Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Úttekt á regnhlífanotkun. Gerir Google út af við fréttamiðla? Pistill um hafið
    Þjóðhátíðardagurinn er handan við hornið, eða helgina og viti menn - þá er spáð rigningu um mest allt land enda ekki almennilegur 17. júní nema það rigni og helst duglega. Til að búa landsmenn undir hæhó og jibbý jei ákvað Samfélagið að ráðast í rannsókn á regnhlífanotkun á Íslandi fyrr og nú - og spyrja: Eru regnhlífar gagnlegar eða ef til vill algerlega gagnslausar á Íslandi? Hvers vegna ráðum við túristum eindregið frá því að pakka regnhlífum fyrir Íslandsferðina?
    Nýlegar breytingar á Google-leitarvélinni sem færa notendum svör samin af gervigreind hafa orðið til þess að netumferð á fréttamiðla hefur snarminnkað. En munu tæknirisar endanlega gera út af við fréttamiðla? Í dag veltum við þessari spurningu fyrir okkur með Eyrúnu Magnúsdóttur, gervigreindarfréttaritara Samfélagsins.
    Pistill frá Esther Jónsdóttur, pistlahöfundi Samfélagsins - hún hefur undanfarið verið með hugann við hafið og pistill dagsins endurspeglar það.
    Tónlist í þættinum:
    SPILVERK ÞJÓÐANNA, SPILVERK ÞJÓÐANNA - Skýin.
    MASSIVE ATTACK - Teardrop.
    RIHANNA - Umbrella.
    THE WEATHER GIRLS - It´s Raining Men.
    Franklin, Aretha - My guy.
    O-Shen - Siasi.
    59 min
  • Rúnar götuljósmyndari, baráttan fyrir afglæpavæðingu heimabruggs
    Rúnar Gunnarsson ljósmyndari er einn fárra sem stundað hefur götuljósmyndun á Íslandi - raunar hefur hann myndað mannlífið í 65 ár. Við hittum Rúnar á Lækjartorgi og ræðum við hann um götuljósmyndun, mannlífið í miðborg Reykjavíkur í áranna rás og hvort tíminn sé mögulega bara einhvers konar blekking.
    Félag áhugafólks um gerjun – eða FÁGUN – er stofnað utan um áhugamál sem er í raun og veru ólöglegt á Íslandi: heimabrugg. Engu að síður er starfsemi félagsins blómleg og félagarnir talsvert margir. Í dag heimsækjum við FÁGUN, fræðumst um starfsemina og heyrum meira um bjórbrugg, bjórmenningu og baráttuna fyrir afglæpavæðingu heimabruggs.
    Tónlist í þættinum:
    Sylvan Esso - Die young
    Júníus Meyvant og KK - Skýjaglópur
    1 hr
  • World Pride gert upp, samfélagslöggur í sókn, mjólkurvörur og hamfarahlýnun
    Mannréttindaráðstefna World Pride var haldin í síðustu viku í höfuðborg Bandaríkjanna – en ráðstefnan er hluti af stærstu hinsegin viðburðarröð heims og dregur að sér þátttakendur, sérfræðinga og leiðtoga alls staðar að úr heiminum til að ræða stöðu og framtíð mannréttinda hinsegin fólks. Fulltrúar Samtakanna 78 og Hinsegin daga tóku meðal annarra þátt í ráðstefnunni og í dag koma þeir í heimsókn til okkar - þær Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna 78, og Helga Haraldsdóttir, formaður Hinsegin daga – til að gera upp ráðstefnuna.
    Fyrstu samfélagslögreglumennirnir á Íslandi tóku til starfa fyrir rúmum sex árum síðan. Síðan hefur verkefnið vaxið hratt og nú eru starfandi samfélagslöggur á flestum lögreglustöðvum landsins. Við ræðum við Unnar Þór Bjarnason, reynda samfélagslöggu, um hvernig megi skapa traust og tengsl milli lögreglunnar og almennings og hvernig lögreglan hefur stigið inn í erfið mál tengd unglingum og ungu fólki.
    Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins, fræðir okkur um loftslagsbreytingar og mjólkurvörur.
    Tónlist í þættinum:
    Japanese Breakfast - Slide Tackle
    Suki Waterhouse - Supersad
    59 min
  • Glæpatíðni á Íslandi og sumarstörf
    Í dag fjöllum við um glæpi. Þegar fylgst er með almennri umræðu á Íslandi mætti stundum halda að glæpatíðnin í dag væri hærri en gengur og gerist og stundum heyrast jafnvel raddir sem segja að ástandið hér á landi sé stjórnlaust – af hinum ýmsu ástæðum. En hvað segja tölurnar okkur? Snorri Örn Árnason, verkefnastjóri hjá ríkislögreglustjóra og aðjúnkt í afbrotafræði við Háskóla Íslands kíkir í heimsókn til að segja okkur meira um það.
    Sumarstörf eru alls konar, við heyrum í dag nokkrar sögur frá hlustendum af eftirminnilegum sumarstörfum og ræðum við Önnu Katrínu Halldórsdóttur, framkvæmdastjóra vinnumiðlunarinnar Alfreðs, um stöðu sumarstarfa í dag.
    Tónlist úr þættinum:
    ARETHA FRANKLIN - Say a Little Prayer For Me.
    Kraftwerk - Taschenrechner.
    La Havas, Lianne - Unstoppable (bonus track mp3).
    King, Carole - Lay down my life (album version).
    59 min
  • Fann frelsi í þremur fermetrum, sumarhraðallinn Startup supernova, að eitra fyrir sínum nánustu
    Fyrir fjórum árum stóð Loftur Guðmundsson, verkfræðingur, á krossgötum, ákvað að láta reyna á gamlan draum og flutti í húsbíl. Nýlega ákvað hann að minnka við sig og býr nú í þriggja fermetra sendiferðabíl á Sævarhöfða í Reykjavík, þar sem fleira fólk býr í húsbílum og smáhýsum með aðgang að rafmagn og hreinlætisaðstöðu. Við heimsækjum Loft sem líklega er einn nægjusamasti maður landsins og kynnumst hugmyndunum á bakvið lífsstílinn.
    Frumkvöðlar hætta ekki að fá hugmyndir á sumrin – þess vegna stendur Klak Icelandic Startups fyrir sumarhraðlinum Startup Supernova – þar sem markmiðið er að ný fyrirtæki lendi hlaupandi og stækki hratt. Atli Björgvinsson og Jenna Björk Guðmundsdóttir frá Klak koma í heimsókn í dag til að segja okkur frá þessum hraðli – og líka aðeins frá sögu Klak, sem fagnaði nýlega 25 ára afmæli.
    Stefán Gíslason flytur okkur eitraðan pistil þar sem netverslunarrisinn Temu og rithöfundurinn Agatha Christie koma við sögu.
    Tónlist í þættinum:
    Katrín Helga Ólafsdóttir - Seinasti dansinn okkar.
    Simon and Garfunkel - Cecilia
    55 min
  • Gervigreind og matarsóun, hand-, fóta- og munnsjúkdómur, verkjameðferðir
    Tæknin hjálpar okkur við margt í daglegu lífi, en mun gervigreind hjálpa til við að leysa stór vandamál sem steðja að heiminum, eins og matarsóun. Eyrún Magnúsdóttir, gervigreindarfréttaritari Samfélagsins, ætlar að koma til okkar og fjalla um það hvernig gervigreind og matarsóun tengjast.
    Reglulega berast foreldrum leikskólabarna tölvupóstar um að hinn eða þessi sjúkdómur hafi skotið sér niður í skólanum. Einn þessara sjúkdóma er hand-, fóta- og munnsjúkdómur, líka kallaður blöðrumunnbólga með útbrotum. Við ætlum að ræða við Valtý Stefánsson Thors, barnasmitsjúkdómalækni á Landspítalanum, um barnasmitsjúkdóma, hvernig sjúkdómaflóran hefur breyst í áranna rás og hvers vegna sumt eldra fólk kváir þegar barnasjúkdóma dagsins í dag ber á góma.
    Edda Olgudóttir, vísindamiðlari þáttarins og fastur miðvikudagsgestur, ætlar svo að spjalla við okkur um nýjar rannsóknir á verkjameðferðum.
    1 hr 1 min
  • Hertar umbúðakröfur, kynjuð raddbeiting og árfarvegur Túría-ár
    Ýmsar umbúðir sem fyrirtæki hér á landi nota verða ólöglegar ef og þegar ný umbúðareglugerð Evrópusambandsins verður innleidd í íslenskt regluverk í gegnum EES-samninginn. Reglurnar lúta að hönnun, samsetningu og stærð umbúða og koma til með að snerta marga framleiðendur hér. Til dæmis verður bannað að pakka gúrkum og tómötum í plast, litlar smjöröskjur og pokarnir með tómatsósu, sem oft fylgja frönskum á veitingastöðum heyra líka sögunni til og sums staðar eiga einnota umbúðir að víkja alfarið fyrir umbúðum sem hægt er að nota aftur og aftur. Sigurður Helgi Birgisson, viðskiptastjóri matvælaiðnaðar hjá Samtökum iðnaðarins, hefur verið fyrirtækjum innan handar við að búa sig undir þessar breytingar og hann ætlar að koma til okkar og ræða stöðuna í dag og framtíðina í umbúðamálum.
    Við fjöllum líka aðeins um röddina. Við heimsækjum Lindu Markúsardóttur, talmeina- og raddfræðing, á Grensásdeild Landspítalans – meðal annars til að ræða kynjaða eiginleika raddarinnar, sem eru flóknari en þeir hljóma við fyrstu hlustun.
    Spænska borgin Valencia varð illa úti í miklum flóðum í fyrra. Flóð hafa öldum saman valdið usla í borginni og svo fór að um miðja síðustu öld var árfarvegur árinnar Túría, sem oft flæddi yfir bakka sína, fluttur út fyrir borgina - Páll Líndal, umhverfissálfræðingur, segir frá því hvað varð um gamla árfarveginn og hvernig þessi tilfærsla eltist í pistli dagsins.
    Tónlist í þættinum:
    BOB DYLAN - One More Cup Of Coffee.
    JET BLACK JOE - Summer is gone.
    Bravo, Nino - Un beso y una flor.
    1 hr
  • Reykjavík Fringe Festival og hitamótmæli á Austurvelli
    Hátíðin Reykjavík Fringe Festival fer fram í áttunda sinn þessa vikuna, þar verða margs konar listform og gjörningar ráðandi; uppistand, ljóð, ljósmynda- og leiksýningar - meira að segja burlesque-danssýning þar sem kettir koma við sögu. Við fáum tæknistjóra hátíðarinnar, Juliette Louste, til að ræða við okkur um þessa hátíð sem á rætur sínar að rekja til grasrótarhreyfingar listamanna í Skotlandi fyrir hartnær áttatíu árum síðan.
    Um helgina var boðað til tveggja mótmæla í miðborg Reykjavíkur – önnur voru á Austurvelli vegum hóps sem heitir Ísland, þvert á flokka, þar sem stefnu stjórnvalda í útlendingamálum var mótmælt – og hin voru eiginleg gagnmótmæli á Ingólfstorgi, þar sem hópur kom saman til að taka afstöðu gegn mótmælunum á Austurvelli og með jaðarsettum hópum. Samfélagið mætti á þau bæði – ræddi við fólkið sem þar var og fylgdist með því sem fór fram.
    Tónlist í þættinum:
    AIR - All I Need.
    58 min
  • Ósanngjarnar kröfur um samskiptahæfileika og hafið
    Oft eru gerðar miklar kröfur um samskiptahæfileika í atvinnuauglýsingum, jafnvel í störfum þar sem þeirra er ekki þörf. Þetta getur haft útilokandi áhrif fyrir einhverfa sem búa oft yfir öðrum styrkleikum sem nýtast vel í starfi. Eru gáfur jafnvel að fara til spillis vegna þess að vinnumarkaðurinn er of einsleitur? Í meistararitgerð með yfirskriftinni: Allir eiga að vera mega hressir og með brennandi áhuga, rannsakar Bjarney L. Bjarnadóttir þessi mál. Við ræðum við hana um rannsóknina hér á eftir.
    Og í dag flytjum við líka sérstakan pistil úr smiðju Estherar Jónsdóttur, pistlahöfundar Samfélagsins. Pistill dagsins fjallar um hafið og í honum komum við meðal annars við á eyjunni Maui, í kvikmyndahúsi í Reykjavík á frumsýningu merkilegrar kvikmyndar, í Háskólasetri Vestfjarða og á stöndinni við Hólmavík.
    59 min
  • Framtíð Heiðmerkur, níkótínpúðafíkn. strákahljómsveitir, AFÉS og Alzheimer
    Aðgengi almennings að Heiðmörk kann að verða takmarkað í framtíðinni. Veitur stefna að því að loka grannsvæði vatnsverndar fyrir almennri bílaumferð. Í dag verður haldið málþing á vegum Skógræktarfélags Reykjavíkur þar sem framtíð Heiðmerkur verður rædd. Auður Kjartansdóttir, framkvæmdarstjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, kemur og ræðir við okkur um framtíð Heiðmerkur.
    Síðan fáum við síðasta pakkann af umfjöllunum frá nemendum í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands.
    Stefanía Silfá Sigurðardóttir fjallar um tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður á Ísafirði.
    Theódóra Guðný Vilhjálmsdóttir fjallar um strákahljómsveitir.
    Þórður Ari Sigurðsson fjallar um níkótínpúðanotkun ungmenna.
    Og að lokum kíkir Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjall og segir okkur frá áhrifum Alzheimers á aðra vefi líkamans.
    57 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners