum hefur hugtakið „jólabókaflóð“ byrjað að skjóta upp kollinum á ólíkum tungumálum í erlendum fjölmiðlum. Branislav Bedi, verkefnastjóri hjá Árnastofnun, sest hjá okkur í upphafi þáttar til að segja okkur meira.
    Svo kíkjum við í heimsókn á leikskólann Hlíðarenda. Þar finnur starfsfólk fyrir spenningnum og tilhlökkuninni sem eykst hjá börnunum eftir því sem nær dregur jólunum. Sigrún Inga Reynisdóttir deildarstjóri segir mikilvægt að skapa rólegt umhverfi í kringum börnin í desember. Við fáum einnig að heyra í Unni, 5 ára, og Matthíasi Myrkva, 4 ára. Þau segja okkur allt um Grýlu, jólagjafir, jólasveina og syngja fyrir okkur jólalög.
    Þegar jólaösin er komin á fullt er mikilvægt að gefa sér tíma og staldra við. Það er auðvelt að gleyma sér í streitunni og því skiptir máli að nálgast jólahátíðina með ró, njóta góðra stunda og tengsla við fólkið í kringum sig. Sigrún Þóra Sveinsdóttir, doktor í lífeðlisfræðilegri sálfræði, kíkir til okkar í lok þáttar og gefur okkur góð ráð til að halda púlsinum niðri í jólaösinni. En við byrjum á jólabókaflóðinu.
    Tónlist úr þættinum:
    Simon and Garfunkel - The only living boy in New York.
    Stevens, Sufjan - Come on let's boogey to the elf dance.
    Boygenius - Powers.
    55 min
  • Sjálfbær jól, ríkisstyrktir ESB-pepparar, jólamálfar
    Hvernig höldum við umhverfisvæn og sjálfbær jól? Hvernig höldum við stresslaus jól? Þetta eru spurningar sem margir spyrja sig þessa dagana. Og við ætlum að reyna að svara þeim í dag, eða svona alla vega byrja að reyna að svara þeim. Þær Birgitta Stefánsdóttir og Þorbjörg Sandra Bakke, sem eru í teymi hringrásarhagkerfis hjá Umhverfis- og orkustofnun, koma til okkar í upphafi þáttar og gefa okkur góð ráð um sjálfbær og umhverfisvæn jól.
    Tvö félög hafa fengið fjárstyrk frá utanríkisráðuneytinu upp á tíu milljónir króna til að efla umræðu um kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu. Félögin tvö eru Evrópuhreyfingin og Heimssýn. Við vildum vita meira um þessar hreyfingar, sem gera má ráð fyrir að verði áberandi í umræðunni um Evrópumál á næstunni. Í þætti gærdagsins fengum við til okkar talsmann Heimssýnar, og í dag er það Evrópuhreyfingin.
    Og í lok þáttar fáum við umfjöllun um málfar – nánar tiltekið jólamálfar.
    Tónlist úr þættinum:
    Ólöf Arnalds - Bright and still.
    Marten, Billie - I Can't Get My Head Around You.
    Labi Siffre - The Vulture
    58 min
  • Fátækt, ríkisstyrktir ESB-anstæðingar og Omega-3
    Fátækt er talsvert algengari og dýpri meðal fólks af erlendum uppruna en hjá fólki með íslenskan bakgrunn. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu sem unnin var fyrir forsætisráðherra og er hluti rannsóknarverkefnis sem hófst árið 2022 um fátækt og áætlaðan samfélagslegan kostnað. Í niðurstöðukafla skýrslunnar segir að aukin hætta á fátækt meðal nýfluttra innflytjenda endurspegli samspil margra þátta. Skortur á félagslegu tengslaneti, tungumálahindranir og misræmi milli menntunar og krafna íslensks vinnumarkaðar geti aukið líkur á fátækt. Halldór S. Guðmundsson, prófessor við félagsráðgjafadeild, kemur til okkar og ræðir við okkur um niðurstöður skýrslunnar.
    Í gær var greint frá því að tvö félög myndu fá fjárstyrk frá utanríkisráðuneytinu til að efla umræðu um kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu. Félögin tvö eru Evrópuhreyfingin og Heimssýn, og næstu tvo daga ætlum við að fjalla um þessar hreyfingar sem gera má ráð fyrir að verði áberandi í umræðunni um Evrópumál á næstunni.
    Og í lok þáttar kemur Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins, til okkar. Í dag ætlar hún að tala um Omega-3 fitusýrur og hvers vegna þær eru mikilvægar.
    Tónlist úr þættinum:
    HJÁLMAR & DJ FLUGVÉL OG GEIMSKIP - Tilvonandi vor.
    STEVIE WONDER - Sir Duke.
    59 min
  • Fátækt er talsvert algengari og dýpri meðal fólks af erlendum uppruna en hjá fólki með íslenskan bakgrunn. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu sem unnin var fyrir forsætisráðherra og er hluti rannsóknarverkefnis sem hófst árið 2022 um fátækt og áætlaðan samfélagslegan kostnað. Í niðurstöðukafla skýrslunnar segir að aukin hætta á fátækt meðal nýfluttra innflytjenda endurspegli samspil margra þátta. Skortur á félagslegu tengslaneti, tungumálahindranir og misræmi milli menntunar og krafna íslensks vinnumarkaðar geti aukið líkur á fátækt. Halldór S. Guðmundsson, prófessor við félagsráðgjafadeild, kemur til okkar og ræðir við okkur um niðurstöður skýrslunnar.
    Í gær var greint frá því að tvö félög myndu fá fjárstyrk frá utanríkisráðuneytinu til að efla umræðu um kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu. Félögin tvö eru Evrópuhreyfingin og Heimssýn, og næstu tvo daga ætlum við að fjalla um þessar hreyfingar sem gera má ráð fyrir að verði áberandi í umræðunni um Evrópumál á næstunni.
    Og í lok þáttar kemur Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins, til okkar. Í dag ætlar hún að tala um Omega-3 fitusýrur og hvers vegna þær eru mikilvægar.
    Tónlist úr þættinum:
    HJÁLMAR & DJ FLUGVÉL OG GEIMSKIP - Tilvonandi vor.
    STEVIE WONDER - Sir Duke.
    55 min
  • Átak UN Women gegn kynbundnu, stafrænu ofbeldi og þættir um birtingarmyndir fötlunar í menningu og listum
    16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi er alþjóðleg herferð UN Women sem stendur ár hvert frá 25. nóvember til 10. desember. Herferðin tengir saman alþjóðlegan baráttudag Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi og alþjóðlegan mannréttindadag Sameinuðu þjóðanna. Í ár, þegar 30 ár eru liðin frá undirritun Peking-sáttmálans, er athyglinni beint að stafrænu ofbeldi gegn konum og stúlkum. Sara McMahon, kynningarstjóri UN Women á Íslandi, settist niður með mér í morgun og ræddi við mig um stöðuna, áhyggjuefnin og framtíðina.
    Síðustu helgi hóf ný þáttaröð göngu sína á Rás 1 sem heitir Fatlist – í þáttunum fjalla Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir og Heiða Vigdís Sigfúsdóttir um birtingarmyndir fötlunar í menningu og listum og kafa ofan í sögu fötlunar, skilgreiningar hennar og hvaða mynd listin dregur upp af fötluðu fólki. Í seinni hluta þáttar ætla Kolbrún Dögg og Heiða Vigdís að setjast hjá okkur og segja okkur meira um Fatlist – en byrjum á alþjóðlegri herferð UN Women.
    Umsjón: Ástrós Signýjardóttir og Pétur Magnússon.
    Tónlist þáttarins:
    Marvin Gaye - Yesterday
    59 min
  • COP30 gert upp og helgidagabrot
    Síðustu vikur hafa hlustendur Samfélagsins heyrt pistla frá Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur, formanni Landverndar, og Lauru Sólveigu Leffort Scheefer, forseta Ungra umhverfissinna. Þær tóku þátt í COP-30, loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Belem í Brasilíu og í pistlum sínum sögðu þær frá dvöl sinni í Belem sem og því sem bar hæst á ráðstefnunni, sem var heldur tíðindamikil í ár. Þær Þorgerður og Laura ætla að setjast hjá okkur í upphafi þáttar og gera upp dvöl sína þar og fara nánar út í helstu atburði og niðurstöður COP-30.
    Við förum svo í okkar reglulegu heimsókn í Þjóðskjalasafnið og hittum þar Ragnhildi Önnu Kjartansdóttur, skjalavörð. Hún ætlar að segja okkur frá helgidagabrotum sem voru framin á 17. og 18. öld ásamt jóladagatali safnsins. En við byrjum á COP-30.
    59 min
  • Opið hús í Hússtjórnarskólanum, 60 ára afmæli skólakórs Öldutúnsskóla og jólatré hjá Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar
    Við verðum á faraldsfæti í þætti dagsins.
    Við hefjum þáttinn með heimsókn í Hússtjórnarskólann, sem er staðsettur á Sólvallagötu í Reykjavík. Skólinn hefur starfað óslitið frá árinu 1942. Ég kíkti í skólann í gær og ræddi þar við Mörtu Maríu Arnarsdóttur, skólameistara, um námið og hið árlega opna hús sem er í skólanum á morgun. Á ferð okkar Mörtu Maríu um skólann hittum við fleiri kennara sem deildu með okkur ýmsu áhugaverðu.
    Frá Sólvallagötunni höldum við svo í Hafnarfjörð en skólakór Öldutúnsskóla fagnar 60 ára starfsafmæli í ár, en kórinn var stofnaður árið 1965. Í gegnum árin hefur kórinn ferðast víða og sungið á fjölda tónleika en á sunnudaginn er komið að árlegum jólatónleikum kórsins í Hafnarfjarðarkirkju. Kórinn var við æfingar í gær, ég kíkti við og hlýddi á undurfagran barnasöng og ræddi við Brynhildi Auðbjargardóttur, kórstjóra, en hún var sjálf í kórnum sem barn.
    Frá barnasöngnum höldum við svo í Skógræktarfélag Hafnarfjarðar og hittum Steinar Björgvinsson, framkvæmdastjóra en þar á bæ eru allir að undirbúa sig fyrir sölu jólatráa. Steinar segir okkur allt um meðhöndlun jólatrjáa og af hverju stafafuran er uppáhalds lifandi jólatré Íslendinga.
    Umsjón: Ástrós Signýjardóttir.
    Tónlist þáttarins:
    Saman - Lay Low og Ragnheiður Gröndal
    58 min
  • Hvatalaus hugverkaiðnaður, eitraðar rúsínur og einhverfa fullorðinna
    Í dag fjöllum við um hugverkaiðnaðinn og þau hvatakerfi sem ætlað er að styðja rannsóknir og þróun hjá íslenskum fyrirtækjum. Nokkur óánægja hefur verið með þessi mál og einhver fyrirtæki hafa hótað því að sækja stuðning út í heim og jafnvel flytja starfsemina úr landi. Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa, ætlar að kíkja til okkar og ræða þessi mál í upphafi þáttar.
    Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur verður með okkur eins og venja er á hálfsmánaðarfresti. Í dag ætlar hann að fjalla um rúsínur og aukna notkun þeirra nú þegar jólin nálgast.
    Starfshópur á vegum félags- og húsnæðismálaráðherra skilaði í byrjun október af sér skýrslu um málefni fullorðinna einhverfra. Starfshópnum var falið að greina stöðu og þjónustu fullorðinna einhverfra á Íslandi, meta þörf á aðkomu hins opinbera og leggja fram tillögur til úrbóta. Einhverfusamtökin gera nokkrar athugasemdir við skýrslu starfshópsins. Valdís Guðmundsdóttir er í stjórn samtakanna og ætlar að deila með okkur sínum hugleiðingum. En byrjum á hugverkaiðnaðinum.
    59 min
  • Blái herinn, fuglatalningar að vetrarlagi og glúteinóþol
    Umhverfisverndarsamtökin Blái herinn fagna 30 ára afmæli í ár. Herinn hefur lagt áherslu á baráttuna við plastmengun í hafinu með hreinsunarstörfum, hvatningu og vitundarvakningu. Tómas J. Knútsson, stofnandi Bláa hersins, ætlar að setjast með okkur í upphafi þáttar og fara aðeins yfir starfsemi samtakanna og ræða hvað er fram undan hjá Bláa hernum.
    Sjötíu ár eru frá því byrjað var að telja fugla að vetrarlagi og er markmið talninganna að kanna fjölda og dreifingu einstakra tegunda í mismunandi landshlutum.
    Náttúrufræðistofnun hefur um langt skeið skipulagt fuglatalningar áhugamanna sem sinna þeim í sjálfboðavinnu um áramótin. Talningasvæðin eru dreifð um láglendi um allt land en flest eru við sjávarsíðuna þar sem flestra fugla er von á þessum árstíma. Aldís Erna Pálsdóttir, fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, kíkir til okkar og segir okkur allt um fuglatalningar og hverjir geta orðið sjálfboðaliðar.
    Í lok þáttar kemur Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins, til okkar í sitt vikulega spjall. Í dag ætlar hún að fræða okkur um glútenóþol. En við byrjum á Bláa hernum.
    Tónlist úr þættinum:
    Johnson, Jack - Only the ocean.
    Ritt Momney - Put Your Records On.
    Beatles, The - Ob-la-di, ob-la-da.
    55 min
  • Munnheilsa Freuds, nýji Landspítalinn og SARS-CoV-2
    Í dag köfum við ofan í heilbrigðisvísindasöguna – og tökum fyrir sjúkrasögu Sigmundar Freud, föður nútímasálgreiningar, sem gekkst undir meira en 30 skurðaðgerðir og geislameðferð á 16 ára tímabili vegna þess sem talið var vera munnkrabbamein. Svend Richter, fyrrverandi dósent við Tannlæknadeild Háskóla Íslands og ritstjóri Tannlæknablaðsins, kíkir til okkar í upphafi þáttar til að ræða þetta og tilgátur um hvort veikindi Freuds hafi mátt rekja til vindlareykinga eða kókaínneyslu.
    Páll Líndal umhverfissálfræðingur flytur okkur sinn reglulega hálfsmánaðarlega pistil. Í dag ætlar hann að deila með okkur skoðunum sínum á byggingu Nýs Landspítala.
    Og í lok þáttar fáum við til okkar Arnar Pálsson, erfðafræðing við Háskóla Íslands, sem er orðinn hálfgerður fastagestur hér í Samfélaginu. Hann ætlar að segja okkur frá því hvernig SARS-CoV-2-veiran, sem olli covid-faraldrinum, hefur þróast og breyst síðan faraldurinn reið yfir. Er covid núna bara kvefpest? Getur samband okkar við þessa veiru sagt okkur eitthvað um hvernig við hugsum um flókin vísindaleg fyrirbæri. Meira um þetta í síðari hluta þáttarins.
    Tónlist í þættinum:
    Una Torfadóttir - Það sýnir sig.
    DOLLY PARTON - Just When I Needed You Most.
    Bob Dylan - Oxford Town.
    58 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners