Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Vímuefnaröskun, rafbílarafhlöður og vorið 1974
    Í dag byrjum við þáttinn á umfjöllun um vímuefnaröskun, sem er einn alvarlegasti heilbrigðisvandinn sem við glímum við – samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni. Röskunin er þó meðhöndlanleg og við eigum meðferðir sem virka – en röskunin einkennist ekki síst af bakföllum og hindranirnar sem blasa við þeim sem sækja sér meðferð eru margar.
    Erla Björg Sigurðardóttir, lektor í félagsráðgjöf og framkvæmdastýra á áfangaheimili fyrir konur, Helena Gísladóttir, dagskrárstjóri meðferðar Krýsuvíkursamtakanna og MA-nemi í félagsráðgjöf og Sara Karlsdóttir löggiltur áfengis og vímuefnaráðgjafi og dagskrárstjóri meðferðar hjá Hlaðgerðarkoti setjast hjá okkur og ræða um félagslega stöðu einstaklinga í langtíma meðferð vegna vímuefnaröskunar.
    Hvað á að gera við rafhlöðuna úr rafmagnsbílnum þegar hann er hættur að ganga? Rúnar Unnþórsson, prófessor í iðnaðar- og vélaverkfræði við Háskóla Íslands, leitar nú svara við því en búast má við að innan fárra ára hafi fallið til mikið af slíkum rafhlöðum sem vel gætu átt gott og farsælt framhaldslíf.
    Og í lok þáttar ætlar Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, að kíkja við og deila með okkur gullmola úr safni Ríkisútvarpsins.
    Tónlist úr þættinum:
    Bridgers, Phoebe - Motion sickness.
    Fleet Foxes - Battery Kinzie.
    Stuðmenn - Vorið.
    1 hr
  • Heimsókn í neyslurými og upplifun sögunnar
    Í dag heimsækir Samfélagið neyslurýmið Ylju í Borgartúni. Þar getur fólk 18 ára og eldra - sem notar vímuefni í æð komið og notað lyfin sín í hreinu og öruggu umhverfi - og fengið lágþröskuldarheilsbrigðisþjónustu. Við ræðum við starfsfólk Ylju í dag um hvernig reynslan hefur verið síðan Ylja opnaði í Borgartúni síðasta sumar - og við heyrum líka í skjólstæðingi Ylju sem segir okkur frá sinni reynslu af þjónustunni.
    Og síðan fáum við pistil frá Esther Jónsdóttur, pistlahöfundi Samfélagsins, sem fjallar í dag um hvað það þýði að upplifa söguna.
    Tónlist úr þættinum:
    Bon Iver - Re: Stacks.
    K.óla - Vinátta okkar er blóm.
    Aretha Franklin - Somewhere
    59 min
  • Sýndarsjúklingar og fitusöfnun eftir miðjan aldur
    Í dag verður nýtt færni- og hermisetur Háskóla Íslands og Landspítala opnað formlega. Setrið er í hálfgert æfingasjúkrahús þar sem nemendur HÍ og starfsfólk spítalans geta æft sig að sinna sýndarsjúklingum sem geta farið í hjartastopp, svitnað, blánað og veikst af öllum mögulegum sjúkdómum. Við kíktum í heimsókn í HERMÍS í Eirbergi á Landspítalasvæðinu og skoðuðum setrið ásamt Þorsteini Jónssyni – forstöðumanni – og Hrund Thorsteinsson – deildarstjóra menntadeildar Landspítalans.
    Edda Olgudóttir vísindamiðlari fjallar um fitusöfnun eftir miðjan aldur.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Spalding, Esperanza - Let her.
    Laufey - Falling Behind.
    1 hr
  • Áhrifavaldar barna, lífið í Róm og góða veðrið
    Í gær var haldinn fræðslufundur fyrir foreldra þar sem kafað var ofan í heim snallsíma og samfélagsmiðla. Fundurinn bar heitið þekkir þú áhrifavaldana í lífi barnsins þíns? og snerti meðal annars á áhyggjum sem hafa vaknað nýlega um samfélagsmiðlanotkun barna – ekki síst í kjölfar Netflix-þáttanna Adolescence. Nokkur hundruð manns mættu á fundinn, og í dag fáum við til okkar tvö þeirra sem stóðu fyrir honum, Daðeyju Albertsdóttur, sálfræðing hjá Geðheilsumiðstöð barna - HH og Domus Mentis Geðheilsustöð og Skúla Braga Geirdal sviðsstjóra Saft – Netöryggismiðstöðvar Íslands.
    Besta leiðin til að njóta lífsins í Róm kostar ekki neitt. Þetta segir Ingólfur Níels Árnason sem býr og starfar í Róm en Samfélagið hitti hann þar fyrir skömmu, rétt áður en Frans páfi lést á annan dag páska.
    Hann segir að ein mesta áskorunin við að samlagast ítölsku samfélagi hafi verið skólaganga barnanna hans og segir Rómverja vera með kolsvartan húmor sem Íslendingar geti tengt vel við.
    Og í lok þáttar fáum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi og pistlahöfundi Samfélagsins.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Jovanotti - Ciao mamma
    Cos´é bonetti - Lucio Dalla
    Il paradiso della vita - La ragazza 77
    59 min
  • Landnámsskógur endurheimtur, gervigreind og sifjaspell á 18. öld
    Í Skagafirði er unnið að því að endurheimta skóglendi, í Brimnesskógum, en þar var blómlegur skógur á landnámsöld. Steinn Kárason garðyrkjumeistari og umhverfishagfræðingur er frumkvöðull að þessu, hann kemur í þáttinn og segir okkur allt um þetta.
    Í síðustu viku fjölluðum við um mót gervigreindar og tónlistar – og veltum því fyrir okkur hver væri höfundur verks sem framleitt er af gervigreind. Í dag nálgumst við svipaðar spurningar frá allt annarri átt – frá sjónarhorni lögfræðinnar. Hvaða áhrif hefur þróun gervigreindar á höfundarétt? Hafliði K. Lárusson lögmaður kíkir til okkar og spjallar við okkur um gervigreind og lögfræði.
    Samfélagið gluggaði í dómskjöl úr safni Þjóðskjalasafnins - um sifjaspellsmál í Dalasýslu á 18. öld - þar sem ung kona, Kristín Bjarnadóttir, var dæmd til refsingar fyrir að eignast barn með stjúpföður sínum. Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skjalavörður á Þjóðskjalasafninu segir okkur frá máli Kristínar.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Borges, Lô, Nascimento, Milton - Cravo e canela.
    Silvana Estrada - Chega de Saudada/No more blues
    55 min
  • Vika 17, stærðfræði og Kjötborg
    Á bókasöfnum eru ekki bara bækur - heldur ýmislegt annað og kannski ættu þau að heita eitthvað annað en bókasöfn. Þessi vika er sú 17. á árinu, þetta er alþjóðleg vika heimsmarkmiðanna á bókasöfnum - og Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir verkefnastjóri á Amtsbókasafninu á Akureyri kemur til okkar og segir okkur allt um það.
    Stærðfræði er alltumlykjandi. Nær allar tækninýjungar, sem hafa breytt lífi okkar, byggja á þessari fræðigrein - sem flestir gefa samt merkilega lítinn gaum í okkar daglega lífi. Sigurður Örn Stefánsson prófessor í stærðfræði við Háskóla Íslands sér stærðfræði í öllu og leiðir okkur í allan sannleika um undur og stórmerki stærðfræðinnar.
    Við Ásvallagötu í Reykjavík stendur verslunin Kjötborg. Bræðurnir Gunnar og Kristján Jónssynir standa þar vaktina alla daga vikunnar og hafa gert í áratugi. Gunnar segist hafa verið í búðarleik alla ævi en búðarstarfið í Kjötborg er meira en að bara afgreiða vörur og hefur sannarlega breyst á starfsævi bræðranna. Viktoría Hermannsdóttir kíkti í heimsókn í Kjötborg og spjallaði við Gunnar.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Franklin, Aretha - I'm sitting on top of the world.
    Beyoncé - Jolene.
    Teitur Magnússon - Orna.
    59 min
  • Páfakjör, lífsgæði á efri árum og sjóveiki
    Frans páfi lést anna páskadag eftir 12 ár á páfastóli og fljótlega hefjast kardínálar handa við að velja nýjan páfa. Þetta ævaforna embætti er sveipað dulúð og við ætlum að velta fyrir okkur hlutverki páfa og ýmsu öðru sem tengist kaþólsku kirkjunni og trúnni með Illuga Jökulssyni.
    Lífaldur íslensku þjóðarinnar er 80 ár – en aldur við góða heilsu er aðeins um 66 ár. Hvernig fjölgum við heilbrigðum æviárum? – það er spurningin á bak við nám sem tileinkað er fólki við starfslok og vill bæta líkamlega, félagslega, andlega og jafnvel fjárhagslega heilsu. Guðfinna Sesselja Bjarnadóttir, atferlisfræðingur og fyrrverandi rektor Háskólans í Reykjavík kíkir til okkar í dag og segir okkur meira.
    Og eins og jafnan á miðvikudögum kemur Edda Olgudóttir vísindamiðlari í heimsókn og hún ætlar að segja okkur allt um sjóveiki
    Tónlist í þætti dagsins:
    Lafourcade, Natalia - Hasta la Raíz.
    SPILVERK ÞJÓÐANNA - Plant No Trees.
    59 min
  • Gervigreind í tónlist, kannabis til lækninga og dagur jarðar
    Á morgun verða mót tónlistar og gervigreindar rannsökuð í Salnum í Kópavogi, þegar Þórhallur Magnússon, rannsóknarprófessor við Háskóla Íslands og prófessor í tónlist við Háskólann í Sussex verður með erindi í viðburðarröð sem heitir Menning á miðvikudögum í Kópavogi. Á viðburðinum fer hann yfir sögu gervigreindar í tónlist og fer yfir helstu uppgötvanir og þróanir á þessu sviði – og hann ætlar að kíkja við hjá okkur í dag og spjalla um samband gervigreindar og tónlistar.
    Notkun kannabisefna í lækningaskyni er umræða sem skýtur upp kollinum af og til og hvort leyfa beri slíka notkun. Reyndar eru tvö lyf sem innihalda kannabis þegar í notkun hér á landi, að sögn Steinunnar Þórðardóttur formanns Læknafélags Íslands. Hún segir að efnið dugi fyrst og fremst til að minnka ýmis einkenni og verki, en síður til lækninga - en varast skuli að slá það út af borðinu. Mikil gróska er í kannabisrannsóknum, meðal annars er verið að rannsaka áhrif kannabis á fólk með alzheimer. Við ræðum þetta við Steinunni í dag.
    Við fáum að heyra pistil frá Esther Jónsdóttur umhverfisstjórnmálafræðingi og pistlahöfundi Samfélagsins.
    Og undir lok þáttar endurflytjum við viðtal við Önnu Soffíu Víkingsdóttur, doktor í félagsfræði, um rannsóknir hennar á ofbeldismenningu í íþróttum.
    Tónlist í þættinum í dag:
    LÚPÍNA - Lúpínu bossa nova.
    Bon Iver - S P E Y S I DE.
    55 min
  • Danadrottning, mannasiðir á páskum og erfðabreytingatækni
    Margrét Þórhildur Danadrottning fagnar 85 árum í dag með sínum nánustu í Fredensborgarhöll - og í morgun hyllti lúðrasveit konunglegu lífvarðasveitarinnar drottningu á tröppum hallarinnar.
    Guðný Laxdal, sem heldur úti samfélagsmiðlum undir nafninu Royal Icelander, kemur til okkar og ræðir líf og störf þessarar merku konu, sem sat lengst í valdastóli allra þjóðhöfðingja Dana.
    Við ræðum líka við Albert Eiríksson matarbloggara og mannasiðafrömuð um páskamannasiði og hvernig hægt sé að borða páskaegg á smekklegan hátt.
    Í vísindaspjallinu leiðir Edda Olgudóttir okkur í allan sannleika um erfðabreytingatækni.
    Lög í þættinum í dag:
    Rasmus Seebach - Love song
    Carla Bruni - Notre Grand amour est mort.
    1 hr
  • Stjórnmálaveturinn og heimsókn í Hússtjórnarskólann í Reykjavík
    Þingveturinn hefur verið forvitnilegur - ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við völdum rétt fyrir jól og þing var svo sett 4. febrúar síðastliðinn. Þetta hefur því ekki verið langur tími hjá nýrri ríkisstjórn en við fórum yfir þingveturinn með Magnúsi Geir Eyjólfssyni, þingfréttaritara RÚV.
    Í 103 ára gömlu 800 fermetra húsi við Sólvallagötu í Reykjavík er að finna Hússtjórnarskólann í Reykjavík en þar læra nemendur ýmislegt gagnlegt. Fyrir utan það augljósa - að matreiða og sauma, þá er líka kennd ræsting, blettahreinsun og að strauja. Nýlega hafa bæst við námskeið fyrir börn á aldrinum 6-15 ára.
    Samfélagið kíkti í heimsókn í skólann sem staðsettur er í einu fallega húsi landsins, að Sólvallagötu 12. Við förum í fylgd Kristínar Láru Torfadóttur kennara við skólann en ræðum einnig við kennarana Katrínu Jóhannesdóttur og Eddu Guðmundsdóttur ásamt nemendum við skólann.
    Tónlist frá útsendingarlogg 2025-04-15
    Redman, Joshua, Cavassa, Gabrielle - Streets Of Philadelphia.
    Diana Ross og Marvin Gaye - Just say, just say
    GDRN - Vorið
    1 hr

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners