Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Vopnin sem lögreglan beitir, dagbók frá Kólumbíu, pistill um seiglu
    Komið þið sæl. Samfélagið heilsar. Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon eru umsjónarmenn.
    Við fjöllum um vopnaburð lögreglu almennt og sérstaklega um rafvarnarvopn og verkefni ríkislögreglustjóra í kringum Norðurlandaráðsþingið og heimsókn Volodimírs Zelenskís, forseta Úkraínu. Ólafur Örn Bragason, forstöðumaður mennta- og starfsþróunarseturs lögreglunnar, og Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri, ræða þetta frá ýmsum hliðum.
    Fæðumst við annað hvort ólseig eða án allrar getu til að sýna seiglu? Páll Líndal, umhverfissálfræðingur og pistlahöfundur Samfélagsins, fjallar um mikilvægi seiglu í pistli dagsins.
    Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, er enn í Cali í Kólumbíu á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP, um líffræðilegan fjölbreytileika. Í pistli dagsins fjallar hún um genamengi náttúrunnar - sem er bæði dýrmætt og eftirsótt til hagnýtingar.
    Tónlist í þættinum:
    HJÁLMAR - Taktu Þessa Trommu.
    ALVA NOTO & RYUICHI SAKAMOTO - Microon II.
    MUGISON & GDRN - Heim (Hljómskálinn 2020).
    BOB DYLAN - Like A Rolling Stone.
    1 hr
  • Neyslusamfélagið tekur á CE-merkingum og eiturefnum, skjalasafn Péturs J. Thorsteinssonar sendiherra
    Við fjöllum um nítrósamín-menguð leikföng og CE-merkingar í nýjum dagskrárlið hér í samfélaginu - neyslusamfélaginu. Í Neyslusamfélaginu skoðum við ákveðin neytendamál ofan í kjölinn og viljum gjarnan fá spurningar sem brenna á hlustendum á netfangið [email protected]
    Við kíkjum svo í heimsókn í Þjóðskjalasafn Íslands, þar sem við fáum að kafa ofan í skjalasafn Péturs J. Thorsteinssonar, sem var, um miðja síðustu öld, sendiherra Íslands til Sovíetríkjanna, Indlands, Kína og fleiri ríkja.
    59 min
  • Safnarölt í Reykjanesbæ og hafbotnsrannsóknir
    Samfélagið heilsar úr saumavélaherbergi byggðarsafnsins í Reykjanesbæ, sem er staðsett í Duus-safnahúsinu í Keflavík. Um helgina er haldin sérstök safnahelgi á Suðurnesjum og í tilefni þess röltum við safnanna á milli og fræðumst um starfsemi þeirra, safnkosti og jafnvel hugmyndafræði.
    Við fáum til okkar Höllu Kareni Guðjónsdóttur, verkefnastjóra safnahelgar á Suðurnesjum, og Guðlaugu Maríu Lewis, menningarfulltrúa Reykjanesbæjar, ræðum um söfnin, menninguna og samfélagið á Suðurnesjum.
    Síðan ræðum við við Bryndísi Brandsdóttur, jarðeðlisfræðing hjá Raunvísindastofnun Háskóla Íslands, um rannsóknir á hafsbotninum.
    59 min
  • Kosningar og gervigreind, samfélagsleg nýsköpun, ritlist og líffræðilegur fjölbreytileiki í Cali
    Forsvarsmenn samfélagsmiðla á borð við Facebook, Instagram og TikTok vita að það eru kosningar framundan á Íslandi og eru því sérlega vakandi fyrir því að koma í veg fyrir að misvísandi upplýsingar, matreiddar af gervigreind, komist í umferð. Við byrjum þáttinn á Vélvitinu; Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Elfu Ýr Gylfadóttur framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar um gervigreind og upplýsingaóreiðu í tengslum við kosningar.
    Og við fjöllum meira um kosningar, eða réttara sagt fjöllum við um umfjöllun um kosningar. Aðdragandinn að alþingiskosningunum 30 nóvember næstkomandi verður smá óvenjulegur, ekki síst vegna þess að kosningarnar voru boðaðar óvænt og undirbúningstíminn er naumur. Stígur Helgason, kosningaritstjóri RÚV, kíkir í heimsókn hér á eftir og segir okkur aðeins frá kosningaumfjöllun ríkisútvarpsins næstu vikur.
    En á dögunum vann Björg Árnadóttir, rithöfundur, ritlistarkennari og eigandi Stílvopnsins, til alþjóðlegra nýsköpunarverðlauna fyrir samfélagslega nýsköpun. Hún hlaut þessi verðlaun fyrir að hafa þróað skapandi, valdeflandi og inngildandi kennsluaðferðir í fullorðinsfræðslu, einkum með aðferðum ritlistar. Við heyrum í Björgu um miðbik þáttar.
    Og svo er það Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, sem er á smá ráðstefnuflakki og verður með regluleg innslög í Samfélaginu næstu vikur. Í dag segir hún okkur frá dvölinni í Cali í Kólumbíu, þar sem ráðstefna um líffræðilegan fjölbreytileika er haldin.
    Tónlist úr þættinum:
    BONNIE RAITT - Nick Of Time.
    LYLE LOVETT - Election Day.
    MUGISON - Tipzy king.
    55 min
  • Svipmynd af landbúnaðarháskóla, sjötíu ára gömul tökuorð, vísindaspjall
    Alþjóðlegar byggráðstefnur, landslagsarkítektúr, hinn sögufrægi Kollubar og leikskóli sem vantar börn. Þetta er meðal þess sem fjallað er um í þætti dagsins. Pétur Magnússon heimsótti Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, ræddi við nemendur og kennara og kynntist samfélaginu.
    Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri Ríkisútvarpsins, segir frá sjötíu ára gömlum tökuorðum sem rædd voru í hinum sígilda þætti Daglegu Máli, sem þá var í umsjón Árna Böðvarssonar.
    Vísindaspjall með Eddu Olgudóttur, vísindamiðlara Samfélagsins.
    Tónlist:
    NEUTRAL MILK HOTEL - King Of Carrot Flowers, Pt 1.
    HELGI BJÖRNSSON & REIÐMENN VINDANNA - Það er svo geggjað
    59 min
  • Ferðamennska í Grindavík, rúntur með slökkviliðinu, ráðstefna um líffræðilegan fjölbreytileika
    Lögreglustjórinn á Suðurnesjum viðraði í gær áhyggjur af því að það vantaði upplýsingaskilti sem vöruðu ferðamenn við hugsanlegum hættum í og við Grindavík. Ferðamenn í útivistarfatnaði rölta nú um götur Grindavíkur, virða fyrir sér illa farin hús, skoða ljósmyndasýningu í Menningarhúsinu Kvikunni og fá sér í svanginn. Sumir eru á eigin vegum - aðrir í skipulögðum rútuferðum. Við ræðum ferðaþjónustuna í Grindavík í þætti dagsins, spjöllum við ferðamenn og gistihúsaeiganda sem þessa dagana er að dytta að gistiheimili sem hefur engan hýst í tæpt ár.
    En umræður um aðgengi að svæðum í grennd við gosstöðvar eru ekki nýjar af nálinni. Fyrir um tíu árum gaus í Holuhrauni, norðan Vatnajökuls, og var svæðinu þar í kring lokað, mörgum til nokkurrar óánægju. Samfélagið fjallaði um þessar lokanir á sínum tíma og við heyrum brot úr þeirri umfjöllun í dag.
    Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, er þessa dagana stödd í Cali, þriðju stærstu borg Kólumbíu. Þar fer fram sextánda ráðstefna þeirra ríkja sem eiga aðild að samningi Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni. Ráðstefnan var formlega sett í gær og ríkjanna bíður það verkefni að ná samkomulagi um aðgerðir til þess að vernda líffræðilegan fjölbreytileika jarðarinnar - sem á víða undir högg að sækja - og þar með lífið sjálft. Þorgerður María er ein af 15 þúsund gestum sem eru viðstaddir ráðstefnuna og ætlar að segja okkur frá því sem hún verður vitni að þar næstu daga. Í dag heyrum við af ferðalaginu og setningunni.
    Tónlist:
    Una Torfadóttir - Það sýnir sig (Studio RUV).
    Dina Ögon - Jag vill ha allt.
    BSÍ - Vesturbæjar beach.
    1 hr
  • Grindavík opnar
    Samfélagið er í Grindavík í dag. Bærinn opnaði almenningi snemma morguns og Pétur og Arnhildur mættu rétt um dagrenningu, ræddu við fólkið í bænum um jarðhræringarnar, pólitíkina og bæjarlífið.
    1 hr
  • Samfélagið í Sjávarklasanum og kaffinördar
    Samfélagið sendir út í Sjávarklasanum í Grandagarði. Þar starfa fjölmörg fyrirtæki, allt frá litlum, nýstofnuðum sprotafyrirtækjum til rótgróinna sjávarútvegsrisa. Við ræðum við fólkið sem starfar í Sjávarklasanum og fræðumst um starfsemina og samfélagið í húsinu.
    Og við fáum í heimsókn umsjónarmenn stærsta kaffiumræðuvettvangs landsins, Facebook-hópsins Kaffinördar, og ræðum kaffinördisma, kaffisnobb og fleira.
    59 min
  • Bómullarkynslóðin rakin upp, niðurtröppunarmóttaka, Svansmerkið
    Barnasprengjukynslóð eftirstríðsáranna, Kynslóðin sem var með húslykil um hálsinn og horfði á MTV, Þúsaldarkynslóðin eða þumalputtakynslóðin og Zeta-kynslóðin - um tíma hefur það tíðkast að gefa kynslóðum nafn. Í dag ætlum við að ræða kynslóðirnar
    og einblína sérstaklega á hugtakið bómullarkynslóð - hvað felst í því? Í pallborði um þetta verða:
    Steinunn Anna Sigurjónsdóttir, sálfræðingur sem lengi vann með börnum, þekkir vel til kvíða og geðrænna vandamála meðal ungmenna en hefur nú beint sjónum sínum að eldra fólki og kannski ekki síst samskiptum kynslóðanna.
    Anna Guðrún Steinsen, markþjálfi og tómstunda- og félagsmálafræðingur sem hefur mikið kynnt sér Z-kynslóðina svokölluðu og þjálfað ungt fólk í aldarfjórðung.
    Einar Lövdahl, rithöfundur af þúsaldarkynslóð sem hefur meðal annars fengist við kvíða og vanlíðan ungs fólks í verkum sínum.
    Við heyrum af nýjung í íslenskum heilbrigðismálum; af móttöku sem var opnuð í morgun, þar sem sérstaklega er tekið á niðurtröppun ópíóíða og annarra sterkra verkjalyfja, svefn- og róandi lyfja og fleira.
    Svanurinn er ekki bara umhverfismerki og það eru til fleiri svansmerktar vörur en klósettpappír og þvottaefni. Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur, fræðir okkur um Svaninn í umhverfispistli dagsins,
    Tónlist:
    THE WHO - My Generation.
    BJARTMAR GUÐLAUGSSON - Týnda Kynslóðin.
    1 hr

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners