Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Hrognkelsi gegn laxalús, 60 ára gömul verðlaunaritgerð og vellíðan í starfi
    Hrognkelsi hafa nýst vel í baráttunni við laxalúsina en lúsin er eitt stærsta vandamál laxeldis. Nýverið fór fram stór fiskeldisráðstefna í Hörpu þar sem laxeldisbændur, bæði á Íslandi og í Færeyjum, sögðu frá reynslu sinni af laxalús. Andri Rúnar Sigurðsson, frá Benchmark Genetics Iceland ætlar að segja okkur allt um þetta.
    Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnastjóri RÚV, ætlar að rifja upp með okkur 60 ára gamalt barnaefni sem hét “börnin skrifa.” Þátturinn var í umsjón séra Bjarna Sigurðssonar prests og við fáum að heyra hann lesa upp úr verðlaunaritgerð 9 ára stúlku.
    Við verjum stórum hluta ævinnar á vinnustaðnum og áhrif vinnunnar ná langt út fyrir skrifborðið. Dagana 6.–10. október 2025 verður haldin alþjóðleg vika tileinkuð hamingju og vellíðan í starfi. Ingrid Kuhlman, leiðbeinandi hjá Þekkingarmiðlun, kom til okkar og gaf okkur hugmyndir til að bæta vellíðan í starfi.
    Umsjónarmenn þáttarins: Ástrós Signýjardóttir og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir.
    Tónlist þáttarins:
    PRINS POLO - Líf ertu að grínast.
    BJÖRGVIN & HJARTAGOSARNIR - Þetta reddast allt.
    1 hr
  • Kenna haflæsi í gegnum leiklist, áhrif samfélagsmiðla á stráka og fjárhættuspilahegðun ungmenna
    Þáttur dagsins var allur tileinkaður Menntakviku sem fer fram í Háskóla Íslands 2-4.október.
    Sjávarsögur til að stuðla að haflæsi í gegnum leiklist er málstofa sem Jóna Guðrún Jónsdóttir og Rannveig Björk Þorkelsdóttir leiða. Verkefnið snýst um haflæsi og vaxandi þörf til að auka vitund og fræðslu um hafið innan skólasamfélagsins. Jóna Guðrún og Rannveig Björk ætla að segja okkur allt um það hvernig þær nýta leiklist til að auka þekkingu á hafinu.
    Hvernig nota börn samfélagsmiðla og hvaða áhrif hafa samfélagsmiðlar?
    Þórður Kristinsson, doktorsnemi á menntavísindasviði, er einn þeirra sem er með erindi á Menntakvikunni. Erindi hans fjallar um stráka og samfélagsmiðla, en strákar fá annan veruleika inn á sína miðla en stelpur og önnur skilaboð um hlutverk kynjanna. Þórður ætlar að segja okkur frá þessu.
    Fjárhættuspilahegðun hjá ungmennum á Íslandi hefur aukist mikið samkvæmt niðurstöðum alþjóðlegu ESPAD rannsóknarinnar. Ragný Þóra Guðjohnsen er með erindi á Menntakviku um niðurstöðurnar, hvað útskýrir þessa aukningu og hvað við getum gert, sem samfélag, til að sporna við aukinni fjárhættuspilahegðun.
    57 min
  • Endurheimt votlendis, ný löggjöf um gervigreind og sjálfboðaliðar kenna íslensku
    Verkefnið Peatland lifeline snýr að endurheimt votlendis og stuðningi við líffræðilegan fjölbreytileika. Verkefnið er styrkt af LIFE sjóðnum og Landbúnaðarháskóli Íslands leiðir það. Verkefnið hófst formlega fyrir mánuði síðan og er eitt umfangsmesta verkefni sem Landbúnaðarháskólinn hefur stýrt. Jóhanna Gísladóttir, lektor, kom til okkar og sagði okkur frá þessu áhugaverða verkefni.
    Hver ætlar að stýra gervigreindinni? Þessi spurning hefur oft ratað á borð löggjafa um heim allan, en nú hefur Kalifornía samþykkt lagafrumvarp um aukið gagnsæi og ábyrgð hjá stórum tæknifyrirtækjum sem þróa gervigreind. Eyrún Magnúsdóttir, gervigreindarfréttaritari Samfélagsins, kom og ræddi þessa löggjöf.
    Rauði krossinn býður flóttafólki upp á ýmis verkefni til stuðnings íslenskunámi þeirra víða um land. Í Árskógum hefur í fjögur ár verið boðið upp á hópkennslustundir sem leiddar eru af reyndum kennurum í sjálfboðaliðastarfi. Samfélagið fékk að fylgjast með kennslustund og fá að heyra meira um starfið.
    Tónlist þáttarins:
    VILHJÁLMUR VILHJÁLMSSON - Lítill Fugl.
    EDDIE VEDDER - Society.
    SIGURÐUR GUÐMUNDSSON - Orðin mín
    1 hr
  • Netsamskipti ungmenna, vika einmanaleika og Aldin loftslagsvá
    Óttar Guðbjörn Birgisson varði doktorsritgerð sína, í íþrótta-og heilsufræði við Háskóla Íslands, á dögunum. Rannsókn hans snéri að netsamskipum og heilsu ungmenna. Óttar Guðbjörn sagði okkur frá helstu niðurstöðum.
    Margir upplifa sig einmana í nútíma samfélagi. Vika einmanaleikans er vitundarvakning Kvenfélagasambands Íslands gegn einsemd og einmanaleika. Hvað getum við gert til þess að draga úr einmanaleika og þarf mikið til? Þær Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir hjúkrunarfræðingur og Jenný Jóakimsdóttir frá Kvenfélagssambandi Íslands komu til okkar á til þess að ræða um þetta.
    Aldin, gegn loftslagsvá, er hreyfing fólks sem er komið á þriðja aldursskeiðið. Á fáeinum árum hefur hópurinn orðið áberandi meðal umhverfishreyfinga í landinu. Aldin er tilnefnt til umhverfisverðlauna Norðurlandarás í ár og þau ætla að deila með okkur hugleiðingum sínum og markmiðum.
    1 hr
  • Aðstoð eftir afplánun, smáforrit fyrir heilsuna og vísindaspjall
    Aðstoð eftir afplánun er verkefni á vegum Rauða krossins og er ætlað að hjálpa föngum við ýmislegt er varðar daglegt líf og þær breytingar sem verða við það að ljúka afplánun. Pétur Kristófersson er sjálfboðaliði í verkefninu og ætlar að deila með okkur sinni reynslu.
    Mikilvægi mataræðis og svefns þegar kemur að bættri líðan verður varla ofmetið. Life Track er íslenskt smáforrit sem hefur náð mikilli útbreiðslu meðal fjölbreytts hóps fólks á stuttum tíma. Ingi Torfi Sverrisson, eigandi Life Track, ætlar að segja okkur frá forritinu og hvernig það varð til.
    Í lok þáttar er svo komið að vísindahorninu - vísindamiðlari Samfélagsins, hún Edda Olgudóttir kemur til okkar og ætlar að tala um lífplast og möguleikana í kringum það.
    Tónlist þáttarins:
    Helgi Björnsson - Það bera sig allir vel
    Lightouse Family - High
    Vilhjálmur og Ellý Vilhjálms - Ramóna
    Gréta Mjöll - Ó María
    55 min
  • Íslenskir frumkvöðlar, falin skýrsla í Þjóðskjalasafninu og dans fyrir alla í Danslistarskóla JSB
    Hlutverk KLAK er að stækka og styðja við samfélag frumkvöðla á Íslandi með það að markmiði að fjölga sprotafyrirtækjum. Nýverið lauk Startup Supernova verkefninu, sem leitast við að byggja upp viðskiptalausnir fyrir alþjóðamarkað. Haraldur Bergvinsson og Freyr Friðfinnsson, starfsmenn KLAK, kíkja til okkar.
    Svo bregðum við okkur í heimsókn í Þjóðskjalasafnið. Í dag ætlum við að heyra um skýrslu sem var afhent forsætisráðherra í október 1939. Efni skýrslunnar er kynnisferð þáverandi flugmálaráðunauts til Danmerkur og Þýskalands það sama ár, og tillögur hans varðandi lögreglumál. Skýrslunni var hinsvegar stungið undir stól og við fáum að heyra allt um hvers vegna hér á eftir.
    Jassballett fyrir fötluð börn er nám sem er kennt í Danslistarskóla JSB í Lágmúlanum. Tímarnir hafa verið í boði í á þriðja vetur og hafa gefist vel. Dansgleði og hreyfifærni barnanna er virkjuð í gegnum leik og dans og nemendurnir taka þátt í stórum sýningum í Borgarleikhúsinu í lok skólaársins. Lilja Helgadóttir, danskennari, segir okkur frá náminu.
    Tónlist þáttarins:
    SIGURÐUR GUÐMUNDSSON & MEMFISMAFÍAN - Þú ert þar (ásamt Sigríði Thorlacius).
    NÝDÖNSK - Flugvélar.
    THE MAMAS AND THE PAPAS - California Dreamin.
    58 min
  • Dauðakaffi, hvað býr að baki gervigreind? og það nýjasta úr heimi konungsfjölskyldna
    Er dauðinn tabú sem umræðuefni í nútímasamfélagi? Vikulega hittist fólk í Langholtskirkju í grafarspjalli þar sem dauðinn er ræddur á ýmsan hátt. Alda Lóa Leifsdóttir kom til okkar og sagði okkur frá dauðakaffi - þar sem má ræða allt sem tengist dauðanum.
    Með aukinni notkun á gervigreind eru margir að velta fyrir sér hvernig hún virkar? Hvaða stærðfræði er það sem gervigreindin byggir á? Hafsteinn Einarsson, dósent í tölvunarfræði við HÍ, svaraði nýverið spurningu þessu tengdu á Vísindavefnum og hann ætlar að útskýra þetta allt fyrir okkur.
    Konungsfjölskyldur eru merkilegt menningarfyrirbæri sem eru stöðugt í sviðsljósinu og vekja sífellt áhuga. Guðný Ósk Laxdal kom til okkar og segja okkur það nýjasta úr heimi konungsfjölskyldna.
    Tónlist þáttarins:
    NÝDÖNSK - Ég ætla að brosa.
    Hipsumhaps - Lífið sem langar í
    59 min
  • Mikilvægi geðræktar, villt náttúra og 40 ára afmæli Alzheimersamtakanna
    Af hverju ættum við að stunda geðrækt eins og við stundum líkamsrækt? Er hægt að rækta eða styrkja geðið? Við ræðum við Sigrúnu Þóru Sveinsdóttur sérfræðing í geðrækt hjá Embætti landlæknis um geðrækt og fimm leiðir að vellíðan.
    Stefán Gíslason, umhverfisfræðingur, líkir villtri náttúru við spægipylsu í pistli vikunnar.
    Alzheimersamtökin fagna fjörutíu ára afmæli í ár og af því tilefni var haldin ráðstefna um liðna helgi.
    Samfélagið hitti Guðlaug Eyjólfsson, framkvæmdastjóra samtakanna, sem fór yfir sögu samtakanna, og hvað hefur áunnist í baráttunni við Alzheimer í þau 40 ár sem samtökin hafa verið starfandi.
    57 min
  • Raddheyrarar, börn foreldra með geðræn vandamál og koffínneysla unglinga
    Hearing Voices eru Landssamtök fyrir öll sem heyra raddir, sjá sýnir eða hafa aðrar óhefðbundar upplifanir og áhugafólk. Grétar Björnsson félagsfræðingur og starfsmaður hjá Hugarafli og Rakel Björk Haraldsdóttir sem hefur reynslu af því að heyra raddir - koma til okkar og segja okkur nánar frá samtökunum. og hvað það er að heyra raddir?
    Eitt af hverjum fimm börnum elst upp hjá foreldri með geðrænan vanda og það skiptir miklu máli fyrir barn, sem á foreldri með geðsjúkdóm, að hafa einhvern í nærumhverfi sem styður við það. Samfélagið hitti Sigríði Gísladóttur, framkvæmdastjóra samtakanna Okkar heimur, og fékk að fræðast um samtökin og stöðu þeirra barna sem alast upp við þessar aðstæður.
    Matarvenjur sem myndast í æsku fylgja oft einstaklingum út lífið og geta haft á langtímaheilsu. Hvað vitum við t.d. um áhrif koffíns á heilsu ungmenna? Fyrsti fundur í fundaröðinni Heilsan okkar fer fram í fundarsal Þjóðminjasafnsins á föstudaginn klukkan hálf tólf. Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor í næringarfræði við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands ætlar að segja okkur frá Koffín neyslu, fæðuvali og svefni unglinga.
    Tónlist þáttarins:
    LAUFEY - Street by street.
    KK OG MAGNÚS EIRÍKSSON - Sestu Hérna Hjá Mér Ástin Mín.
    56 min
  • Vináttutengsl barna, notkun sýndarveruleika í rannsóknum og umhverfisáhrif íslenskra fæðukerfa
    Sýn og reynsla barna af vináttu og lausn ágreiningsmála er efni nýrrar rannsóknar Maritar Davíðsdóttur, aðjúnkts við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og annars eiganda Gleðiskruddunnar, og Eyrúnar Maríu Rúnarsdóttur dósents. Styðjandi og traust vinatengsl barna draga úr einmanaleika og ýta undir félagsfærni. Aðstoð foreldra, og eldri systkina, við að leysa úr ágreiningsmálum er mikilvæg.
    Samfélagið hitti þær Marit og Eyrúnu og fékk að heyra um þessa áhugaverðu rannsókn og niðurstöður hennar.
    Páll Líndal sagði okkur frá því hvernig sýndarveruleiki nýtist í rannsóknum á tengslum fólks við umhverfi sitt.
    Í lok þáttar ræddi Samfélagið við Ólaf Ögmundarson, dósent við matvæla-og næringafræðideild Háskóla Íslands, um stóra rannsókn á umhverfisáhrifum íslenskra fæðukerfa. Íslensk fæðukerfi og íslensk neyslumynstur voru skoðuð út frá umhverfislegri, efnahagslegri og samfélagslegri sjálfbærni.
    Tónlist þáttarins:
    LAY LOW - Gleðileg blóm
    1 hr

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners