Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Lagnir í hættu, kennsla á Listasafni, neytendaspjall - skrópgjöld.
    Lagnir, þær eru þarna, þjóna sínum tilgangi svo lítið beri á, en svo kemur eitthvað upp á sem beinir sjónum okkar að þessum földu en nauðsynlegu innviðum - hvort sem það eru skemmdir á heitavatnslögnum vegna jarðhræringa, akkeri sem rústaði kaldavatnslögn Vestmannaeyinga eða skólplagnirnar sem víða á landinu skila skólpinu óhreinsuðu út í sjó. Snæbjörn R. Rafnsson, pípulagningameistari, hefur brennandi áhuga á lögnum, lagnakerfum og sögu þeirra. Hann er gestur Samfélagsins.
    Við ætlum að ræða um nýtingu Listasafns Íslands í kennslu en kennarar allra skólastiga og allra skóla fá bráðlega tækifæri til að hittast reglulega á safninu og kanna hvernig hægt er að nýta það og fjársjóði þess sem efnivið í kennslu og safnahúsin þrjú sem námsvettvang. Ingibjörg Hannesdóttir verkefnastjóri fræðslu og miðlunar hjá Listasafni Íslands kemur til okkar að ræða þetta verkefni.
    Neytendaspjall. Rætt við Einar Bjarna Einarsson, lögfræðing hjá Neytendasamtökunum, um skrópgjöld og mætingarskyldu en Neytendasamtökin hafa lengi gert athugasemdir við skilmála fyrirtækja sem þeim finnst ganga of hart fram í þessu.
    55 min
  • LJósvist á Íslandi, rústabjörgun, málfar og vísindaspjall
    Undanfarna 17 daga hefur staðið yfir mikil björgunaraðgerð í Himalayafjöllunum þar sem 41 verkamaður festist í jarðgöngum sem féllu saman. Mennirnir náðust allir út úr göngunum heilir á húfi í gær og voru dregnir á börum eftir 90 sentímetra breiðu röri. Rætt við Magnús Örn Hákonarson björgunarsveitarmann og sérfræðing á sviði rústabjörgunar.
    Ólíkt því sem gerist annars staðar á Norðurlöndum eru litlar sem engar kröfur gerðar um góða ljósvist í íslenskum byggingum - jú, samkvæmt byggingareglugerð þurfa að vera gluggar en það er ekkert því til fyrirstöðu að byggja annað hús beint fyrir utan þá. Þessu vill vinnuhópur sem hefur unnið að tillögum til breytinga á byggingareglugerðinni breyta. Við ræðum lýsingu og ljósvist við Ástu Logadóttur, verkfræðing og lýsingarsérfræðing hjá Lotu en hún á sæti í nefndinni og kynnti tillögurnar í dag.
    Við heyrum eina málfarsmínútu og endurflytjum svo vísindaspjall við Eddu Olgudóttur frá því fyrr á árinu.
    55 min
  • Steypireyður, Jæja og nýyrði
    Við ætlum að tala um stærsta dýr jarðar í Samfélaginu í dag, það er vitaskuld steypireyður. Nú er ýmislegt sem bendir til þess að sú tegund sé sumstaðar að ná sér á nokkurt strik eftir djúpa lægð vegna ofveiði á árum áður. Ný rannsókn á Steypireyðum við Seychelles eyjar í Indlandshafi bendir til þess að þar sé þeim að fjölga. Edda Elísabet Magnúsdóttir hvalasérfræðingur ætlar að segja okkur allt um steypireyðar.
    Svo kemur til okkar doktorsnemi í umhverfisfræði, Guðmundur Steingrímsson en í dag birtist í spilara RÚV þáttaröðin Jæja, sem hann hefur gert um umhverfismál. Guðmundur er líka að pakka fyrir ferð á loftslagsþing Sameinuðu þjóðanna - COP28 í Dubai. Hann segir okkur frá öllu þessu.
    Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur kemur svo til okkar í lok þáttar í málfarsspjall. Við ætlum að velta fyrir okkur spurningunni um hver, ef einhver, ákveður hvaða orð við notum - í framhaldi af samkeppni um hýryrði sem Samtökin ?78 stóðu fyrir en niðurstöðurnar voru kynntar á degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember síðastliðinn.
    55 min
  • Viðlagasjóðshúsin í Keilufelli, skjalafals fortíðar og málfarsmínúta
    Við kynnum okkur Viðlagasjóðshúsin í Keilufelli í Reykjavík, eða Vestmannaeyjahúsin eins og þau eru stundum kölluð. Ræðum við Ágústu Óskars Kettler og Ernst Kettler, sem fluttu inn 1974 og Dagnýju Bjarnadóttur, landslagsarkítekt,sem býr í næsta húsi við frumbyggjana. Húsin voru reist á örskotsstundu eftir gosið í Heimaey, og við spyrjum íbúana út í þau og hvort þeim fyndist góð hugmynd að endurtaka leikinn?
    Heimsókn á Þjóðskjalasafn Íslands. Við fáum að þessu sinni að vita allt um stóra skjalafölsunarmálið frá árinu 1724. Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skjalavörður leiðir okkur í allan sannleikann um það dularfulla mál.
    Málfarsmínúta.
    55 min
  • Efsta hillan í ísskápnum, plastmengun í norðri, umhverfispistill
    Leikhópurinn Kriðpleir stóð fyrir áhugaverðri vinnustofu um síðustu helgi undir yfirskriftinni Efsta hillan. Þátttakendur vinnustofunnar voru beðnir um að taka með sér fjórar krukkur eða sósutúbur sem hefðu dagað uppi í ísskápnum. Fortíð og uppruni krukknanna voru rannsökuð, og leitast við að skapa kringumstæður sem miðla sögu þeirra. Ragnar Ísleifur Bragason ætlar að kafa í krukkurnar með okkur á eftir.
    Nú stendur yfir alþjóðleg ráðstefna í Hörpu um plastmengun á norðurslóðum á vegum utanríkisráðuneytisins í samvinnu við matvælaráðuneytið og umhverfis- orku og loftlagsráðuneytið. Ein þeirra sem þar talaði er Ásta Margrét Ásmundsdóttir, efnafræðingur og aðjúnkt við Háskólann á Akureyri. Hennar erindi fjallaði um örplast í kræklingi. Hún sest hjá okkur á eftir og ræðir við okkur um örplast.
    Umhverfispistill frá ungum umhverfissinna; Báru Örk Melsted.
    58 min
  • Réttlát umskipti, veirur og pestir, málfar og vísindaspjall
    Er hægt að ráðast í harðar loftslagsaðgerðir án þess að það bitni á almenningi? Í hverju felast réttát umskipti? Við ræðum þetta við
    Auði Ölfu Ólafsdóttur, sérfræðing í umhverfis og neytendamálum hjá ASÍ.
    Allskyns veirusýkingar herja nú á landsmenn. Þetta eru gamlir kunningjar eins og RS-vírus, ýmsar kvefpestir og auðvitað Covid sem er í nokkrum ham þessa dagana. Og svo er inflúensan að banka á dyrnar. Og við ætlum einmitt að ræða flensuna. Hvernig hún breiðist út og hvernig gengur að bólusetja gegn henni. Kamilla Sigríður Jósefsdóttir, yfirlæknir bólusetninga hjá Sóttvarnalækni, ætlar að fræða okkur um inflúensu.
    Málfarsmínúta.
    Vísindaspjall með Eddu Olgudóttur - rætt um bakteríur og krabbamein.
    55 min
  • Segulhitari, sorpbrennsla og umhverfissálfræði
    Við hringjum vestur á firði og tölum við Þorstein Másson framkvæmdastjóra Bláma í Bolungarvík en Blámi einbeitir sér að nýsköpun í orkumálum og orkuskiptum sérstaklega. Hann ætlar að segja okkur frá verkefni sem snýst um að nota svokallaðan segulhitara til að framleiða heitt vatn í Súðavík.
    Stefnt er að því að koma upp sorpbrennslustöðvum á suðvesturhorninu og á norðurlandi og nýta orkuna sem verður til við bruna úrgangs sem ella væri urðaður, til þess að framleiða rafmagn eða heitt vatn. Enn er þó mörgum spurningum ósvarað. Valgeir Páll Björnsson, umhverfis- og orkutæknifræðingur hjá Sorpu, fjallaði um vinnuna við að koma hér upp sorpbrennslu á degi verkfræðinnar á föstudaginn var. Hann er gestur Samfélagsins.
    Páll Líndal umhverfissálfræðingur flytur okkur svo pistil í lok þáttar.
    55 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners