Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Stóra sundlaugarmálið í Mývatnssveit og frú Ragnheiður á Akureyri
    Í dag fjöllum við um mikið hitamál í Þingeyjarsveit; um sögu sundlaugar í Reykjahlíð, þéttbýliskjarna við Mývatn, sem var fjarlægð með stórtækum vinnuvélum af óljósum ástæðum, í óþökk íbúa svæðisins. Þótt laugarkarið hafi verið grafið upp fyrir meira en átta árum er grunnur laugarinnar enn eins og opið sár fyrir utan íþróttamiðstöð Reykjahlíðar, íbúum til ama.
    Í dag heimsækjum við Reykjahlíð, ræðum við starfsfólk íþróttamiðstöðvarinnar á svæðinu, íbúa og sveitarstjórnarfólk til að svara spurningunum: Hvað varð um sundlaugina í Reykjahlíð? Hvers vegna var hún fjarlægð og geta íbúar jarðhitasveitarinnar Mývatnssveitar gert sér vonir um að komast aftur í sund í heimabyggð í náinni framtíð?
    Og í lok þáttar kíkjum við í heimsókn í bíl Frú Ragnheiðar hér á Akureyri og ræðum við hjúkrunarfræðingana Berglindi Júlíusdóttur og Eddu Ásgrímsdóttur. Þær ætla að fræða okkur um stöðu skjólstæðinga Frú Ragnheiðar á Akureyri og þjónustu við fíknisjúka á Norðurlandi.
    57 min
  • Mývatnsrannsóknir, loftslagskvíði og náttúruhugvísindi
    Samfélagið sendir út frá alþjóðlegu Mývatnsráðstefnunni - Mývatn Conference 2024 - sem haldin er í félagsheimilinu Skjólbrekku í Mývatnssveit. Lífríki Mývatns er einstakt og hefur verið rannsakað í þaula í hálfa öld og kannski má segja að þessi ráðstefna sé uppskeruhátíð. Hér er fjöldi vísindamanna saman kominn frá ýmsum löndum, Íslandi, Bretlandi, Finnlandi og eflaust fleirum - og í erindunum er farið vítt og breitt. Hornsíli koma meðal annars við sögu, fuglarnir, kúluskíturinn og að sjálfsögðu mýið. Við byrjum þáttinn á að ræða við Bjarna Kristófer Kristjánsson, prófessor við Háskólann á Hólum og Guðna Guðbergsson, sviðsstjóra ferskvatns- og eldissviðs á Hafró.
    Næst fáum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi, sem ætlar að fjalla um loftslagskvíða.
    Í lok þáttar færum við okkur svo inn á svið hugvísindanna, án þess að skilja náttúruvísindin alveg eftir. Við fáum til okkar Auði Aðalsteinsdóttur, forstöðumann Rannsóknarseturs Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit, og Sigurlínu Tryggvadóttur, verkefnastjóra hjá náttúruhugvísindasetrinu Huldu, til að spjalla um náttúru- og umhverfishugvísindi.
    Tónlist úr þættinum:
    ARLO PARKS & PHOEBE BRIDGERS - Pegasus.
    Pálmi Gunnarsson - Á áfangastað.
    Dina Ögon - Oas.
    1 hr
  • Tengsl manns og náttúru, svipmynd af Bifreiðastöð Oddeyrar, arkítektúr á Héraðsskjalasafninu á Akureyri
    Í dag fagnar Samfélagið degi íslenskrar náttúru með því að velta fyrir sér tengslum manns og náttúru, eða kannski frekar rofi á tengslum manns við náttúru. Við ræðum þetta við Þuríði Helgu Kristjánsdóttur.
    Það er fastur liður hjá okkur í Samfélaginu að kíkja í heimsókn í skjalasafn annan hvern mánudag. Í dag heimsækjum við héraðsskalasafnið á Akureyri.
    Og í lok þáttar fáum við svipmynd af Bifreiðastöð Oddeyrar, tæplega 70 ára gamalli menningarstofnun sem styr hefur staðið um undanfarin ár - en húsið á að víkja fyrir nýbyggingum í náinni framtíð.
    1 hr
  • Staðan í ferðaþjónustu, veitingarekstur í miðborginni og matþörungar í fjörunni
    Samfélagið sendi út frá Skúla Craftbar, öldurhúsi við Fógetagarðinn í miðborg Reykjavíkur og umræðuefni dagsins tengist einmitt miðborginni, því hvað hún stendur fyrir og þeirri þjónustu sem þar er í boði. Við ræðum ferðaþjónustu, veitingarekstur og stöðu íslenskrar þjóðmenningar almennt við Ólaf Örn Steinunnar- Ólafsson og Björn Árnason veitingamenn og Katrínu Önnu Lund, prófessor í ferðamálafræði við Háskóla Íslands.
    Um miðbik þáttar er farið í fjöruferð í innanverðan Breiðafjörðinn með Svanhildi Egilsdóttur, líffræðingi á Hafró. Hún fræðir okkur um sjávarkapers, sjávarspagettí og fleira ætt í fjörunni.
    Tónlist:
    Teitur Magnússon - Hverra manna.
    Mitchell, Joni - Little Green.
    59 min
  • Ábyrgð fyrirtækja á hamfarahlýnun, loftslagsaðgerðir á Íslandi, mannvæn tækni
    Á Íslandi hefur aðeins einu stórfyrirtæki tekist að uppfylla kröfur Parísarsamkomulagsins um samdrátt í losun. Hin falla á prófinu, misilla. Þetta sýnir úttekt á vegum ráðgjafarfyrirtækisins PWC. Með ákveðnum reikniformúlum má komast að þeirri niðurstöðu að fyrirtæki á Íslandi beri ábyrgð á nánast allri beinni losun Íslands - en hvað er til ráða? Hvaða gulrætur virka, hvaða prikum á að sveifla? Um þetta var fjallað á málþingi í Norræna húsinu í morgun, við heyrum í fólki sem tók þátt í málþinginu og fáum svo þær Hafdísi Hönnu Ægisdóttur, forstöðumann Sjálfbærnistofnunar HÍ, og Þórhildi Fjólu Kristjánsdóttur orku- og umhverfisverkfræðing í hljóðver.
    Í dag ætlum við líka að velta fyrir okkur tækninni. Hvaða áhrif hafa tækin og tölvuforritin sem við umgöngumst daginn út og inn á heilsu okkar og hegðun? Gæti hún verið hollari? Gæti hún verið mannvænni? Við fáum til okkar Atla Þór Jóhannsson, stofnanda samtaka um mannvæna tækni, í heimsókn til okkar til að ræða þessi mál.
    Við fáum síðan pistil frá Finni Ricart Andrasyni, formanni Ungra umhverfissinna, þar sem hann fjallar um efasemdir um loftslagsaðgerðir á Íslandi.
    55 min
  • Jóhanna Vigdís fer yfir stjórnmálaveturinn, kórmótmæli og vísindaspjall
    Þingveturinn er formlega hafinn og það stefnir í líflegt haust á hinu háa Alþingi. Við fáum Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur, fréttamann, í heimsókn til að ræða það sem koma skal.
    Fylking verkalýðsfélaga boðaði til fjöldamótmæla á Austurvelli í gær þar sem krafist var aðgerða í þágu heimilanna. Önnur mótmæli voru haldin í morgun. Kórmótmæli, ekki eins fjölmenn, en ekki síður áhugaverð.
    Vísindaspjall með Eddu Olgudóttur í lok þáttar - og þar kemur heilinn eitthvað við sögu.
    Tónlist í þætti:
    Mammaðín - Frekjukast.
    Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
    MUGISON - Haustdansinn.
    ETTA JAMES - I got you babe.
    1 hr
  • Kappræður forsetaframbjóðenda í Bandaríkjunum, ævintýraleiðangur með ísbrjótnum RV Polarstern
    Í kvöld mætast þau Kamala Harris og Donald Trump, forsetaframbjóðendur í Bandaríkjunum, í sjónvarpskappræðum. Þetta verður í fyrsta og líklega eina skiptið sem þau mætast í aðdraganda forsetakosninganna í nóvember. Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði, ætlar að setjast hjá okkur og fara yfir stöðuna fyrir kappræðurnar.
    Áki Jarl Láruson, stofnerfðafræðingur á Hafró, fór í sumar í ógleymanlegan vísindaleiðangur upp að 80. breiddargráðu með þýska ísbrjótnum Pólstjörnunni, RV Polarstern. Skipið var hlaðið sérhæfðum búnaði til að rannsaka sjávarbotninn og alþjóðlegt teymi vísindamanna vann á vöktum allan sólarhringinn við að rannsaka sæköngulær og fleira forvitnilegt sem kafbátar og botnsleðar drógu úr kafinu.
    Samfélagið var í styttri kantinum vegna beinnar útsendingar frá þingsetningu.
    31 min
  • Sjálfsmyndarkrísa blaðamanna, mosakrot og landgræðsla, stórbruni á Raufarhöfn
    Hvernig hafa íslenskir blaðamenn brugðist við miklum og örum breytingum í fjölmiðlaumhverfinu, og hvernig hafa hugmyndir þeirra um hlutverk sitt þróast í takt við þær? Eru blaðamenn í sjálfsmyndarkrísu? Í dag fáum við Jón Gunnar Ólafsson, lektor í fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands, í heimsókn til að ræða þessar áleitnu spurningar.
    Mosi, hann er mjúkur og til af honum 600 tegundir á Íslandi. Í síðustu viku ræddum við um sjaldgæfar mosategundir í Hólavallagarði í Reykjavík - og í dag beinum sjónum okkar að landgræðslu og mosakroti. Magnea Magnúsdóttir umhverfis- og landgræðslustjóri Orku náttúrunnar fræðir okkur um landgræðslustarf fyrirtækisins á Hellisheiði og víðar.
    Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, rifjar upp umfjöllun Ríkisútvarpsins um stórbruna á Raufarhöfn, þegar Búðin, eitt elsta timburhús landsins, brann til kaldra kola árið 1956.
    Tónlist í þætti:
    JONI MITCHELL - Big Yellow Taxi.
    EIVÖR PÁLSDÓTTIR - Mussisjuk.
    1 hr
  • Húðflúrhátíð, sælgæti og neytendasálfræði
    Samfélagið sendir út frá húðflúrhátíðinni FjölnisFest, sem haldin er Iðnó í miðborg Reykjavíkur. Við ætlum að kynnast heimi húðflúranna betur í dag, verðum hér í Iðnó og ræðum við gesti hátíðarinnar, meðal annars skipuleggjanda hennar, Atla Fjölnisson.
    Í lok þáttar bregðum við okkur í heimsókn í Háskólann í Reykjavík, þar sem við ræðum við Valdimar Sigurðarson, prófessor í markaðs- og neytendasálfræði. Við ætlum aðeins að spyrja hann út í markaðsetningu á sælgæti og hvernig hún hefur þróast hér á landi síðustu ár.
    59 min
  • Útrásarvíkingar, ofbeldi meðal ungmenna og hugtakið „umhverfisvænt“
    Við ætlum að heyra hvað nákvæmlega felst í aðgerðum sem ráðist verður í til að sporna gegn ofbeldi meðal barna. Í lok júní kom út aðgerðaáætlun á vegum ríkislögreglustjóra til að reyna draga úr ofbeldi meðal barna sem hefur aukist um helming á fimm árum og er mikið áhyggjuefni. Hefur enn ein nefndin verið stofnuð og enn ein skýrslan verið gefin út? Eru þetta orðin tóm hjá stjórnvöldum eða verður raunverulega gripið til afgerandi úrræða til að snúa þessari uggvænlegu þróun við? Eygló Harðardóttir Verkefnastjóri afbrotavarna hjá ríkislögreglustjóra sem einnig situr í nýskipuðum aðgerðarhóp kemur til okkar og ræðir þetta.
    Ættum við að hætta að nota orðið „umhverfisvænt“? Er almennt hægt að segja að eitthvað sé umhverfisvænt eða ekki? Hvernig metum við valkostina sem blasa við okkur í umhverfis- og orkumálum? Þessu veltir Stefán Gíslason fyrir sér í umhverfispistli Samfélagsins í dag.
    Í lok þáttar ræðum við túrista, fasista og útrásarvíkinga. Þá flytjum við seinni hluta viðtals okkar við Guðrúnu Dröfn Whitehead um hugmyndir okkar um víkinga og birtingarmyndir þeirra í samtímanum.
    55 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners