Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Útrásarvíkingar, ofbeldi meðal ungmenna og hugtakið „umhverfisvænt“
    Við ætlum að heyra hvað nákvæmlega felst í aðgerðum sem ráðist verður í til að sporna gegn ofbeldi meðal barna. Í lok júní kom út aðgerðaáætlun á vegum ríkislögreglustjóra til að reyna draga úr ofbeldi meðal barna sem hefur aukist um helming á fimm árum og er mikið áhyggjuefni. Hefur enn ein nefndin verið stofnuð og enn ein skýrslan verið gefin út? Eru þetta orðin tóm hjá stjórnvöldum eða verður raunverulega gripið til afgerandi úrræða til að snúa þessari uggvænlegu þróun við? Eygló Harðardóttir Verkefnastjóri afbrotavarna hjá ríkislögreglustjóra sem einnig situr í nýskipuðum aðgerðarhóp kemur til okkar og ræðir þetta.
    Ættum við að hætta að nota orðið „umhverfisvænt“? Er almennt hægt að segja að eitthvað sé umhverfisvænt eða ekki? Hvernig metum við valkostina sem blasa við okkur í umhverfis- og orkumálum? Þessu veltir Stefán Gíslason fyrir sér í umhverfispistli Samfélagsins í dag.
    Í lok þáttar ræðum við túrista, fasista og útrásarvíkinga. Þá flytjum við seinni hluta viðtals okkar við Guðrúnu Dröfn Whitehead um hugmyndir okkar um víkinga og birtingarmyndir þeirra í samtímanum.
    58 min
  • Vanlíðan barna, víkingar og umhverfismál
    Hvernig tökum við á vanlíðan barna og ungmenna og hvað er raunverulega að hrjá börn sem sýna ofbeldishegðun? Eru það fjölskylduáföll, heimilisofbeldi, vanræksla og óregla á heimilum eða hreinlega áhrif samfélagslegra áfalla á borð við heimsfaraldur og efnahagshrunið? Í Skotlandi tókst yfirvöldum að draga úr vopnaburði meðal ungmenna með því að huga að geðheilbrigði þeirra í samvinnu við lögreglu. Við ætlum að ræða við Sigrúnu Sigurðardóttur prófessor í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri en hún er einnig stjórnarmaður í Berginu og Geðhjálp og fyrrverandi lögreglukona.
    Þar næst fáum við pistil frá Páli Líndal, umhverfissálfræðingi og pistlahöfundi Samfélagsins. Í dag fjallar hann um samband umhverfis- og heilbrigðismála.
    Að lokum kíkjum við í heimsókn í Þjóðminjasafnið með safnafræðingnum Guðrúnu Dröfn Whitehead, sem var að gefa út bók um víkinga og birtingarmynd þeirra í samtímanum. Við ræðum meðal annars hvað það þýðir að vera víkingur í dag, árið 2024.
    Tónlist frá útsendingarlogg 2024-09-04
    K.ÓLA - Dansa meira.
    Bon Iver - For Emma.
    Ted Gardestad - Viking.
    1 hr
  • Rafræn skilríki taka breytingum, hulin þekking kvenna eftir barnsburð og vísindaspjall
    Rafræn skilríki eru notuð víða - hvort sem þú þarft að skrá þig inn í netbankann, á Ísland.is nú eða endurnýja líkamsræktarkortið. Stafrænt Ísland hefur séð um þessa þjónustu og hingað til hefur enginn þurft að borga en nú verður breyting á. Eldri innskráningarþjónusta Stafræns Íslands lokar og hófst það ferli í gær. Íslykillinn er úr sögunni, auðkenningarþjónusta ríkisins nú einungis í boði fyrir hið opinbera en fyrirtæki og félagasamtök þurfa að leita annarra lausna. VIð ætlum að ræða þessar breytingar við Birnu Írisi Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Rafræns Íslands, og Ólaf Pál Einarsson, framkvæmdastjóra Dokobit á Íslandi.
    Við höldum áfram að fjalla um veruleika mæðra í Íslensku samfélagi. Elín Ásbjarnardóttir Strandberg, heimspekinemi, ætlar að kíkja til okkar og segja okkur frá rannsóknum sínum um sjálfsmynd mæðra eftir barnsburð.
    Edda Olgudóttir, sérstakur vísindamiðlari Samfélagsins, kíkir til okkar í vísindaspjall. Hún er vikulegur gestur hjá okkur í Samfélaginu.
    59 min
  • Neyslurýmið Ylja, mosinn í Hólavallagarði og gamlar ljósmæðrabækur á Þjóðskjalasafni
    Í dag heimsækjum við neyslurýmið Ylju í Borgartúni, sem var opnað á ný í síðasta mánuði eftir um átján mánaða rof í þjónustu við fólk í virkri vímuefnaneyslu. Við ræðum við Evu Dögg Þórsdóttur verkefnafulltrúa í neyslurýminu Ylju og Kristínu Davíðsdóttur sviðsstjóra hjá Landspítalanum um hvernig reynslan hefur verið hingað til.
    Við ætlum að fræðast um mosa. Nánar tiltekið mosaflóruna í Hólavallagarði í Reykjavík - sem er ansi rík- við röltum um garðinn með Heimi Janusarsyni, umsjónarmanni hans - sem lumar á forvitnilegum fróðleiksmolum um garðinn og sögu hans og um áhugaverð tengsl mosa og súrmjólkur.
    Svo skoðum við aldargamlar ljósmæðrabækur og fæðingaskýrslur á Þjóðskjalasafni Íslands. Helga Lilja Bergmann skjalavörður ætlar að segja okkur frá þessum skjölum og hvað þau geta sagt okkur um veruleika kvenna á fyrri hluta 20. aldar.
    58 min
  • Útivera í leyfisleysi, sjálfbær fjármál og samlíf manna og máva
    Með kvosarskipulaginu í miðborg Reykjavíkur breyttist ýmislegt. Allt í einu voru komin borð og stólar utandyra við veitingastaði og gestir gátu notið sólar og útiveru. Laugavegur er að mestu orðin göngugata og eigendur veitingastaða hafa sett húsgögn útfyrir. Lögreglan verið undanfarið að reka gesti inn, vegna þess að margir staðanna hafa ekki tilskyld leyfi. Við ræðum við Aðalgeir Ásvaldsson samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði.
    Samfélagið heldur áfram að fjalla um máva í Garðarbænum. Arnór Sigfússon, fuglafræðingur, spjallar við Arnhildi Hálfdánardóttur um sílamávinn, samlíf manna og máva og hvernig mávurinn var hrakinn frá Keflavíkurflugvelli.
    Við ætlum líka að kynna okkur sjálfbær fjármál og hvernig þau passa inn í myndina um sjálfbæra framtíð og sjálfbær samfélög. Bjarni Herrera, sérfræðingur í sjálfbærum fjármálum, ræðir við samfélagið.
    Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Lísa Pálsdóttir. Fanney Birna Jónsdóttir
    Tónlist frá útsendingarlogg 2024-09-05
    BEATLES - Day Tripper.
    Guitar Islancio - Fuglinn í fjörunni.
    Vilhjálmur Vilhjálmsson - Lítill drengur.
    57 min
  • Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Lísa Pálsdóttir. Fanney Birna Jónsdóttir
    55 min
  • Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Lísa Pálsdóttir. Fanney Birna Jónsdóttir
    57 min
  • Fuglastríð í Garðabæ og bárujárn
    Við kynnum okkur fuglastríðið í Garðabæ, stríð sem einna helst beinist gegn Sílamáfnum. Fyrir nokkrum árum fóru að berast fréttir af því að mávar héldu vöku fyrir íbúum í Sjálandshverfi og víðar, réðust jafnvel á börn á göngustígum. Bærinn hefur ráðist í aðgerðir vegna þessa og íbúar stofnað sérstakar mávasveitir. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Eirík Sigurðsson sem er meðlimur í einni slíkri mávasveit og Ástu Sigrúnu Magnúsdóttur, samskiptastjóra í Garðabæ.
    Bárujárn hefur þótt góð klæðning á hús hér á landi í langan tíma, síðan kom steining, sem hefur virkað vel, en undanfarin ár hafa álplötur í öllum regnbogans litum tekið völdin. Við eru plötuð með mismunandi klæðningum á stórum byggingum, þannig að þau líta út eins og mörg hús. Við fórum í bæinn og veltum fyrir okkur misjöfnum klæðningum bygginga með Magneu Guðmundsdóttur arkitekt.
    Stefáni Gíslasyni, umhverfisstjórnunarfræðingur flutti pistil í lok þáttar.
    Umsjón: Fanney Birna Jónsdóttir og Lísa Pálsdóttir.
    Tónlist frá útsendingarlogg 2024-09-05
    THE ROLLING STONES - Not Fade Away.
    Heiða Árnadóttir Söngkona, Gunnar Gunnarsson Píanóleikari - Ein.
    59 min
  • Við kynnum okkur fuglastríðið í Garðabæ, stríð sem einna helst beinist gegn Sílamáfnum. Fyrir nokkrum árum fóru að berast fréttir af því að mávar héldu vöku fyrir íbúum í Sjálandshverfi og víðar, réðust jafnvel á börn á göngustígum. Bærinn hefur ráðist í aðgerðir vegna þessa og íbúar stofnað sérstakar mávasveitir. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Eirík Sigurðsson sem er meðlimur í einni slíkri mávasveit og Ástu Sigrúnu Magnúsdóttur, samskiptastjóra í Garðabæ.
    Bárujárn hefur þótt góð klæðning á hús hér á landi í langan tíma, síðan kom steining, sem hefur virkað vel, en undanfarin ár hafa álplötur í öllum regnbogans litum tekið völdin. Við eru plötuð með mismunandi klæðningum á stórum byggingum, þannig að þau líta út eins og mörg hús. Við fórum í bæinn og veltum fyrir okkur misjöfnum klæðningum bygginga með Magneu Guðmundsdóttur arkitekt.
    Stefáni Gíslasyni, umhverfisstjórnunarfræðingur flutti pistil í lok þáttar.
    Umsjón: Fanney Birna Jónsdóttir og Lísa Pálsdóttir.
    55 min
  • Ungliðahreyfingar gagnrýna útlengindalög, staða hafsins og vísindaspjall
    Þrettán íslenskar ungliðahreyfingar krefjast þess að ný útlendingalög verði samin í samráði við sérfræðinga í málaflokknum, mannréttindasamtök og hagsmunaaðila. Þau fordæma breytingarnar sem á að gera á útlendingalögunum og krefjast þess að allar lagabreytingar séu gerðar með mannréttindi að leiðarljósi. Við ræddum við Árna Kristjánsson frá ungliðahreyfingu Amnesty og Aníta Soley Scheving frá Andófi.
    Nýlega var birt skýrsla um stöðu hafsins víða um heim á vegum alþjóðahaffræðinefndarinnar. Við ræddum við Hrönn Egilsdóttur, sviðsstjóra hjá hafrannsóknastofnun og fulltrúa íslands í framkvæmdastjórn alþjóðahaffræðinefndarinnar um þær ógnir sem steðja að hafinu.
    Edda Olgudóttir kom svo í Vísindaspjall.
    Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Lísa Pálsdóttir.
    Tónlist frá útsendingarlogg 2024-09-05
    KK BAND - Álfablokkin.
    Hjálmar - Yfir hafið.
    59 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners