Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Bókasafnsdagurinn og 60 ára gömul frægðarför körfuboltalandliðsins til Bandaríkjanna
    Bókasafnsdagurinn er haldinn í borgarbókasafninu í Kringlunni í dag. Þema dagsins er lestur er bestur - fyrir sálina. Guttormur Þorsteinsson, bókavörður, segir okkur allt um dagskrána á bóksafninu í dag.
    Við heyrum söguna af því þegar íslenska körfuboltalandsliðið fór næstum því á fund Bandaríkjaforseta, á sjöunda áratug síðustu aldar. En Evrópumótið í körfubolta fer nú fram í Kýpur, Finnlandi, Póllandi og Lettlandi. Íslenska landsliðið hefur lokið sinni keppni á mótinu en það var í árslok 1964 sem íslenskt körfuboltalandslið hélt til Bandaríkjanna og Kanada í sína fyrstu keppnisferð erlendis. Í skjalasafni íslenska sendiráðsins í Washington, sem varðveitt er í Þjóðskjalasafni, er að finna bréf sem voru send í aðdraganda þessarar ferðar. Heiðar Lind Hansson, safnvörður á Þjóðskjalasafninu, segir okkur frá þessum skjölum.
    Einar Gunnar Bollason var einn þeirra leikmanna landsliðsins sem fór í þessa ferð. Einar varð síðar landsliðsþjálfari, formaður Körfuknattleikssambands Íslands og hefur starfað víða tengt körfuboltanum. Hann deilir endurminningum sínum tengdum ferðinni, meðal annars kynnum sínum af stórstjörnunni Diana Ross.
    Tónlist í þættinum:
    ELVIS PRESLEY - Only Fools Rush In.
    MUGISON - Haustdansinn.
    DIANA ROSS & THE SUPREMES - Stop in the name of love
    58 min
  • Húllumhæ í Borgarnesi: Hinseginhátíð Vesturlands og Brákarhátíð
    Samfélagið sendi út frá hljóðveri Ríkisútvarpsins í Hjálmakletti í Borgarnesi og ræddi við forsvarsmenn hátíðanna tveggja sem setja svip sinn á bæinn um helgina, Hinseginhátíð Vesturlands og Brákarhátíð.
    Við skoðum úrvalið í Regnbogasjoppunni og Guðrún Steinunn Guðbrandsdóttir, forseti Hinsegin Vesturlands, og Hafþór Ingi Gunnarsson, formaður Hollvinasamtaka Borgarness, segja frá tilurð hátíðanna, mikilvægi þeirra fyrir samfélagið og helstu dagskrárliðum.
    Heiðrún Helga Bjarnadóttir, sóknarprestur í Borgarnesi, ræðir síðan um regnbogamessur, fræðslustarf kirkjunnar og mikilvægi þess að kirkjan og öll þau sem hafa rödd og vettvang til að láta í sér heyra standi með hinsegin samfélaginu.
    Tónlist í þættinum:
    HJÁLMAR - Áttu vinur augnablik.
    Franklin, Aretha - The masquerade is over.
    Bill Withers - Lean On Me.
    STJÓRNIN - Hleypum gleðinni inn.
    ARETHA FRANKLIN - I Say A Little Prayer.
    56 min
  • Meira um lífríkið við Mógilsá og endurvinnsla textíls
    Við höldum áfram að rannsaka lífríkið við rannsóknarstöð Lands og skóga að Mógilsá í Kollafirði. Arnhildur Hálfdánardóttir slóst í maí í fyrra í för með þeim Brynju Hrafnkelsdóttur, skógfræðingi hjá Landi og skógi, og Matthíasi S. Alfreðssyni, skordýrafræðingi hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, sem vinna saman að því að rannsaka nýja landnema á borð við grenivefara og sniglanárakka. Þau skoða hvað hefur safnast í fiðrildagildrur og fallgildrur og veita okkur nýja innsýn í rannsóknir á skordýrum - sem geta svo sannarlega krafist mikillar þrautseigju og þolinmæði.
    Og síðan rifjum við upp heimsókn Samfélagsins í textílflokkunarmiðstöð Rauða krossins – meira um það á eftir.
    56 min
  • Vísindamenn flýja Bandaríkin, lífríkið við Mógilsá, DNA í lofti
    Í gær fjölluðum við í Samfélaginu um aðför að loftslagsvísindum og vísindastofnunum í Bandaríkjunum og við höldum okkur á svipuðum nótum í dag. Umrót í vísindalandslagi Bandaríkjanna gæti haft víðtækari áhrif. Einar Mantyla, sérfræðingur í nýsköpun hjá Orkídeu – sem hefur fengist við svokallaða vísindalega nýsköpun um árabil – ætlar að setjast hjá okkur og ræða spekileka sem hefur lengi legið til Bandaríkjanna en gæti verið að snúast við.
    En síðan veltum við fyrir okkur lífríkinu við Mógilsá – Arnhildur Hálfdánardóttir hitti Brynju Hrafnkelsdóttur, skógfræðing, á förnum vegi og slóst í för með henni í rannsóknarleiðangur.
    Og að lokum kíkir Edda Olgudóttir við eins og hún gerir alla miðvikudaga. Hún er sérstakur vísindamiðlari Samfélagsins og ætlar í dag að fræða okkur um greiningar á DNA í andrúmslofti.
    59 min
  • Helíum og aðför að loftslagsvísindum
    Við verðum á vísindalegum nótum í þætti dagsins og byrjum á að ræða um helín – eða helíum – lofttegund sem við þekkjum einna helst úr sautjánda-júní-blöðrum en gegnir einnig mikilvægu hlutverki í læknavísindum og vísindarannsóknum á hinu og þessu. En notkun okkar á þessari gastegund er langt umfram framleiðslu – þetta er takmörkuð auðlind sem við göngum á og erum mjög léleg í að endurnýta. Ágúst Kvaran, prófessor emeritus í eðlisefnafræði, kíkir í heimsókn hér í upphafi þáttar, segir okkur frá þessari gastegund og hvort við gætum einfaldlega klárað allt þetta helíum.
    Og síðan fáum við loftslagsspjall. Arnhildur Hálfdánardóttir fær til sín Halldór Björnsson, fagstjóra veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands til að ræða aðför að loftslagsvísindum og vísindastofnunum í Bandaríkjunum.
    58 min
  • Gervigreind og níkótínpúðar, lögregludagbók frá 1941
    Fyrirtæki eru í auknum mæli farin að nýta gervigreind til að auka afköst, bæta sölustarf og ná betur til réttra markhópa – líka fyrirtæki sem fremleiða sígarettur. Þau veðja þó ekki lengur á retturnar heldur hafa fjárfest fyrir hundruð milljarða í níkótínpúðum og nýta tæknina til að koma þeim hraðar í hendur – og undir varir – ungra neytenda.
    Og síðan kíkjum við í heimsókn í Þjóðskjalasafn Íslands, þar sem Gunnar Örn Hannesson, fagstjóri skráninga hjá Þjóðskjalasafninu, skyggnist með okkur í dagbók lögreglunnar frá árinu 1941.
    Tónlist úr þættinum:
    VELVET UNDERGROUND - Pale Blue Eyes [Closet mix].
    Lenker, Adrianne - Real House.
    Lúpína - Hvað varð um allt?.
    1 hr
  • Vestasta grenjaskytta landsins og nýjar skordýrategundir
    Í dag fjöllum við um refaveiðar. Samfélagið leggur leið sína til Patreksfjarðar, þar sem Gréta Sigríður Einarsdóttir, fréttamaður RÚV á Vesturlandi og Vestfjörðum, ræddi við grenjaskyttu sem starfar í gamla Rauðasandshreppi, vestasta odda landsins. Hann segir tilganginn ekki vera að útrýma refnum heldur halda fjölda þeirra í skefjum svo fuglalífið geti blómstrað.
    Og við höldum okkur í ríki dýranna. Undanfarin ár hefur fjöldi nýrra skordýrategunda numið hér land. Við ræðum við Matthías S. Alfreðsson, skordýrafræðing á Náttúrufræðistofnun Íslands, en hann vaktar þau smádýr sem hingað berast og er sérlegur áhugamaður um skógarmítla.
    1 hr
  • Pallborð á kvenréttindadaginn, skordýrapistill
    Pallborð á kvenréttindadaginn:
    Í dag eru 110 ár liðin frá því konur 40 ára og eldri fengu kosningarétt - kvenréttindadagurinn 19. júní á sér langa sögu og upp á hann hefur verið haldið með margvíslegum hætti - og við látum ekki okkar eftir liggja hér í Samfélaginu á Rás 1 og blásum til pallborðsviðræðna um stöðu kvenna og kvára.
    Við ætlum að líta um öxl en líka reyna að bera kennsl á hin fjölmörgu baráttumál sem enn blasa við - sum eru augljós og vel þekkt, önnur kannski ný til komin eða og meira falin.
    Þátttakendur:
    Hér er Kristín Ástgeirsdóttir, sagnfræðingur, ein af stofnendum Samtaka um kvennalista og formaður þingflokks þeirra um árabil - hún er hér sem fulltrúi Kvenréttindafélags Íslands.
    Aleksandra Leonardsdóttir, sérfræðingur í fræðslu og inngildingu hjá Alþýðusambandi Íslands og er í miklum samskiptum við konur af erlendum uppruna.
    Rakel Adolphsdóttir, sagnfræðingur og fagstjóri Kvennasögusafns Íslands.
    Rósa Björk Einarsdóttir og Rakel Birta Ásgeirsdóttir frá Félagi ungra mæðra sem er hugsað sem stuðningsnet fyrir ungar mæður.
    Í lok þáttar heyrum við 395. pistil Stefáns Gíslasonar - hann fjallar í dag um skordýr.
    Tónlist í þættinum:
    SINEAD O'CONNOR - Mandinka.
    Beyoncé - Ameriican Requiem.
    58 min
  • Matseðill náttúrunnar, Murakami heiðursdoktor við HÍ, svefn unglinga
    Í tilefni af degi sjálfbærrar matargerðarlistar verður í dag boðið upp á gönguferð og plöntusmakk fyrir utan Norræna húsið í Reykjavík. Að þessu standa meðal annars samtökin Borgarnáttúra, sem ætla að kenna fólki að bera kennsl á villtar matjurtir í grenndinni og samtökin Slow food á Íslandi. Svava Hrönn Guðmundsdóttir, stundum kennd við sinnep, verður einn fulltrúi Slow food á staðnum og hún ætlar að spjalla við okkur um matseðil náttúrunnar - hér rétt á eftir.
    Japanski metsöluhöfundurinn Haruki Murakami hefur verið sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Háskóla Íslands – þeir eru orðnir ansi margir, heiðursdoktorarnir við HÍ, og tengsl þeirra við háskólann – og jafnvel Ísland eru mismikil – við fyrstu sín virðast tengsl Murakamis við Ísland frekar takmörkuð en eru þau það í raun og veru? Í dag ræðum við um heiðursdoktorsnafnbótina og komumst að því hvers vegna Haruki Murakami var sæmdur henni – við ræðum það við Kristínu Ingvarsdóttur, lektor í japönskum fræðum við Háskóla Íslands
    Í lok þáttar kemur Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins, í heimsókn í hið vikulega vísindaspjall. Í dag fjallar hún um svefn unglinga.
    Tónlist í þættinum:
    LEONARD COHEN - Slow.
    1 hr
  • Hugsandi kennslustofur, Ný rannsókn á maíhitabylgjunni, glæsiskipið Gullfoss
    Um 120 kennarar í grunn- og framhaldsskólum komu saman fyrir helgi til að læra nýstárlega aðferð til að kenna stærðfræði. Aðferðin er kölluð upp á íslensku hugsandi kennslustofur og er tíunduð í samnefndri bók eftir hinn sænska Peter Liljeberg – prófessor í stærðfræðimenntun við Simon Fraser-háskólann í Kanada, og það var einmitt hann sem stóð fyrir þessu námskeiði ásamt Bjarnheiði Kristinsdóttur, lektor í stærðfræði við Háskóla Íslands - og Samfélagið kíkti við til að heyra meira.
    Hitabylgjan sem reið yfir Ísland og Grænland í maí var öfgafull og hefði aldrei orðið ef ekki væri fyrir loftslagsbreytingar af mannavöldum. Veðurmet féllu á langflestum veðurstöðvum hér á landi. Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofu Íslands, segir aukna tíðni öfgaveðurs sem á einungis að geta skollið á á hundrað ára fresti benda til þess að veðurtölfræðin sé öll að breytast.
    Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri Ríkisútvarpsins, kemur svo til okkar í lok þáttar - og rifjar upp glæsilegan aðbúnað í hinu sögufræga millilandaskipi Gullfossi.
    Tónlist í þættinum:
    Berry Chuck - School day (Ring Ring Goes the BellI)
    Reverend and the makers - Heatwave in the cold north
    59 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners