Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Ættleiðingar, nýja maraþonið, íslenska sumarið og kreppupopp
    Íslensk ættleiðing er eina ættleiðingarfélagið á Íslandi sem hefur löggildingu frá Dómsmálaráðuneytinu til þess að annast milligöngu um ættleiðingar erlendis frá. Við ætlum að ræða við formann félagsins, Ástu Sól Kristjánsdóttur, um ættleiðingar til Íslands og helstu störf félagsins en margir ættleiddir leita til þess í leit að uppruna sínum.
    Og við höldum áfram að flytja umfjallanir nemenda í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands. Við byrjuðum í gær og fáum þrjú innslög í þætti dagsins:
    Ísabella Sól Ingvarsdóttir fjallar um hlaup og hvort 100 kílómetrar séu nýja maraþonið.
    Kári Snorrason ræðir við Sigga Storm um íslenska sumarið.
    Malín Eyfjörð fjallar um fyrirbærið kreppupopp og hvað popptónlist getur sagt okkur um efnahagsástandið.
    1 hr
  • Skátamerki, brúnkukremsfíkn, rappkúltúr, gervigreind og incel-menning
    Í þessari viku flytjum við hér í Samfélaginu ellefu umfjallanir úr smiðjum nemenda í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands. Í dag flytjum við fimm umfjallanir:
    Alma Sól Pétursdóttir fjallar um óhefðbundin, óformleg og krefjandi skátamerki.
    Ásrún Aldís Hreinsdóttir fjallar um brúnkukremsnotkun íslenskra ungmenna og brúnkukremsfíkn.
    Baldvin Þór Hannesson fjallar um nýja kynslóð íslenskra rappara og listahópinn FlySouth.
    Birta María Hallsteinsdóttir fjallar um tónlist og gervigreind.
    Halldór Ingi Óskarsson fjallar um incel-menningu.
    Við kíkjum líka í heimsókn í Þjóðskalasafn Íslands og veltum okkur upp úr einkaskjalasöfnum með Þórunni Marel Þorsteinsdóttur, verkefnastjóra hjá Þjóðskjalasafni Íslands.
    1 hr
  • Hafvernd, Ræktunarstöð Reykjavíkurborgar og íslensk bjórmenning
    Á dögunum var nýjasta heimildarmynd Davids Attenborough – Hafið – frumsýnd á Íslandi og viðbrögðin hafa verið sterk og jákvæð. Að því tilefni ætla framleiðendur myndarinnar og hópur íslenskra félagssamtaka, í samvinnu við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Háskólann í Reykjavík, að halda fund um hafvernd á Íslandi á mánudaginn. Hér rétt á eftir fáum við til okkar Katrínu Oddsdóttur og Andrés Inga Jónsson, tvo af skipuleggjendum fundarins, til að segja okkur meira.
    Hlustendur í höfuðborginni hafa líklega tekið eftir því að sumarblóm eru byrjuð að birtast hér og þar í borgarlandinu. Þessi sumarblóm – sem og allmörg tré, runnar og annar gróður – eru langflest ræktuð í Ræktunarstöð Reykjavíkurborgar í Fossvogi. Við heimsóttum ræktunarstöðina í vikunni og fengum að heyra hvernig gengur á þessum miklu annatímum hjá stöðinni við byrjun sumars.
    Og í lok þáttar setjumst við niður með félögum í Bjórmenningafélagi Íslands.
    1 hr
  • Meira um nýyrðasmíð gervigreindar, F.L.Í.S. og dagur líffræðilegrar fjölbreytni
    Við fjölluðum um nýyrðasmíð gervigreindar í síðustu viku og Eyrún Magnúsdóttir, gervigreindarfréttaritari Samfélagsins, heldur áfram þeirri umfjöllun í dag. Hún ræðir við Huldu Ólafsdóttur og Svanhvíti Lilju Ingólfsdóttur, sérfræðinga í máltækni hjá Miðeind, um nýyrðasmíð gervigreindar og færni hennar í íslensku.
    Seinna í þættinum fáum við til okkar stofnendur mótmælahreyfingarinnar F.L.Í.S. – eða Fokk Laxeldi í Sjókvíum – sem standa fyrir mótmælum á Austurvelli á morgun. Stofnendurnir eru þrjár stúlkur í tíunda bekk í Laugalækjaskóla. Við setjumst niður með tveimur þeirra, sem og fulltrúa Ungra umhverfissinna til að ræða um loftslagsaktívisma hjá ungu fólki.
    En í dag er dagur líffræðilegrar fjölbreytni og Stefán Gíslason, pistlahöfundur Samfélagsins, fjallar um það í pistli sínum í dag, sem við fáum að heyra undir lok þáttar.
    59 min
  • Skyndimótmæli við utanríkisráðuneytið, hlaup og erfðasjúkdómar
    Stór hópur fólks kom saman við utanríkisráðuneytið í dag og krafðist aðgerða í ljósi ólýsanlegra hörmunga á Gaza. Það er í sjálfu sér ekki nýtt – þessi mótmælahreyfing hefur verið öflug í rúmt eitt og hálft ár, en óhætt er að segja að ákveðinn vendipunktur hafi orðið þegar Sameinuðu þjóðirnar sögðu í gær að allt að 14 þúsund börn myndu svelta á Gaza ef neyðaraðstoð er ekki hleypt inn á svæðið. Þrýstingurinn á aðgerðir er að aukast og við fjöllum um það í dag – sem og mótmælin sem haldin voru í morgun.
    Hlaup eru vinsæl íþrótt og sumarið er tíminn þar sem fleiri og fleiri hlauparar fara á stjá. En hvernig á maður að byrja? Ósk Gunnarsdóttir hlaupari byrjaði að hlaupa fyrir þremur árum síðan og gat þá ekki hlaupið einn kílómeter án þess að stoppa. Á dögunum tók hún þátt í Bakgarðshlaupinu og hljóp þar rúma 240 kílómetra. Hún segir hlaupin hafa bjargað geðheilsu sinni og ætlar að gefa þeim sem vilja byrja að hlaupa nokkur góð hlauparáð.
    Að lokum kemur Edda Olgudóttir í heimsókn til okkar til að segja okkur frá því nýjasta úr heimi vísindanna.
    Tónlist í þættinum:
    FONTAINES D.C. - Skinty Fia.
    BRUCE SPRINGSTEEN - Born to run.
    Góss - Vor við flóann.
    59 min
  • Gott að eldast, loftslagssamkomulög liðast í sundur
    Gott að eldast er aðgerðaráætlun stjórnvalda um að auka samstarf varðandi málefni eldra fólks. En er gott að eldast á Íslandi og hvað er hægt að gera til þess að lifa betra lífi á efri árum? Við fáum til okkar Þórunni Huldu Sveinbjörnsdóttur, fyrrverandi formann Landssambands félags eldri borgara, til þess að ræða þessi mál og fleiri.
    Og svo fáum við til okkar Sigurð Jóhannesson, hagfræðing og forstöðumann Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, til að ræða um loftslagssamkomulög og hvaða máli þau skipta, sérstaklega í ljósi þess að sumir vilja ekki vera með.
    Að lokum fáum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi og pistlahöfundi Samfélagsins.
    1 hr
  • Gervigreind fyrir lögfræðinga, sagan í Fossvogskirkjugarði, hnitmiðað viðtal um sveitina
    Síðustu mánuði höfum við í Samfélaginu fjallað talsvert um mót lögfræði og gervigreindar og þá helst heyrt hvað lögfræðingar segja um gervigreind og gervigreindarlöggjöf. Í dag nálgumst við þessi viðfangsefni úr aðeins annarri átt – og kynnum okkur gervigreindartól fyrir lögfræðinga. Jónsbók er nýtt tól sem gæti haft talsverð áhrif á störf lögfræðinga og nám lögfræðinema. Við fáum til okkar Thelmu Christel Kristjánsdóttur frá gervigreindarfyrirtækinu Jónsbók til að segja okkur meira.
    Í Fossvogskirkjugarði er að finna einn stærsta skóg borgarinnar en þar er líka sagan á hverju strái. Bryndís Björgvinsdóttir þjóðfræðingur byrjaði að vinna þar fyrir um ári síðan við garðrækt en fór fljótlega að komast að ýmsum sögum um þau sem þar hvíla. Við röltum um garðinn með Bryndísi.
    Og í lok þáttar kíkir Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri Ríkisútvarpsins, í heimsókn og segir okkur frá áhugaverðu og gríðarlega hnitmiðuðu viðtali úr safni RÚV.
    Tónlist út þættinum:
    Mitchell, Joni - This Flight Tonight.
    Bjarni Björnsson - Bílavísur.
    Bryan, Zach, Bon Iver - Boys Of Faith (Explicit).
    1 hr
  • Útfjólubláir geislar og upplýsingaóreiða í tengslum við matvæli
    Það hefur verið sólríkt á landinu síðustu daga og það virðist ætla að vera það áfram og af því tilefni ætlum við að ræða við tvo læknisfræðilega eðlisfræðinga hjá Geislavörnum ríkisins til að velta fyrir okkur útfjólubláum geislum og hvenær þurfi að huga að sólarvörn. Edda Lína Gunnarsdóttir og Eyjólfur Guðmundsson setjast hjá okkur í upphafi þáttar til að spjalla um þetta.
    En síðan ætlum við að huga að mat og mataræði. Í liðinni viku stóð Matís fyrir málþingi um neytendur framtíðarinnar – þar sem meðal annars var fjallað um upplýsingaóreiðu í tengslum við matvæli. Þóra Valsdóttir og Kolbrún Sveinsdóttir, matvælafræðingar og verkefnastjórar hjá Matís, ætla að kíkja í heimsókn á eftir og ræða aðeins við okkur.
    55 min
  • Nýyrðasmíð gervigreindar, Afstaða í 20 ár, ofanflóð og loftslagsbreytingar
    Afstaða, félag fanga, fagnar 20 ára afmæli í ár. Félagið berst fyrir réttindum fanga og við ætlum að ræða formann félagsins, Guðmund Inga Þóroddsson, um fangelsismál almennt.
    Refilskór, óðlega, tónfæri. Spjallmenni á borð við ChatGPT búa stundum til ný orð þar sem þau vantar og nota oft orð eins og þessi, sem enginn kannast við. Er gervigreindin þannig eins og barn á máltökuskeiði? Eyrún Magnúsdóttir, gervigreindarfréttaritari Samfélagsins, kemur til okkar í dag og ræðir við okkur og Önnu Sigríði Þráinsdóttur, málfarsráðunaut Ríkisútvarpsins, um nýyrðasmíði gervigreindarinnar.
    Og að lokum fáum við tvö viðtöl sem Samfélagið tók á Ísafirði í síðustu viku - um hagræn áhrif ofanflóða, og áhrif loftslagsbreytinga á ofanflóðaáhættu.
    Tónlist úr þættinum:
    Weyes Blood - Andromeda (Radio Edit) (bonus track mp3).
    Ólafur Kram - Blúndustelpan.
    1 hr
  • Starfsemi SÁÁ, menning á Vestfjörðum og sýklalyf í ferskvatni
    Fjölmargir sækja sér árlega meðferð vegna áfengis og vímuefnavanda hjá SÁÁ - samtökum áhugafólks um áfengis og vímuefnavanda. En það hefur margt breyst á undanförnum árum í nálgun á því hvernig er unnið með vímuefnavanda. Við ræðum við Önnu Hildi Guðmundsdóttur, formann samtakanna, um starf þeirra.
    Í dag fjöllum við líka um vestfirska menningu - á dögunum hittum við Skúla Gautason, menningarfulltrúa Vestfjarða, á Hólmavík, sem fræddi okkur um þróunarstyrk Vestfjarða - og við ræddum líka við fólkið á bakvið Menningarmiðstöðina Norðurfjöru á Hólmavík, sem fékk einmitt styrk úr sjóðnum.
    Og að lokum kíkir Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins, í heimsókn og segir okkur hitt og þetta um sýklalyf í ferskvatni.
    55 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners