Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • COP28, matseðillinn 2050 og orð ársins
    Síðasti dagur loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum er runninn upp - eða hvað? Í dag átti allt að vera klárt, lokayfirlýsingin undirrituð af hátt í 200 þjóðum en eins og svo oft áður virðist ráðstefnan ætla að dragast á langinn, fundað fram á nótt og þreyttir samningamenn rýna í tyrfinn texta. Utan við fundarherbergin mótmæla svo langþreyttir fulltrúar félagasamtaka og bauka ýmislegt annað. Við tökum púlsinn á einum slíkum, Finni Ricart Andrasyni, forseta Ungra umhverfissinna, sem hefur verið í Dúbaí í tvær vikur.
    Hvað verður í matinn á þriðjudegi árið 2050? Þannig spurði Birgir Örn Smárason fagstjóri hjá Matís í fyrirlestri á Matvælaþingi á dögunum. Hann lagði þessa spurningu meðal annars fyrir gervigreind og fékk bara býsna trúverðug svör. Við förum yfir matseðil framtíðarinnar með Birgi.
    Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur Ríkisútvarpið kemur svo til okkar - við ætlum að ræða um orð ársins 2023.
    55 min
  • Átök Hamas og Ísraels, leikskólabörn og skjöl úr móðuharðindunum
    Við ætlum að fjalla um átökin milli Hamas og Ísraelsríkis. Hvers vegna er ekki einhugur meðal ríkja heims um að styðja vopnahlé, hvers vegna eru viðbrögð vesturveldanna við þessu stríði gerólík viðbrögðum þeirra við stríðinu í Úkraínu? Eru hörmungarnar sem almenningur á Gaza býr við án fordæma, er hægt að tala um þjóðarmorð? Magnea Marínósdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur, ræðir þetta við okkur.
    Við leitum að ljósi í myrkrinu og kíkjum í heimsókn í leikskólann Öskju, heyrum hljóðið í þriggja og fjögurra ára drengjum í jólaskapi og fræðumst aðeins um Hjallastefnuna í leiðinni, ræðum við Ásthildi Hönnu Ólafsdóttur, leikskólakennara á gula kjarna.
    Við förum einnig í heimsókn á Þjóðskjalasafn Íslands þar sem Margrét Gunnarsdóttir, skjalavörður, sýnir okkur merkileg skjöl úr dönsku sendingunni svokölluðu, rentukammersskjöl frá tímum móðuharðindanna.
    1 hr
  • Minjastofnun um útburðarmál í Heiðmörk, framtíð Kringlunnar og málfar
    Verslunarmiðstöðvar. Þetta eru stórar byggingar með stóru bílastæði, rúllustigum, raflýsingu, ótal verslunum. Við ætlum að skoða eina ákveðna verslunarmiðstöð, þá elstu á Íslandi, Kringluna. Tökum púlsinn á Baldvinu Snælaugsdóttur markaðsstjóra Kringlunnar, ræðum jólaverslun, áhrif netsins og framtíð verslunarmiðstöðva almennt.
    Orkuveitan hefur höfðað útburðarmál á hendur eigendum nokkurrra sumarhúsa á svokölluðum Elliðavatnsblettum í Heiðmörk, einni elstu sumarhúsabyggð landsins. Orkuveitan vill láta rífa húsin í nafni vatnsverndar og almannahagsmuna. Eigendur húsanna eru ósáttir, við heyrum í nokkrum þeirra og ræðum sömuleiðis við fulltrúa Minjastofnunar, þá Pétur H. Ármannsson sviðsstjóra húsverndar-, umhverfis-, og skipulagssviðs og Gísla Óskarsson, lögfræðing, en þetta óvenjulega mál er komið inn á borð stofnunarinnar.
    Málfarsmínúta úr smiðju Önnu Sigríðar Þráinsdóttur.
    55 min
  • Staðan við Svartsengi, heimsókn í skólphreinsistöð, umhverfispistill
    Veðurstofan birti í gær uppfært stöðumat vegna jarðhræringanna við Svartsengi og Grindavík og þar kemur fram að nýr kafli sé að hefjast í þeirri atburðarás með auknum líkum á nýju kvikuhlaupi. Kristín Jónsdóttir, deildarstjóri á Veðurstofunni, er vakin og sofin yfir þessu öllu ásamt hópi vísindamanna, með línurit og gröf fyrir augunum daginn út og inn.
    Kröfur um skólphreinsun verða stórhertar á næstunni - tæknilegustu skólphreinsistöðvar á Íslandi uppfylla varla kröfur um eins þreps hreinsun, og bráðum verður farið fram á fjögurra þrepa hreinsun. Við heimsækjum hreinsistöð Veitna við Klettagarða í Reykjavík og ræðum fráveitumálin í víðu samhengi, meðal annars gullfiska, fituhnykla og plast, við Jón Trausta Kárason, forstöðumann vatns og fráveitu hjá Veitum.
    Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur flytur okkur umhverfispistil.
    55 min
  • Hlutdeildarlán, nýr heitavatnstankur og umhverfissálfræði
    Við forvitnumst um svokölluð hlutdeildarlán sem Húsnæðis og mannvirkjastofnun veitir fyrstu kaupendum í lægri tekjuhópum. Í ár barst metfjöldi umsókna um slík lán og við ætlum að biðja Einar Georgsson verkefnisstjóra hlutdeildarlána hjá HMS að segja okkur frá því hvernig þessi lán eru hugsuð, hverjir geta tekið þau og ýmislegt fleira.
    Við förum í bíltúr upp á Reynisvatnsheiði. Þar rís nú mikið gímald - glænýr heitavatnstankur sem á að taka í gagnið síðar í mánuðinum. Við mæltum okkur mót við Hákon Gunnarsson hjá Veitum sem segir okkur frá þessu mannvirki og leyfir okkur jafnvel að kíkja inn í tankinn.
    Svo fáum við pistil í lok þáttar frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi.
    55 min
  • Staðan í Grindavík, sendinefnd Íslands á COP28, jólahald í gamladaga
    Rúmar þrjár vikur eru síðan Grindavík var rýmd í snatri - það hefur ýmislegt gengið á síðan, ýmis vandamál sem hefur þurft að leysa, Grindvíkingar fá nú að fara heim yfir daginn, fyrirtæki hafa fengið að hefja starfsemi á ný - en foreldrar leikskólabarna eru enn bundnir, og sumir Grindvíkingar enn í húsnæðiskröggum. Við förum yfir stöðuna núna með Fannari Jónassyni, bæjarstjóra í Grindavík.
    Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna, COP28, er að komast á fullt skrið, fulltrúar sendinefnda hlaupa funda á milli, þar á meðal er Helga Barðadóttir, formaður íslensku sendinefndarinnar. Hún var á línunni.
    Málfarsmínúta.
    Við fáum heimsókn frá safni RÚV. Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri kemur til okkar með skemmtilega upptöku frá árinu 1958 þar sem verið er að velta fyrir sér jólahaldi og hvort því þurfi að breyta.
    55 min
  • Eiturefnalausir leikskólar, skrímsli í náttúru Íslands, dýraspjall.
    Í haust rataði inn í aðalnámskrá leikskóla klausa um að leikskólar skyldu vera eins eiturefnalausir og hægt er. Í átta ár hefur leikskólinn Aðalþing í Kópavogi verið í fararbroddi í þessu og stjórnendur, þau Hörður Svavarsson og Agnes Gústafsdóttir, búin að leggjast í mikla rannsóknir og losa sig við alls konar dót sem inniheldur skaðleg efni. Við kíkjum í heimsókn þangað.
    Svo höldum við á skrímslaslóðir. Þorvaldur Friðriksson, fornleifafræðingur og fyrrum fréttamaður á Ríkisútvarpinu, hefur gefið út bókina Skrímsli í sjó og vötnum á Íslandi - þar er meðal annars að finna teikningar, frásagnir og lýsingar sjónarvotta á rammíslenskum skrímslum eins og faxaskrímsli, fjörulalla, nykri, lyngbak og hafmanni, bæði nýjar og gamlar.
    Dýraspjall með Veru Illugadóttur, rækjur í trjám og fleiri skepnur.
    55 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners