Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Staða flóttamanna, Dulminjasafn og gervigreindarkapphlaup
    Af hverju er fólk á flótta og hvernig erum við sem samfélag að taka á móti fjölskyldum á flótta? Nína Helgadóttir, teymisstjóri í málefnum flóttafólks hjá Rauða krossinum, ætlar að segja okkur frá aðstæðum flóttafólks, stöðuna í málefnum þeirra á Íslandi og hvernig er best að búa um þennan viðkvæma málaflokk til framtíðar.
    Í reglulegum pistli sínum ætlar Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, að spila fyrir okkur viðtalsbút við Sigfús Elíasson. Sigfús fæddist í Selárdal og opnaði síðar Dulminjasafn. Viðtalið við Sigfús er frá árinu 1957 og við fáum að heyra það á eftir.
    Í kapphlaupum er yfirleitt rásmark og endamark. Gervigreindarkapphlaupið er þess eðlis að enginn getur spáð fyrir um hvar það endar. Eyrún Magnúsdóttir, gervigreindarsérfræðingur, kemur til okkar í lok þáttar og ræðir um kapphlaupið um að þróa vélar sem eru jafn greindar eða ennþá greindari en mannkynið.
    Umsjón: Ástrós Signýjardóttir og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir
    Tónlist þáttarins:
    Bubbi Morthens - Velkomin
    Sting - All this time
    Mannakorn - Á meðan sumar framhjá fer
    55 min
  • Spartan hlaup, mengun Tjarnarinnar í Reykjavík og nakin moldvörpu rotta
    Ólafía Kvaran er nýkomin heim frá Hvar, í Króatíu, þangað sem hún fór með hóp hlaupara til að taka þátt í Spartan hlaupi. Í hlaupinu, sem var um 25 kílómetrar, þurftu hlauparar að leysa hinar ýmsu hindranir og þrautir. Ólafía sem er margfaldur meistari í sínum aldursflokki, ætlar að segja okkur allt um Spartan.
    Tjörnin í Reykjavík er menguð og þarf á hjálp að halda. Hjá Reykjavíkurborg eru nú uppi áætlanir um að komast að því hversu menguð Tjörnin er og grípa til aðgerða til að hjálpa lífríki hennar. Við hittum Benedikt Traustason frá Reykjavíkurborg við Tjörnina og fáum að heyra meira af þessu og aðeins um sögu Tjarnarinnar.
    Vera Illugadóttir ætlar svo að koma til okkar í dýraspjall. Í dag ætlar hún að fræða okkur um nöktu moldvörpurottuna.
    Umsjón: Ástrós Signýjardóttir og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir
    Tónlist þáttarins:
    Gladys Knight and The Pips - Midnight Train To Georgia.
    Björgvin Halldórsson og Ragnhildur Gísladóttir - Dagar og nætur
    Kiriyama Family - About you
    59 min
  • Hringborð norðurslóða, 40 ára afmæli Nordjobb og götuheiti í Reykjavík
    Aðalfundur þings Arctic Circle hófst nú í hádeginu á stóra sviðinu í Silfurbergi í Hörpu.
    Yfir 2.000 þátttakendur frá nær 70 löndum taka þátt og ræða þar málefni norðurslóða. Meðal þátttakenda eru ráðherrar og leiðtogar frá fjölmörgum löndum, stjórnendur vísindastofnana og alþjóðlegra fyrirtækja, auk fulltrúa loftslagssamtaka og frumbyggja á Norðurslóðum. Matthildur María Rafnsdóttir, samskiptastjóri Arctic Circle, ræðir við okkur um viðhorf stórvelda til norðurslóða.
    Nordjobb hefur í fjóra áratugi aðstoðað ungt fólk á Norðurlöndunum við að finna sér starf, sækja sér nýja reynslu og upplifa það að búa í öðru Norrænu landi. Elva Dögg Sigurðardóttir, verkefnastjóri Nordjobb á Íslandi, ætar að koma til okkar og segja okkur allt um Nordjobb.
    Umhverfis- og skipulagsráð hefur fallið frá götuheitinu Fífilsgata í Reykjavík og samþykkt tillögu götunafnanefndar um að hún verði framlenging af götunni Hlíðarfæti. Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson vakti athygli á ákvörðuninni á Facebook-reikningi sínum og kallaði hana örnefnaklám. Stefán ætlar að kíkja til okkar og spjalla við okkur um götuheiti í Reykjavík.
    Umsjón: Ástrós Signýjardóttir og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir.
    Tónlist þáttarins:
    YLJA - Á rauðum sandi
    R.E.M - All they Way to Reno
    Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir - Dalvísa
    59 min
  • Ákall félagsráðgjafa, opnun norður Íshafs og lyf við MS sjúkdómnum
    Félagsráðgjafar eru ómissandi hlekkur í geðheilbrigðisþjónustu. Með fagþekkingu, teymisvinnu og heildrænni nálgun styðja þeir fólk til aukins styrks, betri lífsgæða og samfélagslegrar þátttöku. Steinunn Bergmann, formaður Félagsráðgjafafélags Íslands, verður gestur okkar í þætti dagsins. Félagsráðgjafar kalla eftir því að fjármagni verði ráðstafað í niðurgreiðslu á sálfræðiþjónustu.
    Og við höldum áfram með umfjöllun um málefni Norðurslóða. Yfir 2.000 þátttakendur frá nær 70 löndum munu taka þátt í þingi Hringborðs Norðurslóða, sem hefst á morgun í Hörpu og stendur dagana 16.-18. október. Meðal þátttakenda eru ráðherrar og leiðtogar frá fjölmörgum löndum, stjórnendur vísindastofnana og alþjóðlegra fyrirtækja, auk fulltrúa loftslagssamtaka og frumbyggja á Norðurslóðum. Matthildur María Rafnsdóttir, samskiptastjóri Arctic Circle, ræðir við okkur um opnun siglingaleiðarinnar um norður íshaf.
    Í sínu vikulega vísindaspjalli ætlar Edda Olgudóttir að segja okkur frá lyfjarannsóknum fyrir MS sjúkdóminn.
    Umsjón: Ástrós Signýjardóttir og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir
    Tónlist í þættinum:
    MOSES HIGHTOWER - Suma daga
    AMABADAMA - Týnda Kynslóðin
    EIVÖR PÁLSDÓTTIR - Ég veit
    1 hr
  • Stúlkur í knattspyrnu, hringborð norðurslóða og læsi kvenna
    144 stúlkur frá tíu knattspyrnufélögum á höfuðborgarsvæðinu tóku þátt í rannsókninni SKORA sem Sigurður Skúli Benediktsson, aðjúnkt á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, stóð fyrir ásamt fleirum. Markmið rannsóknarinnar var meðal annars að kanna tengsl á milli getuskiptingar og ánægju á meðal íslenskra 12 ára stúlkna í knattspyrnu. Við ræðum niðurstöður rannsóknarinnar við Sigurð Skúla.
    Hringborð Norðurslóða, Arctic Circle, er haldið í Hörpu 16-18 október. Innrás Rússa í Úkraínu hefur haft mikil áhrif á starf Heimskautsráðsins og hefur gert það að verkum að Arctic Circle er orðinn mikilvægur alþjóðlegur vettvangur til að ræða framtíð Norðurslóða. Matthildur María Rafnsdóttir, samskiptastjóri Arctic Circle, ætlar að segja okkur frá starfi Arctic Circle í síbreytilegum heimi.
    Almenningsbókasöfn um land allt sameina krafta sína undir merkjum verkefnisins Læsi á stöðu og baráttu kvenna í tilefni af Kvennaári 2025. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með lestur, samveru og bókmenntir í forgrunni. Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands og Hólmfríður María Bjarnadóttir, sérfræðingur á Borgarbókasafninu settust niður með Ástrós Signýjardóttur og ræddu við hana um stöðu jafnréttisbaráttunnar og fjölbreytta dagskrá á bókasöfnum landsins á næstu vikum.
    Tónlist í þætti:
    Álfablokkin - KK Band
    A Little Grim - Ólöf Arnalds
    Umsjón: Elsa María Guðlaugs Drífudóttir
    1 hr
  • Kalkþörungar í málningarframleiðslu, eldri konur í Kvennaathvarfinu og leyndarskjalavörður
    Kalkþörungar eru notaðir meðal annars sem fæðubótarefni og í snyrtivörur. Kalkþörungar eru basískir, með hátt PH-gildi, og því lifa ekki bakteríur eða mygla í þeim. Því hefur það reynst vel að nota þá í málningu á húsum til að vinna gegn myglumyndun. Sirrý Ágústsdóttir, frumkvöðull, kom til okkar í upphafi þáttar og sagði okkur frá því hvernig hún vinnur efni úr kalkþörungum.
    Landssamband eldri borgara hefur boðað til málþings 16.október sem ber yfirskriftina Ofbeldi gegn eldra fólki. Meðal þeirra sem flytja erindi þar er Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins. Erindi hennar ber heitið Eldri konur í Kvennaathvarfinu.
    Í lok þáttar kíkjum við svo í heimsókn í Þjóðskjalasafnið. Í dag ætlum við að heyra af leyndarskjalaverðinum Grími Jónssyni Thorkelín, sem gegndi embættinu frá 1791-1829. Leyndarskjalavörður var embættistitill yfirmanns Leyndarskjalasafnsins í Kaupmannahöfn og var bæði virðulegt og ábyrgðarmikið embætti.
    Umsjón: Ástrós Signýjardóttir.
    Tónlist þáttarins:
    VALDIMAR - Yfir borgina.
    ÁSGEIR TRAUSTI - Hringsól.
    THE BEATLES - I'll Follow The Sun.
    59 min
  • Jólakötturinn og dularfulla kistan, smáríki í alþjóðasamfélaginu og Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins
    Barnaleikhús hefur alltaf verið ástríða Inga Hrafns Hilmarssonar, leikara. Hann hefur nú í nokkur ár farið með leiksýningar inn í leikskóla til að leyfa öllum börnum að upplifa töfra leikhússins. Ingi Hrafn sest hjá okkur á eftir og ætlar að segja okkur frá mikilvægi leikhússins og frá jólaleiksýningu þar sem börnin fá að taka þátt.
    Þótt stór ríki hafi yfirburði á flestum sviðum í alþjóðasamfélaginu geta smáríki eigi að síður haft áhrif. Smáríki verða hins vegar að beita öðrum leiðum en stór ríki til áhrifa. Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði, ætlar að rýna í stöðuna í alþjóðamálunum með okkur.
    Við heyrum viðtal við Sigurð Torfa Sigurðsson og Þóreyju Gylfadóttur frá Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins. Þau ætla að segja okkur frá fræðslustarfi á vegum miðstöðvarinnar; jafningjafræðslu bænda og loftslagsvænum landbúnaði, og við fáum aðeins að heyra af því hvað grænlenskur, færeyskur og íslenskur landbúnaður eiga sameiginlegt.
    Tónlist þáttarins:
    Ég er jólakötturinn
    Elín Ey - Always a reason
    59 min
  • Undirróðursherferðir erlendra ríkja, innihaldslýsing á M&M og staða leiðsöguhunda
    Upplýsingaóreiða, ógagnsæir algóritmar samfélagsmiðla og djúpfalsanir, sem og áskoranir í aðdraganda kosninga eru meðal þess sem erlend ríki notfæra sér í undirróðursherferðum sínum hér á Íslandi og annars staðar. Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar ætlar að fræða okkur um þetta og segja okkur frá því hvernig við Íslendingar og löndin í kringum okkur eru að bregðast við.
    Hvað er matur? Spyr Stefán Gíslason, umhverfisfræðingur, í pistli vikunnar. Hann rýnir í innihaldslýsingu á vinsælu sælgæti sem flest okkar þekkjum.
    Sextán leiðsöguhundar blindra eru starfandi á Íslandi í dag. Þeir bæta lífsgæði notenda sinna og auðvelda þeim að fara ferða sinna og njóta öryggis í daglegu lífi. Blindrafélag Íslands vinnur stöðugt að því að fjölga leiðsöguhundum í notkun, en þjálfun hvers hunds er bæði dýr og tímafrek. Kristinn Halldór Einarsson, framkvæmdastjóri Blindrafélagsins, kemur til okkar í lok þáttar til að fræða okkur um þetta starf og hvernig miðar áfram, en í dag er líka alþjóðlegi sjónverndardagurinn.
    Umsjón: Ástrós Signýjardóttir
    Tónlist þáttarins:
    Hörður Torfason - Ég leitaði blárra blóma
    Leonard Cohen - Bird on the wire
    Hildur Vala - Komin alltof lang
    GÓSS - Eitt lag enn
    59 min
  • Þegar mamma mín dó, Kriðpleir og Herv-K prótínið
    Þegar mamma mín dó er nýútkomin bók rithöfundarins og doktorsnemans Sigrúnar Ölbu Sigurðardóttur. Í bókinni lýsir hún þeirri reynslu að fylgja dauðvona móður sinni gegnum veikindi og sitja við hlið hennar við andlátið. Við heyrum viðtal við Sigrúnu Ölbu og fáum að vita meira um missinn og skrifin um hann.
    Við rifjum upp eldra viðtal úr safni Samfélagsins, þar sem fjallað var um vinnustofu leikhópsins Kriðpleir undir yfirskriftinni Efsta hillan, þar sem þátttakendur voru beðnir um að mæta með krukkur eða sósutúpur sem höfðu dagað upp í ísskápnum.
    Þá kemur að vísindaspjalli Samfélagsins. Edda Olgudóttir ætlar að fræða okkur um rannsókn á byggingu á prótíni sem heitir Herv-K, í vísindaspjalli vikunnar. Hún kemur til okkar í lok þáttar.
    Umsjón: Elsa María Guðlaugs Drífudóttir
    Tónlist:
    Moon River - Frank Sinatra
    Andalúsía - JÓNFRÍ
    58 min
  • Þjóðsögukistan, umhverfissálfræði og Grænn dagur
    Þjóðsögukista heimsins er opnuð í hlaðvarpsþáttum í umsjón Ingibjargar Fríðu Helgadóttur. Sögurnar eru alls konar, sumar fyndnar, aðrar fróðlegar, sumar alveg út í hött og enn aðrar svolítið hræðilegar eða draugalegar. Þjóðsögurnar eru frá ýmsum heimshornum og Ingibjörg Fríða ætlar að setjast hjá okkur og segja okkur allt um Þjóðsögukistuna.
    Páll Líndal, umhverfissálfræðingur, fjallar um rannsóknir í umhverfissálfræði og hvernig fólk skynjar og túlkar umhverfi sitt í sínum vikulega pistli.
    Í lok þáttar heyrum við viðtal við Daníel Sæberg. Daníel missti son sinn, Jökul Frosta, af slysförum þegar hann var fjögurra ára. Daníel hefur heiðrað minningu Jökuls Frosta með því að halda Grænan dag og tilgangurinn er að safna fjármagni fyrir börn og unglinga í sorg.
    Tónlist þáttarins:
    Ævilangt / GDRN
    A Horse With No Name / America
    High heels / Júníus Meyvant
    Umsjón: Elsa María Guðlaugs Drífudóttir
    58 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners