Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Loftgæðaspár, staðan í aðdraganda COP28, hugvitsmaður úr fortíðinni
    Við veltum fyrir okkur loftgæðum í höfuðborginni, vöktun á þeim og leiðum til að spá fyrir um loftgæði - jafnvel í einstökum hverfum. Þorsteinn Jóhannsson sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun segir okkur frá aðferðum sem stofnunin beitir til þess.
    Þetta er árið sem farið var að tala um hnattræna stiknun, haustið hefur verið óvenjulegt og hitamet fallið. Ástandið í loftslagsmálum er alvarlegt. Markmið, lausnir og skortur á þeim verða rædd í þaula á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem hefst í Dúbaí í lok nóvember. Halldór Björnsson, hópstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofu Íslands fer yfir vísindin, stöðuna og væntingar til ráðstefnunnar.
    Málfarsmínúta.
    Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV leyfir okkur að heyra upptöku úr safninu. Að þessu sinni viðtal við hugvitsmanninn Magnús K. Guðnason sem hannaði merkileg hljóðfæri á borð við strokhörpu.
    55 min
  • Viðbrögð við hamförum í Noregi, sláturbóla og súnur, dýraspjall
    Jarðfallið í Gjerdrum í Noregi er mörgum minnisstætt, þetta var í lok desember 2020, mörg hús gjöreyðilögðust og tíu létust. Þessar hamfarir eru um margt ólíkar þeim sem nú standa yfir í Grindavík - en í báðum tilfellum hafa yfirvöld þurft að bregðast við - tryggja öryggi og afkomu íbúa. Við ræðum viðbrögð yfirvalda hér og í Noregi við náttúruhamförum við Herdísi Sigurgrímsdóttur, stjórnmálafræðing, hún er nýflutt heim frá Noregi og starfaði þar sem sviðsstjóri umhverfis- og loftslagsmálahjá héraðs yfirvöldum í Stafangri.
    Flestir smitsjúkdómar sem hrjá okkur mannfólkið berast úr dýrum, þannig sjúkdómar eru kallaðir súnur og meðal þeirra er sláturbóla, hvimleið veirusýking sem borist getur úr sauðfé í menn. Þóra Sverrisdóttir, sjúkraliði, rekstrarfræðingur og sauðfjárbóndi á Stóru Giljá í Húnavatnssýslu, sýktist af sláturbólu á dögunum og batinn dróst á langinn vegna þess að læknir sem hún leitaði til skar í bóluna. Fleiri bændur hafa fengið þetta nýverið og deilt myndum af bólum, ýmist á höndum eða andliti. Við ræðum við Þóru um reynslu hennar, en líka við Pétur Skarphéðinsson lækni á eftirlaunum sem oft fékkst við svona sýkingar í gamla daga og Magnús Gottfreðsson, smitsjúkdómalækni.
    Fugl aldarinnar var á dögunum kosinn á Nýja-Sjálandi og úrslitin óvænt. Vera Illugadóttir segir frá.
    55 min
  • Pallborðsumræður á degi íslenskrar tungu
    Samfélagið helgar þáttinn degi íslenskrar tungu.
    Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur á Ríkisútvarpinu, er gestaumsjónarmaður og auk hennar eru í pallborði góðir gestir þau; Grace Ochieng, íslenskunemi, fatahönnuður og eigandi tískuvörumerkisins Gracelandic, Sóley Anna Jónsdóttir, forseti Mímis, félags stúdenta í íslensku, almennum málvísindum og táknmálsfræði og Jón Oddur Guðmundsson, yfirtexta og hugmyndasmiður hjá auglýsingastofunni Brandenburg.
    Við ræðum það sem á þeim brennur; hreintungustefnu og enskuslettur, aðgengi innflytjenda að íslensku málsamfélagi, mikilvægi þess að samfélagið ákveði hvaða tungumál skuli talað í landinu, börn sem leika sér á ensku og hvort íslenskan eigi sér framtíð.
    Í lok þáttar heyrum við umhverfispistil frá Stefáni Gíslasyni - hann er farinn að hugsa um jólin.
    59 min
  • Varnargarðarnir rísa, breytingaskeið, líffræðileg fjölbreytni
    Ríkisstjórnin samþykkti á dögunum að reisa varnargarða til að verja orkuverið í Svartsengi. Þetta er tröllvaxin aðgerð, garðarnir eiga að verða allt að átta metra háir, og teygja sig nokkurra kílómetra leið. Samfélagið ræðir þetta við Ara Guðmundsson, byggingarverkfræðing og sviðsstjóra hjá Verkís, en hann fer fyrir hópi stjórnvalda og almannavarna um varnir mikilvægra innviða.
    Breytingaskeiðið hefur verið mikið til umræðu undanfarin ár. Eiga allar konur á því skeiði að taka hina heilögu þrenningu? Eiga konur að geta sloppið alveg við einkenni breytingaskeiðsins? Er það hægt? Ebba Margrét Magnúsdóttir, kvensjúkdómalæknir til margra ára, ræðir þetta við okkur en hún hefur áhyggjur af því sem hún kallar aukna markaðsvæðingu og sjúkdómsvæðingu breytingaskeiðsins.
    Málfarsmínúta úr smiðju Önnu Sigríðar Þráinsdóttir, málfarsráðunauts.
    Vísindaspjall með Eddu Olgudóttur; veirur, misröskuð búsvæði og líffræðileg fjölbreytni.
    55 min
  • Grindavík í brennidepli; viðbrögð RKÍ, gamlar lexíur og dýrabjörgun.
    Samfélagið beinir sjónum sínum að ástandinu á Reykjanesi og yfirvofandi náttúruvá. Yfirvöld standa frammi fyrir ótal verkefnum - það þarf að greiða úr húsnæðismálum, skólamálum, atvinnumálum og afkomu íbúa, greiða úr ýmsu praktísku, veita stuðning og upplýsingar
    Alþingi kom saman til fundar í dag til að ræða frumvarp um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga, frumvarp til neyðarlaga. Við hlýðum á brot úr ræðu Katrínar Jakobsdóttir og ræðum við Höskuld Kára Schram, fréttamann.
    Kristjana Aðalgeirsdóttir, er arkítekt, starfsmaður Rauða krossins í Úkraínu og sérfræðingur í því hvernig tryggja má húsnæðisöryggi fólks í kjölfar náttúruhamfara eða stríðsátaka. Við ræðum við hana um ástandið í Grindavík, reynsluna frá tímum Vestmannaeyjagossins af Viðlagasjóðshúsunum svokölluðu og mikilvægi þess að hugsa strax bæði til skemmri og lengri tíma litið.
    Við ræðum líka við Aðalheiði Jónsdóttur, teymisstjóra neyðarvarna hjá Rauða krossinum á höfuðborgarsvæðinu, um viðbúnað Rauða krossins. Hún segir þetta stærstu aðgerð Rauða krossins á síðari tímum.
    Anna Margrét Áslaugardóttir, ráðgjafi og sjálfboðaliði hjá samtökunum Dýrfinnu var svo á línunni hjá okkur með góð ráð til dýraeigenda, en samtökin hafa verið í viðbragðsstöðu, útvegað búr og aðstoðað fólk sem freistar þess nú að bjarga gæludýrum sínum af rýmdum svæðum.
    55 min
  • Borea adventures, léttum á umferðinni og dýraspjall
    Við ræðum við Nannýju Örnu Guðmundsdóttur, eiganda ferðþjónustufyrirtækisins Borea adventures. Þau eru að undirbúa veturinn en undanfarið hafa þau tekið á móti hópum allstaðar að úr heiminum og farið með þeim á Hornstrandir til að taka myndir af refum. Heyrum meira af því á eftir, og fyrirhugaðri ferð þeirra sjálfra til Suðurskautslandsins.
    Í morgun fór fram ráðstefna á vegum borgarinnar sem bar yfirskriftina Léttum á umferðinni. Þar stigu ýmsir á stokk og ræddu samgöngumálin og umferðarþunga frá ýmsu hliðum. Við ræðum við tvo af fyrirlesurunum, þau Brynhildi Bolladóttur, lögfræðing og Reykvíking á hjóli og Þorstein R Hermannsson, hjá Betri Samgöngum.
    Dýraspjall með Veru Illugadóttir - mörgæsir.
    55 min
  • Vinnustaðamenning, búseta á hjólum og kolefnismerkingar
    Vinnueftirlitið ýtti í gær úr vör átaki, eða aðgerðavakningu eins og þau kalla það, á baráttudegi gegn einelti. Markmiðið er að vekja athygli á því að heilbrigð vinnustaðamenning stuðli að öryggi og vellíðan starfsfólks og sé ein áhrifaríkasta forvörnin gegn einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustað. En hvað er þá heilbrigð vinnustaðamenning? Við komumst að því þegar Sara Hlín Hálfdanardóttir, verkefnastjóri hjá Vinnueftirlitinu sest hjá okkur.
    Á iðnaðarplani við gamla verksmiðju á Sævarhöfða býr hópur fólks í hjólhýsum og húsbílum, áður voru þau á tjaldsvæðinu í Laugardal en nú eru þau þarna - og verða í vetur, þvert á loforð pólitíkusa. Við förum á svæðið, hittum meðal annars Geirdísi Hönnu Kristjánsdóttur, einn íbúa og formann samtakanna Hjólabúa, og Dóru Björt Guðjónsdóttir, formann skipulagsráðs borgarinnar sem var þar að taka út aðstöðuna, í fyrsta sinn.
    Við fáum líka neytendaspjall að norðan. Brynhildur Pétursdóttir ræðir við okkur um kolefnismerkingar.
    55 min
  • Fjölmenning og útfararsiðir, hönnun í sýndarveruleika, vísindaspjall
    Aukin fjölmenning á Íslandi hefur leitt til breytinga á starfi útfararstjóra sem þurfa að laga sig að siðum og venjum ýmissa trúfélaga. Nýlega hélt samráðsvettvangur trúar- og lífsskoðunarfélaga ráðstefnu þar sem fjallað var um útfararsiði. Rúnar Geirmundsson er með þrjátíu ára reynslu í faginu, við heimsækjum útfararstofu hans og ræðum breytta tíma.
    Við ætlum að setja upp sýndarveruleikagleraugu á eftir og kynna okkur nýjan hugbúnað sem er kallaður Arkio. Með honum er hægt að hanna allskyns rými og umhverfi eins og maður sé í raun hluti af hönnuninni. Hilmar Gunnarsson stofnandi og forstjóri Arkio segir okkur frá þessu og leiðir okkur inni í sýndarveruleikann.
    VIð heyrum málfarsmínútu.
    Edda Olgudóttir kemur til okkar í vísindaspjall í lok þáttar.
    55 min
  • Íþróttarannsóknabylting, stytturnar á Rapa Nui og umhverfissálfræði
    Aðbúnaður afreksíþróttafólks á Íslandi er nú með því besta sem gerist á heimsvísu. Ástæðan er ný rannsóknastofa í íþrótta- og heilsufræðum sem var opnuð á dögunum. Við skoðum rannsóknastofuna, prófum sérhæfð tæki og ræðum við Milos Petrovic, forstöðumann rannsóknastofunnar og Þórdísi Lilju Gísladóttur, dósent við menntavísindasvið Háskóla Íslands.
    Við ætlum að tala um frægar styttur sem standa á eyjunni Rapa Nui, sem flestir þekkja sem Páskaeyju. Og ef hlustendur muna ekki í svipinn hvernig þessar styttur líta út, gæti verið ráð að fletta upp Rapa Nui í leitarvél á netinu og þá blasa þær við í allri sinni dýrð. Við heimsækjum Svein Eggertsson, dósent í mannfræði á skrifstofu hans í Gimli í Háskóla Íslands. Hann hefur rannsakað þessar styttur og heimsótt Rapa Nui.
    Pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi.
    55 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners