Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Grænlenskt sjálfstæði og auðlindir, elítuskólar, kannabis
    Grænland er í brennidepli hér á Rás 1 þessa vikuna - og reyndar um allan heim, að því er virðist. Við ræðum sjálfstæði Grænlands og auðlindir við Rachael Lorna Johnstone, prófessor í lögfræði og sérfræðing í þjóðarrétti við Háskólann á Akureyri og Illisimatusarfik-háskóla á Grænlandi.
    Og við fjöllum líka um birtingarmyndir stéttaskiptingar í íslensku samfélagi við Berglindi Rós Magnúsdóttur, prófessor í menntavísindum við Háskóla Íslands. Við ætlum sérstaklega að velta fyrir okkur elítuskólum og hlutverki framhaldsskóla og menntunar í að viðhalda ójöfnuði í samfélaginu.
    Og síðan fáum við til okkar Eddu Olgudóttur vísindamiðlara Samfélagsins.
    57 min
  • Slys á hafi úti, hvítleiki og sjúkdómar
    Við ætlum að fjalla um það hvernig Landhelgisgæsla Íslands bregst við skipsbrunum, árekstrum skipa á hafi úti og alvarlegum umhverfisslysum. Í gær sigldi portúgalska flutningaskipið Solong á bandaríska olíuskipið Stena Immaculate, sem lá fyrir akkeri í Norðursjó, 16 kílómetra úti fyrir höfninni í Hull. Bæði skipin standa í ljósum lögum. Mikið magn flugvélaeldsneytis lekur í sjóinn og til að bæta gráu ofan á svart er óttast að þangað berist líka baneitrað natríumblásýrusalt. Þetta hefði allt eins getað gerst innan björgunar- og leitarsvæðis Landhelgisgæslu Íslands og hvað þá? Auðunn F. Kristinsson, framkvæmdastjóri Aðgerðarsviðs Landhelgisgæslu Íslands, kemur til okkar og ræðir þessi mál.
    Síðan ætlum við að flytja tvö viðtöl sem við tókum á hugvísindaþingi í Háskóla Íslands síðasta föstudag, við Toby Erik Wikström og Svövu Sigurðardóttur.
    Og að lokum fáum við pistil frá Páli Líndal, umhverfissálfræðingi og pistlahöfundi.
    Tónlist úr þættinum.
    PAUL SIMON - Graceland.
    Tutu - Qulliit.
    GDRN - Vorið.
    1 hr
  • Hugmyndahraðhlaup fyrir heilbrigðiskerfið, Sjóvarnir og sjávarflóð, Formaður Póstfreyjufélagsins 1969
    Vandamál heilbrigðiskerfisins voru í forgrunni á hugmyndahraðhlaupi um helgina. Þar safnaðist saman skapandi fólk sem reyndi að finna lausnir á biðlistum, óskilvirkum tilvísunum og óeinstaklingsmiðaðri heilbrigðisþjónustu. Hugmyndahraðhlaupið var á vegum Klak – Icelandic Startups og í dag ræðum við við Atla Björgvinsson og Frey Friðfinnsson frá Klak um hugmyndahraðhlaup, nýsköpun og heilbrigðistækni.
    Sjóvarnargarðar eru víða laskaðir eftir sjávarflóð í síðustu viku. Á Granda í Reykjavík varð mikið tjón á atvinnuhúsnæði, alda hreif tvo menn með sér á Akraneshöfn og sumarhús í Suðurnesjabæ voru umflotin sjó. Við ræðum þennan veðurofsa, orsakir hans og aðgerðir vegna hans við Sigurð Sigurðarson, strandverkfræðing hjá Vegagerðinni.
    Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri Ríkisútvarpsins kemur til okkar í lok þáttar - við skyggnumst inn í líf bréfbera á sjöunda áratugnum.
    Tónlist:
    Una Torfadóttir - Dropi í hafi.
    Bombay Bicycle Club - Luna.
    1 hr
  • Samfélagið á hugvísindaþingi
    Samfélagið heilsar af hugvísindaþingi í Háskóla Íslands. Í dag ætlum við meðal annars að hamra járnið á meðan það er heitt, eða eins og sagt er á þýsku - Das Eisen muss man schmieden solange es heiß ist. Við ræðum orðatiltæki, sem tengjast fornu handverki eða iðnaði og eru oft til í mörgum tungumálum við Oddnýju G. Sverrisdóttur, prófessor í þýsku. Og við ræðum við fleiri fræðimenn um fleira spennandi, til dæmis um Fjalla-Eyvind og göngu Jóhanns Sigurjónssonar yfir Vatnahjallaveg árið 1908, jötunmeyjar, goðsagnaljóðlist og vistskáldskap 21. aldar, nýjar og hátæknilegar rannsóknaraðferðir í fornleifafræði og iðhorf fólks til íslensks táknmáls og þeirra sem kenna íslensku sem annað mál.
    59 min
  • Kæfir gervigreindarreglugerðin nýsköpun? og gagnrýnar nálganir að fötlunarfræði
    Gervigreindarreglugerð Evrópusambandsins tók gildi í ágúst, en enn á eftir að taka hana upp á Íslandi að fullu þótt innleiðing hennar sé í gangi. Borið hefur á gagnrýni á þessa reglugerð að hún kæfi nýsköpun og uppbyggingu gervigreindarfyrirtækja í Evrópu, og skekki þar með samkeppnishæfni álfunnar í gervigreindarkapphlaupinu við Bandaríkin og Kína. En er eitthvað til í þessari gagnrýni? Við ræðum við Helgu Þórisdóttur, forstjóra Persónuverndar, í dag um gervigreindina, reglugerðina og ýmislegt fleira.
    Í dag verður haldið útgáfuhóf fyrir fræðirit í fötlunarfræði sem ber titilinn Fötlun, sjálf og samfélag. Í ritinu er meðal annars fjallað um þróun fötlunarfræðinnar síðustu áratugi og ljósi varpað á gagnrýnar nálganir í faginu, sem snúa meðal annars að ableisma (eða fötlunarfordómum), aðgengi, hugarfari og ýmsu fleiru. Við fáum til okkar Snæfríði Þóru Egilson, prófessor í fötlunarfræði og ritstjóra bókarinnar, til að segja okkur frá þessu áhugaverða verki.
    59 min
  • Strandlengja Íslands, barátta gegn ofbeldi og tilvistarkrísa kóalabjarna
    Strandlengja Íslands er 5000 kílómetrar að lengd og stjórnvöld hafa síðastliðin fjögur ár unnið að því að hreinsa hana með markvissum hætti. Fyrirtækjum og félagasamtökum býðst að sækja um styrk til þess að taka að sér ákveðinn hluta strandlengjunnar, ganga fjörur og tína netadræsur og annað plastrusl. Átakið er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda í plastmálefnum og nú er lokaár þess runnið upp. Hvernig hefur gengið? Við ætlum að ræða það við Sóleyju Bjarnadóttur, sérfræðing í Teymi hafs og vatns hjá Umhverfis- og orkustofnun.
    Í dag halda Stígamót upp á 35 ára afmæli, og af því tilefni er ýmislegt spennandi á döfinni: málþing, bíósýningar og ýmislegt fleira. Í dag förum við aðeins yfir þriggja og hálfs áratuga baráttu Stígamóta gegn ofbeldi, hugum jafnvel að framtíðinni í þeim málum, og fáum til okkar Drífu Snædal, talskonu Stígamóta, og Parísi Önnu Bergmann, unga baráttukonu gegn ofbeldi.
    Edda Olgudóttir kemur svo til okkar í vísindaspjall í lok þáttar. Þar verða krúttleg dýr í fyrirrúmi, krúttleg dýr í krísu.
    55 min
  • Framtíð lyfjafræði og nýfundin bréf frá berklahælinu
    Lyfjafræðingar eru þreyttir á vantrausti frá heilbrigðiskerfinu og vilja gera meira til að aðstoða sjúklinga. Í dag fáum við til okkar Sigurbjörgu Sæunni Guðmundsdóttur, formann lyfjafræðingafélags Íslands, og Sigríði Pálínu Arnardóttur, lyfjafræðing í Reykjanesapóteki, til að ræða framtíð lyfjafræðinnar og apóteka á Íslandi.
    Ingunn Sigurjónsdóttir var veik af berklum stóran hluta sinnar barnæsku og var einungis 25 ára þegar hún lést. Sem barn horfði Úlfar Bragason, bróðursonur hennar, og í dag prófessor emerítus í miðaldafræðum, oft á mynd af henni, sem hékk upp á vegg - og spurningum hans um hver þessi kona hefði verið var svarað fálega, um hana átti ekki að tala.
    Seinna fékk Úlfar að kynnast henni í gegnum bréf sem hún skrifaði ættingjum og vinum af berklahælinu. Í fyrra gaf hann bréfin út á bók - en bréfin frá Ingunni heldur samt áfram að reka á fjörur hans.
    Tónlist í þættinum:
    NORAH JONES - Happy Pills.
    Kavakos, Leonidas, Nagy, Péter, - Suite Italienne for violin and piano.
    Kavakos, Leonidas, Nagy, Péter - Duo concertant for violin and piano.
    Katrín Halldóra Sigurðardóttir - Frá liðnu vori.
    1 hr
  • Þrotabússkjöl Utangarðsmanna og kynjatvíhyggja í vísindum
    Þrotabú utangarðsmanna er eitt af því sem geymt er í hefðbundinni skjalaöskju á Þjóðaskjalasafninu. Lítil dagbók, nokkuð pönkaraleg og kvittanir með heimspekilegu kroti eru meðal þess sem í því leynast. Við skoðuðum þrotabússafn Utangarðsmanna með Ragnhildi Önnu Kjartansdóttur, skjalaverði.
    Hversu mörg eru kynin? Eru þau bara tvö, eða er tvíhyggjan einföldun á vísindunum. Arnar Pálsson, erfðafræðingur og prófessor í lífupplýsingafræði hjá Háskóla Íslands, kemur til okkar og ræðir um kyn og kyneinkenni.
    Tónlist í þættinum:
    UTANGARÐSMENN - Rækju-reggae (Ha Ha Ha)
    UTANGARÐSMENN - Kyrrlátt kvöld við fjörðinn
    UTANGARÐSMENN - Fuglinn er floginn
    MANIC STREET PREACHERS - If you tolerate this your children will be next.
    55 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners