Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Er lýsi gagnlegt? Kynjaþing 2024, málfar og dýraspjall - langlífur albatrosi
    Það brá mörgum í brún í gær þegar fréttir voru sagðar af rannsóknum á fiskiolíum á borð við lýsi og omega 3 fitusýrum þar sem sterkar vísbendingar virðast koma fram um að fiskiolía eða lýsi geti beinlínis verið óhollt. Þvert á það sem okkur hefur verið kennt um - kannski ekki aldir - en býsna lengi. Samkvæmt þessum rannsóknum eykur neysla á bætiefnum á borð við lýsi sem innihalda omega 3, líkurnar á gáttatifi og heilablóðföllum hjá vissum hópi fólks. Við ræðum þetta við Þórhall Inga Halldórsson, prófessor í matvæla- og næringarfræði við HÍ.
    Á morgun stendur Kvenréttindafélag Íslands fyrir Kynjaþingi í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Þetta er lýðræðislegur og feminískur vettvangur sem félagið skapar fyrir almenning, félagasamtök og hópa sem vinna að jafnréttismálum í víðum skilningi - og það er í mörg horn að líta. Við ræðum áherslur í jafnréttisbaráttunni og dagskrá þingsins við Auði Önnu Magnúsdóttur, framkvæmdastýru Kvenréttindafélags Íslands.
    Við heyrum eina málfarsmínútu og svo kemur Vera Illugadóttir til okkar í dýraspjall - um albatrosaömmuna Visku.
    Tónlist:
    FLEETWOOD MAC - Dreams.
    ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR OG ÞORSTEINN EINARSSON - Hluthafi í heiminum.
    58 min
  • Fatlað fólk í bíómyndum, vespur og veirur, umhverfispistill Stefáns Gíslasonar um Dag líffræðilegs fjölbreytileika
    Hvernig birtist fatlað fólk í bíómyndum og sjónvarpsþáttaröðum - sem venjulegt fólk eða jafnvel furðuverk, hetjur, illmenni? Hvaða áhrif hafa þessar birtingarmyndir á fatlað fólk, sjálfsmynd þess og viðhorf samfélagsins? Þetta var umfjöllunarefnið á viðburði sem ÖBí réttindasamtök og Borgarbókasafnið stóðu fyrir í gær - þar var opinn hljóðnemi og fólk deildi sinni sýn. Við ræðum við Kjartan Þór Ingason, verkefnastjóra hjá Öbí.
    Við stingum okkur á bólakaf í undirdjúp líffræðinnar með Arnari Pálssyni, erfðafræðingi hjá Háskóla Íslands. Hann ætlar að tala við okkur um vespur sem framleiða vírusa til að vernda afkvæmi sín.
    Svo heyrum við pistil frá Stefáni Gíslasyni umhverfisstjórnunarfræðingi. Að þessu sinni ætlar að hann að lesa okkur pistilinn í tilefni af alþjóðlegum degi líffræðilegrar fjölbreytni, sem var í gær.
    1 hr
  • Lofthreinsiver og niðurdæling Co2, hverfistré, stimplun og vísindaspjall
    Fyrr í mánuðinum var lofthreinsiverið Mammoth sem svissneska fyrirtækið Climeworks starfrækir ræst við virkjun Orku náttúrunnar á Hellisheiði. Þar verður innan skamms hægt að fanga allt að 36 þúsund tonn af koltvísýringi á ári úr andrúmsloftinu sem svo er dælt niður í jörðina þar sem hann binst við berglög. Þar kemur Carbfix til skjalanna sem býr yfir tækni sem gerir það kleift. Við ætlum að ræða þetta við Ólaf Elínarson samskiptastjóra Carbfix.
    Í sumar útnefnir Skógræktarfélag Reykjavíkur hverfistré Reykjavíkur, í öllum tíu hverfum borgarinnar og hefur óskað eftir tilnefningum frá íbúum og áhugafólki. Við ætlum að tala um trén í borgarlandinu við Auði Kjartansdóttur framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Reykjavíkur.
    Við heyrum málfarsmínútu og í lok þáttar kemur Edda Olgudóttir til okkar í Vísindaspjall.
    1 hr
  • Þróun fjarskiptaþjónustu, umhverfisvænna malbik og málfarsspjall
    Við fjöllum um fjarskiptamál - gagnamagn, stöðu heimasímans, 5G-væðingu og fleira. Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu, kemur til okkar og við ræðum nýjustu tölfræðina, gömul kerfi sem víkja fyrir nýjum, áhættu og hvernig fjarskiptum landans er háttað í dag.
    Svo tölum við um malbik. Fyrir ári síðan heimsóttum við Malbikstöðina á Esjumelum en þar á bæ segjast menn stefna að því að framleiða umhverfisvænasta malbik í heimi. Við ætlum að rifja upp viðtal okkar við Vilhjálm Þór Matthíasson framkvæmdastjóra og eiganda stöðvarinnar.
    Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur kemur svo til okkar í málfarsspjall í lok þáttar.
    Tónlist:
    MAGNÚS OG JÓHANN - Sumir dagar.
    Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
    55 min
  • Nýjunar í siglingatækni, loftmengun í Reykjavík og stimpilklukka
    Við ætlum að forvitnast um nýja tækni í siglingum og hvernig hægt er að minnka eldsneytisnotkun og þar með útblástur og tryggja betur öryggi á sjó. Karl Birgir Björnsson er einn stofnenda og framkvæmdastjóri íslenska sprotafyrirtækisins Hefring Marine, sem sérhæfir sig í slíkum lausnum en Karl fékk sérstaka viðurkenningu Sjávarklasans í gær fyrir árangur með nýsköpunarfyrirtæki.
    Í vikunni fór fram málþing í ráðhúsi Reykjavíkur þar sem sérfræðingar fóru yfir stöðuna hvað varðar loftmengun í Reykjavík. Milljónir deyja á heimsvísu á hverju ári af völdum loftmengunar og tugir hér á landi. Og á höfuðborgarsvæðinu gengur illa að uppræta hana. Samfélagið var á málþinginu.
    Við heyrum líka eina málfarsmínútu.
    1 hr
  • Réttað yfir Trump, litarefni í mat og umhverfispistill
    Við ætlum að forvitnast um réttarhöld sem nú fara fram yfir Donald Trump fyrrverandi forseta Bandaríkjanna og nú aftur forsetaframbjóðanda. Málið snýst um greiðslur til klámmyndaleikkonunnar sem kallar sig sig Stormy Daniels sem voru greiddar til að tryggja að hún segði ekki opinberlega frá sambandi sínu við forsetann fyrrverandi í aðdraganda forsetakosninganna 2016. Og hvaðan greiðslurnar komu þegar upp var staðið. Við tölum um þetta mál við Friðjón R. Friðjónsson sem er sérstakur áhugamaður um bandarísk stjórnmál og hefur fylgst grannt með.
    Svo ræðum við neytendamál við Bryndísi Pétursdóttur framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna. Umfjöllunarefnið er forsíðuefni nýjasta tölublaðs Neytendablaðsins þar sem fjallað er um litarefni í matvælum sem sum geta verið óholl - sérstaklega börnum.
    Við fáum svo umhverfispistil í lok þáttar frá Esther Jónsdóttur hjá Ungum umhverfissinnum.
    59 min
  • Krabbameinsskrá Íslands fagnar 70 ára afmæli nú í maí og af því tilefni verður blásið til afmælismálþings seinna í dag. Þetta er löng saga og ýmislegt sem hefur gerst og breyst á 70 árum. Þær Sigríður Gunnarsdóttir, forstöðumaður Rannsókna- og skráningarseturs Krabbameinsfélagsins og Laufey Tryggvadóttir, faraldsfræðingur og prófessor ræða þessi tímamót.
    VIð fræðumst um íslensku nýsköpunarvikuna sem hófst í dag, hátíð sem laðar að stórfiska úr heimi tækni og nýsköpunar en snertir líka á listum. Við ræðum við stofnendur hátíðarinnar, þær Eddu Konráðsdóttur og Melkorku Sigríði Magnúsdóttur.
    Edda Olgudóttir kemur svo í vísindaspjall í lok þáttar - hún segir okkur frá möguleikum crispr-tækninnar, meðal annars til þess að lækna blindu.
    Tónlist:
    Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar, Ingibjörg Smith - Nú liggur vel á mér.
    TRAVIS - The Weight.
    Beatles, The - While my guitar gently weeps.

  • Híbýlaauður - hönnun fjölbýlishúsa fyrr og nú, íslensk hundanöfn að fornu og nýju, málfar og pistill frá Páli Líndal.
    Við ætlum að fjalla um húsnæðismál og íbúðaþróun - Anna María Bogadóttir, arkitekt og menningarfræðingur, er hluti af hópi sem kallast Híbýlaauður - ég hitti hana á Hönnunarmars um daginn, við skoðuðum lególíkön af ýmsum blokkum, gömlum og nýjum, sem hafði verið raðað á langborð og ræddum stefnur og strauma í hönnun og byggingu fjölbýlishúsa, meðal annars hvort eldhúsglugginn væri að hverfa.
    Við fræðumst um íslensk hundanöfn að fornu og nýju. Emily Lethbridge rannsóknardósent við Árnastofnun tók sig til og rannsakaði þessi mál í kjölfar þess að fjölskylda hennar fékk sér hund sem þurfti að finna nafn á.
    Málfarsmínúta úr smiðju Önnu Sigríðar Þráinsdóttur, málfarsráðunautar - hafast og hefjast.
    Pistill frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi - sálfræðileg fjarlægð og útlit húsa.
    Tónlist:
    Beatles, The - All you need is love.
    ÁSGEIR TRAUSTI - Nú hann blæs.
    59 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners