Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Gervi og ekta ferðamennska, Gervigreindarhæp, minningar ungbarna
    Fyrir tæpum tíu árum gerði kanadíski popparinn Justin Bieber flak gamallar varnarliðsvélar sem nauðlenti á Sólheimasandi fyrir tæpum fimmtíu árum heimsfrægt. Enn sér ekki fyrir endann á vinsældum þess. Landeigendur hafa gripið gæsina og rukkað fyrir bílastæði en nú standa þeir á ákveðnum tímamótum. Flakið er orðið ansi veðrað og það vakti athygli í vikunni þegar fréttastofa stöðvar 2 greindi frá því að landeigendur hefðu fjárfest í nýrri flugvél, keypt gamlan Flugfélagsþrist af Þristavinafélaginu. Út frá þessu hafa spunnist líflegar umræður innan ferðaþjónustunnar - stendur til að skipta flakinu út? Væri það eðlilegt viðhald ferðamannastaðar eða disney-væðing? Bjarnheiður Hallsdóttir framkvæmdastjóri Katla DMI og fyrrverandi formaður Samtaka ferðaþjónustunnar ræðir við okkur um þetta.
    Og síðan ætlum við að fjalla um gervigreind. Í síðustu viku fórum við á ráðstefnu um gervigreind og lögfræði. Við sögðum frá því síðasta fimmtudag, en þar fengum við í viðtal til okkar Doktor Katie Nolan, sem er fræðimaður við Tækniháskólann í Dublin. Hún gerði svokallað gervigreindarhæp að umfjöllunarefni sínu (gervigreindarskrum, gervigreindaræði), og við vildum vita meira. Heyrum í Katie Nolan við miðbik þáttar.
    Edda Olgudóttir, vísindamiðlari þáttarins, kemur í heimsókn, eins og venjulega á miðvikudögum. Við ræðum við hana um hvernig ungbörn mynda minningar.
    Tónlist og stef:
    JUSTIN BIEBER - Peaches.
    JAMES VINCENT MCMORROW - I Should Go (ft. Kenny Beats).
    EMILÍANA TORRINI - Today I Sing The Blues.
    1 hr
  • Lífríki Breiðafjarðar, borgir sem breytast með tímanum
    Í dag umvefjum við okkur lífríki Breiðafjarðar. Í síðustu viku kíkti Samfélagið í heimsókn á Snæfellsnes og kom við á náttúrustofu Vesturlands í Stykkishólmi, sem sinnir vöktunum og rannsóknum á lífríkinu í Breiðafirði og víðar á Vesturlandi. Við ræðum við Róbert Stefánsson, forstöðumann náttúrustofu Vesturlands, meðal annars um haferni, háhyrninga, og ágengar tegundir í íslenskri náttúru.
    Og síðan heyrum við pistil frá Páli Líndal, umhverfissálfræðingi og pistlahöfundi Samfélagsins í seinni hluta þáttar.
    Tónlist úr þættinum:
    Laura Marling - I Was an Eagle.
    JAPANESE BREAKFAST - Be Sweet.
    boygenius - True Blue.
    1 hr
  • Gróðureldar ógna vatnsverndarsvæði, Stéttaskipting á Íslandi, Mikilvægasta starfið árið 1971
    Þann 4. apríl 2021 logaði stórt svæði í Heiðmörk, gróðureldarnir voru erfiðir viðureignar enda allt skraufaþurrt. Vatnsverndarsvæðið í Heiðmörk þjónar meginþorra þjóðarinnar - og eftir eldana greindust í vatninu krabbameinsvaldandi efni sem ekki höfðu fundist þar áður. Við ætlum að ræða við Maríu J. Gunnarsdóttur, sérfræðing hjá Vatnaverkfræðistofu Háskóla Íslands, en hún rannsakaði áhrif gróðurelda á vatnsból höfuðborgarbúa ásamt Sigrúnu Tómasdóttur, Olgeiri Örlygssyni, Hrund Andradóttur og Sigurði Garðarssyni.
    Íslendingasögur eru fullar af frásögnum af höfðingjum og öðrum foringjum í íslensku samfélagi og varpa ljósi á samfélag þar sem ójöfnuður ríkir og stéttskipting er mikil. En hefur íslenskt samfélag nokkurn tímann verið stéttlaust? Þetta er spurning sem Axel Kristinsson sagnfræðingur hefur verið að velta fyrir sér. Við ræðum við Axel um stéttaskiptingu og stéttleysi á Íslandi og þróun ójöfnuðar í aldanna rás.
    Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri Ríkisútvarpsins, kemur í heimsókn með brot úr safninu. Kjaramál og virðismat starfa verða þar í brennidepli
    Tónlist:
    Beirut - Nantes.
    Marianne Faithful - Working Class Hero
    55 min
  • Jöklar á Íslandi, Framkvæmdir í Grundarfjarðarbæ, Æðarsetur Íslands
    Við tökum stöðuna á íslenskum jöklum og framtíð þeirra í tilefni af alþjóðlegum degi jökla, Andri Gunnarsson, verkefnisstjóri vatnafars hjá Landsvirkjun og formaður Jöklarannsóknarfélags Íslands, JÖRFÍ, hefur verið úti um allar trissur að tala á málþingum af þessu tilefni - en gefur sér tíma til að stoppa stutt við hjá okkur og spjalla um jökla á Íslandi.
    Heimsókn á bæjarskrifstofu Grundarfjarðarbæjar. Þær Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri, og Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnastjóri skipulags og umhverfismála, hjá bænum spjalla um stór verkefni sem eru í farvatninu hjá bænum, meðal annars orkuskipti og innleiðingu blágrænna ofanvatnslausna.
    Erla Friðriksdóttir, stofnandi Æðarseturs Íslands í Stykkishólmi, fræðir okkur um setrið og fræðslustarfsemi þess, æðardún og samband æðarfugla og æðarbænda.
    Tónlist í þættinum:
    1860 - Snæfellsnes.
    ARETHA FRANKLIN - Think.
    56 min
  • Lögfræði og gervigreind, Hvað er stríð og hvað er þjóðarmorð?
    Hvernig finnum við jafnvægi milli réttinda og gervigreindar – milli lagasetningar og samkeppnishæfni Evrópu í þróun tækninnar. Þetta var meginstef á ráðstefnu um gervigreind og lögfræði sem fór fram í Hörpu í gær á vegum Háskólans í Reykjavík. Á henni voru saman komnir nokkur hundruð lögfræðingar og aðrir sérfræðingar til að velta sér upp úr þessum málum, og við mættum líka til að taka púlsinn þar sem gervigreindin mætir lögfræðinni.
    Er hægt að tala um stríð þegar grundvallarmunur er á hernaðarlegum styrk og getu stríðandi fylkinga? Þegar annar aðilinn hefur hernumið hinn og drepið margfalt fleiri úr hans röðum? Við ræðum hugtakanotkun í hernaði og átökin fyrir botni Miðjarðarhafs við Erling Erlingsson, hernaðarsagnfræðing.
    Tónlist:
    ÁSGEIR TRAUSTI - Nýfallið regn.
    SHARON VAN ETTEN - Every time the sun comes up
    59 min
  • Reynslusaga: Long Covid er eins og spennitreyja, ME-félagið um börn og Long Covid, Vísindaspjall um plastmengun
    Atli Þór Kristinsson, sagnfræðinemi, var í vinnu, námi og stundaði félagslífið af krafti en eftir að hafa smitast af COVID-19 er hann óvinnufær. Sjúkdómur Atla Þórs heitir Long Covid og hann líkir honum við spennitreyju. Atli Þór segir okkur frá upplifun sinni af sjúkdómnum. Hann hefur í rannsóknum sínum kafað ofan í veruleika ungs fólks sem dvaldi á elliheimilum á síðustu öld, og segja má að hann hafi sjálfur fengið smjörþefinn af veruleika rannsóknarviðfanga sinna þegar hann innritaði sig á heilsustofnunina í Hveragerði, langtum yngri en aðrir sjúklingar.
    Við fjöllum nánar um þennan sjúkdóm, Long Covid, sem hrjáir hátt í 3000 manns hér á landi. Hrönn Stefánsdóttir situr í stjórn ME-félagsins og er fulltrúi þess í vinnuhópi um Long Covid hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni í Evrópu. Samtökin stóðu um síðustu helgi fyrir herferð til að auka meðvitund um sjúkdóminn og þá sérstaklega á veruleika barna sem glíma við hann hér á landi.
    Edda Olgudóttir kemur svo til okkar í vísindaspjall í lok þáttar. Við ræðum plastmengun í lungum fugla.
    Tónlist:
    DIRE STRAITS - Walk Of Life.
    VALDIMAR - Stimpla mig út.
    1 hr
  • Vísindaleg nýsköpun og heimsókn í háleynilegt seðlaver
    Í dag pælum við í hugtakinu „vísindaleg nýsköpun“. Hvað er það? Hvernig fer svoleiðis nýsköpun fram? Og hvernig stöndum við okkur hér á landi í að hagnýta vísindi? Einar Mantyla, sem hefur starfað á þessu sviði um árabil, segir að Ísland sé tuttugu árum eftir á. En hvers vegna? Hvað er til ráða? Við ræðum við Einar hér á eftir um vísindalega nýsköpun.
    Bankarnir reka saman seðlaver á háleynilegum stað á höfuðborgarsvæðinu. Þar er höndlað með háar fjárhæðir og sérhæfðan vélbúnað, peningar taldir og þeir svo sendir aftur út í hringrásina. Við undirrituðum trúnaðaryfirlýsingu og fengum að taka út starfsemina á þessum leyndardómsfulla vinnustað sem minnir örlítið á peningahirslur Jóakims aðalandar. Þetta er endurflutt innslag frá því í september 2023.
    58 min
  • Hvað varð um umhverfismálin? Nýjar veforðabækur og staða vinnuhjúa.
    Eru umhverfismálin horfin úr umræðunni? Hvað varð um þau? Um helgina komu hundrað manns saman á opnum fundi í Háskólanum í Reykjavík til þess að ræða stöðu umhverfismála og horfa til framtíðar. Þetta var fólk úr grasrótinni en líka úr atvinnulífinu og pólitíkinni. Skipuleggjendur fundarins, þær Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir, Valgerður Árnadóttir og Kamma Thordarson, segja okkur frá fundinum og afrakstri hans, sem verður kynntur stjórnvöldum.
    Sífellt bætist við fjölda veforðabóka með íslenskum grunni. Pólsk-íslensk veforðabók fer í loftið í vikunni, og innan skamms verður loksins birt ensk-íslensk veforðabók, sem hefur verið lengi í vinnslu. Halldóra Jónsdóttir, orðabókarritstjóri á íslenskusviði Árnastofnunar, ræðir við okkur um þessi tímamót og fyrirbærið veforðabók - sem er á ýmsan hátt ólíkt hefðbundnum orðabókum.
    Við fræðumst um kjör vinnuhjúa á öldum áður - ræðum við Kolbein Sturlu G. Heiðuson, skjalavörð á Þjóðskjalasafni Íslands. Þetta er endurflutt viðtal frá 3. júní 2024.
    Tónlist:
    Doobie Brothers - Listen to the music.
    1 hr
  • Rasismi í garð Grænlendinga, umdeildar herstöðvar, loftslagsbreytingar á norðurslóðum
    Kerfisbundinn rasismi Dana í garð Grænlendinga er ekki nýr af nálinni enda teygir nýlendusagan sig 300 ár aftur í tímann. Nýlega, mitt í Trump-fárinu og hneykslinu í kringum heimildamyndina um hvíta kreólít-gullið, birti danska ríkissjónvarpið grínþátt sem var kornið sem fyllti mælinn og fjöldi fólks mótmælti í Nuuk, forsætisráðherra landsins þar á meðal. Við fjöllum um rasisma í garð Grænlendinga og ræðum við Ingu Dóru Guðmundsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra Vestnorræna ráðsins og núverandi framkvæmdastjóra sjálfbærni- og samskiptamála hjá Air Greenland.
    Og svo lítum aðeins aftur í tímann og rifjum upp eldri umfjallanir Samfélagsins um Grænland. Loftslagsbreytingar og hreindýrabúskapur, deilur Grænlendinga og Bandaríkjamanna um herstöðina Thule, og ýmislegt fleira hefur verið til umfjöllunar á þessum vettvangi, og í dag fáum við að heyra brot af því.
    57 min
  • Námsmenn gagnrýna námslánakerfið, tilraunabúið á Hesti, gangverk náttúrunnar
    Í dag tökum við snúning á hagsmunabaráttu stúdenta. Á dögunum birtist frumvarp um breytingu á lögum um menntasjóð námsmanna. Markmið frumvarpsins er að skýra lögin, þá sérstaklega fyrirkomulag um námsstyrki og endurgreiðslur, en hagsmunasamtök stúdenta hafa gagnrýnt hluta frumvarpsins og segja að breytingarnar geti, í einhverjum tilfellum, gert illt verra fyrir stúdenta. Lísa Margrét Gunnarsdóttir, forseti Landssambands íslenskra stúdenta, kíkir við og ræðir þessi mál við okkur.
    Og síðan fáum við umfjöllun frá Grétu Sigríði Einarsdóttur, fréttamanni RÚV á Vesturlandi. Hún kom við á Tilraunabúinu Hesti á dögunum og við fáum að heyra allt um það um miðbik þáttar.
    Og að lokum fáum við pistil frá Stefáni Gíslasyni umhverfisstjórnunarfræðingi og pistlahöfundi Samfélagsins.
    Tónlist úr þættinum:
    TOM PETTY - Learning To Fly.
    ROBERT PLANT & STRANGE SENSATION - All The Kings Horses.
    LOLA YOUNG - Messy.
    59 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners