Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Aldurstakmarkanir í lögum, undirbúningur landtengingar við Reykjavíkurhöfn, umhverfispistill
    Baldur S. Blöndal, lögfræðingur, varð nýlega 25 ára og má því taka að sér hlutverk skiptastjóra þrotabús. Það eru hins vegar tíu ár í að hann megi gera atlögu að því að verða hæstaréttardómari. Baldur hefur í gegnum tíðina svarað ýmsum spurningum á Vísindavefnum, meðal annars um aldurstakmarkanir í lögum. Við ræðum við hann hér á eftir en næstu daga ætlum við að fjalla um aldur og þá helst aldurstakmarkanir, hvernig þær birtast í lögum og víðar og hvort þær eigi rétt á sér.
    Við kynnum okkur framkvæmdir við Reykjavíkurhöfn þar sem er verið að undirbúa frekari landtengingar á rafmagni fyrir skemmtiferðaskip. Þar á líka að bjóða tengingar á heitu vatni og innleiða snjalllausnir. Sigurður Jökull Ólafsson markaðsstjóri Faxaflóahafna hittir okkur um borð í dráttarbátnum Magna sem liggur við Austurbakka.
    Pistill frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi.
    Tónlist:
    James Taylor - Country Road.
    Kings of convenience - Rocky Trail
    1 hr
  • Opið samtal, íðorðabankinn, málfar og þorrablót í heita pottinum
    Við ætlum að ræða um lýðræði, umræðuhefð og samtöl. Borgarbókasafnið hefur í nokkur ár boðað til Opins samtals um ýmis málefni, fólk getur þá komið og speglað sig í samborgurum sínum og rætt málin. Dögg Sigmarsdóttir, verkefnastjóri Borgaralegrar þátttöku á Borgarbókasafninu, ætlar að ræða þetta fyrirbæri, opið samtal, við okkur hér rétt á eftir.
    Við kynnum okkur Íðorðbanka Árnastofnunar en hlutverk hans er meðal annars að safna fræðiheitum og sameina þau þannig að ekki séu á kreiki mörg heiti um sama fyrirbærið. Og í bankanum eru um áttatíu orðasöfn, þar á meðal nýjasta safnið, sem er íðorðasafn í efnafræði. Við ræðum íðorð við Ágústu Þorbergsdóttur ritstjóra íðorðabankans.
    Við heyrum málfarsmínútu og svo skellum við okkur á Þorrablót, og það ekkert venjulegt þorrablót. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV rifjar upp sögulegt þorrablót sem fór fram á óvenjulegum stað,í heita pottinum í Laugardalslaug.
    1 hr
  • Heimsókn í höfuðstöðvar Orkuveitunnar, Sjálfbærniráðstefna Festu, dýraspjall
    Við heimsækjum höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur. Þar hafa sem kunnugt er staðið yfir mjög umfangsmiklar framkvæmdir vegna alvarlegs galla í húsinu og skemmda vegna leka. Einn möguleiki var hreinlega að rífa húsið en ákveðið var að ráðast í að fjarlægja útveggi hússins, rétta það af og endurbyggja veggina. Nú eru þessar framkvæmdir í fullum gangi og stefnt að því að taka húsið í notkun í byrjun næsta árs.
    Festa, miðstöð um sjálfbærni, hélt í gær stóra ráðstefnu, sem bar yfirskriftina við skrifum mannkynssöguna. Þar ræddu fulltrúar fyrirtækja um sjálfbærni og áskoranir henni tengdar. Sandrine Dixson Decleve, forseti Rómarklúbbsins, félagasamtaka sem hafa frá árinu 1968 krufið heimsmálin, ávarpaði ráðstefnuna og sagði hagvöxt ekki þjóna mannkyninu og að hagkerfi sem tryggði ríkasta eina prósentinu nær tvöfalt meira en öllum hinum væri slæmt fyrir atvinnulífið og samfélagið. Elva Rakel Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Festu verður á línunni hjá okkur, og ræðir ráðstefnuna hér á eftir.
    Dýraspjall með Veru Illugadóttur. Rottusjálfur.
    Tónlist:
    Svavar Knútur - Janúar.
    THE POLICE - De do do do, de da da da.
    1 hr
  • Nýsköpun í kirkjugörðum, engin loðna, umhverfispistill Stefáns Gíslasonar
    Þegar rætt er um kirkjugarða eru nýsköpun, ratleikir og partístand kannski ekki það fyrsta sem kemur upp í huga fólks - en það er heilmikil nýsköpun sem á sér stað í kirkjugörðum um allan heim, straumar og stefnur. Við ræðum við Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóra Kirkjugarða Reykja­vík­ur­pró­fast­dæma, meðal annars um þéttingu byggðar í görðunum og QR-kóða sem bráðlega verða settir á grafir í Kópavogi.
    Niðurstöður nýliðins rannsóknarleiðangurs þar sem þess var freistað að mæla magn loðnu við Ísland gefur ekki tilefni til að breyta fyrri ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um engar loðnuveiðar á þessari vertíð. Lítið mældist og sterkar líkur eru á því að loðna sé enn undir hafísnum norðvestur af Íslandi. Við ætlum að tala um loðnu við Birki Bárðarson fiskifræðing sem stýrði leiðangrinum.
    Umhverfispistill frá Stefáni Gíslasyni - Hver á að gera það? Er það Indriði?
    Tónlist:
    Dansa på min grav - Bo Kaspers Orkester
    53 min
  • Gervigreind í heilbrigðiskerfinu, hvalir í Hafnafjarðarhöfn, málfar og vísindaspjall
    Fjórða iðnbyltingin er hafin og gervigreindin er farin að létta undir með ýmsum starfsstéttum, taka að sér að greina gögn, flokka þau og jafnvel spá fyrir um framtíðina. Nýlega hafa fræðimenn rannsakað hvernig gervigreindin getur nýst til að styrkja starfsemi heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Niðurstöðurnar benda til þess að gervigreindin geti stórminnkað álag á heilbrigðisstarfsfólk, jafnvel dregið úr kulnun - en hvað um sjúklingana? Við ræðum þetta allt við Steindór Ellertsson, sérnámslækni og doktorsnema við HÍ, sem komið hefur að þessum rannsóknum ásamt fleirum.
    Hnúfubakur hefur gert sig heimakominn í Hafnarfjarðarhöfn undanfarið, mörgum til gleði og skemmtunar. Það hafa til dæmis birst ófá myndskeið og ljósmyndir á samfélagsmiðlum af hvalnum að busla í höfninni. Það sama gerðist í febrúar á síðasta ári og vakti mikla athygli. Við ætlum að rifja upp viðtal sem við tókum þá við Eddu Elísabetu Magnúsdóttur hvalasérfræðing á hafnarbakkanum.
    Málfarsmínúta.
    Edda Olgudóttir ræðir um mRNA.
    Tónlist:
    LAUFEY - Falling Behind.
    Una Torfadóttir - En.
    1 hr
  • Smáfuglar, uglur og fjármálalæsi í aðalnámskrá
    Samtök fjármálafyrirtækja berjast fyrir því að fjármálalæsi verði gert að skyldufagi í grunnskólum landsins, en nýleg Gallup-könnun sýnir að fjármálalæsi Íslendinga er verulega ábótavant og grunnhugtök vefjast fyrir fólki. Við ræddum við framkvæmdastjóra Samtaka fjármálafyrirtækja í Samfélaginu í gær en samtökin halda úti fræðsluvefnum Fjármálavit.is og hafa séð áhugasömum kennurum fyrir námsefni. En hvernig er þessari fræðslu háttað í skólunum í dag? Hvað segir aðalnámskráin? Hvað er mögulegt að gera? Við ræðum þetta við verkefnastjóra hjá Menntamálastofnun.
    Við ætlum að tala um fugla í Samfélaginu í dag. Fyrst um uglur. Gunnar Þór Hallgrímsson, prófessor í dýrafræði við Háskóla Íslands rannsakar þá tiltölulega sjaldgæfu fuglategund, að manni finnst - að minnsta kosti sjáum við sjaldan uglur. Gunnar fræðir okkur um þær á eftir.
    Smáfuglarnir eru mörgum ofarlega í huga þegar frost og snjór einkenna veðrið og eflaust margir hlustendur Samfélagsins sem gefa þeim eitthvað gott í gogginn þessa dagana. Um næstu helgi efnir Fuglavernd til garðfuglatalningar og hvetur alla til að taka þátt. Guðni Sighvatsson fuglavinur ætlar að vera á línunni hjá okkur.
    Alþingi kom saman í gær að loknu hléi. Við ætlum ekkert að kafa í pólitíkina í dag heldur velta fyrir okkur þeim orðum og hugtökum sem einkenna starfið þar. Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur ses hjá okkur í lok þáttar.
    1 hr
  • Alþingi kemur saman, fjármálalæsi, málfar og Þjóðaskjalasafn
    Alþingi kom saman í dag og verkefnin eru ærin. Náttúruhamfarir við Grindavík og framtíð íbúanna þar ber hæst og mörg erfið úrlausnarefni sem tengjast því. Svo hefur verið boðað vantraust á matvælaráðherra í kjölfar álits umboðsmanns Alþingis vegna frestunar hvalveiða síðastliðið sumar. Það verður lagt fram í dag. Mörg aðkallandi mál liggja svo fyrir þinginu á tíma þegar ríkisstjórnin virðist standa veikum fótum. Við ætlum að spjalla við Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur, fréttamann, í upphafi þáttar. Hún er að gera sig klára fyrir annasama daga á þingi.
    Stór hluti Íslendinga kann ekki skil á grunnhugtökum í fjármálum; skilur ekki orð á borð við vaxtavextir, kaupmáttur og verðbólga. Þetta sýnir nýleg Gallup-könnun. Samtök fjármálafyrirtækja boðuðu á dögunum til ráðstefnu um fjármálavit Íslendinga eða skort á því öllu heldur. Við ræðum þennan vanda og hugsanlegar lausnir við Heiðrúnu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fjármálafyrirtækja, og Friðrik Björnsson, markaðsstjóra Gallup.
    Málfarsmínúta úr smiðju Önnu Sigríðar Þráinsdóttur - gögn og gagn.
    VIð heimsækjum Þjóðskjalasafn Íslands. Þar ætlum við að kynna okkur stafræna endurgerð teikninga húsameistara ríkisins.
    55 min
  • Síberíu-Blesi og heimkynni kuldans, fjarskiptaöryggi, málfar og nýjar dýrategundir
    Það er kalt úti, hörkufrost víða um land og búið að vera í nokkra daga. Hvaðan kemur kuldinn sem nú nístir inn að beini, á kuldaboli sér ákveðin heimkynni? Hvaða veðrakerfi eru það sem stjórna öllu hér um þessar mundir? Trausti Jónsson, veðurfræðingur og áhugamaður um veður, ræðir við okkur um uppruna kuldans og þá félaga Síberíu-Blesa og Stóra-Bola sem eru miklir örlagavaldar í lífi okkar.
    Við tölum um öryggi fjarskipta. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur nú samþykkt að hefja samningaviðræður við íslensk stjórnvöld um aðkomu þeirra að nýju öryggisfjarskiptakerfi um gervihnetti. Ísland er sem kunnugt er háð fjarskiptum um sæstrengina þrjá: Danice, Farice og Iris, auk þess sem minna notaður strengur liggur til vesturs um Grænland. Það væri því afar erfitt að halda sambandi við umheiminn ef þessir strengir dyttu út - t.d. vegna skemmdarverka eða alvarlegra bilana. Við ræðum þessi mál við Guðmund Arnar Sigmundsson forstöðumann netöryggissveitar Fjarskiptastofu.
    Málfarsmínúta - spjall og spjöll.
    Dýraspjall með Veru Illugadóttur - nýjar tegundir sem fundust árið 2023.
    Tónlist:
    NÝDÖNSK - Alla tíð.
    1 hr

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners