Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Huldumaður á bakvið geitarbrennuhótanir, umhverfisvænni jól, uppgjör Vísindavefsins
    Rúmlega 4000 manns hafa boðað komu sína á Facebook-viðburðinn Íkea-geitin brennd. Í viðburðarlýsingu segir: Komum öll saman og brennum þessa helvítis Íkea-geit. Við ætlum að fjalla um þessa geit, uppruna hennar, sögu og skemmdarfýsnina sem virðist tengjast henni sterkum böndum. Við ræðum við Guðnýju Camillu Aradóttur, yfirmann samskiptasviðs Íkea, Terry Gunnell, prófessor emerítus í þjóðfræði og huldumanninn á bak við havaríið.
    Bryndís Marteinsdóttir, flytur okkur jólaumhverfispistil, sem var fyrst fluttur 22. desember 2022, en á alveg jafn vel við í dag.
    Í lok þáttar lítum við um öxl og gerum upp árið á Vísindavefnum. Við ræðum við Jón Gunnar Þorsteinsson, ritstjóra, fræðumst um hvað stóð upp úr hjá vefnum, hvað var mest lesið, áhugaverðast eða skrítnast.
    Tónlist:
    Guðmundur Pétursson Tónlistarm., - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
    58 min
  • Sálarlíf fiska, kvenfélag á Patreksfirði, ofbeldisforvarnarkvikmyndin Geltu
    Um helgina verður frumsýnd kvikmynd sem ætlað er að fræða ungt fólk um hatorsorðræðu. Kvikmyndin heitir Geltu sprettur upp úr starfsemi ofbeldisforvarnarskólans Ofsa og í dag ræðum við við Bennu Sörensen, stofnanda skólans, og Sigríði Lárettu, leikara og höfund.
    Sjálfboðaliðastarf í þágu samfélagsins er óvíða jafn öflugt og á Patreksfirði. Þar starfar Lionsklúbbur og tvö félög sem eingöngu eru skipuð konum, slysavarnardeildin Unnur og Kvenfélagið Sif. Gréta Sigríður Einarsdóttir kom við á Patreksfirði á dögunum og ræddi við nýjan formann kvenfélagsins, sem er reyndar líka meðlimur í Slysavarnardeildinni.
    Í lok þáttar kíkir Edda Olgudóttir vísindamiðlari í heimsókn og segir okkur frá ýmislegu um veiðistjórnunarkerfi og tilfinningalíf fiska.
    Tónlist frá útsendingarlogg 2024-12-19
    The National & Phoebe Bridgers - Laugh Track.
    LIANNE LA HAVES - Lost & Found.
    SUPERSPORT! - Húsið mitt (í sjálfu sér)
    55 min
  • E-efnasúpan, skautun og óöfundsverð staða ungra kjósenda
    Þau binda, verja gegn rotnun, sýrustilla og kekkjaverja, gefa sætt bragð eða súrt og kannski fátt sem sameinar þau annað en að þau eru táknuð með E-i, sem stendur fyrir Evrópu og ákveðnu númeri. Neyslusamfélagið kafar í dag ofan í E-efnasúpuna og leitar svara við spurningum dyggs hlustanda sem er með ofnæmi fyrir ákveðnu slíku efni. Í Mjólkursamsölunni kemur í ljós að innihaldslýsing osts hefur breyst og í matvörubúðinni er E-efnaríkasta fæðan elt uppi.
    Og við höldum áfram samtali okkar við Jón Gunnar Ólafsson og Huldu Þórisdóttur, stjórnmálafræðinga, um bók sem þau voru að gefa út, sem heitir Lognmolla í ólgusjó. Bókin byggir á íslensku kosningarannsókninni og fjallar meðal annars um alþingiskosningarnar 2021 og íslenska kjósendur í áranna rás. Í dag fjöllum við um unga kjósendur, skautun í íslensku samfélagi, fjölmiðla og ýmislegt fleira.
    58 min
  • Lognmolla í ólgusjó, Meðalhitinn yfir 1,5, Jólamálfarsspjall
    Í síðustu viku gáfu stjórnmálafræðingar við Háskóla Íslands út bók sem byggir á íslensku kosningarannsókninni, og beinir sjónum sínum einna helst að alþingiskosningunum 2021 og íslenskum kjósendum í áranna rás. Tveir af höfundum bókarinnar, Jón Gunnar Ólafsson og Hulda Þórisdóttir, ætla að setjast hjá okkur og ræða bókina, lýðræðið, og hvort Alþingiskosningarnar 2021 hafi verið sögulega leiðinlegar.
    Allt útlit er fyrir að árið í ár verði það fyrsta þar sem meðalhiti á jörðinni fer yfir 1,5 gráðu markmiðið. Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags, kemur og ræðir það helsta sem er í loftslagsdeiglunni þessa dagana.
    Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins, fer yfir ýmis orð tengd jólunum.
    Tónlist og stef í þættinum:
    St. Vincent - Tiempos Violentos
    Mars Volta - Aegis
    Moses Hightower - Feikn
    55 min
  • Forvarnir og hættuleg endurkoma reykinga, koma ungversks flóttafólks 1956
    Reykingar virðast njóta aukinnar hylli í dægurmenningu - frægt fólk í Hollywood sportar sígarettum á almannafæri, svokallaðir sígarettuáhrifavalda, cigfluencers, hafa skotið upp kollinum á samfélagsmiðlum og síðastliðið ár komu reykingar fyrir í 9 af hverjum 10 kvikmyndum sem tilnefndar voru til stærstu Óskarsverðlaunanna. Blaðamenn tala um áhrif tísku og einhvers konar afturhvarf til kæruleysislegs nautnalífernis fyrri tíma. Við ætlum að ræða þetta, sögu reykinga og áhrif þeirra við Tómas Guðbjartsson, hjarta- og lungnaskurðlækni á Landspítala og prófessor í læknisfræði, en hann gaf nýlega út fræðslu- og forvarnakverið Hættu nú alveg.
    Svo kemur Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV til okkar, við ætlum að fara með henni aftur til ársins 1956, þegar stjórnvöld hér tóku á móti hópi ungverskra flóttamanna, rétt fyrir jól. Högni Torfason, fréttamaður ríkisútvarpsins, fékk að fara með að sækja hópinn og lýsti öllu sem fyrir augu bar af mikilli nákvæmni.
    Tónlist í þættinum:
    ERIC BURDON & WAR, ERIC BURDON & WAR - Tobacco Road.
    THE DOORS, THE DOORS - Break on Through (To the Other Side).
    Moustaki, Georges - Le Métaque.
    1 hr
  • Uppskeruhátíð Snjallræðis, Jólaóþarfi og Albatrosinn viska
    Við ætlum að kynna okkur nýjabrumið í nýsköpun, nú fer fram uppskeruhátíð Snjallræðis í Ráðhúsi Reykjavíkur, þar kynna nokkur teymi hugmyndir sem vonandi eiga eftir að bæta og breyta heiminum til góðs. Við ræðum við fulltrúa nokkurra teyma og verkefnastjóra snjallræðis, Odd Sturluson.
    Við fáum svo jólapistil frá Stefáni Gíslasyni, hann fjallar um óþarfa, hvaða kerti og neysluspil eigi að varast fyrir jólin.
    Vera Illugadóttir kemur til okkar í dýraspjall til að ræða albatrosa sem hún og fleiri hafa fylgst með um árabil, hana visku.
    Tónlist og stef í þættinum:
    JONI MITCHELL - Chelsea Morning.
    ALVA NOTO & RYUICHI SAKAMOTO, ALVA NOTO & RYUICHI SAKAMOTO, ALVA NOTO & RYUICHI SAKAMOTO - Microon III (spilar á Sónar 2013).
    58 min
  • Hulduherinn sem knýr áfram gervigreindarbyltinguna, krabbameinsrannsóknir, víkingar og þjóðarsálin
    Við byrjum þáttinn á að fjalla um gervigreind. Eyrún Magnúsdóttir, gervigreindarfréttaritari Samfélagsins, kemur til okkar og við ætlum að ræða gervigreind og vinnumarkaðinn, ekki þó endilega í því samhengi sem við heyrum oft um. Við ætlum ekki bara að velta fyrir okkur hvaða störf koma til með að hverfa vegna gervigreindar, heldur skoða milljónir láglaunastarfa sem fylgja gervigreindarbyltingunni. Hulduherinn sem bakkar upp byltinguna.
    Síðan fáum við Eddu Olgudóttur vísindamiðlara í heimsókn og spjöllum um nýjar og spennandi krabbameinsrannsóknir, sem gefa góð fyrirheit um baráttuna gegn alls konar krabbameini.
    Og í lok þáttar ætlum við að líta um hæl. Við ætlum að endurflytja umfjöllun sem var flutt hér í Samfélaginu í haust, þegar við heimsóttum safnafræðinginn Guðrúnu Dröfn Whitehead og veltum fyrir okkur víkingaímyndinni og mikilvægi hennar í uppbyggingu þjóðarsálarinnar, og hvað það þýðir að vera víkingur í dag.
    Tónlist úr þættinum:
    SUFJAN STEVENS - Chicago.
    ARLO PARKS & LOUS & THE YAKUZA - I'm sorry.
    58 min
  • Framtíð Kaffistofu Samhjálpar, skotið á dróna Fiskistofu - nýr veruleiki í fiskveiðieftirliti?
    Í meira en fjóra áratugi hefur kaffistofa Samhjálpar tekið við fólki sem hafa ekki tök á að sjá sér fyrir mat sjálft, veitt þeim tímabundið húsaskjól og gefið þeim að borða. Starfsemi kaffistofunnar hefur þróast og breyst í gegnum árin og segja má að starfsemin hafi aldrei verið mikilvægari en í dag. Þó er framtíð kaffistofunnar óljós, en Samfélagið kíkti í heimsókn til að fræðast um starfsemina í Borgartúni.
    Á dögunum varð eftirlitsmaður Fiskistofu fyrir því að skotið var á dróna sem hann nýtti til eftirlits. Þetta var í þröngum firði vestur á fjörðum og skotin glumdu, þrjú í röð. Manninum var brugðið - enda skammt undan sjálfur, að stjórna drónanum. Viðar Ólason, sviðsstjóri veiðieftirlitssviðs, fiskistofu, er gamall sjómaður. Hann bindur vonir við að atvikið hafi verið undantekning en veit að andúð í garð Fiskistofu grasserar í sumum hópum. Við ræðum þetta alvarlega atvik við Viðar og einnig um fiskveiðieftirlitskerfið í heild, kosti og galla.
    Tónlist í þættinum:
    BARR - Allt haf.
    59 min
  • Skaðaminnkun og popúlismi, útnárar fjarskiptakerfisins og áhrif mögulegrar Valkyrjustjórnar á náttúruvernd.
    Við fjöllum um vímuefnalöggjöf og popúlisma. Evrópska skaðaminnkunarráðstefnan fór fram í síðustu viku í Póllandi, og meðal þess sem var fjallað um voru áhrif popúlískra stjórnmálahreyfinga í Evrópu á skaðaminnkun og vímuefnalöggjöf almennt. Við ræðum við Svölu Jóhannesdóttur, formann Matthildarsamtakanna og sem var á ráðstefnunni, um stöðuna í Evrópu, sem og hér á landi.
    Skagaströnd er ekki eini staðurinn á landinu sem getur orðið sambandslaus við umheiminn fyrirvaralaust. Það eru fleiri svæði víðsvegar um land sem eru eintengd en ekki hringtengd. Við ætlum að ræða fjarskiptainnviði á landinu og veiku blettina við Þorleif Jónasson, sviðsstjóra hjá Fjarskiptastofnun, og Atla Stefán Yngvason, samskipta- og markaðsstjóra, Mílu.
    Í lok þáttar fáum við pistil frá Páli Líndal, umhverfissálfræðingi, sem fjallar í dag um möguleg áhrif Valkyrjustjórnarinnar á náttúruvernd.
    Tónlist í þættinum:
    CAROLE KING - It's Too Late.
    SYKURMOLARNIR - Top Of The World.
    59 min
  • Gjörningur á Austurvelli, Stefnir í hafísárið 2025? Fyrstu ár Þjóðleikhússins
    Við ætlum að bjóða upp á ís í samfélaginu í dag, eða samtal um ís; hafís, klakastíflur, freðna jörð jafnvel hláku. Ingibjörg Jónsdóttir, dósent í landfræði við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands, þekkir vel til þessarar höfuðskepnu, vatns á föstu formi og hún kemur til okkar hér rétt á eftir.
    Mannréttindasamtökin Amnesty International komast í nýrri rannsóknarskýrslu að þeirri niðurstöðu að nægilegur grundvöllur sé til þess að halda því fram að Ísraelsríki hafi framið og haldi áfram að fremja þjóðarmorð á Gaza. Ungliðadeild Íslandsdeildar samtakanna stóð fyrir mótmælum á Austurvelli nú í hádeginu. Við heyrum hljóðið í viðstöddum.
    Við förum svo í okkar reglulegu heimsókn á Þjóðaskjalasafninu. Bára Stefánsdóttir, skjalavörður rýnir með okkur skjöl tengd Þjóðleikhúsinu.
    Tónlist og stef í þættinum:
    Beatles, The - Here comes the sun.
    JÓNAS SIG & ÓMAR GUÐJÓNS - Baráttusöngur uppreisnarklansins (Tónatal 2021).
    Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
    PAUL SIMON - 50 Ways To Leave Your Lover.
    55 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners