Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Barátta um persónuupplýsingar, Myndarsögur, framtíðarborgir og höfundaverkstæði Eiríks Arnar Norðdahl
    Um árabil hefur írska persónuverndarstofnunin háð harða baráttu við voldugustu tæknirisa heims. Reglulega berast fréttir af stórum sektum, upp á allt að tugi milljarða evra, sem eru tilraunir til að fá risana til að fara eftir evrópskum lögum sem gilda meðal annars hér á Íslandi. Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar verður gestur okkar í dag. Við spyrjum hana út í þessa baráttu, samspil persónuverndar og taugavísinda og ýmislegt fleira úr heimi persónuverndar.
    Svo bregðum við vestur á firði, þar sem Gréta Sigríður Einarsdóttir, fréttamaður RÚV á Vesturlandi, ræðir við Eirík Örn Norðdahl um rithöfundastarfið, bókmenntir á landsbyggðinni, menningarmiðjur og ýmislegt fleira.
    Og svo höldum við áfram viðtalsröð okkar um framtíðir og framtíðarsýnir - í samstarfi við framtíðarfestival Borgarbókasafnsins. Í dag pælum við um gervigreind, myndasögur og borgir framtíðarinnar, ásamt Aroni Daða Þórissyni, forsvarsmanni hópsins myndarsögur.
    Tónlist úr þættinum:
    THE BEATLES - Norwegian Wood (This Bird Has Flown).
    1 hr
  • Framtíðin sem blóm, örveruflóra, víkingaímyndir
    Hvernig hugsum við um framtíðina? Er hún línuleg? Hringur? Kannski í laginu eins og blóm? Í fyrsta viðtali í framtíðarviðtalsröð Samfélagsins og Borgarbókasafnsins ræðum við við Juan Camilo, fjölmenningarfulltrúa hjá Háskóla Íslands og fræðimann og kennara, í breiðum skilningi þeirra orða, um framtíðina, forvera, menntun og ýmislegt fleira.
    Síðan fáum við til okkar Eddu Olgudóttur, vísindamiðlara Samfélagsins, sem beinir í dag sjónum sínum að örveraflórunni.
    Og svo heyrum við viðtal Samfélagsins við Guðrúnu Dröfn Whitehead, safnafræðing, sem tekið var á síðasta ári, um víkingaímyndir, útrásarvíkinga, karlmennsku og pólitískar öfgahreygingar.
    Tónlist:
    Lenker, Adrianne - Sadness as a Gift.
    59 min
  • Ímyndarkrísa endurskoðenda, matvendni og framtíðarfestival
    Eru endurskoðendur leiðinlegir? Almenningur virðist að minnsta kosti vera þeirrar skoðunar, ef marka má nýja rannsókn Valdimars Sigurðssonar, prófessors við viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík. Og þessi ímyndarkrísa endurskoðenda gæti haft alvarleg áhrif, þar sem nýliðun í faginu er lítil og of fáir endurskoðendur eru útskrifaðir til að anna eftirspurn. Við ræðum við Valdimar Sigurðsson og Unnar Friðrik Pálsson, endurskoðanda og framkvæmdastjóra félags löggiltra endurskoðenda, um ímynd endurskoðenda, hvað sé til ráða, og hvort innistæða sé fyrir því að endurskoðendur séu taldir leiðinlegir.
    En næstu vikur verðum við í samfélaginu með hugann við framtíðina. Í dag kynnum við viðtalsröð þar sem við fáum til okkar alls konar fólk til að ræða um þeirra sýn á framtíðina. Þetta gerum við í samvinnu við Borgarbókasafnið, sem halda svokallað framtíðarfestival í lok mánaðar. Við fáum til okkar Dögg Sigmarsdóttur og Martynu Karólínu Daniel frá Borgarbókasafninu til að ræða þetta.
    Um fjórðungur barna er með einhvers konar matvendi eða takmarkað fæðuval. Margir foreldrar hafa talsverðar áhyggjur af matvendni barna sinna, enda fylgir matvendni oft mikil streita og álag. En af hverju eru sum börn matvönd og hvers vegna eldist það oftast af þeim. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Sigrúnu Þorsteinsdóttur, kínískan barna- og heilsusálfræðing og Önnu Sigríði Ólafsdóttur, prófessor í næringafræði um matvendni.
    1 hr
  • Tímamótastyrkur til að koma skikki á vatnsmálin, Refsiábyrgð ráðherra - er hún til? Leiðsögumaðurinn Vigdís Finnbogadóttir
    Í dag fjöllum við um vatn eina dýrmætustu auðlind Íslands. Þekking okkar á ástandi vatns er takmörkuð og ásókn í það eykst stöðugt.
    Umhverfis- og orkustofnun hlaut á dögunum 3,5 milljarða styrk frá Evrópusambandinu til að koma betra skikki á vatnamál á Íslandi, fráveitukerfi Ísafjarðarbæjar og tjörnin í Reykjavík eru á meðal þess sem nýtur góðs af. Við ræðum þetta við Hólmfríði Þorsteinsdóttur sérfræðing hjá Umhverfis- og orkustofnun.
    Hvernig höldum við ráðherrum ábyrgum ef þeir brjóta af sér í starfi? Tilheyra ráðherra elítuhópi sem verður aldrei sóttur til saka vegna brota í embætti? Að mati Hauks Loga Karlssonar, dósents í lögfræði við Háskólann á Birföst, er núverandi kerfi til að halda ráðherrum ábyrgum ómarkvisst, og jafnvel ógagnlegt. Aðeins einu sinni hefur ráðherra verið sóttur til saka vegna meintra brota í embætti, sem endaði ekki betur en svo að ferlið var kært til Mannréttindadómstóls Evrópu. Pétur Magnússon ræddi við Hauk Loga um refsiábyrgð ráðherra og hinn sérkennilega Landsdóm.
    Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri Ríkisútvarpsins, færir okkur gersemar úr safninu. Að þessu sinni rifjar hún leiðsögumannastörf Vigdísar Finnbogadóttur.
    Tónlist í þættinum:
    ÁSGEIR TRAUSTI - Lifandi Vatnið.
    Bright Eyes - Shell games
    1 hr
  • Samfélagið í Hamraborginni
    Samfélagið fjallar um Hamraborgina í Kópavogi, sýn fólks á hana, listina sem þar verður sífellt fyrirferðarmeiri og ýmsar hræringar.
    Tónlist í þættinum:
    KRISTJÁN JÓHANNSSON - Hamraborgin (LP).
    Herra Hnetusmjör - Labbilabb ásamt Friðrik Dór.
    1 hr
  • Framtíðir og skaðleg aukaefni í matvöru
    Í dag ætlum við að velta okkur upp úr framtíðinni; eða kannski er réttara að segja að við ætlum að velta okkur upp úr framtíðum. Þær eru víst alls konar, mögulegar og ómögulegar. Við heimsækjum Karl Friðriksson og Sævar Kristinsson hjá Framtíðarsetri Íslands, sem nálgast þetta viðfangsefni með aðferðum framtíðarfræðinnar.
    Íslenskir brauðostar, kotasæla og rifinn ostur innihalda flest rotvarnarefni ólíkt sömu vörum í Danmörku. Rotvarnarefnið Nítrit sem er merkt E-252 er einnig að finna í íslenskum matvörum en minna í dönskum matvörum. Þá eru einnig kekkjavarnarefni, bræðslusölt og önnur rotvarnarefni líka til staðar í nokkrum vöruflokkum svo dæmi sé tekið. Þetta kemur fram í grein Bændablaðsins eftir Önnu Maríu Björnsdóttur kvikmyndagerðarkonu sem er framkvæmdastjóri hjá Lífrænu Íslandi, og Unu Emilsdóttur, sérnámslækni í umhverfislæknisfræði í Danmörku. Þær vilja vekja athygli á skaðsemi þessara efna sem sum hver geta valdið alvarlegum sjúkdómum og nítrit þá sérstaklega. Helga Arnardóttir tók þær tali og ræðir líka sterka neytendavitund Dana og áherslur í Danmörku.
    Tónlist úr þættinum:
    THE VELVET UNDERGROUND - All Tomorrows Party's.
    Pétur Ben - The great big warehouse in the sky.
    1 hr
  • Baráttan við heimalestur, seinleg áfallahjálp fyrir Grindvíkinga, vísindaspjall
    Um fimm sinnum í viku heyja fjölmargir foreldrar baráttu við að fá börnin sín til að lesa. Heimalestur er útbreidd hefð á Íslandi, þar sem börn eru látin lesa upphátt fyrir foreldra sína í fimmtán mínútur í senn, allt að fimm sinnum í viku. Þetta er hluti af ábyrgð foreldra í lestrarkennslu barna, en hvernig hefur þetta fyrirkomulag reynst foreldrum og börnum? Hafa allir foreldrar í raun og veru korter til að sinna lestrarþjálfun? Gæti fyrirkomulagið aukið ójöfnuð milli nemenda? Gæti það rænt börnum lestrargleði? Þetta eru spurningar sem Anna Söderström, doktorsnemi við félagsvísindasvið Háskóla Íslands, svarar í nýrri fræðigrein. Við ræðum við Önnu um heimalestur, kosti hans og galla, og ýmislegt fleira.
    Áfallahjálp hefur staðið Grindvíkingum sem misstu heimili sín vegna eldsumbrota árið 2023 til boða frá því í byrjun síðasta sumars og hafa hundruð þeirra nýtt sér þjónustuna. En var of seint brugðist við að hlúa að andlegri heilsu Grindvíkinga í hamförunum og gengu önnur verkefni fyrir sem snúa að verðmætabjörgun? Við ætlum að ræða við Jóhönnu Lilju Birgisdóttur, sálfræðing og framkvæmdastýru þjónustuteymis Grindvíkinga um áfallahjálpina sem nú er í boði, í hverju hún felst nákvæmlega og þyrfti e.t.v. að bjóða umfangsmeiri sálfræðiþjónustu til að koma til móts við þá sem misstu heimili sín á einni nóttu.
    Svo fáum við Eddu Olgudóttur til okkar í Vísindaspjall, þar sem við ætlum að fara yfir vísindaárið 2024.
    Tónlist úr þættinum
    Elvis Presley - Any day now.
    Spacestation - Í draumalandinu.
    1 hr

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners