Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Áhrif kvennaverkfalls, greining strokulaxa, málfar og kvennafrí 1975
    Samfélagið verður áfram með hugann við kvennaverkfallið og áhrif þess á Samfélagið og lykilstarfsemi. Við ræðum við bæjarstjóra, framkvæmdastjóra hjúkrunar á Landspítalanum, formann Flugfreyjufélagsins og mannauðsstjóra Ísavía.
    Hafró og Matís hafa undanfarið staðið í ströngu við að erfðagreina meinta strokulaxa, magnið er svona á við tvær þrjár meðalfrystikistur, og þau eru rúmlega hálfnuð með verkið. Þetta eru tímafrekar rannsóknir sem vonandi segja okkur ýmislegt. Við ræðum þessa vinnu, áhættu af fiskeldi og visst landnámseðli laxa við Guðna Guðbergsson, sviðsstjóra ferskvatnssviðs hjá Hafrannsóknastofnun.
    Málfarsmínúta.
    Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV. Rifjar upp dagskrá fyrsta Kvennafrídagsins en dagskráin var metnaðarfull og henni var útvarpað á þessum degi fyrir 48 árum.
    55 min
  • Tímavél til 24. október 1975, ferðasumarið 2023 og sindraskel.
    Við bregðum okkur í tímavél, rifjum upp Kvennafrídaginn árið 1975 og ræðum við tvær konur sem eiga ljóslifandi minningar frá þessum degi. Önnur var í vinnubúðum uppi í sveit, hin stóð á sviðinu á Lækjartorgi.
    Ferðasumarið 2023. Ferðamálastofa tók saman ýmis gögn og upplýsingar sem tengjast komu og veru erlendra ferðamanna hér á landi. Oddný Þóra Óladóttir sérfræðingur hjá Ferðamálastofu er með þessar tölur í kollinum.
    Sindraskel er ný og hugsanlega ágeng tegund við Ísland, eins og hnífur í laginu. Sindri Gíslason líffræðingur og forstöðumaður Náttúrustofu Suðvesturlands mætir til okkar með skel til að sýna okkur og segja frá.
    55 min
  • Aðstæðuvitund, ráðherra loftslagsmála og félagsþjónustan um bruna
    Fyrirtækið Snjallgögn ehf. hefur búið til hugbúnað sem nýtir gervigreind með aðstæðuvitund, eins og það er kallað, þar sem upplýsingar um atburði, veður, komur skemmtiferðaskipa og fleira eru nýttar til að bæta söluspár og bregðast við ytri aðstæðum - sem geta verið óvæntar. Stefán Baxter framkvæmdastjóri Snjallgagna segir okkur meira.
    Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis- orku og loftslagsráðherra, telur að lausnanna við loftslagsvandanum sé að leita í fortíðinni. Við fengum hans viðbrögð við skýrslu Vísindanefndar um áhrif loftslagsbreytinga á Íslandi og ræðum einnig við Ölmu Möller, landlækni um viðbrögð heilbrigðiskerfisins.
    Aðalbjörg Jóhanna Bárudóttir, félagsráðgjafi hjá Reykjavíkurborg, segir að borgin hafi fylgt sumum þeirra sem lentu í brunanum á Bræðraborgarstíg eftir í mörg ár. Borgin á erfitt með að aðstoða fólk sem missir allt sitt í bruna í iðnaðarhúsnæði við að finna langtímahúsnæði - oftast fer það aftur iðnaðarhúsnæði.
    55 min
  • Umbyltingar þörf í loftslagsmálum, bruni á Funahöfða og vísindaspjall
    Í morgun kom út fjórða skýrsla Vísindanefndar um loftslagsbreytingar. Þar segir meðal annars að skýrslan staðfesti, svo ekki verður um villst, að loftslagsbreytingar séu byrjaðar að breyta náttúrufari og lífsskilyrðum fólks á Íslandi með vaxandi áskorunum fyrir efnahag, samfélag og náttúru. Það þurfi umbyltingu í lífsháttum og umgengni við náttúruna í hér á landi og draga þurfi úr losun eins hratt og unnt er. Við ætlum að ræða við tvo höfunda þessarar skýrslu; Önnu Huldu Ólafsdóttur og Gígju Gunnarsdóttur.
    Á mánudag lést maður í eldsvoða á Funahöfða 7, við kynnum okkur fortíð þessa atvinnuhúsnæðis þar sem lengi hefur verið herbergjaleiga og heyrum í Aðalheiði Jónsdóttur, verkefnastjóra neyðarvarna hjá Rauða krossinum, um sálrænan stuðning við fólk sem lendir í svona áfalli.
    Edda Olgudóttir ræðir nýjar rannsóknir á meðferð við heyrnarskerðingu í vísindaspjalli.
    55 min
  • Tækjaþon, viðhaldsmeðferð á Vogi og heimsókn á Þjóðskjalasafnið.
    Saman gegn sóun, Úrvinnslusjóður, Sorpa og Tækniskólinn stóðu um helgina fyrir svokölluðu tækjaþoni þar sem nokkur teymi öttu kappi og reyndu að finna leiðir til að nýta raftæki betur - en raftækjasóun hér á landi er með því mesta sem gerist. Við ræðum við Birgittu Steingrímsdóttur og Hildi Mist Friðjónsdóttur, sérfræðinga í teymi hringrásarhagkerfis á Umhverfisstofnun um tækjaþonið og verðlaunatillöguna.
    Samfélagið hefur undanfarið fjallað um ópíóíðafaraldurinn, og við höldum því áfram. Í dag heyrum við í Valgerði Rúnarsdóttur, yfirlækni á Vogi.
    Málfarsmínúta - víla og díla.
    Heimsókn á Þjóðskjalasafnið.
    55 min
  • Líffræðiráðstefnan - bjór, uppruni landnámsmanna og óvinsælir fuglar
    Samfélagið sendir út frá líffræðiráðstefnu Líffræðifélagsins. Þessi stóra og fjölmenna ráðstefna fer fram annað hvert ár og er nú haldin í 11. skipti í Öskju - náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands og húsi Íslenskrar erfðagreiningar.
    Á ráðstefnunni er fjallað um allt milli himins og jarðar; vísindi og sögu bjórs - drykkjarins, ekki dýrsins, mannerfðafræði og óvinsæla fugla.
    Ásthildur Erlingsdóttir er situr í stjórn líffræðifélagsins og er í hópi þeirra sem skipuleggja ráðstefnuna. Við ræðum við hana um erindin á ráðstefnunni, veggspjöld og stefnur og strauma í líffræðirannsóknum á Íslandi.
    Sigríður Sunna Ebenesersdóttir, doktor í líffræðilegri mannfræði hjá Íslenskri Erfðagreiningu, er ein öndvegisfyrirlesaranna á ráðstefnunni í ár, hún hefur verið að rannsaka genamengi hópa sem byggt hafa norðurslóðir síðustu árþúsundin. Rannsóknir hennar hafa meðal annars varpað nýju ljósi á uppruna og einsleitni íslensku þjóðarinnar.
    Bjarni K. Kristjánsson frá Bjórsetri ræðir um sögu bjórsins, bjórgerðarlist og villiger, svo dæmi séu nefnd.
    Róbert A Stefánsson, forstöðumaður Náttúrustofu Vesturlands, ræðir við okkur um óvinsæla fugla, en níu fuglategundir er heimilt, samkvæmt villidýralögunum frá 1994, að skjóta, vegna tjóns sem þeir valda - en sumar tegundanna valda nær engu tjóni og flestir standa stofnarnir höllum fæti.
    55 min
  • Ópíóíðafaraldurinn, brot á vinnumarkaði og eitruð tíska.
    Fíkniefnaheimurinn er orðinn harðari og breytist hratt. Inga Hrönn Jónsdóttir þekkir þennan heim af eigin raun, hún er edrú í dag og ræðir við okkur um sína reynslu og sýn á hvað megi betur fara þegar kemur að meðferðarúrræðum, heilbrigðisþjónustu og stuðningi við fólk í neyslu - en líka um forvarnir og mikilvægi þess að hlúa vel að börnum og ungmennum. mál hafa verið í deiglunni eftir þátt Kveiks um ópíóíðafaraldurinn.
    Við kynnum okkur niðurstöður úttektar ASÍ á vinnumarkaðnum. Þar var sérstaklega hugað að erlendu launafólki og brotum sem það verður fyrir. Þar kemur meðal annars fram að 56% innflytjenda telja sig hafa orðið fyrir vinnumarkaðsbrotum á síðustu 12 mánuðum. Steinunn Bragadóttir hagfræðingur og Saga Kjartansdóttir verkefnastjóri vinnustaðaeftirlits ASÍ segja okkur meira.
    Neytendaspjall við Brynhildi Pétursdóttur um eiturefni í fatnaði.
    55 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners