Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Elli hunda og katta, markaðsbrestur Stefáns og löggæsla án valdbeitingar
    Öldrunarmálin verða okkur hugleikin í dag, við eldumst öll og það gera dýr líka. Hanna Arnórsdóttir Rodgers, dýralæknir, ætlar að ræða við okkur um aldurstengda færnisskerðingu hjá hundum og köttum og hvernig eigendur geta annast þessa ferfætlinga í ellinni þá í ellinni.
    Hvernig upplifa minnihlutahópar á Íslandi samskipti við lögregluna? Og getum ímyndað okkur framtíð þar sem við tryggjum öryggi fólks án valdbeitingar? Í dag höldum við áfram viðtalsröð okkar um framtíðir og framtíðarsýnir, í samvinnu við Borgarbókasafnið. Pétur Magnússon fær til sín Armando Garcia, sem hefur rannsakað samskipti minnihlutahópa og lögreglu, til að ræða um framtíð löggæslu á Íslandi.
    Við fáum svo pistil frá Stefáni Gíslasyni, umhverfisstjórnunarfræðingi um miðbik þáttar, hann ætlar að fjalla um markaðsbrest.
    Tónlist í þættinum:
    BOB DYLAN - If Dogs Run Free (Alternate Version, New Morning).
    ARETHA FRANKLIN - Freeway Of Love.
    Helgi Björns og Fjallabræður - 1000 sinnum segðu já (Tónaflóð 2016)
    59 min
  • Réttindi hinsegin fólks í Bandaríkjum Donalds Trump og Íslendingasögur í Landnámssetrinu
    Annað kjörtímabil Donalds Trump í embætti Bandaríkjaforseta hófst með sannkölluðu forsetatilskipanaflóði. Á síðustu viku hefur hann meðal annars tekið ákvarðanir um innflytjendamál, loftslagsmál og rekstur hins opinbera, en eitt af því sem hefur vakið athygli eru tilskipanir Trumps sem tengjast kynjamálum og réttindum hinsegin fólks, sem gætu haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir hinsegin fólk í Bandaríkjunum. En hvaða áhrif gætu þessar tilskipanir haft? og… Skiptir það máli fyrir okkur hér á Íslandi? Í dag fáum við til okkar Bjarndísi Helgu Tómasdóttur, formann Samtakanna 78, og Reyn Alpha Magnúsdóttur, forseta Trans Ísland, til að ræða þessi mál.
    Og síðan bregðum við okkur vestur á land, og heimsækjum eina af grunnstoðum vesturlenskrar ferðaþjónustu í Borgarnesi. Við kíkjum í Landnámssetrið, fræðumst um starfsemina þar, og kynnum okkur íslendingasögurnar sem þær Sigríður Margrét Guðmundsdóttir Helga Margrét Friðriksdóttir vinna við að miðla.
    Tónlist úr þættinum
    Waxahatchee - Lilacs.
    55 min
  • Útivinna í frosthörkum, sjúklingar sem neytendur og merkileg músatilraun
    Það er fimbulkuldi á höfuðborgarsvæðinu og fjöldi fólks vinnur úti allan daginn í frosthörkunum. Við förum í heimsókn á byggingasvæði í Kópavogi og ræðum við starfsmenn frá ýmsum löndum - það er mikilvægt að huga að örygginu, hálka og ísing víða, og þekkt að vinnuslys í byggingariðnaði eru mun algengari á veturna en á sumrin.
    Neytendalögin gilda ekki um heilbrigðisþjónustu. Við heyrum í Brynhildi Pétursdóttur, framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna um réttindi sjúklinga og meðferð kvartana vegna heilbrigðisþjónustu hér og í Finnlandi.
    Edda Olgudóttir, vísindamiðlari, segir okkur frá tilraunum kínverskra vísindamanna til þess að geta músarunga með frumum úr tveimur karlkyns músum.
    Tónlist:
    Laura Marling - Ghosts.
    THE BEATLES - Blackbird.
    59 min
  • Ólíkindatólið tjaldur og nýlendulaus næring
    Tjaldurinn er ólíkindatól og undanfarin ár hefur líffræðingurinn Sölvi Rúnar Vignisson einbeitt sér sérstaklega að rannsóknum á honum - við ætlum að ræða við Sölva Rúnar um líf og hegðun Tjalda, sem sumir eru orðnir staðfuglar og jafnvel farnir að yfirgefa fjörurnar fyrir ánamaðka í túnum.
    Síðan fjöllum við um nýlendustefnu, framtíðina og matarmenningu, afnýlenduvæðingu, sundlaugar og kvikmyndir. Við ræðum við Acholu Otieno, April Dobbins, og Elizabethu Lay, sem voru með viðburð á Framtíðarfestivali Borgarbókasafnsins sem tengist nýlendulausri næringu. Viðtalið er hluti af viðtalsröð Samfélagsins um framtíðir og framtíðarsýnir.
    50 min
  • Veðurstofustjóri um veitur og veður, Hvað ef og Risaeðlur, Fyrstu götuljósin í Reykjavík
    Við ræðum áhrif loftslagsvárinnar á ýmsa innviði, einkum vatns- og fráveitur, við Hildigunni Thorsteinsson, veðurstofustjóra. Sveitarfélög þurfa á næstu árum að ráðast í ýmsar aðgerðir vegna aukinna öfga í veðurfari - en kröfur um slíkt eru í dag af skornum skammti.
    Hvað ef loftsteinn hefði ekki lent á jörðinni fyrir 65 milljónum ára? Hefði líf á jörðinni verið öðruvísi í dag? Væru enn risaeðlur á vappi? Hvað ef spurningar sem þessar eru vissulega skemmtilegar, en eru þær gagnlegar? Pétur Magnússon heimsótti Arnar Pálsson erfðafræðing í Háskóla Íslands og spurði hann út í hvað ef-fræði og risaeðlur.
    Við förum svo í tímavél aftur til ársins 1949 - þá urðu mörg stórtíðindi í Reykjavíkurborg - meðal annars komu fyrstu umferðarljósin - sem sumir vildu reyndar kalla götuvita. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, setur okkur inn í þetta og við heyrum brot úr safninu.
    52 min
  • Samfélagið í Borgarnesi
    Í dag heilsum við ykkur frá Borgarnesi, nánar tiltekið frá hljóðveri Ríkisútvarpsins í Menntaskóla Borgarfjarðar. Við verðum með hugann við þetta svæði í dag.
    Við ætlum að ræða rekstur sveitarfélaga, aukaíbúðir sem standa auðar um allt land og byggðabrag við Vífil Karlsson, prófessor í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst og ráðgjafi hjá samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi.
    Inga Dóra Halldórsdóttir, forstöðumaður hjúkrunarheimilisins Brákarhlíð og Bragi Þór Svavarsson, skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar ræða við okkur um líf sitt og störf hér í Borgarnesi og um sameiginlegt verkefni sem snýr að því að auka samskipti þvert á kynslóðir.
    Ræðum við þau sem starfa hér dagsdaglega, þau Gísla Einarsson, dagskrárgerðarmann og veislustjóra í hjáverkum og Gréta Sigríður Einarsdóttir fréttamann á Vesturlandi.
    1 hr
  • Sólarpönk, samkennd með blómum og kaffiathafnir
    Í dag höldum við áfram að fjalla um framtíðina. Höldum áfram með viðtalsröð okkar, þar sem við ræðum við framtíðarhugsuði sem taka þátt í framtíðarfestivali Borgarbókasafnsins næstu helgi. Við ætlum við að fræðast um bókmenntagrein, listastefnu og aðgerðastefnu sem hefur fengið heitið sólarpönk. Þetta er leið til að sjá fyrir sér framtíð þar sem fólk lifir í sátt og samlyndi við hvert annað og vistkerfið sem við búum í. Við fáum til okkar James Tomasino, sem heldur úti hlaðvarpi tileinkað sólarpönki, til að segja okkur meira um þessa áhugaverðu hugmynd.
    Svo ætlum við að heimsækja veröld blómanna. Jelena Bialetic leikskólakennari og hin fimm ára gamla Halldóra Móa ætla að ræða við okkur og segja okkur frá því hvernig samkennd með blómum og listsköpun barna getur hjálpað okkur að hugsa og taka ákvarðanir um framtíðina.
    Og að lokum flytjum við pistil frá Birgittu Björgu Guðmarsdóttur, rithöfundi og pistlahöfundi Samfélagsins.
    59 min
  • Samfélagsmiðlar eftir endurkomu Trumps, klippimyndaframtíð, mislingar og bólusetningar
    Forríkir tæknimógúlar hafa undanfarið fylkt sér að baki Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Elon Musk, ríkasti maður heims, sem á Teslu, SpaceX og samfélagsmiðilinn X, er orðinn innsti koppur í búri hjá Trump og jafnvel talinn vilja gerast einhvers konar strengjabrúðumeistari yfir honum. Jeff Bezos, forstjóri Amazon og annar ríkasti maður heims, stendur líka þétt við bak forsetans og það sama má segja um þann þriðja ríkasta, Mark Zuckerberg, forstjóra Meta sem á Facebook, Whatsapp og Instagram. Zuckerberg og Trump elduðu lengi grátt silfur saman en eru nú mestu mátar - og áhrifa þessa viðsnúnings virðist gæta á miðlunum - sem þekkt er að hægt er að nota og misnota í pólitískum tilgangi. Við ætlum að ræða þetta samkrull og afleiðingar þess fyrir lýðræðið við Elfu Ýr Gylfadóttur, framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar.
    Og síðan höldum við áfram með viðtalsröð okkar um framtíðir og framtíðarsýnir, sem við höldum úti ásamt framtíðarfestivali borgarbókasafnsins. Í dag fáum við til okkar Marie Vesela, listamann og heimspeking sem heldur úti vinnstustofum þar sem fólk skapar klippimyndir og ímyndar sér framtíðina eftir hundrað ár. Hvernig geta klippimyndir hjálpað okkur að hugsa um framtíðina? Við fræðumst um það í seinni hluta þáttar.
    Edda Olgudóttir vísindamiðlari kemur svo til okkar í lok þáttar til að ræða um mislinga og bólusetningar.
    Tónlist úr þættinum:
    Kraftwerk - Computer World.
    NEIL YOUNG - Powderfinger.
    55 min
  • Loftslagsbreytingar og fráveita, samfélagslistir og tákn framtíðar, græna gímaldið
    Flóð ógna nýrri skólphreinsistöð í Árborg og á Austfjörðum er fólk farið að velta fyrir sér framtíð opinna vatnsbóla vegna kólí-gerla í jarðvegi. Vaxandi öfgar í veðurfari; þurrkar, flóð og miklar rigningar hafa neikvæð áhrif á fráveitukerfi sem víða um land eru komin til ára sinna.
    Samorka blés í dag til fundar um þessa ógn. Samfélagið ræddi við þrjá af fyrirlesurum fundarins þá Hlöðver Stefán Þorgeirsson, ráðgjafa, Ágúst Þór Bragason, forstöðumann hjá þjónustumiðstöð Árborgar og Aðalstein Þórhallsson, framkvæmdastjóra HEF-veitna á fljótsdalshéraði.
    Svo fáum við til okkar Ásdísi Birnu Gylfadóttur og Maríönnu Dúfu Sævarsdóttur, meistaranema í listum og velferð við Listaháskóla Íslands. Þær ætla að segja okkur frá því hvernig þær nálgast samfélagslistir og velferð, framtíðina og táknin sem við notum fyrir framtíðina. Viðtalið er það fimmta í viðtalsröð Samfélagsins um framtíðir og framtíðarýnir, í samstarfi við framtíðarfestival Borgarbókasafnsins.
    Og að lokum heyrum við í Páli Líndal, pistlahöfundi Samfélagsins. Í dag fjallar hann um græna gímaldið við Álfabakka, þéttingu byggðar og almenningssamgöngur.
    Tónlist og stef í þættinum:
    OTIS REDDING - Respect.
    MUSIC MACHINE - Talk Talk.
    Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
    1 hr
  • Greftrunarsiðir samtímans, Framtíð Daríu Testo og rafræn skjalavarsla
    Hvernig hugsum við um dauðann og örlög jarðneskra leifa okkar eftir hann? Líklega mismikið - á meðan sum eru búin að skipuleggja jarðarförina í þaula er öðrum sléttsama - þau verða hvort eð er ekki lífs. Við ætlum að ræða útfarir og greftrunarsiði samtímans við Dagrúnu Ósk Jónsdóttir, þjóðfræðing, sem undanfarið hefur rannsakað afstöðu fólks til jarðarfararinnar og hinstu hvílu og skráð hvernig tíðarandinn verkar á dauðann og allt tilstand í kringum hann.
    Hvað getum við lært um framtíðina í gegnum tedrykkju? Og hvernig tengja þjóðsögur okkur við vistkerfi og menningu? Í dag ræðir Pétur Magnússon við Dariu Testo, sýningarstjóra, sem rannsakar tengsl hefðbundinna athafna eins og að drekka te og segja þjóðsögur, við náttúru og vistkerfi. Viðtalið er það fjórða í viðtalsröð Samfélagsins um framtíðir og framtíðarsýnir, í samstarfi við framtíðar-festival Borgarbókasafnsins.
    Við heimsækjum svo þjóðskjalasafn Íslands, þar sem Fanney Sigurgeirsdóttir, skjalavörður, fræðir okkur um rafræn skjöl.
    Tónlist og stef í þættinum:
    Margrét Eir og Páll Rósinkranz - Forever young.
    Kammerkór Norðurlands - Nú sefur jörðin.
    SUFJAN STEVENS - Death with Dignity.
    Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
    SPILVERK ÞJÓÐANNA - Veðurglöggur.
    1 hr

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners