Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Tímamótarannsókn á plönturíki Surtseyjar, mótmæli á COP30, Listkynning í skólum
    Það er ekki oft sem íslensk grasafræðirannsókn vekur athygli heimspressunnar, en í dag ræðum við rannsókn sem gerði einmitt það. Pawel Wasowicz, grasafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, hefur unnið við rannsóknir á Surtsey í rúman áratug og segir okkur frá niðurstöðum rannsókna sem gætu breytt viðteknum kenningum um hvernig plöntur ferðast langar vegalengdir.
    Þorgerður María Þorbjarnardóttir formaður Landverndar og Laura Sólveig Lefort Scheefer, formaður ungra umhverfissinna, eru í Belém í Brasilíu á COP-loftslagsráðstefnunni. Þær færa okkur reglulega pistla um framgang mála á þessum stærsta loftslagsviðburði heims. Í dag eru mótmæli, fuglalíf og lokasprettur samningaviðræðna.
    Og Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, sest hjá okkur í lok þáttar. Hún ætlar – eins og venjan er hér í Samfélaginu annan hvern mánudag – að líta um öxl og varpa ljósi á gullmola úr safni Ríkisútvarpsins.
    Tónlist úr þættinum:
    boygenius - Not Strong Enough.
    ELIS REGINA & ANTONIO CARLOS JOBIM - Aguas de Marco.
    Joan Baez - Simple Twist of Fate
    57 min
  • Fríðbúð í Gerðubergi, Jólaþorpið í Hafnarfirði og vegurinn til Belém
    Í dag heimsækjum við Gerðuberg í Breiðholti – þar er rekin áhugaverð verslun þar sem allt er ókeypis. Hver sem er getur komið við og tekið hluti úr hillum eða skilið eftir hluti sem aðrir geta tekið með sér heim. Ég heimsótti verslunina í vikunni og ræddi við verslunarstjórann og nokkra viðskiptavini.
    Við fáum líka þriðja pistilinn í örpistlaröð Þorgerðar Maríu Þorbjarnardóttur og Láru Sólveigar Lefort Scheefer – sem eru í Belem í Brasilíu á COP-loftslagsráðstefnunni. Í dag segir Lára okkur frá brösugri Brasilíuferð sinni og fyrstu dögum ráðstefnunnar.
    En við byrjum á Jólaþorpinu í Hafnafriði, sem opnar á Thorsplani í dag. Hluti miðbæjarins breytist í göngugötu á meðan jólaþorpið er opið, en þorpið hefur vaxið ár frá ári og nýtur vinsælda bæði meðal Hafnfirðinga og annarra. Þær Árdís Ármannsdóttir sviðsstjóri og Sunna Magnúsdóttir verkefnastjóri, báðar hjá Hafnarfjarðarbæ, kíkja til okkar.
    Tónlist frá útsendingarlogg 2025-11-14
    JFDR - White sun.
    Maria Somerville - Garden.
    Artur Verocai - Na Boca do Sol.
    Cole Davis - I Want You Gone (ásamt Bon Iver).
    55 min
  • Máltæknifyrirtæki kaupir orðabók og staður árins
    Svæðið við Elliðaárstöð í Elliðaárdal iðar nú af lífi árið um kring. Áður var þar afvikið iðnaðarsvæði en nú hefur svæðið verið endurhannað með almenningsrýmum, útisvæði, gestastofu og veitingastað. Gamlar byggingar hafa fengið nýtt hlutverk og saga svæðisins er vel varðveitt. Ástrós Signýjardóttir kíkti við og hitti Brynhildi Pálsdóttur, vöruhönnuð, sem er ein af þeim sem stóð að endurhönnun Elliðaárstöðvar og hlutu Hönnunarverðlaun Íslands í ár.
    Við erum að ræða við Lindu Heimisdóttur, framkvæmdarstjóra máltæknifyrirtækisins Miðeindar. Miðeind heldur úti ýmsum máltæknitólum – Málfríður er yfirlestrartól, Hreimur sinnir talgreiningu og skjátextun og Erlendur getur hjálpað notendum með þýðingar – svo eitthvað sé nefnt. En nýlega bárust þær fregnir að Miðeind hefði fest kaup á veforðabókaþjónustunni og uppflettiritinu Snöru – sem áður var í eigu Forlagsins. Við byrjum þar – rýnum aðeins í þessi kaup og fleira sem er framundan hjá máltæknifyrirtækinu Miðeind.
    Tónlist úr þættinum:
    Róshildur - Tími, ekki líða.
    Latínudeildin, Rebekka Blöndal - Svo til.
    Baker, Julien, Torres - Bottom of a Bottle.
    55 min
  • Hjúkrunarheimilið Fellsendi, opnun og mótmæli á COP30 og virkni lyfs við Alzheimer
    Í þætti dagsins bregðum við okkur Vestur. Á Fellsenda í Dölum er rekið hjúkrunarheimili. Staðsetningin er óvenjuleg því heimilið er í dreifbýli. Það var stofnað árið 1968 og átti að vera heimili fyrir aldraða dalamenn en þegar til kastanna kom reyndist ekki nóg af þeim. Það var því ákveðið að bjóða geðfatlað fólk velkomið þangað. Síðan þá hefur allur húsakostur verið endurnýjaður og í dag er þar rekið heimili fyrir geðfatlaða sem á sér fáa sína líka hérlendis. Gréta Sigríður Einarsdóttir, fréttamaður á Vesturlandi, heimsótti fellsenda á dögunum og fékk að heyra meira um starfsemina.
    Við fáum líka annað póstkort frá Belém í Brasilíu. Þorgerður María Þorbjarnardóttir er á COP30-loftslagsráðstefnunni þar í bæ – og segir okkur í dag frá opnunarræðum ráðstefnunnar, hverfulu veðri og mótmælum sem geysuðu á ráðstefnusvæðinu.
    Og í lok þáttar kemur Edda Olgudóttir, vísindamiðlari þáttarins, til okkar í sitt reglulega vísindaspjall. Í dag ætlar hún að segja okkur frá virkni á lyfi gegn Alzheimer sjúkdómnum. En við byrjum í dölunum.
    Umsjón þáttar: Ástrós Signýjardóttir og Pétur Magnússon.
    Tónlist þáttarins:
    Howard, Ben - Couldn't Make It Up.
    GILBERTO GIL - Miserere Nóbis.
    Snorri Helgason - Torfi á orfi.
    Cain, Ethel, Hausswolff, Anna Von - Aging Young Women (feat. Ethel Cain).
    58 min
  • Tækniframfaratrú, vara ársins og uppnám í bresku konungsfjölskyldunni
    Fjallahjólið Elja var nýverið valið vara ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands. Hjólið er uppfinning frá fyrirtækinu Lauf Cycles – og við fáum til okkar í dag Berg Benediktsson, verkfræðing og starfsmann fyrirtækisins – sem ætlar að segja okkur frá þessu hjóli og fyrirtækinu, sem hóf starfsemi sína í bílskúr í Grafarvogi.
    Andrés fyrrverandi prins verður hér eftir þekktur sem Andrew Mountbatten Windsor eftir ákvörðun Karls Bretakonungs um að svipta bróður sinn tign, titlum og heiðursnafnbótum. Í yfirlýsingu, sem birtist í síðustu viku, segist Andrew hafa tekið ákvörðunina í samráði við Karl Bretakonung, sína nánustu fjölskyldu og stórfjölskylduna, vegna áframhaldandi ásakana sem dragi athyglina frá vinnu konungsins og konungsfjölskyldunnar. Guðný Ósk Laxdal, sérfræðingur í konungsfjölskyldum, ætlar að leiða okkur í gegnum stöðu bresku konungsfjölskyldunnar.
    Og í lok þáttar fáum við til okkar Bergsvein Bergsveinsson rithöfund til að ræða tækniframfaratrú, samfélagsmiðla og gervigreind – viðfangsefni sem hann fjallaði um á málþingi í Reykjavíkurakademíunni í síðustu viku. — en við byrjum á vöru ársins.
    Umsjón: Ástrós Signýjardóttir og Pétur Magnússon.
    Tónlist þáttarins:
    Nick Drake - Pink moon.
    Prins Póló - Fallegi smiðurinn.
    Bríet - Until then
    58 min
  • Netöryggi og gervigreind, pistill frá COP30 og heimsókn á Þjóðskjalasafnið
    Vankunnátta þegar kemur að gervigreind kostar fyrirtæki dýrmæt tækifæri og fjármuni og fyrir almenning er þekking á netöryggi nauðsynleg t.a.m. varðandi vernd persónulegra upplýsinga. Þær Saga Úlfarsdóttir og Vigdís Helga Eyjólfsdóttir ætla að koma til okkar og fræða okkur um gervigreind og netöryggi.
    Næstu vikur fáum við hér í Samfélaginu póstkort frá Brasilíu. Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar og Lára Sólveig Lefort Scheefer, forseti ungra umhverfissinna eru í brasilísku borginni Belém á COP30 loftslagsráðstefnunni – og þær ætla að segja okkur frá því sem þar fer fram í örpistlum sem fluttir verða nokkrum sinnum í viku hér í þættinum. Við flytjum fyrsta pistilinn í þætti dagsins.
    Og í lok þáttar heimsækjum við þjóðskjalasafnið og fylgjum Símoni Hjalta Sverrissyni í gegnum áhugaverð skjöl um frægt skipbrot við Borgarfjörð árið 1936.
    Umsjón þáttar: Ástrós Signýjardóttir og Pétur Magnússon.
    Tónlist þáttarins:
    Big Thief - Words.
    Mestre Verequete - Alô Belém
    Brigitte Bardot - Un jour comme un autre
    Björgin og Hjartagosarnir - Þetta reddast allt
    55 min
  • Lífið með Parkinson-sjúkdóminn og KÞBVD uppistand í Tjarnarbíó
    Parkinson-sjúkdómurinn hrjáir tólf hundruð einstaklinga hérlendis. Parkinson er hæggengur taugahrörnunarsjúkdómur sem hefur áhrif á líkamlega færni. Misjafnt getur verið milli einstaklinga hver sjúkdómseinkennin eru. Enn sem komið er er ekki til nein lækning við sjúkdómnum. Ágústa Karen Andersen, forstöðumaður Takts endurhæfingar hjá Parkinson-samtökunum, og Vilborg Jónsdóttir, sem greindist með sjúkdóminn fyrir tíu árum, settust niður með okkur í húsnæði samtakanna í gær.
    Konur þurfa bara að vera duglegri… er uppistandssýning Sóleyjar Kristjánsdóttur og Auðbjargar Ólafsdóttur þar sem þær velta fyrir sér öllu því sem konur þurfa bara að vera duglegri í. Í sýningunni fjalla þær um allt það stórkostlega, hversdagslega og fyndna sem drífur á daga miðaldra fjölskyldu-og framakvenna sem þurfa bara að láta allt ganga upp. Sóley og Auðbjörg ætla að segja okkur frá uppistandinu.
    Umsjón: Ástrós Signýjardóttir.
    Tónlist þáttarins:
    CAMERON WINTER - Nausicaa
    DIJON - Yamaha
    LILA IKÉ - He loves us both
    57 min
  • Rannsókn á heimilisleysi kvenna, innkauparáð og gervigreind í fréttamennsku
    Nýlega voru birt fyrstu áfangagögn verkefnisins, Landsskýrsla INTERACT. Hún veitir innsýn í það hvernig sex Evrópuríki, Þýskaland, Grikkland, Ítalía, Portúgal og Rúmenía, auk Íslands, nálgast málefni heimilislausra kvenna. Niðurstöðurnar sýna að víða skortir á samþættingu jafnréttis- og kynjasjónarmiða, þjónusta við heimilislausar konur er að stórum hluta brotakennd og ósamþætt og tekur of lítið mið af áhrifum áfalla á líf kvenna. Íslensku samstarfaðilarnir RIKK, rannsóknarstofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands og Rótin félagasamtök bera ábyrgð á því að niðurstöðurnar nýtist til að innleiða nýja nálgun. Þær Kristín Hjálmarsdóttir frá RIKK og Kristín Pálsdóttir frá Rótinni kíkja til okkar.
    Stefán Gíslason, umhverfisfræðingur, flytur okkur hugvekju um kauphegðun, nú þegar margir afsláttardagar eru framundan. Hann veltir því upp hvað séu góð kaup og gefur góð ráð.
    Í lok þáttar kemur Eyrún Magnúsdóttir, gervigreindarsérfræðingur, svo til okkar og segir okkur allt um hvernig gervigreind færir sig sífellt meira yfir í hlutverk blaða- og fréttamanna. En ný rannsókn Breska ríkisútvarpsins, BBC, bendir til þess að gervigreindinni sé ekki treystandi til að segja okkur fréttir.
    Umsjón: Ástrós Signýjardóttir og Pétur Magnússon.
    Tónlist þáttar:
    BON IVER - There's is a rhythmn
    ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR - Lilju rós
    THE NEW EVES - Red brick
    58 min
  • Reykur, Tilvera og áhrif Covid bólusetninga á krabbamein
    Síðasta febrúar var verkefnið Reykur sett á laggirnar á vegum Matthildarsamtakanna – Reykur veitir skaðaminnkandi þjónustu fyrir fólk sem reykir ópíóíða og örvandi vímuefni og hefur – síðustu átta mánuði – náð til fólks sem hefur áður ekki fengið viðeigandi þjónustu eða aðstoð. Svala Jóhannesdóttir, sérfræðingur í skaðaminnkun og forormaður mattmildarsamtakanna Reyks, sest hjá okkur í upphafi þáttar og veitir okkur innsýn inn í starfsemina.
    Dagana 1.–9. nóvember 2025 heldur Tilvera – samtök um ófrjósemi – upp á Vitundarvakningarviku um ófrjósemi. Markmið vikunnar er að efla fræðslu og skilning á ófrjósemi, brjóta niður þögn og fordóma og minna á að þekking á líkamanum er ekki lúxus, heldur lífsnauðsyn. Sigríður Auðunsdóttir og Anna Þorsteinsdóttir frá Tilveru settust niður með okkur og sögðu okkur frá samtökunum og baráttunni við ófrjósemi.
    Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins, ætlar að segja okkur frá mögulegum áhrifum Covid bólusetningar á krabbameinsmeðferðir. en byrjum á einu lagi.
    Umsjón: Ástrós Signýjardóttir og Pétur Magnússon.
    Tónlist þáttarins:
    Rogers, Maggie - Don't Forget Me.
    HJÁLMAR - Blómin í brekkunni.
    Bryan, Zach - 28.
    58 min
  • Brestir í norrænu samstarfi, fuglalíf og votlendi
    Þing Norðurlandaráðs var í Stokkhólmi í Svíþjóð í síðustu viku. Þar voru öryggismál Norðurlandanna ofarlega á baugi ásamt stöðu Grænlands, Færeyja og Álandseyja innan norræns samstarfs. Hrannar Björn Arnarsson, formaður Norræna félagsins á Íslandi, var í Stokkhólmi og ætlar að kíkja til okkar í upphafi þáttar.
    Samtökin Fuglavernd héldu málþing á dögunum um stöðu votlendis og hvernig votlendi hefur áhrif á fuglalíf. Á Íslandi er að finna fjölmörg ólík votlendi sem eru mismunandi að stærð og sem meðal annars standa undir eða styðja við stofna yfir fimmtíu fuglategunda. Aron Alexander Þorvarðarson, líffræðingur og verkefnastjóri hjá Fuglavernd, segir okkur frá mikilvægi þess að endurheimta og vernda votlendissvæði í heiminum.
    Tónlist úr þættinum:
    Drake, Nick - Time has told me.
    Erhard, Anna - Not Rick.
    Geese - Cobra
    Lenker, Adrianne - Vampira Empire
    59 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners