Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Fjármálatips, Foreldrahús, stýrivextir, umhverfisáhyggjur ungs fólks
    Í tæp fjögur ár hefur línuritið sem sýnir meginvexti Seðlabankans hækkað með mislöngum hléum, grafið sýnir ójafnan en brattan tröppugang upp á við - en í dag leitaði það örlítið niður á við aftur. Peningastefnunefnd lækkaði stýrivextina úr 9,25 prósentum í slétt níu. Þetta eru tímamót en óljóst hvaða þýðingu þau hafa og vextirnir enn helvíti háir svo vitnað sé í seðlabankastjóra sjálfan. Við fengum viðbrögð nokkurra vegfarenda í Skeifunni í Reykjavík við þessum tíðindum.
    Facebook-hópurinn Fjármálatips er einn sá vinsælasti á landinu með yfir fimmtíu þúsund meðlimi. Við ætlum að ræða við Sindra Má Friðriksson, hann stýrir Fjármálatips og raunar hópnum Verðbréfatips líka og fær nokkuð sérstaka innsýn í fjárhag landsmanna.
    Hefur það hvað börn og ungmenni læra í dag eitthvað með umhverfismál og áskoranir mannkyns að gera. Svarið er já en það virðist ekki augljóst í augum allra. Við fáum pistil um þetta frá Stefáni Gíslasyni, umhverfisstjórnunarfræðingi.
    Síðan heimsækjum við Foreldrahús, ráðgjafamiðstöð fyrir börn og foreldra barna með hegðunar-, tilfinninga-, og vímuefnavanda. Við ætlum að fræðast um starfsemi Foreldrahúsa, um hvernig miðstöðin nálgast yfirstandandi umræðu um vopnaburð, ofbeldi og vímuefnaneyslu meðal barna og ungmenna, og hvort starfsemin sé í hættu vegna viðvarandi fjárskorts.
    59 min
  • Eru blaðamennskan á hættulegum slóðum? Róið og róað í vögguvísum og barnagælum, orkupistill frá Páli Líndal
    Í dag fjöllum við um blaðamennsku, fjölmiðla, samfélagsmiðla og fleira í þeim dúr. Við ræðum eftirmála rannsóknar lögreglu á blaðamönnum og viðhorf almennings og stjórnarmanna gagnvart faginu. Við ræðum við Valgerði Jóhannsdóttur, prófessor í blaðamennsku við Háskóla Íslands og Sigríði Dögg Auðunsdóttur, formann Blaðamannafélags Íslands.
    Við fjöllum um barnagælur og vögguvísur, einkum það að róa sjóinn á og á selabát og á rambinn. Það er nefnilega ekki bara róið með börn til að róa þau á Íslandi, það er gert víða um heim. Birna G. Hjaltadóttir skrifaði BA ritgerð í þjóðfræði um vögguvísur og barnagælur.
    Síðan heyrum pistil frá Páli Líndal, umhverfissálfræðingi og pistlahöfundi Samfélagsins. Í dag fjallar hann um græna orku og orkuskort.
    Tónlist:
    Prins Póló, Moses Hightower - Eyja.
    Del Rey, Lana - Take Me Home, Country Roads.
    Pálmi Gunnarsson, Pálmi Gunnarsson - Bíum bíum bambaló.
    Hafdís Huld - Könguló (Spilaði á Airwaves 2010).
    59 min
  • Svissneskur fíknigeðlæknir, skjöl frá fyrstu árum bílaaldar og heilbrigt mataræði
    Í dag ræðir Samfélagið við einn fremsta fíknigeðlækni Sviss. Dr. Thilo Beck yfirlæknir hjá Arud, samtökum sem reka stærstu fíknigöngudeild Sviss, ræðir við okkur um lyfjameðferðir við ópíóíðafíkn, skaðaminnkun, og hvað Íslendingar geti gert til að bæta meðferðarúrræðin sem standa til boða hér á landi.
    Við kíkjum í leynilega skjalageymslu Þjóðskjalasafnsins í ónefndu iðnaðarhverfi í Reykjavík. Þar eru einkum geymd trúnaðarskjöl frá lögreglunni - en við ætlum að rýna í brúna og nokkuð lúna bók frá upphafi bílaaldar á Íslandi með Indriða Svavari Sigurðssyni, skjalaverði. Við kynnumst meðal annars Katrínu Fjeldsted sem var önnur konan á Íslandi til þess að taka bílpróf.
    Við fjöllum um mataræði og fjölskyldulíf. Hvernig á að halda góðum matarvenjum að börnum - þegar foreldrar eiga kannski nógu erfitt með sjálfa sig? Geir Gunnar Markússon, næringarfræðingur og heilsuráðgjafi ræðir þetta við okkur.
    Tónlist:
    boygenius - Cool About It.
    TRACY CHAPMAN - Fast car.
    Bergþóra Árnadóttir - Blátt, svo blátt.
    1 hr
  • Gervigreind, kynjuð rými í stærðfræðikennslu, snjallsímar og læsi
    Samfélagið sendir út frá Menntakviku, ráðstefnu á vegum menntavísindasviðs Háskóla Íslands, sem haldið er í 28. skipti. Pétur og Arnhildur fá til sín góða gesti sem ætla að segja frá rannsóknum sínum og erindum, sem tengjast meðal annars gervigreind í skólastarfi, kynjuðum rými í raunvísindum, sýndarveruleika, talmeinafræði, símanotkun og mörgu fleiru.
    Tónlist úr þættinum:
    LÚPÍNA - Lúpínu bossa nova.
    FIONA APPLE - Every Single Night.
    NINA SIMONE - Here Comes The Sun.
    1 hr
  • Viðhaldsmeðferðir, samgöngur, almenningssalerni og tvö þúsund útvörp á Akureyri
    Í dag höldum við áfram að fjalla um viðhaldsmeðferðir við ópíóíðafíkn, frá ýmsum hliðum. Í gær héldu skaðaminnkunarsamtökin Matthildur málþing um viðhaldsmeðferðir. Á þinginu voru ræddar meðferðir þar sem ópíóíðalyf eru notuð til að meðhöndla ópíóíðafíkn. Svona meðferðir hafa verið veittar á Vogi um árabil og það eru mjög skýrar reglur um hvernig svona meðferðir eru veittar og hvaða lyf eru notuð. En þessar meðferðir, eins og þær eru veittar í dag, ná ekki til allra sem þurfa á þeim að halda. Í dag fræðumst við um viðhaldsmeðferðir. Hvert er hlutverk lyfjafræðinga? Hvernig nálgast fangelsin viðhaldsmeðferðir? Hver er framtíð viðhaldsmeðferða á Íslandi?
    Við hittum mann sem á yfir 2000 útvarpstæki. Hann er rafeindavirki að mennt og að eigin sögn alveg sjúkur safnari - safnar og gerir við gömul og falleg útvarpstæki, já og ýmsar skyldar græjur. Við kíkjum á hluta safnkostsins á heimili hans á Akureyri og förum meira en hundrað ár aftur í tímann.
    Síðan heyrum við í nýjum pistlahöfundi Samfélagsins. Það er hún Birgitta Björg Guðmarsdóttir rithöfundur. Í dag skrifar hún pistil um samgöngur og almenningsþjónustu, um mannflóruna sem birtist farþegum í strætó og um einkabílinn.
    59 min
  • Ósamþykktar meðferðir við ópíóíðafíkn, vinnumansal, misneyting á vinnumarkaði, matvendni
    Í dag ræðir Samfélagið við föður ungs manns sem hefur verið í óhefðbundinni, og í raun ósamþykktri, viðhaldsmeðferð við ópíóíðafíkn. Sonurinn fær uppáskrifuð morfínlyf frá lækni í skaðaminnkandi tilgangi, og faðirinn segir að meðferðin hafi haft gríðarleg áhrif á líf sonar síns og fjölskyldu sinnar.
    Í gær fjallaði fréttaskýringaþátturinn Kveikur um veruleika erlendra verkamanna á Íslandi. Fjöldi þeirra býr við harðræði og eru jafnvel fórnarlömb vinnumansals. Við fjöllum um vinnumansal í dag. Fáum til okkar Maj-Britt Hjördísi Briem, lögfræðing hjá Samtökum atvinnulífsins. Samtökin ætla að halda málþing um vinnumansal á morgun, ásamt ASÍ.
    Og síðan fáum við til okkar Eddu Olgudóttur, vísindamiðlara Samfélagsins, í hið vikulega vísindaspjall. Í dag fjallar hún um matvendni í börnum.
    1 hr
  • Rökrætt um fósturskimanir, nýjar krabbameinsrannsóknir og málspjall
    Í dag standa tvö ráðuneyti, heilbrigðisráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið fyrir málþingi um fóstur- og nýburaskimanir. Markmiðið er að skapa þarna samtalsvettvang um þessi mál og hvaða hvaða tækifæri og áskoranir fylgja tækniframförum á þessu sviði. Þarna verða líka rædd ýmis siðferðileg álitamál sem tengjast fóstur og nýburaskimunum. Til að ræða þetta fáum til okkar Rannveigu Traustadóttur prófessor og forstöðumann Rannsóknaseturs í fötlunarfræði hjá Háskóla Íslands og Henry Alexander Henryson, doktor í heimspeki við Siðfræðistofnun Háskóla Íslands.
    Í dag er alþjóðlegur dagur krabbameinsrannsókna - og af því tilefni býður Krabbameinsfélagið til málþings þar sem fjallað verður um niðurstöður nýjustu rannsókna á þessu sviði, mikilvægi þeirra og framfarir sem orðið hafa á grunni rannsókna. Þórhildur Halldórsdóttir, lektor í klínískri sálfræði og erfðafræði við Háskóla Íslands, Heiðdís Björk Valdimarsdóttir, prófessor við sálfræðideild HR og Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, koma til okkar og fara yfir það helsta.
    Og í lok þáttar fáum við til okkar Önnu Sigríði Þráinsdóttur, málfarsráðunaut Ríkisútvarpsins, í málspjall.
    59 min
  • Fíknivandi á landsbyggðinni, síðasta fötufjósið og Keflavíkurflugvöllur árið 1947
    Í dag höldum við áfram að fjalla um þjónustu við einstaklinga með fíknivanda á landsbyggðinni. Í síðustu viku kíktum við í heimsókn í bíl frú Ragnheiðar á Akureyri, þar sem teymisstjórar verkefnisins lýstu úrræðaleysi sem blasti við skjólstæðingum þeirra á Norðurlandi. Við fáum til okkar Önnu Hildi Guðmundsdóttur, formann SÁÁ — sem hefur yfirgripsmikla reynslu sem áfengis- og vímuefnaráðgjafi á Akureyri — og ræðum við hana um stöðu mála á landsbyggðinni.
    Á dögunum fór Arnhildur Hálfdánardóttir, umsjónarmaður Samfélagsins, í heimsókn á bæinn Lyngbrekku í Þingeyjarsveit. Þar á bæ eru kýrnar, tólf talsins, mjólkaðar í fötur. Lyngbrekka er eina býlið á öllu landinu þar sem enn er fötufjós. Þar slepptu bændur þægindunum sem fylgdu rörakerfunum og það er ekki á dagskrá að fara í róbótana. Við ræðum við Hildigunni Jónsdóttur, bónda í Lyngbrekku, kíkjum á húsakostinn og skepnurnar, ræðum tæknina, reksturinn og framtíð kúabúskapar á Íslandi.
    Og í lok þáttar fáum við svo til okkar Helgu Láru Þorsteinsdóttur, safnstjóra Ríkisútvarpsins. Hún kíkir reglulega við og leyfir okkur að hlusta á áhugavert efni úr safni RÚV. Í dag segir hún okkur frá merkilegu innslagi sem rithöfundurinn Jónas Árnason vann fyrir útvarpsþáttinn Heyrt og séð árið 1947, þar sem Jónas segir frá heimsókn sinni á Keflavíkurflugvöll.
    1 hr
  • Stúdentahreyfingar, STEM Húsavík, starfamessa á Austurlandi
    Í dag ætlum við að fjalla um stúdentahreyfingar; íslenskar, útlenskar, alþjóðlegar. Þessa dagana dvelja fulltrúar Landsambands Íslenskra Stúdenta í Póllandi og taka þátt í þingi fyrir evrópskar stúdentahreyfingar. Við fáum til okkar Lísu Margréti Gunnarsdóttur, forseta Landssambands Íslenskra Stúdenta, fræðumst um hvað á sér stað á þessu þingi, og hvað ber hæst í hagsmunabaráttu stúdenta, hér á Íslandi og annars staðar.
    Í dag ætlum við að fjalla um stúdentahreyfingar; íslenskar, útlenskar, alþjóðlegar. Þessa dagana dvelja fulltrúar Landsambands íslenskra stúdenta í Póllandi og taka þátt í þingi fyrir evrópskar stúdentahreyfingar. Við fáum til okkar Lísu Margréti Gunnarsdóttur, forseta Landssambands íslenskra Stúdenta, fræðumst um hvað á sér stað á þessu þingi, og hvað ber hæst í hagsmunabaráttu stúdenta, hér á Íslandi og annars staðar.
    Síðan bregðum við okkur til Húsavíkur. Samfélagið er nýkomið úr ferðalagi um Norðurland, og í dag flytjum við viðtöl sem tekin voru þegar við heimsóttum glerskála við Húsavíkurhöfn, þar sem Huld Hafliðadóttir og Bridget Burger starfrækja STEM Húsavík, verkefni sem hefur það að markmiði að auka færni Húsvíkinga í hinum svokölluðu STEM-greinum.
    Í gær fór starfamessa Austurlands fram á Egilsstöðum, og það hljóp á snærið hjá Samfélaginu, sem var alls ekkert á Austurlandi því Jón Knútur Ásmundsson, verkefnastjóri Austurbrúar var á svæðinu og tók viðtöl við gesti og gangandi fyrir hlaðvarpsrás Austurbúar og gaf okkur leyfi til að nota það. Austurbrú eru hagsmunasamtök sem vinna að því að Austurland verði staður fólks, fyrirtækja og fjárfesta sem vilja byggja upp sjálfbært samfélag og starfamessan er hugsuð til að kynna þau störf sem unnin eru á Austurlandi fyrir ungu fólki. Meira um það á eftir.
    1 hr
  • Staða hinsegin fólks á vinnumarkaði, líforka, rautt kjöt, sykursýki og fjármögnun á eigin tortímingu
    Í dag fjöllum við um stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði. Oft er talað um glerþakið þegar rætt er um hindranir sem konur mæta á vinnumarkaði; þá sérstaklega hvað varðar kjör og stöðuhækkanir. Hindrar glerþakið líka uppgang hinsegin fólks á atvinnumarkaði? Við ræðum þetta og fleira við Vilhjálm Hilmarsson, hagfræðing hjá stéttarfélaginu Visku.
    Árum saman hafa dýrahræ verið urðuð hér á landi, þvert á lög og reglur. Nú - eða í það minnsta á næstu árum stendur til bóta. Við ætlum að ræða áform um líforkuver á Dysnesi við Eyjafjörð. Kristín Helga Schiöth, framkvæmdastjóri Líforkuvers ehf. kemur til okkar og segir okkur frá stöðunni og því hvað þarf að gerast í náinni framtíð - og það er mikið í húfi - því verði ekki breytingar gætu íslensk matvæli verið stimpluð óörugg á meginlandi Evrópu.
    Er hið opinbera of duglegt að styrkja verkefni sem eru skaðleg fyrir umhverfið? Erum við að fjármagna okkar eigin útrýmingu? Þetta er á meðal þess sem Stefán Gíslason, umhverfisstjórnarfræðingur og pistlahöfundur Samfélagsins, fjallar um í pistli dagsins.
    Edda Olgudóttir, kemur svo til okkar í vísindaspjall og ræðir nýjar rannsóknir sem benda til þess að neysla á rauðu kjöti auki líkurnar á því að fólk fái sykursýki af gerð tvö.
    Tónlist:
    Otis Redding - Wonderful World.
    GDRN - 10 dropar (Upptaka úr Tónatal).
    1 hr

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners