Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Er í alvöru hægt að lækka matvöruverð? og áratugur af sniðgöngu
    Bera íslenskar matvöruverslanir hag neytenda fyrir brjósti eða ráða gróðasjónarmið þeirra einfaldlega ríkjum? Og hvernig koma boðaðar verðhækkanir á matvöru fram á nýju ári og geta neytendur fylgst með því hvaða verslun er raunverulega að selja ódýrasta matinn? Við ætlum að ræða hækkanir á matvöruverði, mikinn hagnað matvöruverslanakeðja hér á landi undanfarin ár og hegðun þeirra gagnvart neytendum, við Aðalstein Kjartansson, rannsóknarblaðamann á Heimildinni, sem skrifað hefur ítarlega um matvörumarkaðinn og við Benjamín Julian, verkefnastjóra hjá Verðlagseftirliti ASÍ, sem segir okkur meðal annars hvaða matvara er að hækka eða lækka á þessari stundu.
    Hvað eiga CocaCola, tölvuframleiðandinn HP, lyfjafyrirtækið Teva, greiðslumiðlunin Rapyd og Sodastream sameiginlegt. Allt eru þetta fyrirtæki sem hópur fólks sniðgengur vegna tengsla þeirra við Ísrael. Hólmfríður Jónsdóttir og Ragnhildur Hólmgeirsdóttir frá íslensku sniðgönguhreyfingunni koma í heimsókn í síðari hluta þáttar og ræða um íslensku sniðgönguhreyfinguna, sem var sett á stofn fyrir um áratug síðan, en hefur sjaldan verið eins fyrirferðarmikil og í dag.
    Tónlist úr þættinum:
    PATTI SMITH - Free Money.
    BIG THIEF - Change.
    55 min
  • Hrútskýringar og niðrandi tal í íslenskum stjórnmálum, málningakeppni í Nexus
    Við byrjum á skrímslum, vélmennum og stríðsmönnum. Í Nexus fer nú fram fígúrumálningakeppni, þar sem keppendur senda inn sína bestmáluðu smáfígúru frá árinu 2024. Við kíktum í heimsókn í morgun og ræddum við Guðbrand Magnússon, starfsmann Nexus, um keppnina, um áhugamálið fígúrumálningar og fleira.
    Við ætlum að fjalla um orðræðu karla í íslenskum stjórnmálum í garð stjórnmálakvenna og þá hvort hún sé niðrandi, hrútskýrandi og jafnvel beinlínis dónaleg og úrelt og velta fyrir okkur hvort karlkyns stjórnmálaleiðtogar breyttust í tali og nálgun eftir stjórnarmyndun frá aðdraganda kosninga og þá sérstaklega í garð formanns Flokks fólksins, Ingu Sæland. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi formaður Samfylkingar og stjórnmálamaður til áratuga, og Berglind Rós Magnúsdóttir, prófessor við menntavísindasvið og sérfræðingur í kynjamálum, ætla að kryfja málin með okkur hér á eftir.
    Tónlist úr þættinum:
    DAVID BOWIE - Scary Monsters (And Super Creeps).
    EURYTHMICS & ARETHA FRANKLIN - Sisters Are Doin' It For Themselves.
    1 hr
  • Frostvandræði á Akureyri og hugmyndahraðhlaup fyrir háskólanema
    Fimbulfrost setti svip sinn á áramótin á Akureyri, það lækkaði töluvert í hitaveitutönkunum og Norðurorka virkjaði neyðarstjórn. Ástandið er skárra núna þó frostið sé aftur að herða tökin. Í fyrri hluta þáttarins ræðum við Baldur Viðar Jónsson, vélfræðing hjá Norðurorku - um snjóbræðslukerfi sem eiga ekkert í gaddinn, ofanjarðarlagnir frá áttunda áratugnum, nýjar og gamlar borholur - já bara hitaveituinnviðina á Akureyri eins og þeir leggja sig.
    Og í seinni hluta þáttarins fjöllum við um nýsköpun. Hugmyndahraðhlaup Gulleggsins verður haldið í fyrsta skipti núna um helgina. Þetta er viðburður þar sem háskólanemar fá að prófa að vera frumkvöðlar, mynda teymi og þróa hugmyndir til að leysa vandamál. Við ræðum við Íseyju Dísu Hávarsdóttur og Jennu Björk Guðmundsdóttur, sem eru verkefnastjórar hjá Klak Icelandic Startups, og spjöllum um þennan viðburð og nýsköpunarumhverfið á Íslandi.
    55 min
  • Kristín styður 37 fjölskyldur á Gaza, Opni háskólinn og gervigreind
    Það má segja að Kristín S. Bjarnadóttir, hjúkrunarfræðingur á Svalbarðseyri, búi í tveimur heimum. Þegar hún er ekki í vinnunni í heimahlynningunni á Akureyri er hún vakin og sofin yfir því að styðja fjölskyldur á Gaza, fjárhagslega en ekki síður andlega. Segja má að hún reki óformleg hjálparsamtök og í kringum þau hefur skapast stórt samfélag.
    Grunnskóli, framhaldsskóli, háskóli… en hvað svo? Símenntun tekur sífellt á sig nýjar og nýjar myndir og fjölmörg halda áfram að sækja sér menntun að lokinni hefðbundnu skólagöngu, oft þegar þau skipta um starf, fá stöðuhækkun, eða jafnvel bara þegar tölvukerfið í vinnunni er uppfært. Við ræðum við Ingunni S. Unnarsdóttur Kristensen, forstöðukonu Opna háskólans, um Opna háskólann, símenntun og gervigreind.
    Tónlist og stef úr þættinum:
    Nai Barghouti - Li Fairuz
    Tolentino, Ife - Distante Canção.
    Joan Baez - There But For Fortune.
    58 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners