Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Gervigreind í skólum, Fullveldisdagurinn 1956 og barnagælur
    Fyrir þremur árum, í nóvember 2022, var spunagreindarforritið ChatGPT frá OpenAI opnað almenningi. Þessi viðburður leysti úr læðingi eiginlega sprengingu í notkun spunagreindar – og þar voru skólar alls ekki óhultir. En hvernig hafa skólar tekist á við þessa þróun? Og enn fremur; hvernig ættu þeir að takast á við þessa þróun? Tryggvi Thayer, aðjúnkt í upplýsingatækni, nýsköpun og miðlun við HÍ og ræðir þetta við okkur í upphafi þáttar.
    En í dag er Fullveldisdagurinn og 107 ár frá því að Sambandslögin voru samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þessi tímamót fara að sjálfsögðu ekki fram hjá safnstjóra Ríkisútvarpsins, henni Helgu Láru Þorsteinsdóttur, sem ætlar að kíkja við seinna í þættinum og reiða fram upptökur úr safni RÚV sem tengjast þessum degi.
    Í dag er líka dagur íslenskrar tónlistar – og við ætlum að rifja umfjöllun samfélagsins um barnagælur og vögguvísur, sem var fyrst flutt fyrir um það bil ári síðan.
    55 min
  • Byggðarfesta og Hjálparkokkar
    Leiðir til byggðafestu var yfirskrift verkefnis sem kláraðist á dögunum. Þar var leitað leiða til að efla byggð á þeim landsvæðum sem mest eiga undir sauðfjárrækt, í Dölum, Ströndum, Reykhólasveit og á Norðurlandi vestra. Unnin var greining á tækifærum til að efla byggð í þessum sveitum og síðar unnið að tillögum til úrbóta regluverks og staðið fyrir fræðslu heimamanna. Hlédís Sveinsdóttir og Björn Bjarnason stýrðu verkefninu, þau setjast hjá okkur í upphafi þáttar og segja okkur nánar frá því.
    Hver jól njóta mörg hundruð börn góðs af starfsemi Hjálparkokka, félagssamtaka sem aðstoða fátækar fjölskyldur að kaupa jólagjafir handa börnunum sínum. Hildur Oddsdóttir og Birna Kristín Sigurjónsdóttir, formaður og varaformaður Hjálparkokka, setjast hjá okkur seinna í þættinum til að segja okkur meira um starfsemi Hjálparkokka.
    51 min
  • Gervigreindarbólan og Kvikyndaþing
    Þingkonan Alexandria Ocasio-Cortez hefur varað við því að bandaríska hagkerfið standi frammi fyrir mögulegri gervigreindarbólu. Hún bendir á að gríðarleg fjárfesting í innviðum gervigreindar hvíli á fáum stórfyrirtækjum og að kerfið byggi um of á væntingum um arðsemi, sem enginn viti hvort standist. Við ætlum að ræða þetta við Eyrúnu Magnúsdóttur, gervigreindarfréttaritara Samfélagsins, hér í upphafi þáttar.
    En við ætlum líka að fjalla um kvikmyndir. Í gær var haldið kvikmyndaþing í Bíó Paradís – þar var staðan tekin á íslenska kvikmyndaiðnaðinum. Yfirskrift þingsins var Verðmætasköpun og menningarspegill – tækifærin í íslenskri kvikmyndagerð. Anton Máni Svansson, formaður Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda, og Hrönn Sveinsdóttir, formaður félags kvikmyndaleikstjóra, setjast hjá mér seinna í þættinum til að ræða tækifæri í íslenskri kvikmyndagerð, stöðu kvikmyndaiðnaðarins á Íslandi og annað sem fjallað var um á kvikmyndaþingi.
    Tónlist úr þættinum:
    Apple, Fiona - Paper bag.
    Wilco - I'm the man who loves you.
    59 min
  • Stúdíó Síló á Stöðvarfirði, óæskileg fjarskipti og meira um Rosalind Franklin
    Í dag fjöllum við um hvernig ódýr raftæki sem keypt eru á netverslunum geta spillt síma- og netsambandi og jafnvel valdið sambandsleysi. Við rifjum líka eitt helsta dramamál sameindalíffræðinnar, sem tengist meðal annars vísindakonunni Rosalind Franklin. En við byrjum á þessu: Á Stöðvarfirði á Austufjörðum, í húsakynnum Sköpunarmiðstöðvarinnar, sem áður var fiskvinnsla þorpsins, er rekið eitt áhugaverðasta hljóðver landsins. Stúdíó Síló. Ég þar leið hjá nýverið og fékk að kíkja í heimsókn – og fékk í kjölfarið Vinny Wood, sem rekur stúdíó Síló, í viðtal til að segja mér meira frá hljóðverinu og hvernig það er að halda úti stúdíói í litlu þorpi á Austfjörðum, þar sem ekki einu sinni er matvöruverslun. Við byrjum þar.
    Tónlist úr þættinum:
    BSÍ - Þar ert þú<33.
    57 min
  • Netglæpir, stórir verslunardagar og Kaffistofa Samhjálpar
    Síðustu tveir mánuðir ársins eru tími stórra verslunardaga – og margir kætast yfir því – en á þessum tíma árs herja líka netþrjótar á einstaklinga og reyna að nýta sér kaupgleði og kæruleysi þeirra til að svíkja út úr þeim pening. Guðrún Valdís Jónsdóttir, forstöðumaður ráðgjafarsviðs hjá Syndis, ætlar að setjast hjá okkur í upphafi þáttar til að segja okkur meira um netglæpi á þessum tíma árs og hvernig skal forðast þá.
    Kaffistofa Samhjálpar hefur verið í fréttum síðustu daga. Stofnunin missti nýlega húsnæði sitt til 20 ára í Borgartúni og til stendur að opna hana aftur í húsnæði á Grensásvegi. Starfsemin átti að hefjast á ný 1. desember, en framkvæmdir við húsnæðið hafa verið stöðvaðar í óákveðinn tíma á meðan grenndarkynning fer fram. Við fjöllum meira um það á næstunni – en fyrir ári síðan heimsóttum við í Samfélaginu kaffistofuna í Borgartúni til að fá innsýn inn í starfsemina og í ljósi umræðna um Kaffistofuna ætlum við að rifja upp þessa heimsókn. Bregðum okkur í Borgartúnið, þann 11. desember 2024.
    Tónlist úr þættinum
    Drake, Nick - River Man
    Mulvey, Nick - Fever to the form
    59 min
  • ADHD hjá konum, lokasprettur COP30 og draugaskipið Jamestown
    ADHD-samtökin gáfu á dögunum út nýjan fræðslubækling sem nefnist „Stúlkur, konur og ADHD.“ Honum er ætlað að varpa ljósi á stöðu stúlkna og kvenna með ADHD og hvernig ADHD hefur áhrif á líf þeirra. Birtingarmyndir ADHD koma fram með öðrum hætti hjá stúlkum og drengjum sem iðulega gerir það að verkum að umhverfið áttar sig ekki á þeim erfiðleikum sem stúlkur og konur glíma við dag hvern. Þær Inga Arons og Elín H. Hinriksdóttir settust niður með mér í morgun og sögðu mér allt um ADHD hjá konum.
    Laura Sólveig Lefort Scheefer, formaður ungra umhverfissinna, og Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, hafa fært okkur reglulega pistla um framgang mála á COP30 loftslagsráðstefnunni í Brasilíu. Nú er komið að síðasta pistlinum. Í dag fáum við að heyra af lokaspretti ráðstefnunnar þar sem ríki reyndu að koma sér saman um tillögur að vegvísi til að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis.
    Og í lok þáttar kíkjum við líka í heimsókn í Þjóðskjalasafn Íslands, eins og við gerum reglulega, til að grúska í skjölum. Í dag hittum við Helga Valdimar Viðarsson Biering, sérfræðing, til að rýna í skjöl sem tengjast strandi draugaskipsins Jamestown á Suðurnesjum árið 1881.
    Umsjón: Ástrós Signýjardóttir og Pétur Magnússon.
    Tónlist þáttar:
    Maria Bethania - Sonho meu
    57 min
  • Hátíðarvandi, eldsvoði á COP30 og svellið á Ingólfstorgi
    Hátíðirnar geta verið tími gleði og eftirvæntingar fyrir mörg en fyrir önnur getur tíðin verið uppspretta streitu og álags. Hilja Guðmundsdóttir frá Mental ráðgjöf ætlar að kíkja til okkar í upphafi þáttar og spjalla við okkur um hvers vegna hátíðirnar geta kallað fram aukið álag og vanlíðan hjá mörgum og hvernig slíkt birtist. Hilja gefur okkur einnig góð ráð til að draga úr streitu og bæta líðan.
    Laura Sólveig Lefort Scheefer, formaður ungra umhverfissinna, og Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, eru í Belém í Brasilíu á COP30-loftslagsráðstefnunni. Þær hafa fært okkur reglulega pistla um framgang mála á þessum stærsta loftslagsviðburði heims síðustu vikur – og þar er af nógu að taka – í dag segir Laura Sólveig okkur frá kapphlaupinu að lokadrögum ráðstefnunnar og eldsvoða sem varð á ráðstefnusvæðinu í gær.
    Ljósadýrð og gleði verður í fyrirrúmi við Ingólfstorg líkt og síðustu ár í aðdraganda jólanna en Novasvellið mun opna í ellefta sinn í miðborginni í kvöld. Skautasvellið er löngu orðið ómissandi þáttur í undirbúningi jólanna og er opið jólabörnum á öllum aldri alla aðventuna. Sigurbjörn Ari Sigurbjörnsson, markaðsstjóri Nova, ætlar í lok þáttar að segja okkur allt um dagskrána á Ingólfstorgi í Desember.
    57 min
  • Nóbelsverðlaunahafinn umdeildi James Watson, Rosalind Franklin og COP30
    Í dag köfum við í erfðafræði og vísindasagnfræði – nóbelsverðlaunahafinn James Watson, sem hlaut nóbelinn árið 1962, ásamt þeim Francis Crick og Maurice Wilkins, fyrir uppgötvanir sem tengdust uppbyggingu DNA – lést á dögunum. Hann var síðasti eftirlifandi meðlimur þessa þríeykis. En ferill þessa merkilega manns er áhugaverður og gríðarlega umdeildur – í dag setjumst við niður með Arnari Pálssyni erfðafræðingi við Háskóla Íslands til að setja feril hans í samhengi og átta okkur á hvað hann getur sagt okkur um stöðu erfðafræðinnar og jafnvel vísindanna í nútímasamfélagi.
    Við fáum líka pistil frá Stefáni Gíslasyni, föstum pistlahöfundi Samfélagsins. Í dag veltir hann fyrir sér COP30-loftslagsráðstefnunni, sem – eins og hlustendur Samfélagsins vita vel – fer fram þessa dagana í Belem í Brasilíu.
    Tónlist úr þættinum:
    Marling, Laura - Patterns.
    Stereolab - The free design.
    Nick Drake - Hazey Jane I
    55 min
  • Menningarfordómar, málefni flóttafólks í Árborg og COP senn á enda
    Í gær hélt Félagsráðgjafafélag Íslands áhugavert málþing um fjölmenningarfélagsráðgjöf – þar voru haldin fjölmörg áhugaverð erindi en Samfélagið var á staðnum og ræddi við nokkur þeirra sem stigu á stokk. Sema Erla Serdaroglu, aðjúnkt í tómstunda- og félagsmálafræði á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, sagði þar frá nýjum rannsóknum um menningarfordóma og við ræðum þær við hana.
    Anna Katarzyna Wozniczka, verkefnastjóri í málefnum flóttafólks í Árborg, og Lena Rut Guðmundsdóttir, sérfræðingur í málefnum flóttafólks í Árborg, settust líka niður með okkur til að ræða þróunarverkefnið „Vitundarvakning um málefni flóttafólks í nærsamfélagi“ í Sveitarfélaginu Árborg.
    Þorgerður María Þorbjarnardóttir formaður Landverndar og Laura Sólveig Lefort Scheefer, formaður ungra umhverfissinna, eru í Belém í Brasilíu á COP-loftslagsráðstefnunni. Þær hafa fært okkur reglulega pistla um framgang mála á þessum stærsta loftslagsviðburði heims. Nú er COP senn á enda og lokaspretturinn farinn af stað. Þorgerður María segir okkur meira.
    Og í lok þáttar fáum við til okkar Eddu Olgudóttur, vísindamiðlara Samfélagsins, í hið vikulega vísindaspjall.
    57 min
  • Sérfræðingar nota gervigreind, Batahús fimm ára, húsnæðismál og heilbrigði
    Nýlega var sagt frá því í fréttum að samkvæmt rannsókn stéttarfélagsins Visku noti 80% sérfræðinga á vinnumarkaði gervigreind í starfi. Þá segir meirihluti þeirra að gervigreind auki afköst í starfi – en við vildum vita meira? Hvernig er gervigreindin notuð? Hvernig eykur hún afköst? Ástrós Signýjardóttir sest niður með Vilhjálmi Hilmarssyni, hagfræðingi hjá Visku, í lok þáttar til að ræða þessa áhugaverðu könnun.
    Við fáum líka pistil frá Páli Líndal, umhverfissálfræðingi og föstum pistlahöfundi Samfélagsins.
    En fyrst þetta: Batahús fagnar fimm ára afmæli um áramótin. Tilgangur félagsins er að aðstoða þá sem hafa lokið afplánun fangelsisdóma til að komast út í samfélagið að nýju eftir að hafa lokið afplánun, með fræðslu, útvegun atvinnu og húsaskjóli. Agnar Bragason, forstöðumaður Batahúss karla, kíkir til okkar til að ræða starfsemi Batahúss.
    Tónlist úr þættinum:
    ANDERSON .PAAK & SMOKEY ROBINSON - Make It Better.
    MANIC STREET PREACHERS - A Design for Life.
    KUSK - Sommar
    59 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners