Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Blómabúskapur, valentínusardagur, háskólalausa háskólasamfélagið á Suðurlandi
    Í dag er Samfélagið umvafið blómum og sendir út frá garðyrkjustöðinni Espiflöt í Reykholti í Bláskógabyggð. Í dag er dagur elskenda og blómasala því mikil. Við fjöllum um blóminn og valentínusardaginn, fáum til okkar blómabændur, fræðifólk og vörumerkjamenn til að kryfja þennan forvitnilega dag.
    Við kíkjum líka í heimsókn í Háskólafélag Suðurlands og ræðum við starfsmenn um nám, fræðimennsku og frumkvöðlastarfsemi í Ölfusi.
    55 min
  • Frumskógur stafrænna lausna í heilbrigðiskerfinu, Uppskera og 20 ára afmæli fötlunarfræðinnar, Áhrif loftmengunar á heilsu
    Við ætlum að fjalla um tækni og heilbrigðiskerfið. Stafrænar lausnir í heilbrigðisþjónustu eru margar en eru þær góðar? Virka þær? Skjólstæðingar heilbrigðiskerfisins þurfa að flakka á milli appa og forrita til þess að nálgast nauðsynlegar upplýsingar.
    Við ætlum að ræða við Eyrúnu Magnúsdóttur um för hennar í gegnum þann frumskóg forrita sem notendur heilbrigðisþjónustu villast í þegar þeir veikjast.
    Þessa dagana er haldið upp á tuttugu ára afmæli fötlunarfræða. Að því tilefni hafa samtök fatlaðs fólks, fatlað listafólk og fræðasamfélagið tekið höndum saman með það að marki að fagna framlagi fötlunarfræða og fatlaðs fólks til menningar og lista í íslensku samfélagi. Við fáum til okkar Margréti Norðdahl, listrænn stjórnandi
    Embla Guðrúnar Ágústsdóttur, sviðslistakona, aktívisti
    Og í lok þáttar flytjum við pistil eftir Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðing og pistlahöfund Samfélagsins um rannsóknir á áhrifum loftmengunnar.
    Tónlist í þættinum:
    FLEETWOOD MAC - The Chain.
    Lafourcade, Natalia - Hasta la Raíz.
    Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
    THE BEACH BOYS - The Man With All the Toys.
    1 hr
  • Réttindi fatlaðs fólks eftir 100 ár, Söfn og hamfarir og áhrif kannabiss á heilsuna
    Við byrjum á síðasta viðtalinu í viðtalsröð okkar um framtíðir og framtíðarsýnir, sem við höfum haldið úti í samvinnu við Borgarbókasafnið síðustu fjórar vikur. Í dag fáum við til okkar Venu Naskrecku, fjöllistakonu og aðgerðarsinna fyrir réttindum fatlaðs fólks. Og við ætlum einmitt að ræða réttindi fatlaðs fólks og hvernig þau komi til með að líta út eftir hundrað ár eða svo.
    Við ætlum að fræðast um starf safna. Söfn eru svolítið eins og ísjakar, starfsemin er mun viðameiri en það sem snýr að safngestum. Þóra Björk Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Safnaráðs kemur til okkar og ræðir um söfn á Íslandi og sérstaklega um nýjar kröfur um að söfn geri sérstakar viðbragðsáætlanir vegna náttúruvár.
    Edda Olgudóttir, vísindamiðlari þáttarins, kemur svo til okkar í lok þáttar, hún ætlar að fjalla um áhrif langvarandi kannabis-neyslu.
    1 hr
  • Hönnun hraunvarnargarða, Áhrif Trumps á loftslagið, Ekki í mínum bakgarði
    Við byrjum þáttinn á hönnun Hraunvarnargarða. Síðasta föstudag mættum við á uppskeruhátíð tækni- og tölvufólks á Íslandi, UTmessuna í Hörpu. Þar hittum við Hörn Hrafnsdóttur, sérfræðing í straum- og vatnafræði hjá Verkís og ræddum um hönnun hraunvarnargarða við Svartsengi og Grindavík, og hvernig fagið hraunvarnargarðahönnun hefur þróast á síðustu árum.
    Halldór Björnsson, fer yfir stöðu og horfur í loftslagsmálum í loftslagsspjallinu - við ræðum sérstaklega áhrif nýs Bandaríkjaforseta Donalds Trumps á framgang loftslagsaðgerða á heimsvísu - en eitt af fyrstu verkum Trumps í embætti var að draga Bandaríkin út úr Parísarsamkomulaginu.
    Páll Líndal, umhverfissálfræðingur flytur okkur pistil um þéttingu byggðar og það sem fólk vill ekki hafa í bakgarðinum hjá sér.
    En við byrjum á hraunvarnargörðum á UTmessunni.
    Tónlist í þættinum:
    Dean, Olivia, Ezra Collective - No Ones Watching Me.
    JONI MITCHELL - Big yellow taxi
    THE BEATLES - There´s a place
    55 min
  • Hvar eru bækurnar frá May Morris, Söfn og hamfarir, Fárviðrið 1981
    Risastór bókagjöf enskrar merkiskonu, May Morris, virðist hafa horfið sporlaust - utan einnar bókar sem Brynjar Karl Óttarsson, sögukennari við Menntaskólann á Akureyri er nokkuð viss um að hafi tilheyrt henni. Hann rannsakar gamlar bækur og skjöl í kjallara Amtsbókasafnsins á Akureyri og hirslum Menntaskólans - og tímafrek yfirlegan hefur skilað nokkrum forvitnilegum uppgötvunum. Við ræðum við Brynjar Karl.
    Í síðustu viku gekk aftakaveður yfir landið, veður sem kallaði á alls kyns ráðstafanir, meðal annars í innbænum á Akureyri. Á fimmtudaginn var óð ég yfir stórfljót til að hitta Rögnu Gestsdóttur, starfsmann Minjasafns Akureyrar í iðnaðarsafninu á Krókeyri, sem var nær umflotið. Nú er farið að huga í auknum mæli að áhrifum náttúruhamfara á söfn - og söfn farin að gera ýmsar viðbragðsáætlanir og meta áhættu ekki síst eftir að Tækniminjasafn Austurlands eyðilagðist í skriðuföllum á Seyðisfirði árið 2020.
    Og við höldum okkur við veðurofsann því Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri Rúv, ætlar að rifja upp Fárviðrið svokallaða sem gekk yfir höfuðborgarsvæðið árið 1981.
    Tónlist í þættinum:
    Breabach - Bha Mis Raoir air an arligh.
    Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
    50 min
  • Predikað um gervigreind, gagnaflækjur og tækni á UTmessunni
    Í dag er Samfélagið á UTmessunni í Hörpu, þar sem tækni- og tölvufólk messar yfir hvert öðru um allt það helsta í heimi tækninnar. Við ræðum við hina og þessa, meðal annars um gervigreind, sem er ansi plássfrek á UTmessunni, gagnaflækjur, heilbrigðistækni, upplýsingatæknilögfræði, nýjar kynslóðir þráðlauss nets og frelsi frá vinnu.
    1 hr
  • Græn nýsköpun og upprifjun á húðflúrhátíð
    Í dag er sjötti febrúar og búið að vera aftakaveður frá því snemma í morgun. Fólk er beðið um að vera ekki mikið á ferli. En eins og margir gera í óveðri sem þessu, ætlum við að vera með hugann við eitthvað allt annað en veðrið.
    Hér á eftir fáum við til okkar þær Íseyju Dísu Hávarsdóttur og Kolfinnu Kristínardóttur, frá Klak Icelandic Startups, til að ræða aðeins um nýsköpun og viðskiptahraðal fyrir grænar lausnir. Allt í gangi á sviði nýsköpunar.
    En við byrjum annars staðar. Á öðrum stað, og öðrum tíma. Í september sendum við Arnhildur Hálfdánardóttir út Samfélagið á Fjölnisfest í Iðnó í miðborg Reykjavíkur, hálfgerðri uppskeruhátíð tattúlistamanna á Íslandi. Þar áttum við góð samtöl við skipuleggjendur og gesti hátíðarinnar, og útkoman var einn af mínum uppáhalds Samfélagsþáttum síðasta árs. En við ætlum að rifja upp nokkur augnablik af þessari hátíð og grípa niður í nokkrum vel völdum viðtölum.
    58 min
  • Framtíðin, Akureyrarveikin og köld böð
    Á árunum 1948-1949 braust út veirufaraldur á Akureyri. Fjöldi fólks veiktist og sum hafa glímt við eftirköst veikinnar, sem jafnan er kölluð Akureyrarveikin, alla ævi. Ýmsum spurningum er enn ósvarað um þennan dularfulla faraldur. Óskar Þór Halldórsson, hefur undanfarin ár grúskað í sögu Akureyrarveikinnar og rætt við hátt í sjötíu manns sem annað hvort veiktust eða þekktu einhvern sem veiktist.
    Við höldum áfram með viðtalsröð okkar sem hverfist um framtíðir og framtíðarsýnir, í samvinnu við Borgarbókasafnið. Hvernig ímyndum við okkur heimili framtíðarinnar? Og hvernig getum við byggt hús sem hægt er að aðlaga að mismunandi fólki, mismunandi þörfum, aðstæðum og umhverfum. Marjolein Overtoom, hefur lengi velt þessum spurningum fyrir sér, og gerði þessi mál að viðfangi doktorsverkefnis sem hún kláraði nýlega. Og doktorsverkefið var einmitt grunnur að viðburði sem hún hélt á framtíðarfestivali borgarbókasafsins, þar sem þátttakendur hönnuðu hús á nýstárlegan hátt.
    Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins, fræðir okkur um köld böð í lok þáttar.
    Tónlist í þættinum:
    IGGY POP - La Vie en rose.
    Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
    Sharon Van Etten - Everytime the sun comes up
    1 hr
  • Íþróttaþvottur og borgarmyndir
    Samfélagið er í styttri kantinum í dag vegna þingsetningar. Engu að síður fáum við fáum tæpan hálftíma saman, og á þessum hálftíma ætlum við meðal annars að fjalla um íþróttir og siðferði. Íþróttaþvottur er hluti af siðferðilegum þvottabrögðum þar sem aðilar reyna að losna undan gagnrýni á siðferðilegt inntak starfsemi eða stjórnarhátta með því að skreyta sig með dygðugum verkefnum. Nokkurn veginn svona hefst svar Henrys Alexanders Henryssonar siðfræðings á vísindavefnum, þar sem hann gerir leikmannakaup sádí-arabískra knattspyrnuliða að umfjöllunarefni sínu. Við heimsækjum Henry Alexander í dag, ræðum íþróttaþvott, sádí-arabíska knattspyrnu og ýmislegt fleira sem tengist íþróttum og siðferði.
    Og síðan fáum við pistil frá Páli Líndal, umhverfissálfræðingi og pistlahöfundi Samfélagsins. Við endurflytjum í dag pistil frá því fyrir tveimur árum, sem á alveg jafn vel við í dag, um borgarmyndir og notalegar götur.
    26 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners