Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Lífsferill bygginga, barnamatur og pistill Páls Líndal
    Við ætlum að tala um það sem er kallað lífsferilsgreining bygginga en slík greining verður hluti af byggingarreglugerð þar sem mælt verður kolefnisspor mannvirkja yfir lífsskeið þeirra. Og nú er formlega hafið aðlögunartímabil vegna breytinganna sem taka gildi 1. September 2025 - eftir eitt og hálft ár. Það verður seint sagt að byggingareglugerðir séu einfaldar - þær eru mjög flóknar en við ætlum að ræða þessar tilteknu breytingar við tvo sérfræðinga í þessum málum hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun; Þóru Margréti Þorgeirsdóttur framkvæmdastjóra mannvirkja og sjálfbærni og Elínu Þórólfsdóttur, arkitekt og sérfræðing í vistvænni mannvirkjagerð.
    Í flestum verslunum er hægt að finna litríkt svæði með tilbúnum mat ætluðum börnum - kívískvísur, jarðarberja- og bananasnakk, maísmauk og grautarmjöl. Rannsóknir sýna að markaður með þennan mat er síkvikur - framboðið breytist ár frá ári og sykurmagnið - það eykst. Birna Þórisdóttir, lektor í næringarfræði við HÍ, hefur síðastliðin ár gert sér ferðir í verslanir og tekið út barnamatsganginn, talið vörur og skoðað innihaldslýsingar. Hún ræðir við okkur á eftir.
    Við heyrum svo pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi í lok þáttar.
    1 hr
  • Akureyrarborg, tölvuleikjaiðnaður, leppur og erfðabreytt svínsnýru
    Stjórnvöld stefna að því að innan skamms verði Akureyrarbær Akureyrarborg. Í samráðsgátt stjórnvalda liggur til umsagnar borgarstefna þar sem sjónum er beint að því að efla tvö borgarsvæði á Íslandi - Reykjavík, sem heldur velli sem höfuðborg, og Akureyri, sem yrði svæðisborg. Hugmyndir um Akureyrarborg eru ekki nýjar af nálinni - en fyrir nokkrum árum sat bæjarstjórinn, Ásthildur Sturludóttir, einmitt í starfshópi sem pældi í svæðisbundnu hlutverki Akureyrar og því hvað bær þyrfti að hafa til þess að geta kallast borg. Við ræðum við Ásthildi.
    Svo ætlum við að kynna okkur tölvuleiki og framleiðslu þeirra hér á landi. Tölvuleikjaiðnaðurinn er gríðarstór á heimsvísu, það er talið að umfang hans sé meira en kvikmyndir og tónlist samanlagt og stærstu leikjaframleiðendur heims velta milljörðum á milljarða ofan. Samtök leikjaframleiðanda á Íslandi voru stofnuð árið 2009, fyrirtækin innan þeirra samtaka eru um 20 og starfsmenn skipta hundruðum. Formaður samtakanna, Halldór Snær Kristjánsson ætlar að ræða við okkur íslenskan tölvuleikjaiðnað.
    Við heyrum málfarsmínútu og svo kemur Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjall. Hún ætlar að fjalla um aðgerð sem sagt var frá í fjölmiðlum nýverið þar sem erfðabreytt svínsnýra var grætt í mann.
    59 min
  • Framtíð Náttúruminjasafns Íslands, kostnaður við fermingar, málsháttaspjall
    Það hefur lengi verið beðið eftir að Náttúruminjasafn Íslands komist í sómasamlegt húsnæði og ýmis áform verið uppi. Núna er sýning safnsins Vatnið í náttúru Íslands hýst í Perlunni. Undanfarið hafa svo verið lögð drög að því að safnið fái hús á Seltjarnarnesi sem var byggt undir lækningaminjasafn með möguleika á stækkun og vonast var til að húsið væri tilbúið seinna á þessu ári. Í Morgunblaðinu í gær var svo sagt frá því að í bæjarstjórn Seltjarnarness hefði komið fram að það myndi ekki gerast fyrr en vorið 2026. Hilmar Malmquist forstöðumaður Náttúruminjasafnsins virtist yfir sig hissa á þessum tíðindum í viðtali um málið. Hann ræðir við okkur.
    Sálmabók, salur, áletraðar servíettur, fermingarföt, fermingargreiðsla, fermingarterta, jafnvel nammibar og myndakassi til að taka sjálfur - og ekki má gleyma fermingargjöfinni. Kostnaður við fermingar hleypur á mörg hundruð þúsundum - hvernig tekst tekjulágt fólk á við það? Við ræðum ferminguna sem stöðutákn við Laufeyju Líndal Ólafsdóttur, formann Pepp sem er grasrót fólks í fátækt á Íslandi.
    Páskar eru handan við hornið og hillur verslana svigna undan páskaeggjum af ýmsum stærðum og gerðum. Og í flestum þeirra leynast málshættir - sem mörgum finnst reyndar vera meira spennandi en nammið í eggjunum. Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur ræðir við okkur um málshætti.
    Tónlist:
    Hljómsveit Ingimars Eydal - Bara að hann hangi þurr.
    MUGISON - Góðan dag.
    55 min
  • Ólympíuleikar í nánd, loftslagsspjall, refaát á Patró
    Ólympíuleikarnir verða settir í París eftir 123 daga. Enn er óljóst hversu margir keppendur verða þar fyrir Íslands hönd en nokkrir eru líklegir og einn hefur þegar tryggt sér þátttökurétt. Vésteinn Hafsteinsson, afreksstjóri ÍSÍ og margfaldur Ólympíufari, sem keppandi og þjálfari, er bjartsýnn á að hópurinn verði fjölbreyttur. Hann hefur mikinn metnað fyrir hönd íslensks afreksíþróttafólks og telur að innan margra ára eigi Íslendingar að geta hampað gullverðlaunum á Ólympíuleikum. En til þess þarf að spýta í lófana á ýmsum vettvangi.
    Atlantshafið er miklu heitara en venjan er og hefur verið frá því í haust, þetta er einkennilegt, sérstaklega í ljósi þess að það er El Nino-ár, og El Nino-veðurfyrirbærið er vanalega bundið við Kyrrahafið. Við fáum Halldór Björnsson, sérfræðing á Veðurstofu Íslands, í loftslagsspjall eins og við höfum gert reglulega í vetur - meðal annars tölum við um hvernig árið 2024 fer af stað og hvort ítrekuð hitamet séu hætt að koma vísindamönnum á óvart.
    Við heyrum málfarsmínútu og rifjum svo upp gamla upptöku úr safni RÚV. Að þessu sinni eru það frásagnir af matarveislum á Patreksfirði í desember árin 1995 og 1996 þar sem refakjöt var á boðstólnum.
    Tónlist:
    Erla Stefánsdóttir, Póló og Erla - Lóan er komin.
    COMMODORES - Easy.
    1 hr
  • Gasmengun frá gosinu, snjallvæðing íþrótta, málfar og dýr í geimnum
    Útlit er fyrir að brennisteinsdíoxíðsmengun frá elgosinu á Reykjanesskaga nái til meginlands Evrópu, jafnvel Rússlands. Í fyrradag var starfsmaður Bláa lónsins fluttur á sjúkrahús vegna gaseitrunar og Vinnueftirlitið hefur beðið fyrirtæki á svæðinu að yfirfara áhættumat og tryggja öryggi starfsfólks, til dæmis með gasmælum. Það hefur verið töluverð mengun frá þessu gosi en þó ekki jafn mikil og bilaður mengunarmælir í Garði sýndi í fyrradag. Við ræðum mengunina frá gosinu við Þorstein Jóhannsson, sérfræðing í loftgæðamálum hjá Umhverfisstofnun.
    Við tölum um nýjustu tækni og íþróttir og hvernig tæknin er að breyta þjálfun og keppni. Nú eru alls kyns tæki og tól hengd á íþróttafólk til að safna gögnum um ástand þess og frammistöðu. Myndavélar eru notaðar til að greina öll smáatriði og meira að segja boltarnir í boltaíþróttum eru snjallboltar. Harald Pétursson er sérfræðingur í þessum málum.
    Málfarsmínúta - aukafrumlagið það.
    Dýraspjall með Veru Illugadóttur - geimferðir dýra í tímans rás.
    59 min
  • Skemmtiferðaskipin koma, háskólamál - fleiri með gráðu en færri af þeim sem byrja útskrifast, nemendur GRÓ-skólanna hittast í Kampala í Úganda
    Fyrsta skemmtiferðaskip þessa árs lagðist að bryggju við Skarfabakka í Reykjavík í morgun. Og það eru um 90 önnur á leiðinni í hátt í 260 ferðum. Þeim fylgja hundruð þúsunda farþega. Sigurður Jökull Ólafsson markaðsstjóri Faxaflóahafna ætlar að ræða við okkur á eftir um komur skemmtiferðaskipa til Reykjavíkur og segja okkur frá nýrri farþegamiðstöð sem brátt mun rísa á Skarfabakka.
    Hagstofa Íslands birti á dögunum tölur sem sýna að brautskráningar meistaranema náðu nýjum hæðum á árunum 2021 - 2022. Fleiri geta veifað háskólagráðu en á sama tíma fjölgar í hópi þeirra sem hefja háskólanám en hafa - að tíu árum liðnum ekki útskrifast - eru lengi á leiðinni að markinu eða ná því aldrei. Við ætlum að ræða brautskráningar, lokaritgerðir, reiknilíkön og fleira við Jón Atla Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.
    Við förum svo til Úganda en í áratugi hefur sérfræðingum frá þróunarlöndum verið boðið að koma til Íslands til að læra og nema innan GRÓ skólanna svokölluðu. Það eru Jarðhitaskólinn, Sjávarútvegsskólinn, Landgræðsluskólinn og Jafnréttisskólinn. Nýverið komu nemendur skólanna í Úganda saman í Kampala til að tengjast betur svo sérfræðiþekking þeirra nýtist enn betur til framþróunar og uppbyggingar innanlands. Fulltrúi Samfélagsins, Þórhildur Ólafsdóttir, leit við á fundinum og ræddi við Þór Heiðar Ásgeirsson, forstöðumann Sjávarútvegsskólans.
    1 hr
  • Orkumálastjóri, matarprentun, málfarsmínúta og afnæming mjólkurofnæmis
    Við ætlum að ræða orku- og auðlindamálin við Höllu Hrund Logadóttur, orkumálastjóra, og það er af mörgu að taka. Við ræðum aukna ásókn erlendra fyrirtækja í íslenska orku og auðlindir - en Halla telur brýnt að endurskoða lög og reglur til að tryggja þjóðaröryggi og hagsmuni komandi kynslóða. Við ræðum líka orkuskiptin en ýmsir hafa undanfarið viðrað miklar efasemdir um að markmið stjórnvalda um orkuskipti og kolefnishlutleysi fyrir árið 2040 náist. Loks forvitnumst við aðeins um ráðstafanir sem er verið að gera til að tryggja heitavatnsöryggi á Suðurnesjum á hamfaratímum.
    Svo fræðumst við um verkefni sem snýst um þrívíddarprentun á matvælum og hvernig tæknin getur nýst við að fullnýta hráefni eins og afskurð sem fellur til í fiskvinnslu. Tölum við Maríu Guðjónsdóttur prófessor í matvælafræði um það.
    Við heyrum málfarsmínútu og í lok þáttar kemur Edda Olgudóttir í vísindaspjall.
    Tónlist:
    Moses Hightower - Alltígóðulagi.
    John Lennon - Watching The Wheels.
    Bjartmar og Bergrisarnir - Pening.
    58 min
  • Rammáætlun endurskoðuð, Arnar Páll á þöglu ströndinni, málfar og pistill frá Páli Líndal
    Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra stofnaði á dögunum starfshóp sem á að endurskoða hlutverk rammaáætlunar - þess ferlis sem á að meta heildrænt og með langtímahagsmuni að leiðarljósi, hvað á að vernda, hvað á að virkja og hvað á að skoða betur. Hópurinn á að leggja fram tillögur að einfaldara og skilvirkara regluverki og á grundvelli þeirra tillagna hyggst ráðherra leggja fram frumvarp að nýjum lögum - Ekki síðar en á næsta löggjafarþingi. Í morgun fór fram málstofa þar sem fólk ræddi ólík sjónarmið, kosti en þó einkum galla rammaáætlunar, bæði stjórntækisins sjálfs og það hvernig því hefur verið beitt. Kolbeinn Óttarsson Proppé, ætlar að ræða við okkur um rammaáætlun. Hann á sæti í starfshópnum.
    Við símum til Tenerife. Þar er núna glampandi sól og 25 stiga hiti. Og í þessari ferðamannaparadís er Arnar Páll Hauksson, fyrrverandi fréttamaður hér á RÚV til áratuga og ritstjóri Spegilsins. Og hann situr ekki auðum höndum heldur starfar hann nú sem sjálfboðaliði og tekur þátt í stóru hreinsunarverkefni sem hann ætlar að segja okkur betur frá.
    Málfarsmínúta - orðið það.
    Páll Líndal, umhverfissálfræðingur, á sínum stað með pistil.
    Tónlist:
    DIONNE WARWICK - I'll Never Fall In Love Again.
    RAGNHEIÐUR GRÖNDAL - Don't Wake Me Up.
    1 hr
  • Hrossatað og nýsköpun, Jarðvísindastofnun HÍ greinir hraunið, rætt um forvörslu á Þjóðskjalasafni
    Við ætlum að forvitnast um nýsköpun og sprota. Klak er félag í eigu Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Origo, Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins. Hlutverk KLAK er að stækka og styðja við samfélag frumkvöðla á Íslandi með það að markmiði að fjölga sprotafyrirtækjum. Og það eru ýmsar leiðir til þess. Meðal annars svokallaðir viðskiptahraðlar. Einn slíkur er kallaður Hringiða og þar er lögð áhersla á að draga fram, efla og styðja við græn Og svo fórum við í heimsókn á þjóðskjalasafn íslannýsköpunarverkefni á frumstigi. Níu sprotafyrirtæki taka þátt í Hringiðu árið 2024 og þar á meðal er Í djúpum sem vinnur að því að hagnýta hrossatað. Begga Rist fer því verkefni, hún ræðir við okkur ásamt Jennu Björk Guðmundsdóttur, verkefnastjóra Hringiðu.
    Við lítum við á rannsóknarstofu Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands og spjöllum við þau Olgeir Sigmarsson, jarðvísindamann, og Rebekku Hlín Rúnarsdóttur, tæknimann. Þau voru í óðaönn við að greina glæný hraunsýni sem tekin voru við hraunjaðarinn ofan Suðurstrandarvegar í gær.
    Heimsókn á Þjóðskjalasafn. Karen Sigurkarlsdóttir, forvörður á Þjóðskjalasafninu, fræðir okkur um forvörslu og sýnir okkur uppdrætti af reykvískum lóðum frá miðri nítjándu öld.
    1 hr
  • Saltfisksherferð, geimtilraunir SpaceX, málfar og Dýraþjónusta Reykjavíkur
    Við ræðum um saltfisk við Kolbrúnu Sveinsdóttur, verkefnastjóra hjá Matís - er lífið enn saltfiskur? Fiskneysla hefur dregist verulega saman svo að kannski er það ekki raunin en Kolbrúnu dreymir um að þessari afurð verði hampað í meiri mæli og að gómsætir saltfisksréttir verði á hvers manns borði, reglulega. Við ætlum að ræða fiskneyslu við Kolbrúnu og aðgerðir Matís og fleiri fyrirtækja til að auka hana.
    Space X skaut í gær á loft Starship geimfari sínu. Þetta er stórt og mikið ferlíki, 120 metrar að lengd og þótti skotið heppnast með ágætum þó enn þurfi að sníða af einhverja vankanta. Sævar Helgi Bragason ætlar að segja okkur betur frá þessu.
    Eins og stundum á föstudögum verðum við með dýraspjall. Að þessu sinni heimsækjum við Dýraþjónustu Reykjavíkur í Húsdýragarðinum, skoðum nokkra fugla sem eiga þar athvarf og tölum við Þorkel Heiðarsson, deildarstjóra.
    Tónlist:
    Bubbi Morthens & Stórsveit Reykjavíkur - Ísbjarnarblús.
    Allra meina bót - Mamma gefðu mér grásleppu.
    1 hr

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners