Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Örnefni, COP 29, hjúkrunarkennsla og byggingar sem spilla heilsunni
    Í dag ætlum við að pæla aðeins í örnefnum. Hvað þýða þau? Hvað er á bak við þau? Hvað segja þau okkur um samfélagið okkar? Við heimsækjum Emily Lethbridge, rannsóknardósent á Árnastofnun, og ræðum örnefni.
    Þessa dagana stendur yfir norræn, fámenn en góðmenn ráðstefna um hjúkrunarkennslu í Háskólanum á Akureyri. Þar er meðal annars verið að fjalla um hermikennslu með fjarstýrðum hátæknidúkkum og tækni sem nýtist hjúkrunarfræðingum, nemum og kennurum í hjúkrunarfræði. Þórhalla Sigurðardóttir, aðjúnkt við hjúkrunarfræðideild Háskólans á Akureyri, og Helena Sigurðardóttir, kennsluráðgjafi hjá kennslu- og upplýsingatæknimiðstöð skólans, segja okkur frá ráðstefnunni.
    Síðan fáum við pistla frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi og Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur formanni Landverndar. Báðir fjalla þeir um umhverfismál, en á mjög ólíkan hátt. Páll veltir fyrir sér umhverfinu sem við lifum í og áhrifum þess á heilsu okkar. Þorgerður er í Baku í Aserbaídjan á stóru COP-loftslagsráðstefnunni þar sem gestir reyna að halda í vonina um að niðurstöður ráðstefnunnar verði meira en bara orðin tóm.
    Tónlist úr þættinum
    Young, Lola - Flicker of Light.
    O.N.E., - Ute.
    Teitur Magnússon - Kamelgult.
    1 hr
  • Sýndarverslanir, handverk, hernám og hápólitískar kosningar í útvarpsráð
    Í dag kíkjum við á sýningu á handverki og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur. Við þræðum sýninguna í fylgd Gunnhildar Eddu Guðmudsdóttur, framkvæmdarstjóra Handverks og hönnunar og spjalla aðeins við handverksfólkið og hönnuðina sem eru á sýningunni.
    Við heimsækjum síðan Þjóðskjalasafn Íslands, eins og alltaf annan hvern mánudag. Þar tekur Unnar Ingvarsson á móti okkur og sýnir okkur skjöl frá fyrri hluta tuttugustu aldar, sem tengjast starfsemi RÚV. Meðal annars kynnum við okkur gögn um lýðræðislegar og hápólitískar kosningar í útvarpsráð og fréttir sem tengjast hernámi Íslands.
    Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdarstjóri Neytendasamtakanna, kemur síðan til okkar og ræðir sýndarverslanir, eða dropshipping, sem hefur leikið marga grátt.
    Tónlist úr þættinum.
    O.N.E. - I See You.
    O.N.E. - Awa 1.
    O.N.E. - Ksiezyc.
    1 hr
  • Máltækni, hláturgas og afleiðingar forsetakosninga í Bandaríkjunum
    Ef tækin tala ekki íslensku þá erum við ekki með í stafrænu veröldinni. Tækin og íslenska verða til umfjöllunar hjá Eyrúnu Magnúsdóttur í dag. Hún ræðir um máltækni við Lilju Dögg Jónsdóttur framkvæmdastjóra Almannaróms, sem er miðstöð máltækni hér á landi.
    Og við ætlum líka að fjalla um það sem við vitum og það sem við vitum ekki um losun gróðurhúsalofttegunda frá votlendi. Endurheimt votlendis gæti verið góð leið til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda en það er ýmislegt í sambandi við votlendið sem kemur á óvart. Rannsakendur við Landbúnaðarháskólann rannsökuðu hversu mikið magn af hláturgasi verður til í votlendi í Borgarfirðinum og Gréta Sigríður kom við á Keldnaholti til að heyra meira.
    Í lok þáttar ætlum við að pæla aðeins í afleiðingum forsetakosninga í Bandaríkjunum; þó ekki þeirra sem eru nýafstaðnar, þegar Donald Trump sigraði Kamölu Harris – heldur þeirra sem fóru fram í nóvember 2016, þegar Donald Trump sigraði Hillary Clinton og varð forseti í fyrsta sinn. Þá komu niðurstöðurnar mörgum á óvart og margir voru jafnvel í smá uppnámi. Þá tók Þórhildur Ólafsdóttir, sem var umsjónarmaður Samfélagsins á þessum tíma, viðtal við Kolbrúnu Baldursdóttur sálfræðing um kvíða og hræðslu sem börn fundu fyrir í kjölfar þessara kosninga.
    Tónlist úr þættinum.
    Jones, Norah - I've got to see you again.
    GDRN, Hjálmar - Upp á rönd.
    DAVID BOWIE - Young Americans.
    1 hr
  • Afdrifaríkt ár í lífi mæðgna frá Grindavík, kórmótmæli við menningar- og viðskiptaráðuneytið
    Nú styttist í að ár verði liðið frá því ólgan undir Grindavík náði nýjum hæðum og bærinn var rýmdur í skyndi. Í fyrra ræddi Samfélagið við mæðgurnar Lillý og Sjönu - Lillý er hársnyrtimeistari og rak stofu í Grindavík, Sjana bjó á elliheimilinu Víðihlíð. Í dag förum við aftur í heimsókn til þeirra, lítum yfir farinn veg og heyrum hvernig þeim reiddi af í nýjum aðstæðum fjarri Grindavík.
    Fyrir um tveimur mánuðum var stofnaður svokallaður samstöðukór fyrir Palestínu; sem samanstendur af fólki sem hefur síðan komið saman alla miðvikudagsmorgna til að syngja fyrir utan ráðuneyti og krefjast þess að stjórnvöld beiti sér gegn þjóðarmorðinu á Gaza. Samfélagið mætti á eitt af fyrstu mótmælaviðburðum kórsins en ýmislegt hefur breyst síðan. Ríkisstjórnin er sprungin, búið er að skipta út ráðherrum í nokkrum ráðuneytum og boða til kosninga. En kórinn syngur áfram. Við brugðum okkur niður í bæ þar sem kórinn kom saman fyrir utan skrifstofur menningar- og viðskiptaráðuneytisins til að freista þess að syngja fyrir Lilju Alfreðsdóttur, ráðherra.
    Tónlist og stef úr þætti:
    GRINDAVÍK ft. Daddi Willard - Og þeir skora (Grindavíkurlagið).
    59 min
  • Kynjuð áhrif heimsfaraldurs, ráðstefnan í Kólumbíu gerð upp, forsetakosningar í Bandaríkjunum og málfarsspjall
    Heimsfaraldurinn kollvarpaði tímabundið starfi framhaldsskóla, í mars 2020, þegar samkomubann var sett á var farið að kenna allt í fjarkennslu, um haustið var hert og slakað á víxl og skólastarfið var sífellt að aðlaga sig. Hvaða áhrif hafði þetta á kennara? Nokkrir fræðimenn við Menntavísindasvið Háskóla Íslands hafa undanfarið rannsakað þetta í þaula og safnað fjölbreyttum gögnum. En stærsta ein stærsta niðurstaðan kom eins og blaut tuska í andlitið á þeim. Súsanna Margrét Gestsdóttir, kennari, sagnfræðingur,lektor við Menntavísindasvið HÍ og ein rannsakendanna kemur til okkar núna rétt á eftir og greinir meðal annars frá ólíkum áhrifum ráðstafananna sem gerðar voru vegna faraldursins á konur og karla í kennarastétt.
    Síðustu daga og vikur höfum við fengið að heyra innslög frá Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur, formanni Landverndar, þar sem hún hefur sagt frá dvöl sinni í Cali í Kólumbíu. Hún sótti þangað ráðstefnu aðildarríkja að rammasamningi Sameinuðu þjóðanna um líffræðilegan fjölbreytileika. Þetta er risastór viðburður þar sem fulltrúar ríkjanna koma saman og setja sér alls konar markmið og gera alls konar áætlanir. En hvernig er það að vera á svona ráðstefnu. Næst einhver raunverulegur árangur? Gera þessar ráðstefnur eitthvað gagn? Við fáum Þorgerði Maríu til okkar í spjall um þetta og margt fleira.
    Spennan vex vestanhafs. Róbert Jóhannsson, fréttamaður á erlendu deildinni ræðir við okkur um kosningarnar í Bandaríkjunum.
    Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins, spjallar við okkur um tökuorð.
    Tónlist í þættinum:
    BEAR THE ANT - Hey!.
    Höst, Lene, Airana, Miriam - Sanfona Sentida.
    BSÍ - Lily (hot dog).
    59 min
  • Ofbeldi í íþróttum, Þorgerður í Kólumbíu, tak fortíðarinnar á matartímum leikskólabarna, störf fyrir fólk með skerta starfsgetu
    Í dag fjöllum við um kynferðislega áreitni og ofbeldi í íþróttum. Á Þjóðarspeglinum síðasta föstudag kynnti Anna Soffía Víkingsdóttir, doktor í félagsfræði, rannsóknir sem byggja á viðtölum við íþróttamenn sem lýsa sinni reynslu af kynferðislegri áreitni og ofbeldi. Við ræddum við Önnu Soffíu á Þjóðarspeglinum um þessar rannsóknir og um þá menningu sem viðgengst í íþróttum á Íslandi.
    Við heyrum næstsíðasta pistil Þorgerðar Maríu Þorbjarnardóttur, formanns Landverndar, frá ráðstefnu aðildarríkja að samningi Sameinuðu þjóðanna um líffræðilegan fjölbreytileika - í Kalí í Kólumbíu. Hún beinir í dag sjónum sínum að stóru málunum á bak við litlu orðin í samningsdrögunum, sem endalaust er rifist um, og fjallar meðal annars um sýn frumbyggja.
    Ákveðin lykt togar Guðrúnu Öldu Harðardóttur, doktor í leikskólafræðum, marga áratugi aftur í tímann. Í erindi sem hún flutti á Þjóðarspeglinum, ráðstefnu félagsvísindanna í Háskóla Íslands, talaði hún um matartíma barna í leikskólum - og hvernig venjur og hefðir í stofnanaumhverfi fyrri tíma móta hvernig matartíminn fer fram í dag.
    Vinnumálastofnun vinnur að því að breyta viðhorfum og menningu þannig að fólk með skerta starfsgetu eigi greiðari leið að hlutastörfum á vinnumarkaði. Nú er í burðarliðnum stórt verkefni sem heitir Unndís - Sara Dögg Svanhildardóttir, sérfræðingur í atvinnumálum fatlaðs fólks, leiðir verkefnið hjá Vinnumálastofnun og spjallar við okkur um það.
    Tónlist:
    Hjálmar - Yfir hafið.
    PRINS PÓLÓ - Underwear.
    THE WHITE STRIPES - Seven Nation Army (live).
    1 hr
  • Þjóðarspegillinn 2024
    Samfélagið sendir út frá Þjóðarspeglinum, ráðstefnu í Háskóla Íslands þar sem helstu rannsóknir á sviði félagsvísinda eru kynntar. Sannkölluð uppskeruhátíð félagsvísindafólks.
    Tónlist:
    Iðunn Einarsdóttir - Sameinast.
    Önnu Jónu Son - Almost over you.
    1 hr
  • Eiga ömmur og afar að fara á námskeið? Töfrar fráveitunnar, pistill um gloppuskýrslu í loftslagsmálum
    Verðandi eða nýbakaðir foreldrar fara stundum á ýmis námskeið; tengslanámskeið, svefnnámskeið, brjóstagjafarnámskeið og svo framvegis - en hvað með ömmur og afa? Þurfa þau að fara á námskeið? Við ræðum við Sveindísi Önnu Jóhannsdóttur, félags- og fjölskylduráðgjafa, sem hefur haldið sérstök námskeið fyrir ömmur og afa. Í þessu kristallast líka samskipti kynslóðanna sem hafa verið til umræðu í Samfélaginu undanfarið.
    Síðan ætlum við að komast að því hvað verðum um skólp eftir að það fer niður um niðurfallið eða klósettrörið. Gréta Sigríður Einarsdóttir, fréttamaður RÚV á Vesturlandi, fékk Þorstein Narfason, framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlists Vesturlands, í heimsókn í hljóðver RÚV á Borgarnesi, til að fræðast um fráveitukerfi sveitarfélaga og náttúrulegar lausnir á hreinsun skólps.
    Í síðustu vika gaf umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna út hina árlegu gloppuskýrslu, sem fjallar um árangur ríkja heims í baráttunni gegn loftslagsbeytingum - eða kannski öllu heldur árangursleysi. Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur og pistlahöfundur Samfélagsins, rýnir í skýrsluna í pistli dagsins og setur hana í samhengi við komandi kosningar.
    Tónlist og stef:
    Teitur Magnússon - Orna.
    STEREOLAB - Captain Easychord.
    Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
    ÁSGEIR TRAUSTI - Afterglow.
    58 min
  • Endalok mannúðaraðstoðar á Gaza, dánaraðstoð, sykursýkislyf og Alzheimer
    Við fjöllum um hlutskipti barna á Gaza, nú þegar ísraelska þingið Knesset hefur sett lög sem gera Palestínu-flóttamannahjálpinni, stofnun á vegum Sameinuðu þjóðarinnar, ógerlegt að halda áfram mannúðaraðstoð sinni á svæðinu. Birna Þórarinsdóttir Framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi kemur til okkar hér rétt á eftir.
    Í gærkvöldi var fjallað um dánaraðstoð í fréttaskýringaþættinum Kveik. Þar heyrðum við sögu Jóns Grímssonar, íslendings sem var búsettur í Washington-ríki í Bandaríkjunum og sótti um dánaraðstoð eftir að hafa greinst með illvígt lungnakrabbamein. Dánaraðstoð er lögleg í Washington-ríki og á nokkrum öðrum stöðum í Bandaríkjunum og Evrópu – og nú kalla sumir eftir að dánaraðstoð verði gerð lögleg hér á landi. Við ræðum við Gunnhildi Kjerúlf Birgisdóttur, fréttamann Kveiks sem greindi frá sögu Jóns í gærkvöldi – og Katrínu Eddu Snjólaugsdóttur, sérfræðing í líknandi hjúkrun.
    Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, heldur áfram að segja okkur frá ferðum sínum í Kólumbíu, þar sem hún er á mikilvægri ráðstefnu um lífræðilegan fjölbreytileika. Síðan kemur Edda Olgudóttir, vísindamiðlari, til okkar í lok þáttar og ræðir sykursýkislyf og heilahrörnunarsjúkdóma.
    Tónlist:
    COLDPLAY - Don't Panic.
    BAGGALÚTUR - Sólskinið í Dakota.
    1 hr 1 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners