Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Mönnunarvandi í heilbrigðiskerfinu, opnun Vesturbæjarlaugar 1961 og agnir í straumiðu
    Launasetning háskólamenntaðra á opinberum vinnumarkaði er hvað lægst hjá heilbrigðisstéttum. Hvaða áhrif hefur langtíma undirmönnun á gæði heilbrigðisþjónustu?
    Steinunn Bergmann formaður Félagsráðgjafafélags Íslands og Laufey Elísabet Gissurardóttir, formaður Þroskaþjálfafélags Íslands komu til okkar í spjall og rýndu í stöðuna.
    Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, fræðir okkur um sögu Vesturbæjarlaugar í Reykjavík. Laugin hefur nokkuð oft verið lokuð undanfarið vegna viðhalds og viðgerða. Í safni RÚV er að finna upptökur frá því að sagt var frá opnun laugarinnar í fréttum árið 1961.
    Allt í kringum okkur eru agnir; ryk, veirur, frjókorn, sót. Þessar agnir hreyfast í lofti eða vatni - en hvernig? Björn Birnir, stærðfræðiprófessor og vísindamaður við Santa Barbara-háskóla í Kaliforníu, varpar í nýrri rannsókn ljósi á hvernig þessar agnir hreyfast í straumiðu. Sú þekking getur haft mikla praktíska þýðingu, svo sem fyrir flugöryggi, gerð veðurspáa eða viðbrögð við smitsjúkdómum.
    Tónlist þáttarins:
    ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR - Íslenskt vögguljóð á hörpu.
    STING - Fragile
    59 min
  • Evrópskar sjálfsmyndir, Umhverfisráðherra um vernd hafsins, Dýraspjall með Veru
    Málþing um mikilvægi og áhrif evrópsks menningarsamstarfs er haldið í dag og þar er meðal annars verið að kynna verkefni um framleiðslu tíu stuttmynda frá jaðri Evrópu. Meðal umfjöllunarefna eru skynsegin sjálfsmyndir í íslensku landslagi. Dögg Sigmarsdóttir segir okkur frá þessu.
    Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- orku og loftslagsráðherra, segir Ísland ekki hafa staðið sig nógu vel í að vernda hafið. Hann vill byrja á að vernda ónýtt svæði utarlega í efnahagslögsögunni. Ísland hefur skuldbundið sig til að vernda 30% hafsvæða við landið fyrir árið 2030 - stökkið er ansi hátt, því í dag nýtur einungis um 0,07% lögsögunnar formlegrar verndar.
    Vera Illugadóttir kemur í dýraspjall í lok þáttar og segir okkur frá hinum háðsku Ignóbelsverðlaunum, sebrahestar koma þar eitthvað við sögu.
    Tónlist í þættinum:
    Norah Jones - Those Sweets Words.
    Ríó Tríó - Dýrið gengur laust.
    Nýdönsk - Fullkomið farartæki.
    58 min
  • Guðmundur í Brim um botnvörpuveiðar, staða skákkennslu og virkni eldra fólks
    Við höldum áfram að fjalla um botnvörpuveiðar og áhrif þeirra, ástand hafsins við Ísland og áform stjórnvalda um að ná verndarsvæðum í hafi úr 1,6% lögsögunnar í 30% fyrir árið 2030. Liður í slíkri umfjöllun hlýtur að vera að heyra í forsvarsmönnum sjávarútvegsins - við ræðum hafið við Guðmund Kristjánsson, forstjóra Brims sem ætlaði aldrei að koma nálægt trollum - enda alinn upp af línufólki. Hann gagnrýnir aukið sérfræðingaveldi, vill að stjórnvöld treysti sjómönnum og sjávarútvegsfyrirtækjum og þau fái aukna aðkomu að ákvörðunum um greinina og umhverfi hennar.
    Skák hefur heltekið marga í gegnum árin og fegurð íþróttarinnar ekki síst fólgin í því hve vel hún hentar öllum. Með tækniþróun hafa orðið breytingar á skákkennslu og eftir Covid varð aukning meðal þeirra sem sækja sér kennslu og mæta á skákmót. Samfélagið hitti Gauta Pál Jónsson, ritstjóra og skákkennara og fræddist um stöðu skákíþróttarinnar.
    Harpa Þorsteinsdóttir, lýðheilsufulltrúi Reykjavíkurborgar, ætlar að koma til okkar í lok þáttar og segja okkur allt um virkniþing fyrir eldra fólk sem fer fram í Ráðhúsinu á morgun. Á þinginu verður kynnt fjölbreytt heilsueflandi þjónusta og afþreying.
    Tónlist í þættinum:
    Ásgeir Trausti - Stardust.
    Ljótu hálfvitarnir - Sonur hafsins.
    Eivör Pálsdóttir - Við gengum tvö.
    57 min
  • Áhrif botnvörpuveiða, börn með matvendni og nýjar rannsóknir á krabbameinsstofnfrumum
    Í heimildarmynd Davids Attenboroughs um hafið er mikið fjallað um möguleika þess til að milda áhrif loftslagsvandans - en slæm meðferð á hafinu og einkum hafsbotninum getur aukið á vandann. Botnvörpuveiðar valda raski á hafsbotni og þetta rask veldur losun gróðurhúsalofttegunda. En hversu mikil er þessi losun? Er fiskur kannski ekki jafn loftslagsvæn fæða og talið var? Þessu eiga vísindamenn erfitt með að svara.
    Matarvenjur fólks eru margbreytilegar eftir heimsálfum, menningu og siðum í landi hverju. Mismunandi er hvaða matar kröfur eru gerðar til barna eftir því hvar þau búa í heiminum og hvað foreldrar ætlast til að þau borði. Margir uppalendur hafa áhyggjur af matarvenjum barna sinna, hvort einhverjar fæðutegundir skorti í mataræðið eða ef börnin eiga erfitt með að samþykkja nýjar fæðutegundir. Samfélagið kíkti í heimsókn til Sigrúnar Þorsteinsdóttur, barnasálfræðings og fræddist um matvendni.
    Í lok þáttar kom Edda Olgudóttir til okkar og segja okkur frá nýrri rannsókn á krabbameinsstofnfrumum.
    Tónlist í þættinum:
    EYÞÓR INGI & LAY LOW - Aftur Heim Til Þín.
    THE RONETTES - Be My Baby.
    SÍÐAN SKEIN SÓL - Ég Stend Á Skýi.
    59 min
  • Geðlestin, þróun og áhrif veiðarfæra og hvenær lærðu Íslendingar að skrifa?
    Í gulum september, sem nú stendur yfir, er lögð áhersla á að auka meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna með kærleika, aðgát og umhyggju að leiðarljósi. Í tilefni af gulum september ætla landssamtökin Geðhjálp að ferðast um landið með geðlestina. Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, kom í spjall.
    Stór hluti þess afla sem er sóttur í hafið við Ísland er veiddur með botnvörpu, veiðarfærum sem hafa sætt gagnrýni undanfarið, eftir mynd breska fjölmiðlamannsins Davids Attenborough um hafið. Haraldur Arnar Einarsson, fiskifræðingur hjá Hafró og sérfræðingur hjá Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna, hefur rannsakað þróun veiðarfæra og áhrif þeirra á náttúruna. Öll veiðarfæri valda skaða, enda hönnuð til að drepa og öll geta þau valdið viðbótarskaða á lífríkinu. Skaðinn af völdum botnvarpa á Íslandi er víða löngu skeður.
    Hvenær lærðu Íslendingar að skrifa og jafngildir það að geta párað eða klórað því að vera skrifandi? Erla Hulda Halldórsdóttir, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, svaraði þessum spurningum nýlega á Vísindavefnum. Hún ræðir við okkur um skriffærni almennings á öldum áður og mótlæti sem fátækar stúlkur sem vildu læra að draga til stafs mættu - langamma hennar þar á meðal.
    Tónlist í þættinum:
    Ómar Ragnarsson - Kossar, sætari en vín.
    Una Torfadóttir - Það sýnir sig (Studio RUV).
    Helga Möller - Ort í sandinn.
    1 hr
  • Vernd íslenskra hafsvæða, dulúðlegar fjalir á Þjóðskjalsafninu og rannsókn á fjölmiðlanotkun
    Fyrir árið 2030 hyggjast íslensk stjórnvöld tryggja vernd 30% hafsvæða við Ísland. Þetta er stórt stökk því í dag er bara örlítið brot af hafinu við Ísland verndað. Snjólaug Árnadóttir, dósent við Lagadeild HR og forstöðumaður Sjálfbærni- og loftslagsréttarstofnunar Háskólans í Reykjavík, ætlar að ræða við okkur um hafréttarmál en það er allur gangur á því hvort alþjóðasáttmálar um vernd hafsins eru bindandi eða ekki og misjafnt hversu skýrar kröfur þeir gera til aðildarlanda.
    Þjóðskjalasafn Íslands varðveitir heimildir um sögu landsins og þróun byggðar og mannlífs. Þar má meðal annars finna heimildir um fjalir sem varðveittar eru á Þjóðminjasafni Íslands. Fjalirnar komu til safnsins 1924 og voru lengi sveipaðar dulúð vegna myndefnisins sem var á þeim.
    Fjórir af hverjum tíu í heiminum segjast forðast að neyta frétta, stundum eða oft, samkvæmt árlegri könnun á fjölmiðlanotkun sem nær til 48 landa. Þetta hlutfall hefur hækkað um ellefu prósentustig frá árinu 2017. Þátttakendur í könnuninni segjast jafnvel úrvinda yfir miklu magni frétta og umfjöllun oft of neikvæð. Við ræddum þessar niðurstöður við Skúla Braga Geirdal fjölmiðlafræðing.
    57 min
  • Iðnaðarúrgangi breytt í hönnun, ný barkarbjöllutegund ógnar ungplöntum, dökkar hliðar gervigreindarinnar
    Árið 2024 umbreytti hönnunarfyrirtækið FÓLK Reykjavík 14,5 tonnum af iðnaðar- og neytendaúrgangi í verðmætar hönnunarvörur. Blómavasar, veggljós, bakkar og púðar voru búin til úr afgangssteini-, gleri og textíl sem annars hefði farið til spillis, endað í landfyllingu eða verið brennt með tilheyrandi umhverfiskostnaði. Við ræðum við Rögnu Söru Jónsdóttur, stofnanda og framkvæmdastjóra Fólk Reykjavík.
    Ný skordýr eru stöðugt að skjóta upp kollinum hér á landi. Samfélagið hefur áður heimsótt skordýrafræðingana Brynju Hrafnkelsdóttur og Matthías Alfreðsson á Mógilsá - þar sem þau leggja gildrur og rannsaka landnám nýrra skordýra. Birkitré víða um land eru til dæmis í betra ástandi núna vegna landnáms sníkjuvespu sem er óvinur birkiþélunnar sem hefur leikið birkið grátt síðustu ár. Þau Matthías og Brynja hafa svo undanfarið ár fylgst með landnámi barkarbjöllutegundar, sem þau töldu saklausa í fyrstu - en annað hefur nú komið á daginn. Við heyrum allt það nýjasta úr heimi skordýranna.
    Djúpfalsanir eru ein af dökku hliðum gervigreindar. Með aðstoð tækninnar er hægt að falsa myndir og myndbönd á afar sannfærandi hátt. Stærstur hluti djúpfalsana er klám og helstu fórnarlömb djúpfalsana eru konur, ekki bara frægar konur heldur hver sem er sem á mynd af sér á netinu. Eyrún Magnúsdóttir, blaðamaður og gervigreindarfréttaritari Samfélagsins, kemur til okkar á eftir og ræðir um gervigreind og kvenfyrirlitningu sem birtist í djúpfölsunum.
    Tónlist í þættinum:
    DOLLY PARTON - Coat Of Many Colours.
    PRINS PÓLÓ - París Norðursins.
    58 min
  • Minnkandi arðsemi menntunar, ástríða fyrir íþróttakennslu og uppfinning sem eyðir plastrusli
    Borgar sig að vanmeta menntun? var yfirskrift málþings sem fór fram í Grósku í byrjun vikunnar. Arðsemi háskólanáms á Íslandi hefur dregist saman um helming frá árinu 2008, samkvæmt nýrri skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sem unnin var fyrir BHM. Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM, segir okkur frá helstu niðurstöðum.
    Íþróttakennsla barna í grunnskólum hefur tekið breytingum þau fjörutíu ár sem Erla Gunnarsdóttir hefur sinnt kennslu. Erla hóf störf sem íþróttakennari í Seljaskóla í Breiðholti á níunda áratug síðustu aldar en flutti sig yfir í Hamraskóla í Grafarvogi þegar sá skóli opnaði árið 1991. Samfélagið hitti Erlu í Hamraskóla á dögunum og hún segir okkur frá upplifun sinni af því að kenna börnum íþróttir og sund í gegnum árin og sínu hlutverki sem kennara, sem hún segir best lýst sem heilsuþjálfara.
    Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur og pistlahöfundur Samfélagsins, greinir frá nýrri uppgötvun sem getur reynst vel, bæði í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og í baráttunni gegn plastmengun.
    Tónlist í þættinum:
    JOHNNY CASH - I Walk The Line.
    KATRINA AND THE WAVES - Walking On Sunshine.
    59 min
  • Skólar farnir á fullt eftir sumarfrí, hafsbotninn við Ísland kortlagður og rannsókn á Parkinson sjúkdómi
    Hvað vitum við um lífríkið á hafsbotninum umhverfis Ísland? Þekking vísindamanna er gloppótt og sömuleiðis vitneskja um áhrif botnvörpuveiða á þetta lífríki. Í sumar hitti Samfélagið Steinunni Hilmu Ólafsdóttur, sjávarlíffræðing, um borð í nýja hafrannsóknaskipinu, Þórunni Þórðardóttur. Steinunn Hilma var á leið í nokkurra vikna siglingu til að rannsaka lífríki hafsbotnsins við Ísland og sagði okkur frá rannsóknaraðferðunum, stöðu þekkingar og hvað henni finnst um þá útreið sem botnvörpuveiðar fá í nýjustu mynd Davids Attenborough, Ocean.
    Skólar landsins eru fullir af lífi á ný eftir sumarfrí og í þættinum ætlum við að fá innsýn inn í vinnudag kennara. Atli Rafnsson er umsjónarkennari við Setbergsskóla í Hafnarfirði. Við fylgdum honum eftir einn vinnudag, frá því hann mætti hjólandi til vinnu að morgni og þar til hann gekk inn í síðustu kennslustund dagsins.
    Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins, kom í þáttinn og sagði okkur frá nýrri rannsókn á Parkinson sjúkdómnum.
    RÚNAR JÚLÍUSSON - Hamingjulagið.
    Mitchell, Joni - Little Green.
    FRIÐRIK DÓR - Ekki stinga mig af.
    58 min
  • Framlag atvinnulífsins til loftslagsmála og staðleysa í borgum
    Grænvangur er samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda í loftslagsmálum.
    Ársfundur samtakanna fór fram á dögunum. Við ræðum við Nótt Thorberg, forstöðumann Grænvangs, um getu atvinnulífsins til að leggja sitt af mörkum í loftslagsmálum, helstu hindranir og sóknarfæri og samstarfið við stjórnvöld.
    Páll Líndal veltir í pistli dagsins fyrir sér staðaranda, staðleysu og Disney-væðingu og setur í samhengi við fyrirhugaða uppbyggingu gamla Slippssvæðisins í Vesturbugt í Reykjavík.
    30 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners