Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Þráðaþon, Neandertalsmaðurinn í herberginu og lakkplötuviðtal við bónda úr Fljótavík.
    Um helgina fór fram óvenjulegt mót, lausnamót gegn textílsóun sem bar yfirskriftina þráðaþon. Aðsóknin fór langt fram úr væntingum mótshaldara, fjöldi teyma lagði nótt við dag í þann rúma sólarhring sem mótið stóð og þróaði hugmyndir sem eiga að taka á textílvanda heimsins, eða í það minnsta einhverjum hluta hans. Aðstandendur þráðaþonsins koma til okkar hér rétt á eftir og með í för fulltrúi úr sigurteyminu, Textílendurvinnslunni, sem ætlar sér stóra hluti hér á Íslandi.
    Við ætlum svo að ræða við Gísla Pálsson mannfræðing um Neanderdalsmenn. En Gísli skrifaði grein í Náttúrufræðinginn sem ber titilinn “Er einhver Neanderdalsmaður hér inni?”
    Málfarsmínútan verður á sínum stað og Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV kemur til okkar með gamla upptöku úr safninu.
    55 min
  • Þráðaþon, Neanderdalsmaðurinn í herberginu og gamalt lakkplötuviðtal
    Um helgina fór fram óvenjulegt mót, lausnamót gegn textílsóun sem bar yfirskriftina þráðaþon. Aðsóknin fór langt fram úr væntingum mótshaldara, fjöldi teyma lagði nótt við dag í þann rúma sólarhring sem mótið stóð og þróaði hugmyndir sem eiga að taka á textílvanda heimsins, eða í það minnsta einhverjum hluta hans. Aðstandendur þráðaþonsins koma til okkar hér rétt á eftir og með í för fulltrúi úr sigurteyminu, Textílendurvinnslunni, sem ætlar sér stóra hluti hér á Íslandi. Við ætlum svo að ræða við Gísla Pálsson mannfræðing um Neanderdalsmenn. En Gísli skrifaði grein í Náttúrufræðinginn sem ber titilinn ?Er einhver Neanderdalsmaður hér inni?? Málfarsmínútan verður á sínum stað og Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV kemur til okkar með gamla upptöku úr safninu. Lakkplötuviðtal við Júlíus Geirmundsson, bónda í Fljótavík.
    59 min
  • Litið um öxl með Jóni Björgvinssyni, nýárspistill um umhverfismál.
    Hann hefur flutt okkur fréttir frá víglínunni í Úkraínu, frá hamfarasvæðum í Marokkó og Tyrklandi og þegar hann byrjar að lýsa aðstæðum á íslensku, vopnaður hljóðnema merktum RÚV færast fjarlægir atburðir nær okkur. Við lítum í dag yfir farinn veg með Jóni Björgvinssyni, hann er frétta- og kvikmyndagerðarmaður, hefur lengi verið búsettur í Sviss og flytur okkur oft fréttir frá stríðs- og hamfarasvæðum. Á síðasta ári dvaldi hann meðal annars langdvölum í Úkraínu og flutti fréttir þaðan.
    Við heyrum svo nýárspistil frá Stefáni Gíslasyni, umhverfisstjórnunarfræðingi. Hann veltir því upp hvort tilefni sé til bjartsýni eða svartsýni í umhverfismálum í upphafi árs og fjallar sérstaklega um hræringar tengdar réttindum dýra og lífríkis.
    55 min
  • Jarðskjálfti, Flugskóli Reykjavíkur, málfar og vísindaspjall
    Jarðskjálfti gerði mörgum bylt við á höfuðborgarsvæðinu í morgun, og starfsfólk Veðurstofunnar tók strax til við að fara yfir hann. Við ræðum við Benedikt Halldórsson, jarðskjálftaverkfræðing, sem í dag stendur vaktina þar.
    Við kynnum okkur flugnám. Flugskóli Reykjavíkur útskrifaði í síðasta mánuði 16 manns frá bóklegu námi til undirbúnings fyrir atvinnuflugmannsréttindi. Hjörvar Hans Bragason er skólastjóri Flugskólans, en sá skóli hefur stækkað mjög hratt á stuttum tíma. Hann ræðir við okkur á eftir.
    Málfarsmínúta.
    Vísindaspjall með Eddu Olgudóttur.
    55 min
  • Rafbátar, ný lyf við Alzheimer og pistill Páls Líndal
    Við ræðum um orkuskipti í fiskibátum. Tölum við Kolbein Óttarsson Proppé sem er framkvæmdastjóri Grænafls á Siglufirði en Grænafl vinnur nú í samstarfi við fyrirtæki í Suður Kóreu að því að útbúa strandveiðibáta þannig að þeir geti gengið fyrir rafmagni.
    Við kynnum okkur nýjungar í meðferð við Alzheimersjúkdóminum en ný lyf hafa vakið vonir um að hægt verði að meðhöndla sjúkdóminn með nýjum hætti. Jón Snædal öldrunarlæknir ræðir við okkur.
    Við fáum líka pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi í lok þáttar.
    55 min
  • Þórhildur Ólafsdóttir, málfar, dýraspjall
    Við fáum góðan gest til okkar sem tengist Samfélaginu sterkum böndum en hélt um mitt ár á vit nýrra ævintýra í rúmlega átta þúsund kílómetra fjarlægð. Þetta er Þórhildur Ólafsdóttir sem var annar umsjónarmaður Samfélagsins svo árum skipti og býr nú tímabundið í Kampala, höfuðborg Úganda. Ýmislegt ber á góma, til dæmis ávexti, sorphirðumál, þróunarstarf og engisprettuát.
    Málfarsmínúta með áramótaívafi.
    Endurflutt dýraspjall frá því í janúar á þessu ári. Þar ræddi Þórhildur Ólafsdóttir við Aðalbjörgu Jónsdóttur, líffræðing hjá Hafrannsóknastofnun, um aldursgreiningar á fiskum.
    55 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners