Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Sálræn áhrif hörmunganna á Gaza, Reykjavíkurskákmót, umhverfispistill
    Við ætlum að ræða hvaða áhrif eyðilegging, endurtekinn missir, ótti, matarskortur og linnulausar árásir hafa á andlega líðan fólks, bæði í núinu og til frambúðar - einkum í samhengi við yfirstandandi árásir ísraelshers á Gaza þar sem almenningur býr við hörmulegar aðstæður en líka áhrifin á heimsbyggðina sem stendur á hliðarlínunni með snjallsímann og getur fylgst með öllu á samfélagsmiðlum í nær rauntíma. Helena Jónsdóttir, sálfræðingur sem starfað hefur fyrir samtök Lækna án landamæra, ræðir þetta við okkur, en hún hefur meðal annars starfað í Afganistan, Jemen og Suður-Súdan.
    Reykjavíkurskákmótið verður sett í Hörpu á morgun og stendur yfir helgina. Þátttakendur skipta hundruðum og þar á meðal eru skákáhrifavaldar sem senda út beint streymi frá mótinu. Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands, segir okkur frá þessu.
    Endurfluttur umhverfispistill frá Stefáni Gíslasyni, umhverfisstjórnunarfræðingi: „Á ég að gera það?“
    1 hr
  • Landsþing Samtakanna 78, Grænþreyta hjá almenningi og vísindaspjall
    Þróun dragsenunnar á Íslandi, saga tvíkynhneigðra og áhrif HIV á kynslóðir homma, tví- og pankynhneigðra karla - þetta og margt fleira mátti fræðast um á Landsþingi Samtakanna 78 sem fór fram um helgina og á föstudegi var aðalfundur samtakanna þar sem kjörin var ný stjórn. Við ræðum við Bjarndísi Helgu Tómasdóttur nýjan formann um þingið og stöðu hinsegin samfélagsins almennt.
    Það færist í aukana að fólk treysti ekki fullyrðingum fyrirtækja um að hin eða þessi vara sé græn, kolefnishlutlaus eða umhverfisvæn. Talað er um grænþvott og græna þreytu. Þær Birgitta Stefánsdóttir og Birgitta Steingrímsdóttir, sérfræðingar í teymi hringrásarhagkerfis hjá Umhverfisstofnun, ætla að ræða við okkur um grænþreytumerki sem farið er að bera á hjá almenningi og hvað sé til ráða.
    Edda Olgudóttir kemur svo til okkar í vísindaspjall um frjósemi.
    Tónlist:
    George Michael feat. Paul McCartney - Heal The Pain.
    LAUFEY - Street by street.
    1 hr
  • Svifryk, vetrarfuglatalning og neytendaspjall
    Í gær var hægur vindur á höfuðborgarsvæðinu, snjóinn hafði tekið upp, göturnar þurrar og eftir hádegi barst tilkynning frá Reykjavíkurborg - styrkur svifryks mældist hár víða um borgina og fólk beðið að draga úr akstri einkabílsins, taka strætó . Við ætlum að ræða svifryk, orsakir þess, áhrif og mögulegar aðgerðir við Svövu S. Steinarsdóttur, heilbrigðisfulltrúa hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkurborgar.
    Náttúrufræðistofnun Íslands hefur tekið saman niðurstöður úr árlegri vetrarfuglatalningu. Í þessari talningu sem fór fram í janúar, sáust hátt í 170 þúsund fuglar af meira en 80 tegundum. Sumir fuglar koma fyrir í tugþúsundatali en aðrir bara einu sinni - eins og grákráka og blessuð heiðlóan. Svenja Auhage fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun hefur umsjón með þessum rannsóknum og segir okkur frá þeim.
    Neytendaspjall við Brynhildi Pétursdóttur, framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna. Við ætlum að ræða fjallabaksleið sem fólk virðist stundum fara þegar það vill fá bætur vegna þess að flugferð sem það átti bókaða var seinkað eða henni aflýst.
    Tónlist:
    DAMIEN RICE - Volcano (Radio Edit 2004).
    Rocky trail - Kings of convenience.
    1 hr
  • Hjálparstarf í Kampala, umbúðamál hjá Kóka kóla, málfar og gamalt skíðamót
    Við heimsækjum Kampala höfuðborg Úganda í þætti dagsins en fyrir skemmstu heimsótti starfsfólk Hjálparstarfs kirkjunnar landið til að skoða verkefni sem þar eru rekin fyrir framlög frá Hjálparstarfinu og íslenska ríkinu. Hluti verkefnanna í Úganda snýst um að valdefla ungmenni sem flykkjast úr sveitum landsins til höfuðborgarinnar í leit að betra lífi, en þeim mætir því miður oft misnotkun, eymd og verri aðstæður en þau fóru frá. Með því að bjóða upp á þjálfun í ýmsum starfsgreinum er hægt bæta atvinnumöguleika þeirra og lífsskilyrði til muna. Við fræðumst um verkefnið og sögur ungmennanna sem það beinist að. Og það er Þórhildur okkar Ólafsdóttir sem fjallar um þessi mál.
    Við kynnumst áherslum Kóka kóla á Íslandi í umbúðamálum og röltum um framleiðslusalinn við Stuðlaháls með Önnu Regínu Björnsdóttur forstjóra. Þær plastflöskur sem eru framleiddar á vegum fyrirtækisins hér eru úr 100% endurunnu plasti - sem er vel umfram kröfur í umbúðaregluverki ESB.
    Við heyrum eina málfarsmínútu og svo kemur Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV til okkar og rifjar upp brot úr safninu.
    Tónlist:
    BRUCE SPRINGSTEEN - Working on a Dream.
    Righteous Brothers - You've lost that lovin' feeling.
    1 hr
  • Falsaðar raddupptökur og gervigreind, ný umbúðareglugerð ESB drepur litla sjampóbrúsa, málfar.
    Nýlega fór í dreifingu fölsuð upptaka af borgarstjóra Lundúna sem olli talsverðu uppnámi. Þar heyrðist rödd hans tala um að göngur mótmælenda sem eru hliðhollir málstað Palestínu, sem fyrirhugaðar voru á minningardegi um lok fyrri heimsstyrjaldarinnar, ættu að njóta forgangs umfram aðra viðburði. Hann réði yfir lögreglunni í Lundúnum og hún gerði eins og hann skipaði. En borgarstjórinn sagði þetta aldrei og engin leynileg upptaka hafði verið gerð. Rödd borgarstjórans hafði verið fölsuð með gervigreind. Nokkuð sem er að verða æ algengara, auðveldara og raunverulegra. Það má telja líklegt að slíkar falsanir á hljóði, myndum og jafnvel myndskeiðum verði mjög áberandi nú þegar styttist í forsetakosningar í Bandaríkjunum. Við ætlum að ræða þetta við Hjálmar Gíslason framkvæmdastjóra Grid og áhugamann um þróun gervigreindar.
    Litlu plastöskjurnar utan um smjör eða sultu, pínulitlir hótelsjampóbrúsar, falskir botnar - innan skamms verður þetta allt bannað - það er þegar ný umbúðareglugerð Evrópusambandsins - sem nú er langt komin - verður að veruleika. Við ætlum að ræða við Birgittu Stefánsdóttur, sérfræðing í teymi hringrásarhagkerfis hjá Umhverfisstofnun um framtíð plastumbúða, hvort hér verði settar upp flöskuþvottastöðvar og um sykurreyrsboxin sem eiginlega bara hurfu.
    55 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners