Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Stóri Plokkdagurinn, Torg í borg, málfar og fjör og furðuverur í Austurstræti
    Stóri plokkdagurinn er á sunnudaginn. Þá flykkjast plokkarar víða um land út á götur, út í móa og í fjörur þessa lands með ruslapokana sína og plokktangir og tína rusl. Mikið rusl. Fleiri, fleiri tonn af rusli. Fyrir suma er plokk hluti af lífsstíl. Að gera samfélaginu gagn, njóta þess að vera úti og sjá árangur erfiðis síns. Það er Rótarý hreyfingin á Íslandi sem skipuleggur stóra plokkdaginn. Þar er verðandi umdæmisstjóri Jón Karl Ólafsson. við ræðum við hann.
    Við höldum áfram að fjalla um almannarými. og ætlum að fjalla um torg, Edda ívarsdóttir, borgarhönnuður ætlar að ræða við okkur um hugsunina á bak við þau, hvernig torg eru hönnuð og hvernig fólk notar þau.
    Sumarið er komið, farið að hlýna og plöntulíf og mannlíf að glæðast víða um land, í Austurstræti eru sölutjöldin komin upp, svört og í laginu eins og lítil hús og svo eru furðuverur á stjá í búningum, framhaldsskólanemar að dimmitera.
    Við heyrum líka eina málfarsmínútu í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur - um orðið einmitt.
    Tónlist:
    ÞURSAFLOKKURINN - Nútíminn.
    TRAVIS - Sing.
    Musgraves, Kacey - Deeper Well.
    59 min
  • Slow food, varist eftirlíkingar, málfarsmínúta og vísindaspjall
    Við forvitnumst um Slow food-hreyfinguna svokölluðu, en sú hugmyndafræði hefur breiðst út um allan heim. Það er viðhorf þeirra sem fylgja þessum lífsstíl að matur eigi að bragðast vel, hann eigi að vera laus við aukaefni og sem náttúrulegastur og sanngjarn á þann hátt að sá sem framleiðir matinn fái sanngjarnt verð fyrir vinnu sína og afurðir. Dóra Svavarsdóttir er formaður Slow food Reykjavík. Við ræðum við hana.
    Feik eða ekta? Það er yfirskrift sýningar í tengslum við Hönnunarmars sem nú stendur yfir. Á sýningunni er hægt að bera saman vörur sem ýmist eru falsaðar er ekta og velta fyrir sér hvort er hvað. Vodkaflaska, lampi, töskur, úr, skór, símar og fleira er þar til sýnis. Hugverkastofan, Epal og React - alþjóðlegt samstarfsnet fyrirtækja gegn fölsunum, standa að þessari sýningu. Við kíkjum á sýninguna og spjöllum þar við Borghildi Erlingsdóttur forstjóra Hugverkastofunnar og Þórunni Sigurðardóttir frá React.
    Við heyrum málfarsmínútu og svo kemur Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjall.
    55 min
  • Sorpbrennsla, frí molta í Gaju og málfarsspjall: misseri, sumarmál, hrafnahret o.fl.
    Við fjöllum um það sem kallað hefur verið hátækni-sorpbrennsla. Helgi Þór Ingason prófessor í verkfræði við Háskólann í Reykjavík fór fyrir hópi sem vann úttekt á fýsileika þess að reisa slíka brennslu hér á landi, enda stendur til að hætta nær allri urðun sorps. Ævar Örn Jósepsson ræddi um niðurstöður hópsins við Helga Þór. Við heyrum það á eftir.
    Og við ætlum að halda okkur í úrgangsmálunum því Gunnar Dofri Ólafsson, samskiptastjóri Sorpu, kemur til okkar og ræðir um aðra af tveimur afurðum Gas- og jarðgerðarstöðvarinnar Gaju í Álfsnesi, moltuna! Á sumardaginn fyrsta býðst öllum sem vilja að koma þangað og fá moltu til að nota í garðinn og kynna sér þann farveg sem matarleifar frá heimilum á höfuðborgarsvæðinu rata nú í.
    Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur kemur svo til okkar í málfarsspjall - við ætlum að ræða ýmis gömul orð tengd tíðarfari og árstíma. Einkum sumri, sem er handan við hornið.
    Tónlist:
    MANNAKORN - Óralangt Í Burt.
    PAUL SIMON - Still Crazy After All These Years.
    GRAFÍK - Komdu Út.
    1 hr
  • Skiptistöðin í Mjódd - staðan og viðhorf gesta, Kristín Eysteinsdóttir rektor Listaháskóla Íslands um aðsókn og húsnæðismál, málfar og heimsókn á Þjóðskjalasafn Íslands.
    Á föstudag fjölluðum við um þau tengsl sem fólk myndar við almannarými í borginni. Við ætlum að halda áfram að fjalla um almannarými ýmis konar- skiptistöðin í Mjóddinni hefur verið mikið til umfjöllunar á fundum umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar undanfarna mánuði. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, er einn þeirra sem vilja umbætur og telja skiptistöðina nær óboðlega. Við förum í Mjóddina, ræðum við Kjartan og fleiri gesti sem þar biðu.
    Fyrir réttu ári var tilkynnt að Kristín Eysteinsdóttir yrði nýr rektor Listaháskóla Íslands. Hún ætlar að ræða við okkur á eftir um starf rektors, stefnumótun, áform um nýtt hús yfir starfsemi skólans, sem nú fer fram á sjö stöðum og sprengingu í aðsókn í skólann í kjölfar þessa að skólagjöld voru felld niður.
    Við fáum málfarsmínútu frá Önnu Sigríði Þráinsdóttur, málfarsráðunauti, og í lok þáttar heimsækjum við Þjóðskjalasafn Íslands. Fáum að kíkja í nokkrar skjalaöskjur og fletta gömlum heimildum um umfangsmikla undirskriftasöfnun Hins íslenska kvenfélags árið 1895.
    Tónlist:
    BENNI HEMM HEMM - Miklabraut.
    1 hr
  • Staðartengsl, einmitt og spellvirkjar úr dýraríkinu
    Hvernig tengjumst við stöðum og hvaða tök hafa þeir á okkur? Þetta hafa þjóðfræðingar við Háskóla Íslands rannsakað í nokkur ár í rannsóknarverkefni sem kallast aðdráttarafl arfleifðar og staðartengsl í borgarlandslagi, (ágætis tungubrjótur það). Þátttakendur í rannsókninni hafa spásserað um miðborg Reykjavíkur með upptökugleraugu á nefinu og talað um þær minningar og tilfinningar sem umhverfið, hvort sem það er hús, köttur eða gangstéttarhella vekur hjá þeim.Við ræðum við þau Ólaf Rastrick, prófessor í þjóðfræði og Snjólaugu Guðrúnu Jóhannesdóttur, doktorsnema.
    Við heyrum líka málfarsmínútu frá Önnu Sigríði Þráinsdóttur málfarsráðunauti, hún fjallar um einmitt, nákvæmlega og nefnilega.
    Svo ætlar Vera Illugadóttir að heiðra okkur með nærveru sinni. Umfjöllunarefni hennar er, sem fyrr, dýr og sérstaklega dýr sem hafa valdið spellvirkjum og jafnvel þurft að svara til saka fyrir óknytti.
    55 min
  • Rannsókn á áhrifum náms- og starfsvals á lífshamingju, Forbes-listinn og ríkukallafélagið, neytendaspjall - gjafabréf
    Hefur það sem við veljum að læra eða starfa við áhrif á velferð okkar og jafnvel lífshamingju? Skiptir máli að starfa við það sem við höfum ástríðu fyrir eða er það aukaatriði í stóra samhenginu. Sif Einarsdóttir, prófessor í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands, ætlar að ræða þetta við okkur en hún fer fyrir stóru alþjóðlegu rannsóknarverkefni, Eldar í iðrum, en markmið þess er að skilja betur hvaða þættir hafa áhrif á þróun starfsferils hjá fólki.
    Við ætlum að tala um Forbes-listann yfir ríkasta fólk í heimi. Kannski má kalla þetta ríkukallafélagið því þarna raða sér í öll efstu sætin mismiðaldra karlar sem flestir koma úr tæknibransanum. Ekki þó sá sem er í efsta sæti. Hann hefur safnað sínum fáránlega mikla auði með sölu lúxusmerkja; fatnaði, kampavíni, skartgripum og snyrtivörum. Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafi og höfundur bókarinnar Peningar, ætlar að renna yfir þennan lista með okkur.
    Og meira um peninga. Samfélagið frétti af manni sem var að taka til í skúffum og skápum þegar hann fann kassa með gjafabréfum. Þau voru öll útrunnin og verðmæti þeirra reyndist um 200 þúsund krónur. Við tölum um útrunnin gjafabréf, inneignarnótur og önnur verðmæti sem renna fólki úr greipum við Brynhildi Pétursdóttur framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna.
    Tónlist:
    EDISON LIGHTHOUSE - Love Grows (Where My Rosemary Goes).
    ELVIS PRESLEY - Return To Sender.
    59 min
  • Bruni í Kaupmannahöfn, HM í handbolta 2031, knepra og örplast
    Mikill eldur kom upp í sögufrægu húsi; gömlu kauphöllinni, Børsen, í Kaupmannahöfn í gær. Um helmingur byggingarinnar er sagður hafa brunnið til kaldra kola og ljóst að tjónið er gríðarlegt. Bæði efnislegt tjón en bruninn er líka vitaskuld mikið áfall fyrir Dani enda hefur þetta 400 ára gamla hús mikla þýðingu fyrir sögu þjóðarinnar. Viðbúnaður slökkviliðs var mikill og við sáum á myndum hvernig fólk þusti inn í bygginguna til að bjarga verðmætum. Málverkum, ljósakrónum og öðrum munum. Við ætlum að ræða þennan bruna út frá sjónarhóli slökkviliðsins, Vernharð Guðnason er deildarstjóri á aðgerðasviði Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins.
    Svo bárust fréttir af því í gær að HM í handbolta karla ætti að fara fram á Íslandi eftir sjö ár - árið 2031. Þetta eru mikil tíðindi fyrir íslenskar íþróttir og auðvitað handboltann sérstaklega. Það hefur komið fram að forsenda þess að þetta mót fari fram hér sé bygging nýrrar þjóðarhallar og flest sem bendir til þess að hún muni rísa. Það verður því mörg horn að líta hjá formanni HSÍ á næstu árum. Guðmundur B. Ólafsson ætlar að ræða þetta við okkur.
    Við heyrum málfarsmínútu og svo kemur Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjall í lok þáttar og ræðir nýjar rannsóknir á örplasti.
    59 min
  • Hönnun og mannréttindi, mannætubókmenntir og pistill frá Páli Líndal
    Við tölum um hönnun og samspil hönnunar og mannréttinda. Anna María Bogadóttir arkitekt ætlar að ræða þau mál í tengslum við Hönnunarmars sem hefst síðar í mánuðinum og þar sem hún heldur fyrirlestur á mannréttindamorgnum í Mannréttindahúsinu. Við tökum á móti Önnu Maríu hér á eftir og pælum meðal annars í hugtakinu algild hönnun.
    Mannætubókmenntir: um næringarfræði þýðinga - svona hljóðar yfirskrift erindis sem Gauti Kristmannsson, prófessor í þýðingarfræði við Háskóla Íslands, flytur í dag á fyrirlestri á vegum félags íslenskra fræða. Við ætlum að ræða við Gauta um listina að þýða texta úr einu tungumáli eða menningarheimi yfir í annan, velta fyrir okkur stöðu þýðinga og að hvaða leyti þýðingar geti talist mannát.
    Svo heyrum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi í lok þáttar.
    1 hr

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners