Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Veðurskeytastöðvar á hverfanda hveli, heilbrigðisstarfsfólk um nikótínpúða, umhverfispistill - vistkjöt
    Samfélagið fjallaði á þriðjudag um markaðssigur nikótínpúðanna á Íslandi Þriðjungur karla undir 35 ára aldri notar púðana daglega og fimmtungur ungra kvenna. Púðarnir hafa nánast jarðað íslenska neftóbakið og það sem meira er, þeir hafa hafið innreið sína í grunnskólana. Við ætlum að ræða við Viðar Jensson, sem sinnir tóbaksvörnum hjá Embætti landlæknis og Láru G. Sigurðardóttur, lækni og doktor í lýðheilsuvísindum og spyrja, Er þetta skaðlegt? Er þetta kannski að einhverju leyti jákvætt? Hvað vitum við í raun? Við tölum um veðrið. Með nýrri tækni og aukinni sjálfvirkni hefur mönnuðum veðurskeytastöðvum fækkað mikið undanfarin ár. Það fer að verða liðin tíð að fólk dúði sig í öllum veðrum, lesi á mæla, horfi til himins og skrifi ályktanir sínar í stílabók sem svo eru sendar sem veðurskeyti til Veðurstofu Íslands. Við tölum um veðurathuganir í fortíð, nútíð og kannski framtíð, við Guðrúnu Nínu Petersen veðurfræðing. Pistill frá ungum umhverfissinna; Natalía Reynisdóttir fjallar um svokallað vistkjöt.
    1 hr
  • Vannærð börn á Gaza, vegamál og upplýsingatækni, málfar og vísindaspjall
    Við sáum og heyrðum fréttir í gær af skelfilegu ástandi á Gaza þar sem komið hefur í ljós að hlutfall vannærðra barna hefur stóraukist undanfarið. 1 af hverjum 6 börnum undir tveggja ára í norðurhluta Gaza glímir við bráðavannæringu eins og það er orðað. Við ætlum að ræða þessi mál við Birnu Þórarinsdóttur framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi.
    Við ætlum líka að tala um eftirlit með vegum landsins, umferð, hraða og færð og hvernig tæknin hefur stórbætt aðgengi að upplýsingum. Bergþóra Kristinsdóttir framkvæmdastjóri þjónustusviðs Vegagerðarinnar ræðir við okkur.
    Við heyrum eina málfarsmínútu í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur og svo kemur Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjall.
    59 min
  • Fagfélag um mengun, markaðssigur nikótínpúðanna, málfarsspjall um hraðberg, mjalla og fleiri orð
    Við fáum að heyra allt um nýstofnað fagfélag um mengun á Íslandi - FUMÍS. Félagið einbeitir sér að mengun í jarðvegi og vatni og vill stuðla að aukinni þekkingu á góðum og vönduðum vinnubrögðum í þeim málum. Formaður félagsins Erla Guðrún Hafsteinsdóttir ræðir við okkur. Nikótínpúðar hafa á örfáum árum náð mikilli útbreiðslu og nú er svo komið að stór hluti ungs fólks notar þá að staðaldri - hafa gömlu tóbaksrisarnir aftur náð traustataki á almenningi? Við ræðum við Auði Hermannsdóttur, aðjúnkt við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, um markaðssigur nikótínpúðanna. Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur RÚV, kemur til okkar í málfarsspjall um orð sem einungis eru notuð í einu samhengi t.d. mjalla, hraðberg og harðbakkann sem í slær.
    59 min
  • Fagfélag um mengum, markaðssigur nikótínpúða og málfarsspjall
    Við fáum að heyra allt um nýstofnað fagfélag um mengun á Íslandi - FUMÍS. Félagið einbeitir sér að mengun í jarðvegi og vatni og vill stuðla að aukinni þekkingu á góðum og vönduðum vinnubrögðum í þeim málum. Formaður félagsins Erla Guðrún Hafsteinsdóttir ætlar að ræða við okkur á eftir.
    Nikótínpúðar hafa á örfáum árum náð mikilli útbreiðslu og nú er svo komið að stór hluti ungs fólks notar þá að staðaldri - hafa gömlu tóbaksrisarnir aftur náð traustataki á almenningi? Við ræðum við Auði Hermannsdóttur, aðjúnkt við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, um markaðssigur nikótínpúðanna.
    Svo kemur Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur RÚV til okkar í málfarsspjall.
    59 min
  • Stefna um móttöku skemmtiferðaskipa, „leikskólavandinn“ í fjölmiðlum, málfar og Graf Zeppelin.
    Það koma hátt í 200 þúsund farþegar með skemmtiferðaskipum til Ísafjarðar á þessu ári. Sem hlýtur að teljast ansi mikill fjöldi en í Ísafjarðarbæ búa um fjögur þúsund manns. Nú hefur Ísafjarðarbær unnið að gerð stefnu um móttöku skemmtiferðaskipa og kallar eftir athugasemdum vegna hennar á vef sínum. Samfélagið mælti sér mót við hafnarstjórann Hilmar K. Lyngmo og ræddi þessi mál við hann.
    Greining á fjölmiðlaumfjöllun um leikskóla á árunum 2020–2023 gefur skýrt til kynna að hart er tekist á um framtíð leikskólakerfisins á Íslandi.
    Við ætlum að fjalla um leikskóla, umönnunarbilið, heimgreiðslur og mammviskubit. Sunna Símonardóttir, nýdoktor og aðjúnkt í félagsfræði við Háskóla Íslands, kemur til okkar en hún hefur undanfarið greint umfjöllun fjölmiðla um leikskólavandann svokallaða.
    Við heimsækjum líka Þjóðskjalasafn Íslands og ræðum þar við Hans Hreinsson skjalavörð um stórt verkefni sem hann er að vinna í þessa dagana. Póstsendingar með loftskipinu Graf Zeppelin koma þar við sögu meðal annars.
    Tónlist:
    KK OG MAGNÚS EIRÍKSSON - Hudson Bay.
    Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
    1 hr
  • Trjágróður á Akureyri, Ívar gröfukall á Flateyri og flóðsvín í heitum laugum
    Samfélagið sendir út frá þremur stöðum á landinu. Frá Efstaleiti þar sem Jón Þór Helgason tæknimaður situr, frá Flateyri þar sem Guðmundur Pálsson er og frá Akureyri - þar er Arnhildur Hálfdánardóttir.
    Og efni þáttarins kemur líka úr þremur áttum. Við byrjum á Akureyri, þar er skýjað, kalt og frekar stillt, vettlingaveður og við ætlum að tala um tré. Akureyri er stundum kölluð bærinn í skóginum og það eru mörg gömul og tignarleg tré sem setja mark sitt á bæinn. Sniðgötubirkið, Þríforkslerkið við Bjarmastíg, Asparrisinn við Oddeyrargötu svona svo dæmi séu nefnd. Við förum í gönguferð um Akureyri með Bergsveini Þórssyni, garðyrkju- og skógfræðingi, ræðum um einstök tré, eðli trjáa og framtíðina - en tré verða víst ekki eilíf - og við spyrjum: Verður enn gróðursælt á Akureyri eftir 30 ár?
    Og á Flateyri er heiðskírt og logn og 3-4 stiga frost. Afskaplega fallegt veður. Og það er snjór yfir öllu. En það sem umsjónarmönnum Samfélagsins finnst umtalsverður snjór þykir Ívari gröfukalli, sem sinnir snjómokstri á Flateyri varla vera neitt neitt. Hann er stöðugt á ferðinni að halda götunum hreinum og við reynum að grípa hann.
    Svo eru það íþróttir í lok þáttar. Vera Illugadóttir ætlar að segja okkur frá nýafstaðinni keppni í Japan. Keppni sem margir hlustendur hafa eflaust beðið spenntir eftir að fá fréttir af. Það er keppni í þaulsetu flóðsvína í heitri laug.
    59 min
  • Samfélagið sendir út frá þremur stöðum á landinu. Frá Efstaleiti þar sem Jón Þór Helgason tæknimaður situr, frá Flateyri þar sem Guðmundur Pálsson er og frá Akureyri - þar er Arnhildur Hálfdánardóttir. Og efni þáttarins kemur líka úr þremur áttum. Við byrjum á Akureyri, þar er skýjað, kalt og frekar stillt, vettlingaveður og við ætlum að tala um tré. Akureyri er stundum kölluð bærinn í skóginum og það eru mörg gömul og tignarleg tré sem setja mark sitt á bæinn. Sniðgötubirkið, Þríforkslerkið við Bjarmastíg, Asparrisinn við Oddeyrargötu svona svo dæmi séu nefnd. Við förum í gönguferð um Akureyri með Bergsveini Þórssyni, garðyrkju- og skógfræðingi, ræðum um einstök tré, eðli trjáa og framtíðina - en tré verða víst ekki eilíf - og við spyrjum: Verður enn gróðursælt á Akureyri eftir 30 ár? Og á Flateyri er heiðskírt og logn og 3-4 stiga frost. Afskaplega fallegt veður. Og það er snjór yfir öllu. En það sem umsjónarmönnum Samfélagsins finnst umtalsverður snjór þykir Ívari gröfukalli, sem sinnir snjómokstri á Flateyri varla vera neitt neitt. Hann er stöðugt á ferðinni að halda götunum hreinum og við reynum að grípa hann. Svo eru það íþróttir í lok þáttar. Vera Illugadóttir ætlar að segja okkur frá nýafstaðinni keppni í Japan. Keppni sem margir hlustendur hafa eflaust beðið spenntir eftir að fá fréttir af. Það er keppni í þaulsetu flóðsvína í heitri laug.
    55 min
  • Samfélagið sendir út frá þremur stöðum á landinu. Frá Efstaleiti þar sem Jón Þór Helgason tæknimaður situr, frá Flateyri þar sem Guðmundur Pálsson er og frá Akureyri - þar er Arnhildur Hálfdánardóttir. Og efni þáttarins kemur líka úr þremur áttum. Við byrjum á Akureyri, þar er skýjað, kalt og frekar stillt, vettlingaveður og við ætlum að tala um tré. Akureyri er stundum kölluð bærinn í skóginum og það eru mörg gömul og tignarleg tré sem setja mark sitt á bæinn. Sniðgötubirkið, Þríforkslerkið við Bjarmastíg, Asparrisinn við Oddeyrargötu svona svo dæmi séu nefnd. Við förum í gönguferð um Akureyri með Bergsveini Þórssyni, garðyrkju- og skógfræðingi, ræðum um einstök tré, eðli trjáa og framtíðina - en tré verða víst ekki eilíf - og við spyrjum: Verður enn gróðursælt á Akureyri eftir 30 ár? Og á Flateyri er heiðskírt og logn og 3-4 stiga frost. Afskaplega fallegt veður. Og það er snjór yfir öllu. En það sem umsjónarmönnum Samfélagsins finnst umtalsverður snjór þykir Ívari gröfukalli, sem sinnir snjómokstri á Flateyri varla vera neitt neitt. Hann er stöðugt á ferðinni að halda götunum hreinum og við reynum að grípa hann. Svo eru það íþróttir í lok þáttar. Vera Illugadóttir ætlar að segja okkur frá nýafstaðinni keppni í Japan. Keppni sem margir hlustendur hafa eflaust beðið spenntir eftir að fá fréttir af. Það er keppni í þaulsetu flóðsvína í heitri laug.
    59 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners