Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Stafrænt Ísland og gervigreind, saga íbúa í Grindavík, vísindaspjall
    Að hve miklu leyti getur gervigreindin komið í stað þjónustufulltrúa? Samskipta almennt? Stefnir í að flest samskipti okkar við stjórnvöld verði samskipti við spjallmenni gædd spunagreind? Og hvenær hætta þau að segja okkur að baka súkkulaðikökur? Birna Íris Jónsdóttir tölvunarfræðingur og framkvæmdastjóri Stafræns Íslands, ræðir við okkur um kosti og galla gervigreindar í samskiptum hér rétt á eftir.
    Við ræðum við gistihúsaeiganda sem bjó í Grindavík um stöðuna, íbúafundinn í gær og kröfuna, sem verður sífellt háværari, um að ríkið grípi Grindvíkinga og borgi þá út.
    Málfarsmínúta.
    Vísindaspjall með Eddu Olgudóttur, við ræðum áhrif sveltis á heilann.
    Tónlist:
    ÁRNÝ MARGRÉT & JÚNÍUS MEYVANT - Spring.
    PAUL McCARTNEY - Calico Skies.
    1 hr
  • Áfallastjórnun og Grindavík, Loftslagsspjall við Halldór Björnsson, umhverfispistill
    Áfallastjórnun er ung fræðigrein í hröðum vexti, hún snýr að forvörnum og viðbúnaði, viðbrögðum, lærdómi og endurreisn samfélaga í kjölfar áfalla. Við ætlum að ræða áfallastjórnun við Ásthildi Elvu Bernharðsdóttur, dósent við fagstjóra náms í áfallastjórnun við Háskólann á Bifröst og setja þessi fræði í samhengi við þau áföll sem undanfarna mánuði hafa dunið á Grindvíkingum.
    Stóran hluta ársins 2023 var meðalhiti á jörðinni einni og hálfri gráðu yfir meðalhita fyrir iðnbyltingu. Hitametin féllu í hrönnum síðastliðið haust, árið reyndist það heitasta frá upphafi mælinga, líklega síðustu 100 þúsund ár, og nú horfa vísindamenn fram á við og birta spár sínar fyrir árið í ár. Er einnar og hálfrar gráðu markmiðið úr sögunni? Halldór Björnsson, sérfræðingur á Veðurstofu Íslands, kemur í loftslagsspjall.
    Málfarsmínúta - neyslurými.
    Páll Líndal umhverfissálfræðingur flytur okkur pistil í lok þáttar.
    1 hr
  • Eldsumbrot í Grindavík, Náttúruhamfaratrygging Íslands, líðan Grindvíkinga og óvissan framundan
    Það hefur dregið mikið úr virkni eldgossins sem hófst norðan við Grindavík í gærmorgun en það eru enn merki um áframhaldandi landris við Svartsengi. Við ræðum eldgosið og stöðuna á Reykjanesskaga við Bergrúnu Örnu Óladóttur, jarðfræðing hjá Veðurstofunni.
    Margt er óljóst eftir atburðina í Grindavík síðasta sólarhring og íbúar í mikilli óvissu um heimili sín og eigur. Hulda Ragnheiður Árnadóttir forstjóri Náttúruhamfaratryggingar Íslands ræðir næstu skref stofnunarinnar.
    Fjöldi Grindvíkinga er nú saman kominn í Tollhúsinu við Tryggvagötu. Það er margt sem liggur fólki á hjarta, margt óljóst varðandi framtíðina. Við ræðum líðan fólks, óvissu og úrræði við Kristínu Maríu Birgisdóttur, upplýsingafulltrúa Grindavíkurbæjar.
    Tónlist:
    MARK KNOPFLER - True Love Will Never Fade.
    GDRN, MAGNÚS JÓHANN RAGNARSSON - Morgunsól.
    TRACY CHAPMAN - Fast car.
    57 min
  • ÍSÍ um Þjóðarhöll, skordýraspjall og EM í handbolta
    Við færðumst í vikunni skrefi nær því að sjá Þjóðarhöll rísa í Laugardal í Reykjavík. 14 milljarða króna mannvirki sem á að geta tekið 8600 manns í sæti. Ríki og borg undirrituðu í gær samning um stofnun félagsins Þjóðarhöll ehf. Fyrsta verk þess verður að efna til forvals og samkeppni um hönnun hússins. Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ ræðir við okkur um Þjóðarhöllina sem bæði íþróttafólk og áhugafólk um íþróttir bíður eftir með eftirvæntingu, og hefur beðið eftir lengi.
    Ísland mætir Serbíu kl. 17 í dag á EM karla í handbolta, sem fer fram í Þýskalandi. Ríkisútvarpið er með sína útsendara í München, þar sem leikir í riðli Íslands eru spilaðir. Einn þeirra er Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður. Við tókum hann tali.
    Málfarsmínúta úr smiðju Önnu Sigríðar Þráinsdóttur, málfarsráðunauts RÚV.
    Björn Hjaltason er mikill áhugamaður um náttúrufræði, plöntur og skordýr. Hann stofnaði fyrir nokkrum árum hópinn Skordýr á Íslandi og birtir þar stórkostlegar myndir sem hann tekur í skordýrastúdíói sem hann hefur útbúið í litlu gróðurhúsi í Kjósinni.
    Við ræðum skordýr, flækinga og nýjar tegundir við Björn.
    59 min
  • Umbrot í Grímsvötnum, veðurviðvaranir ársins 2023 og umhverfispistill
    Snarpur jarðskjálfti varð í Grímsfjalli í Vatnajökli, snemma í morgun, hlaup er hafið í jöklinum, aukið streymi í Gígjukvísl og auknar líkur á eldgosi. Eyjólfur Magnússon, vísindamaður hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, hefur undanfarið rannsakað fyrri hlaup í þessari virku eldstöð, Grímsvötnum, og hefur fylgst náið með framvindu hlaupsins sem nú stendur yfir.
    Í fyrra voru gefnar út töluvert færri veðurviðvaranir en árið á undan og árið 2023 var tiltölulega rólegt ef litið er til fjölda viðvarana að mati Veðurstofunnar. Alls voru gefnar út 311 viðvaranir í fyrra en þær voru 380 ári áður. Þetta ár byrjar líka frekar rólega - sem betur fer. Við ræðum við Helgu Ívarsdóttur, fagstjóra veðurþjónustu, um veðurviðvaranir og þau fræði sem þær byggja á.
    Við fáum svo pistil frá Evlalíu Kolbrúnu Ágústsdóttur hjá Ungum umhverfissinnum, hún ætlar að fjalla um textíliðnaðinn.
    Tónlist:
    Brimkló, Björgvin Halldórsson - Ég las það í Samúel.
    Beatles, The - Something.
    Jack Johnson - Go On.
    1 hr
  • Ferðamannaspá, vargöld í Ekvador, málfar og örverur
    Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 2,2 milljónir árið 2023 eða tæplega hálfri milljón fleiri en árið 2022 samkvæmt nýjum tölum frá Ferðamálastofu. Þannig að aukningin er mikil milli ára. Núna áðan kynnti svo ferðamálastofa spár um umfang ferðaþjónustunnar á næstu árum og það stefnir í að árið 2024 verði metár í fjölda ferðamanna. Jóhann Viðar Ívarsson, greinandi hjá Ferðamálastofu ætlar að segja okkur frá því.
    Það er mikið ófremdarástand í Ekvador þar sem forsetinn hefur lýst yfir neyðarástandi. Ástæðan er uppgangur glæpagengja og alda ofbeldis sem tengist þeim. Glæpaforinginn Fito gengur laus eftir að hann gufaði upp þar sem hann afplánaði 34 ára dóm í öryggisfangelsi. Oddur Þórðarson fréttamaður hefur fylgst með þessu máli og hann ætlar að fara yfir það með okkur.
    Við heyrum málfarsmínútu og svo kemur Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjall.
    Tónlist:
    SPILVERK ÞJÓÐANNA - Landsímalína.
    MIRIAM MAKEBA - Pata Pata.
    1 hr

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners