Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Breiðholt, endurheimt og bréf af vígvellinum
    Sumum þykir orðræða um Breiðholtið oft vera frekar neikvæð. Kristín Dögg Kristinsdóttir, þjóðfræðingur og Breiðhyltingur, er alin upp í Fellahverfi í Breiðholtinu. Í BA ritgerð sinni í þjóðfræðináminu rannsakaði hún upplifun nokkurra einstaklinga af því að alast upp í hverfinu. Hún kallar eftir jákvæðara umtali um hverfið.
    2020-2030 er áratugur endurheimtar hjá Sameinuðu þjóðunum. Endurheimt vistkerfa gengur bæði út á að vernda vistkerfi en líka að færa röskuð vistkerfi í fyrra horf. Gréta Sigríður Einarsdóttir var í Stykkishólmi og ræddi við Jakob Johan Stakowski, starfsmann Breiðafjarðarnefndarnefndar um hvort hægt sé að endurheimta fjörð á Snæfellsnesi. Slíkt hefur aldrei verið gert áður á Íslandi.
    Og svo heimsækir Samfélagið Þjóðskjalasafnið og þar fáum við að heyra brot úr bréfum Vestur-Íslendings sem skrifaði móður sinni af vígstöðvunum í heimstyrjöldinni fyrri.
    Lög í þættinum í dag:
    PRINS PÓLÓ - Niðri á strönd (Remix by Jack Schidt &Sexy Lazer).
    NELLY FURTADO - I'm Like A Bird.
    1 hr
  • Sýndarverslanir, dýr í heimilisleit og fegurðin
    Sýndarverslanir spretta upp eins og gorkúlur og hverfa jafnhratt, segir Brynhildur Pétursdóttir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna. Hún ræddi þetta fyrirbæri í Samfélaginu fyrir nokkrum mánuðum og er nú komin aftur í sömu erindagjörðum, en miklar áhyggjur eru víða vegna þessa verslunarmáta og sumar þessara verslana virðast vera búnar til og reknar af gervigreind.
    Dýrahjálp Íslands er félag sjálfboðaliða sem leitast við að sjá dýrum sem þarfnast heimilis fyrir skjóli. Félagið hefur þróað fósturkerfi þar sem fólk er tilbúið að fóstra dýr til skemmri tíma þar til það kemst á framtíðarheimili. Verkefnin eru margvísleg og oft þarf að stökkva til með stuttum fyrirvara. Við ræðum við Sonju Stefánsdóttur framkvæmdastjóra Dýrahjálpar Íslands.
    Og síðan fáum við að heyra pistil frá Páli Líndal, umhverfissálfræðingi og pistlahöfundi Samfélagsins. Hvar býr fegurðin og hvað er fallegt?
    1 hr
  • Smalastúlkur, drykkjurútar og galdranornir, áhrif hamfarahlýnunar á tilfinningalífið og unga fólkið árið 1948
    Smalastúlkur, drykkjurútar og galdranornir verða á dagskrá þáttarins í dag - en samkvæmt rannsókn Dagrúnar Óskar Jónsdóttur, aðjúnkts í þjóðfræði við Háskóla Íslands eru það helstu birtingarmyndir kvenna í íslenskum þjóðsögum.
    Og síðan ætlum við að velta fyrir okkur áhrifum hamfarahlýnunar á tilfinningalíf okkar. Ola Martin Sandberg er heimspekingur og nýdoktor við Háskóla Íslands sem hefur um nokkurt skeið velt fyrir sér siðferðilegu sambandi okkar við náttúruna.
    Og í lok þáttar fáum við að skyggnast inn í hugarheim ungs manns fyrir hátt í áttatíu árum með Helgu Láru Þorsteinsdóttur safnstjóra RÚV.
    1 hr
  • Samfélagið í Íshúsi Hafnarfjarðar
    Við heilsum frá Íshúsinu í Hafnarfirði – þar eru vinnustofur listamanna, hönnuða, handverksmanna og fleiri og hér verðum við í dag. Íshús Hafnarfjarðarer viðeigandi staður á sjálfum Hönnunarmars, sem hófst á miðvikudag og lýkur á sunnudag. Hér í Íshúsinu við smábátahöfnina í Hafnarfirði er sannarlega nóg af hönnun og ýmsu öðru sem við ætlum að kynna okkur í dag.
    Tónlist úr þættinum:
    ARETHA FRANKLIN - Rescue Me.
    THE BEATLES - From Me to You.
    Sylvan Esso - Ferris Wheel.
    1 hr
  • Loforð Trumps og gæludýrahald
    Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur verið fyrirferðamikill í umræðunni á þessum rúmlega 70 dögum sem eru liðnir frá embættistöku hans, enda hefur hann alls ekki setið auðum höndum. Síðasta umdeilda ákvörðun hans var í gær, þegar hann tilkynnti um nýja tolla á vörur sem eru fluttar inn til Bandaríkjanna – þar á meðal vörur frá Íslandi.
    Forsetinn lofaði ýmsu í kosningabaráttunni - er hann einfaldlega að standa við það sem hann hét að gera? Og er ekki alltaf verið að kalla eftir því að stjórnmálamenn standi við stóru orðin?
    Til að útskýra þetta allt saman fyrir okkur kemur Birta Björnsdóttir yfirmaður erlendra frétta á Fréttastofu RÚV í Samfélagið.
    Ef nýtt frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra verður að lögum þarf ekki lengur samþykki annarra íbúa fyrir hunda- og kattahaldi í fjölbýli. Þetta hefur fengið blendnar viðtökur - sumir fagna en aðrir benda á að þá verði ekki lengur hugað að réttindum þeirra sem þola ekki að hafa dýr nálægt sér. Hildur Viðarsdóttir formaður Húseigendafélagsins kemur og ræðir þetta og ýmislegt annað sem tengist sambýli fólks.
    Við höldum svo áfram í hundunum og fjöllum um samband manna og hunda, hundamenningu á Íslandi í 100 ár og 60 ára langt hundabann í Reykjavík. Ingibjörg Sædís, þjóðfræðingur hefur rannsakað þetta og kemur til okkar.
    58 min
  • Félagsleg einangrun, Kennedy-skjölin og köld böð
    Félagsleg einangrun er lýðheilsuvandi til jafns við reykingar, ofneyslu áfengis og fleiri stórfelldar ógnir við almenna heilsu, að mati Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Og félagsleg einangrun er frekar algeng, talið er að eitt af hverjum tíu ungmennum upplifi félagslega einangrun og um fjórðungur eldra fólks. En hverjar eru orsakirnar? Hvað er til ráða? Við ræðum við Líneyju Úlfarsdóttur, sálfræðing og sérfræðing í félagslegri einangrun um þetta lýðheilsuvandamál og hvernig hægt sé að rjúfa félagslega einangrun.
    Og í seinni hluta þáttarins ætlum við að ræða leyniskjöl, morð og samsæriskenningar. Nýverið lét Trump Bandaríkjaforseti birta talsvert af leynilegum gögnum sem varða morðið á John F. Kennedy Bandaríkjaforseta. Það voru margir spenntir fyrir þessu og við ræðum þetta við Huldu Þórisdóttur sem er prófessor í stjórnmálasálfræði og hefur rannsakað sálfræði samsæriskenninga. Hún heldur líka úti hlaðvarpinu Skuggavaldið með Eiríki Bergmann stjórnmálafræðingi og þar hafa þau fjallað um Kennedy-fjölskylduna, sem stundum hefur verið kölluð konungsfjölskylda Bandaríkjanna.
    Og síðan fáum við til okkar Eddu Olgudóttur, vísindamiðlara Samfélagsins, sem ætlar að segja okkur frá nýjustu rannsóknum um köld böð.
    1 hr
  • Skólasóknarvandi og lýðræði á tímum tækniauðvalds
    Skólaforðun er hugtak sem fór að heyrast fyrir nokkrum árum, en í því felst að börn forðast að mæta í skóla af ýmsum ástæðum. Þetta virðist vera nokkuð algengt, ef marka má umræðuna - en hvað veldur og hvers vegna mæta börnin ekki í skólann?
    Við ræðum við Sigrúnu Harðardóttur dósent í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands sem rannsakar skólaforðun barna í íslenskum grunnskólum ásamt fleirum.
    Og í seinni hluta þáttarins ætlum við að ræða varnarmál – mjúk varnarmál, til að vera nákvæm. Í kvöld halda Samtök um mannvæna tækni viðburð um framtíð lýðræðisins á tímum tækni-auðvalds og rafræns eftirlits. Þórlaug Borg Ágústsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og vefkyrja heldur þar erindi um doktorsrannsókn sína sem snýr að vörnum Íslands gegn svokölluðum mjúkum árásum og áróðursherferðum. Þórlaug sest hjá okkur á eftir og fer betur yfir þessi mál.
    57 min
  • Framtíð kræklingaræktar, kynhlutlaust mál og Sigfús Sigurhjartarson
    Fyrir rúmum áratug var stunduð umfangsmikil bláskeljarækt á Íslandi - síðan hrundi þessi grein - og það sem meira er þörungar sem framleiða taugaeitur hafa gert krækling hættulegan til neyslu. Á greinin sér viðreisnar von? Og hvað er hægt að gera í þessum eiturþörungum? Sara Harðardóttir
    þörunga- og erfðafræðingur hjá Hafrannsóknastofnun stýrir nú stórri rannsókn á öryggi og hagkvæmni í bláskeljarækt, rannsóknin hefur hlotið tugmilljóna styrki úr ýmsum áttum. Sara ræðir við okkur um framtíð kræklingaræktar á Íslandi.
    Og síðan ætlum við að huga að framtíð íslenskunnar, þá sérstaklega framtíð kynhlutlausrar Íslensku. Sumir láta kynhlutleysi í íslensku máli fara í taugarnar á sér, aðrir telja það verðugt verkefni að draga úr karllægni tungumálsins. Eiríkur Rögnvaldsson kemur við og spjallar um kynhlutlaust mál og framtíð íslenskunnar.
    Við förum svo í heimsókn á Þjóðskjalasafnið í lok þáttar og kynnumst þar brotum úr sögu Sigfúsar Sighjartarsonar, alþingismanns, sem lést um miðbik síðustu aldar.
    Tónlist frá útsendingarlogg 2025-03-31
    Lucy Dacus - It's Too Late.
    KARKWA - Marie tu pleures
    1 hr
  • Samfélagið í Andrými
    Í dag förum við í heimsókn í Andrými, svokallað róttækt félagsrými við Bergþórugötu í miðborg Reykjavíkur. Í gær var boðið upp á ókeypis kvöldverð í rýminu, eldaðan úr afgöngum, gefins og rusluðum mat – eins og gert er tvisvar í mánuði, og Samfélagið leit við, hitti Elí Hörpu- og Önundarbur sem sagði okkur frá starfseminni og veitti okkur innsýn í undirbúning kvöldverðarins.
    Og svo rifjum við upp gamalt viðtal um framtíðina. Meira um það seinna í þessum þætti.
    Tónlist:
    Iðunn Einarsdóttir - Sameinast.
    Gillian Welch - Scarlet Town.
    59 min
  • Líðan íslenskra ungmenna, óæskilegir kælimiðlar, eiturefni
    Í dag fjöllum við um líðan íslenskra ungmenna, eitt af stóru málunum í samfélagsumræðunni þessi misseri. Því er stundum haldið fram að geðheilsu íslenskra ungmenna fari hrakandi, lyfjanotkun sé of mikil – og að staða þessara mála sé mjög slæm. Á morgun verður haldinn fundur undir yfirskriftinni Heilsan okkar – þar sem geðheilsa og líðan ungmenna verður til umfjöllunar. Og í dag fáum við til okkar tvo fræðimenn sem verða með erindi á þessum fundi: Urði Njarðvík prófessor við sálfræðideild HÍ og Bertrand Lót, dósent við læknadeild Háskóla Íslands, til að varpa ljósi á þessi mál.
    Við ætlum að fjalla um F-gös. Fyrir nokkrum árum voru ísskápar og kælikerfi full af freoni og öðrum óæskilegum kælimiðlum. Þetta eru gróðurhúsalofttegundir sem eru mörg þúsund sinnum öflugri en koldíoxíð. Alþjóðlegir samningar sem tóku á ósoneyðandi kælimiðlum skiluðu miklum árangri - og seinna var ákveðið að ráðast líka á þessa sem geta með hnatthlýnunarmætti sínum haft skelfileg áhrif á loftslagið. Hér á landi var ráðist í skattlagningu og kvóta á innflutning og segja má að ástandið í kælibransanum hafi í kjölfarið gjörbreyst. Við rifjum upp ástandið árið 2019, þegar fyrst var reynt að koma böndum á innflutninginn, leitum svara frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu og kíkjum upp á Járnháls og ræðum stöðuna í dag við Elís H. Sigurjónsson, tæknistjóri fyrirtækisins Kælitækni.
    Við fáum svo, eitraðan pistil frá Stefáni Gíslasyni, umhverfisstjórnunarfræðingi og pistlahöfundi Samfélagsins.
    1 hr

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners