Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Leyndardómar bókhlöðunnar og hraðasektir um jól
    Samfélagið sendir út frá Þjóðarbókhlöðunni í Reykjavík, kynnir sér Kvennasögusafnið og fleira á fyrstu hæð byggingarinnar en fær líka að sjá vistarverur drauga og rannsaka harðlæsta hvelfingu í kjallaranum.
    Gréta Sigríður Einarsdóttir, fréttamaður, ræðir umferðaröryggi, hraðasektir og jólin við Ásmund Kristinn Ásmundsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vesturlandi.
    Tónlist:
    BOB DYLAN & THE BAND - Odds and Ends (Take 2).
    1 hr
  • Dýr, menn og Díegó - Pallborðsumræður, vísindaspjall
    Samfélagið efnir til pallborðsumræðna um dýr og viðhorf mannfólks til þeirra, hver er staða dýra í dag? Hvernig eiga réttindi þeirra eftir að þróast í framtíðinni - Og hvers vegna flykkist fólk um og leggur jafnvel allt í sölurnar fyrir ákveðin dýr - dýr eins og háhyrninginn Keikó eða köttinn Díegó.
    Þátttakendur:
    Kristinn Schram þjóðfræðingur sem hefur meðal annars skrifað um samskipti mannskepnunnar og annarra dýra.
    Vera Illugadóttir, dagskrárgerðarmaður á Rás 1 og áhugamanneskja um ketti, lemúra, flóðsvín, pöndur og fleiri dýr.
    Anna Margrét Áslaugardóttir, dýrahjúkrunarfræðinemi, ráðgjafi hjá Dýrfinnu og í stjórn kattavinafélagsins.
    Henry Alexander Henrysson, siðfræðingur og meðlimur í fagráði stjórnvalda um velferð dýra.
    Í lok þáttar ætlar Edda Olgudóttir, vísindamiðlari þáttarins, svo að fjalla um nýjar stofnfrumurannsóknir.
    Tónlist í þættinum:
    CURE - The Love Cats.
    Bubbi Morthens, Eyþór Gunnarsson - Maður og hvalur.
    55 min
  • Húmor er dauðans alvara, Höfðaskips leitað við Langanes, 100 ár Rauða krossins á Íslandi
    Hláturinn lengir lífið. Þorsteinn Bachmann, leikari og leikstjóri ætlar að ræða við okkur um húmor og hlátur - sem er eitt hans skærasta leiðarljós í lífinu.
    Vísindamenn undirbúa nú leit að flutningaskipinu Höfðaskipi sem sökk árið 1682 með miðaldahandrit og merka muni innbyrðis. Neðansjávarrannsóknum hefur fleygt fram á undanförnum árum - og því er ekki talið ólíklegt að skipið finnist, við Langanes. Við ræðum við Steinunni Kristjánsdóttur, prófessor við deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði við Háskóla Íslands, hún stýrir rannsókn um Höfðaskip sem unnin er í samstarfi við Rannsóknasetur HÍ á Vestfjörðum.
    Í desember 1924, fyrir hundrað árum síðan, var Rauði krossinn á Íslandi stofnaður. Þessu stórafmæli verður fagnað, meðal annars með útgáfu bókar um 100 ára sögu rauða krossins. Við fáum við til okkar Guðjón Friðriksson, höfund bókarinnar, og Jón Brynjar Birgisson, sviðsstjóra hjá Rauða krossinum og ræðum aðeins þessi tímamót.
    Tónlist:
    LUIZ GONZAGA - O Fole Rancou.
    pale moon - Dopamine.
    Bon Iver - S P E Y S I DE.
    59 min
  • Fríbúðin, baksviðs hjá Góða hirðinum, hvert verður orð ársins?
    í Borgarbókasafninu í Gerðubergi er rekin fríbúð. Við heimsóttum hana í síðustu viku í tilefni af svörtum föstudegi og tilboðin voru svimandi, allt frítt. Atli Pálsson, sérfræðingur á Borgarbókasafninu segir okkur frá hugmyndafræðinni á bak við fríbúðir.
    Og við höldum okkur í hringrásinni - Meirihluti þess sem ratar í Góða hirðinn selst og meðalverð hluta er í kringum 500 krónur. Samfélagið kynnti sér starfsemina á bak við tjöldin í Góða hirðinum við Köllunarklettsveg í Reykjavík. Michelle Marie Morris, verkefnastjóri á lager Góða hirðisins, spjallaði við okkur um rekstur verslunarinnar, innvols gámana sem koma þangað sneisafullir af Sorpustöðvunum á höfuðborgarsvæðinu á hverjum degi, flokkun, verðmerkingu og afdrif hlutanna.
    Við erum að sigla inn í uppgjörstímabil, það þarf að gera upp árið 2024, velja orð ársins, manneskju ársins, þetta og hitt ársins. Við ræðum valið á orði ársins við Önnu Sigríði Þráinsdóttur, málfarsráðunaut Ríkisútvarpsins.
    Tónlist í þættinum:
    Rolling stones - Sweet Virginia.
    Hljómsveitin Eva - Myrkur og Mandarínur.
    1 hr
  • Skaðaminnkunarstefna, Jólaplöntur og fyrsta rafmagnsljósið
    Fyrir rúmu ári ákvað heilbrigðisráðherra að ráðast í heildarendurskoðun á áfengis- og vímuefnastefnu íslenskra stjórnvalda. Hluti af þeirri vinnu var að skipa starfshóp sem átti að semja tillögur að skaðaminnkunarstefnu, þeirri fyrstu sem skrifuð hafði verið á Íslandi. Og í lok síðustu viku skilaði hópurinn umfangsmikilli lokaskýrslu sem inniheldur meðal annars greiningu á stöðu skaðaminnkunar á Íslandi og tillögur að skaðaminnkunarstefnu. Í dag fáum við til okkar Helgu Sif Friðjónsdóttur, formann starfshópsins, og köfum með henni ofan í skýrsluna.
    Hvernig held ég jólastjörnunni minni fallegri alla aðventuna og yfir jólin? Er minni lykt af jólaeplum í dag heldur en fyrir nokkrum áratugum? Þetta ætla garðyrkjufræðingar hjá Grasagarðinum í Reykjavík að fara yfir í sérstöku fræðsluerindi í blómum prýddum garðskála garðsins á morgun kl. 17. Við fáum til okkar einn þeirra, Svavar Skúla Jónsson og ræðum tengsl plöntuheimsins við jólin, vinsælar jólaplöntur og fleira.
    Og í lok þáttar kemur Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV í heimsókn með rafmagnaða upptöku úr safni RÚV.
    Tónlist og stef:
    GP, Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Tegund.
    Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
    Sigurður Guðmundsson - Orðin mín
    Borges, Lô, Nascimento, Milton - Cravo e canela.
    1 hr
  • Samfélagið í rusli
    Samfélagið kynnti sér starfsemi Sorpu á Sævarhöfða en þar finnur fólk vel fyrir auknum umsvifum vegna svarts föstudags.
    Þátturinn var sendur út frá Jólahorni Góða hirðisins.
    Tónlist og stef:
    Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
    TALKING HEADS - Once In A Lifetime.
    Tónlist frá útsendingarlogg 2024-12-02
    Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
    TALKING HEADS - Once In A Lifetime.
    59 min
  • Framtíð gervigreindar á Íslandi, undirbúningur fyrir svartan föstudag, samkynhneigð hjá hestum
    Með nýrri aðgerðaráætlun stjórnvalda um gervigreind er markmiðið að stuðla að því að Ísland verði leiðandi í ábyrgri nýtingu gervigreindar og skapi tækifæri, velmegun og framfarir fyrir alla landsmenn. Átætlunin var birt í samráðsgátt fyrr í þessum mánuði og fjöldi umsagna hefur borist, meðal annars frá Samtökum um mannvæna tækni. Í dag setjumst við niður með Gamithru Marga, meðstofnanda samtakanna, og ræðum aðeins um þessa aðgerðaráætlun, um erindi sem hún hélt fyrir framtíðarnefnd Alþingis á dögunum, og gervigreindina almenn.
    Og í síðari hluta þáttarins ætlum við að ræða aðeins um atferli hesta. Við fáum reglulega til okkar vísindamenn sem rita svör á Vísindavefinn, og í dag kemur til okkar Charlotta Oddsdóttir, dýralæknir, og svarar því hvort til séu dæmi um samkynhneigð hjá íslensum hestum.
    Síðan fáum við pistil frá Stefáni Gíslasyni um svartan föstudag.
    59 min
  • Loftslagsráð gagnrýnir aðgerðaáætlun stjórnvalda, Flöff og endurvinnsla textíls, dularfullt efni í vatni
    Loftslagsráð segir að þáttaskil þurfi að verða í framkvæmd loftslagsaðgerða. Ný, uppfærð aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum dugar ekki til að mati ráðsins sem segir skýra langtímasýn og hugrekki mikilvægt og pressan sem hvílir á herðum næstu ríkisstjórnar. Halldór Þorgeirsson, formaður loftslagsráðs, ræðir þetta við okkur.
    Undanfarið höfum við fjallað talsvert um fatnað og textíl og áhrif hans á umhverfið. Hingað til höfum við svolitið verið að einblína á vandamálin í þessum málaflokki, en í dag ætlum við að skoða mögulegar lausnir. Við ræðum við þær Ólöfu Jóhannsdóttur og Sæunni Kjartansdóttur frumkvöðla hjá Flöff sem eru að fara af stað með tilraunaverkefni sem tengist endurvinnslu textílúrgangs.
    Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins fjallar um vatn í innslagi dagsins og óvænt efni sem fannst í drykkjarvatni í Bandaríkjunum á dögunum.
    Tónlist:
    NICK CAVE AND THE BAD SEEDS - Dig Lazarus, Dig!.
    ÓLAFUR KRAM - Aumingja Þuríður.
    Lana Del Rey - Video Games.
    1 hr
  • Umhverfisráðstefnur gerðar upp, geðheilbrigðisþjónusta við einhverfa, faðmlög frá trjám
    Síðustu vikur höfuð við fengið regluleg innslög frá Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur, formanni Landverndar. Hún er nýkomin frá Aserbaísjan, þar sem hún tók þátt í COP 29 loftslagsráðstefnunni og fylgdist með því sem fram fór á henni. Þar á undan var hún á COP-ráðstefnu um lífræðilegan fjölbreytileika í Kólumbíu. Þorgerður María ætlar að setjast hjá okkur í byrjun þáttar og gera upp þessar ráðstefnur.
    „Ein af megin áskorunum í geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi er skortur á samfelldri, samþættri og heildrænni geðheilbrigðisþjónustu og vísbendingar eru um að einhverfir fái ekki geðheilbrigðisþjónustu sem mætir þörfum þeirra með árangursríkum hætti.“ Þetta stendur í nýrri skýrslu verkefnahóps á vegum heilbrigðisráðuneytisins sem greindi stöðu mála og hefur nú skilað til ráðherra tillögum til úrbóta í þessum málaflokki. Helga Sif Friðjónsdóttir, staðgengill skrifstofustjóra í heilbrigðisráðuneyti, leiddi verkefnahópinn og hún ætlar að kíkja við og segja okkur frá þessu verkefni.
    Svo fáum við pistil frá Páli Líndal, umhverfissálfræðingi, í lok þáttar.
    Tónlist úr þættinum:
    SUPERSPORT! - Upp í sófa (ásamt K. Óla).
    Big Red Machine - I Won't Run From It.
    LÚPÍNA - Ástarbréf.
    59 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners