Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur velti fyrir sér hvað við eigum að kalla eiginmann forseta, þar sem í fyrsta sinn er maki karlkyns, Ýmsu var velt upp svo sem forsetamaki, forsetaherra o.fl. Einnig var talað um að kjósa taktískt, strategísk eða með hjartanu.
    Hraunið flæðir eins og engin sé morgundagurinn á Reykjanesi, verið er að nýta það sem undirlag í vegagerð, en er hægt að nýta það sem byggingarefni? Arnhildur Pálmadóttir arkitekt og sonur hennar Arnar Skarphéðinsson kynntu hugmyndir að nýtingu hrauns á Hönnunarmars fyrir nokkrum árum. Rætt var við Arnhildi um það og samstarf hennar við dönsku arkitektastofuna Lendager, sem sérhæfir sig í endurnýjanlegum byggingum í Danmörku og víðar. Verið er að byggja nokkrar byggingar eftir hönnun Arnhildar, við forvitnumst um hvernig gengur. Rætt við Björgvin Smári Jónsson o.fl.
    Steyptar tröppueiningar svífa yfir brekkunni fyrir neðan Akureyrarkirkju - það hefur ekki verið hægt að ganga upp kirkjutröppurnar frá því þær voru fjarlægðar í fyrra sumar - en nú styttist í að nýju tröppurnar verði allar með tölu (umdeilt hver sú tala er) komnar á sinn stað. Við tökum framkvæmdirnar út og ræðum við fólk á staðnum
    Tónlist:
    Það vantar spýtur - Ólafur Haukur Símonarson - Olga Guðrún Árnadóttir
    I got you under my skin - Frank Sinatra
    Beðið eftir skömminni - Valdimar
    59 min
  • Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur velti fyrir sér hvað við eigum að kalla eiginmann forseta, þar sem í fyrsta sinn er maki karlkyns, Ýmsu var velt upp svo sem forsetamaki, forsetaherra o.fl. Einnig var talað um að kjósa taktískt, strategísk eða með hjartanu.
    Hraunið flæðir eins og engin sé morgundagurinn á Reykjanesi, verið er að nýta það sem undirlag í vegagerð, en er hægt að nýta það sem byggingarefni? Arnhildur Pálmadóttir arkitekt og sonur hennar Arnar Skarphéðinsson kynntu hugmyndir að nýtingu hrauns á Hönnunarmars fyrir nokkrum árum. Rætt var við Arnhildi um það og samstarf hennar við dönsku arkitektastofuna Lendager, sem sérhæfir sig í endurnýjanlegum byggingum í Danmörku og víðar. Verið er að byggja nokkrar byggingar eftir hönnun Arnhildar, við forvitnumst um hvernig gengur. Rætt við Björgvin Smári Jónsson o.fl.
    Steyptar tröppueiningar svífa yfir brekkunni fyrir neðan Akureyrarkirkju - það hefur ekki verið hægt að ganga upp kirkjutröppurnar frá því þær voru fjarlægðar í fyrra sumar - en nú styttist í að nýju tröppurnar verði allar með tölu (umdeilt hver sú tala er) komnar á sinn stað. Við tökum framkvæmdirnar út og ræðum við fólk á staðnum
    Tónlist:
    Það vantar spýtur - Ólafur Haukur Símonarson - Olga Guðrún Árnadóttir
    I got you under my skin - Frank Sinatra
    Beðið eftir skömminni - Valdimar
    55 min
  • Ársskýrsla Unicef, múgæsingur og ótti í Hafnarfirði, heimsókn á Þjóðskjalasafn Íslands
    Ársskýrsla Unicef kom út fyrir skömmu og við ætlum að ræða við Birnu Þórarinsdóttur, framkvæmdastjóra samtakanna. Það hefur enginn farið varhluta af stöðu mála fyrir botni Miðjarðarhafs þar sem margir þjást og börn mest af öllum. Varnarlaus börn eru fórnarlömb í stríði og þurfa að reiða sig á hjálp sem því miður hefur ekki getað borist nema af skornum skammti. Þúsundir barna hafa verið drepin og særst í átökum og vinnur Unicef hörðum höndum að því að hjálpa börnum og hefur ítrekað krafist vopnahlés. Einnig þurfum við að huga að réttindum barna á Íslandi.
    Við fjöllum líka um mál sem hefur skekið hafnarfjörð síðastliðnar vikur, maður eða menn hafa ítrekað veist að börnum í bænum og foreldrar og börn uggandi, reiði og múgæsingur á samfélagsmiðlum virðist hafa náð nýjum hæðum eftir að mynd var birt af meintum árásarmanni - fólk steig fram undir nafni og hótaði manninum ofbeldi og jafnvel lífláti. Við ræðum þetta við Margréti Valdimarsdóttur dósent í félags- og afbrotafræði.
    Við heimsækjum svo þjóðskjalasafnið í lok þáttar - heyrum þar af kjörum vinnuhjúa á nítjándu öld.
    Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Lísa Pálsdóttir.
    Tónlist:
    POLLAPÖNK - Enga fordóma (Söngvakeppnin 2014).
    1 hr
  • Kosningar á Akureyri, strandveiðar, málfar og dýr á flótta
    Við fræðumst um utankjörfundaratkvæðagreiðslur, fyrirkomulag þeirra og tilgang, heimsækjum utankjörfundarstað sýslumannsembættisins á Norðurlandi eystra á Akureyri og ræðum við sýslumanninn Svavar Pálsson og fleiri viðstadda.
    Við forvitnumst um strandveiðar en strandveiðitímabilið hófst í byrjun mánaðar. Við ætlum að slá á þráðinn til formanns strandveiðifélags Íslands, Kjartans Páls Sveinssonar sem rær frá Grundarfirði í sumar.
    Við heyrum málfarsmínútu eins og lög gera ráð fyrir og í lok þáttar ætlar Vera Illugadóttir að setjast hjá okkur og spjalla við okkur um dýr eins og svo oft.
    56 min
  • Áhrif makkarins á lungnaveika, Sjálfkeyrandi bílar á götunum, á bremsunni gagnvart netrisanum Temu
    Í áttunda sinn á rúmlega þremur árum gýs á Reykjanesskaga og glóandi hrauninu fylgir mökkur, ýmis gös og mengunarefni sem stundum rata til byggðar, allt eftir því hvernig vindurinn blæs. Þegar mengun er mikil hefur hún áhrif, sérstaklega á þau sem eru viðkvæm fyrir. Við ætlum að ræða loftmengunina, fyrst við Andrjes Guðmundsson, formann Lungnasamtakanna, og svo við Þorstein Jóhannsson, sérfræðing í loftgæðum hjá Umhverfisstofnun.
    Fyrir nokkrum árum var mikið talað um sjálfkeyrandi bíla í mjög svo nálægri framtíð. Svo var eins og umræðan minnkaði talsvert og jafnvel talað um að slíkir bílar væru ekkert sérstaklega líklegir til að líta dagsins ljós og væru ef til vill tálsýn. Eða fjarlægur draumur. En nú er umræðan aftur að taka við sér, enda bílar komnir á göturnar í þremur borgum í Bandaríkjunum. Við ætlum að velta fyrir okkur sjálfkeyrandi bílum og tala við Hjálmar Gíslason frumkvöðul og mikinn áhugamann um tækniþróun. Hann tók sér far með slíkum bíl vestur í San Francisco á dögunum.
    Svo fáum við Brynhildi Pétursdóttur, framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna, í neytendaspjall um kínverska netverslunarrisann Temu - sem hefur sætt gagnrýni af mörgum ástæðum.
    Tónlist:
    KACEY MUSGRAVES - Space Cowboy.
    Bríet - Rólegur kúreki.
    Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
    1 hr
  • Samfélagið sendir út frá Loftslagsdeginum í Hörpu
    Markmið Loftslagsdagsins, sem er árlegur viðburður, er að fjalla um loftslagsmál á mannamáli og í ár er einblínt á aðgerðir. Hér er spurt: hverjir eru að gera hvað núna? Hvað aðgerðir eru í pípunum og hvað ættum við að vera gera?
    Við tölum við nokkur þeirra sem hafa haldið erindi og tekið þátt í umræðum hér í dag: Chanee Jónsdóttur Thianthong, sérfræðing hjá Umhverfisstofnun sem kynnti glænýjar tölur um losun Íslands. Eyrúnu Gígju Káradóttur, verkefnastjóra Orkuseturs, sem spurði í sínu erindi hvort við værum hætt við orkuskiptin, Björn Helga Barkarson skrifstofustjóra hjá Matvælaráðuneytinu en yfirskrift erindis hans var Loft, land og líf - og svo er það Hugrún Elvarsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum atvinnulífsins sem ræddi um loftslagsvegvísa atvinnulífsins.
    Tónlist:
    Young, Neil, Nash, Graham, Crosby, Stills, Nash & Young, Crosby, David - Heartland.
    KÁRI - Into The Blue.
    MANNAKORN - Göngum yfir brúna.
    1 hr
  • Ný umferðarmerki, líffræðinemar á Madagaskar, málfar, upptaka úr safni útvarpsins
    Við ætlum að ræða umferðarmerki, í vor tók gildi ný reglugerð um slík merki- þetta eru tímamót enda hefur reglugerðinni ekki verið breytt í tæp 30 ár. Merkin eru nú flokkuð með nýjum hætti, sjötíu merki hverfa á braut og á fimmta tug nýrra bætist við - t.d. merki um að kanínur geti verið á ferli við veginn. Einar Pálsson, forstöðumaður Vegaþjónustudeildar vegagerðarinnar, ræðir við okkur um nýju reglugerðina.
    Svo símum við alla leið til Madagaskar sem er eins og margir hlustendur vita, eyja við austurströnd Afríku. Þar er Ingi Agnarsson prófessor dýrafræði við Háskóla Íslands í umfangsmikilli námsferð og rannsóknarleiðangri með um 30 líffræðinemum sem eru að kynna sér fjölbreytt lífríki eyjunnar, sem er einstakt. Við sláum á þráðinn til hans á eftir.
    Við heyrum líka eina málfarsmínútu og svo kemur Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV til okkar í lok þáttar með upptöku úr safni útvarpsins.
    Tónlist:
    Snorri Helgason, Friðrik Dór Jónsson - Birta.
    THE HOUSEMARTINS - Build.
    Hjálmar - Skýjaborgin.
    1 hr

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners