Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Kolsýrður sjór, ofþyngd, málfarsmínúta og Eilífðin
    Carbfix hóf nýverið tilraunir á niðurdælingu á koltvísýringi með sjó, meðal annars í samstarfi við svissneska aðila. En aðferð Carbfix og niðurdæling við Hellisheiðarvirkjun hefur vakið heimsathygli. Þessar tilraunir fara núna fram við Helguvík á Reykjanesi. Við ætlum að forvitnast um þessar tilraunir með Ólafi Teiti Guðnasyni upplýsingafulltrúa Carbfix og Einari Magnúsi Einarssyni verkefnisstjóra.
    Við tölum líka við Rafn Benediktsson yfirlækni á innkirtladeild Landspítalans í framhaldi af fréttum nýverið um mann sem var neitað um sjúkraflug vegna þyngdar.
    Við fáum eina málfarsmínútu og svo kemur Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV til okkar með mjög áhugaverða upptöku úr safninu.
    55 min
  • Þjóðarspegillinn 2023
    Samfélagið sendir út beint frá Háskólatorgi í tilefni af Þjóðarspeglinum.
    Guðbjört Guðjónsdóttir, verkefnisstjóri hjá Félagsvísindastofnun segir okkur upp og ofan af þessari viðamiklu ráðstefnu sem er nú haldin í 24. sinn. Og hér eru flutt hátt í 200 erindi um allt milli himins og jarðar sem tengist fræðilegri umræðu um það sem efst er á baugi innan félagsvísinda.
    Á að taka tillit til minja sem tengjast þjóðtrú og þjóðsögum við vegagerð, hvað um steina sem einhver einhvern tímann taldi að í byggju álfar? Við ræðum við Jón Jónsson, hjá Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Ströndum um vegagerð, fornminjar og menningarminjar, og sérstaklega um Topphól, meinta álfakirkju, sem sprengdur var upp á árinu.
    Einhverfar konur sem fengið hafa greiningu á fullorðinsárum hafa sumar endurskilgreint fortíð sína og hætt að kenna sjálfum sér um mótlæti sem þær hafa mætt. Snæfríður Þóra Egilsdóttir prófessor og Kremena Nikolova-fontaine, hjá rannsóknasetri í fötlunarfræðum, gerðu viðtalsrannsókn þar sem þær ræddu við nokkrar einhverfar konur á miðjum aldri sem varpa ljósi á reynslu þeirra fyrir og eftir greiningu.
    Og svo ræðum við um matarmenningu og hlutverk hennar í mótun sjálfsmyndar, Kristinn Schram, þjóðfræðingur, hefur rannsakað það.
    Málfarsmínútan verður líka á sínum stað.
    55 min
  • Neyðarástand á Gaza, orkusjóður og umhverfisáhrif matreiðsluþátta
    UNICEF á Íslandi hefur sett af stað neyðarsöfnun fyrir börn á Gaza. Við höfum undanfarið heyrt og séð sláandi fréttir af börnum í neyð þar og barnahjálp Sameinuðu þjóðanna rær nú öllum árum að því að koma aðstoð á svæðið eins hratt og hægt er. Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi ræðir þetta við okkur.
    Orkusjóður er samkeppnissjóður sem á að styðja við orkuskipti á Íslandi. Í ár nam úthlutun úr sjóðnum tæplega milljarði og fengu miklu færri en vildu, áður hefur mikið verið lagt upp úr innviðum fyrir rafbíla en nú er áherslan einkum á að styðja við fyrirtæki sem vilja skipta tækni sem nýtir olíu út fyrir tækni sem nýtir endurnýjanlegri orkugjafa. Við ræðum við Ragnar Ásmundsson, forstöðumann Orkusjóðs um þennan sjóð og áhrif hans.
    Við heyrum pistil frá Stefáni Gíslasyni umhverfisstjórnunarfræðingi. Hann ætlar að fjalla um matreiðsluþætti og umhverfisáhrif þeirra, sem eru margslungin.
    55 min
  • Gögn í gíslingu, vegandagur og meðgöngueitrun
    Fjarskiptastofa hélt í gær málþing undir yfirskriftinni Gögn í gíslingu. Einn þeirra sem þar talaði er Guðmundur Arnar Sigmundsson, sviðsstjóri netöryggissveitarinnar CERT-IS, en hann fjallaði um sögu og þróun netárása þar sem gögn eru tekin í gíslingu.
    Við ræðum við Valgerði Árnadóttur, formann Samtaka grænkera á Íslandi, því það er ekki bara Allraheilagramessa í dag heldur líka alþjóðlegi vegandagurinn.
    Vísindaspjall með Eddu Olgudóttur.
    55 min
  • Rannsóknir á bólusetningum, þriðja vaktin og feðraveldi
    Við fjöllum um nýjar rannsóknir á bólusetningum á Íslandi. Íris Kristinsdóttir læknir varði á dögunum doktorsritgerð þar sem þrjár rannsóknir lágu til grundvallar. Á hagkvæmni og ávinningi bólusetninga gegn rótaveiru, útbreiðslu og bólusetningum gegn meningókokkum og bólusetningum barnshafandi kvenna gegn inflúensu. Íris segir okkur frá þessum rannsóknum og með henni er Valtýr Stefánsson Thors, barnasmitsjúkdómalæknir og lektor, sem var leiðbeinandi Írisar.
    Þriðja vaktin hefur verið mikið milli tannanna á fólki í framhaldi af Kvennaverkfallinu í síðustu viku. Talað er um fyrstu vaktina, aðra vaktina, þriðju og jafnvel fjórðu. Hvernig birtist þessi þriðja vakt? Hvaða áhrif hefur hún á þann sem ber hitann og þungann af henni og hvernig má deila henni jafnar á heimilismeðlimi? Alma Dóra Ríkarðsdóttir, telur að hægt sé að útvista þriðju vaktinni til tækninnar, í það minnsta að einhverju leyti og hefur ásamt fleiri konum hannað app til þess.
    Svo kemur Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur til okkar í málfarsspjall. Hún fjallar um hugtakið feðraveldi.
    55 min
  • Matarsóun verslana, minjar tengdar herspítala og styttan af Leifi
    Hvað geta verslanir gert til að minnka matarsóun? Fer mikið til spillis - við förum í hálfgerða eftirlitsferð í verslun Bónus við Skútuvog í Reykjavík og hittum þar Baldur Ólafsson, markaðsstjóra.
    Á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar hafðist fjöldi breskra og bandarískra hermanna við í Eyjafirði og ótal munir og minjar frá þessum tíma grafnir í jörðu. Brynjar Karl Óttarsson, sagnfræðingur, kennari og grúskari tilheyrir hópi fólks sem grefur þessa hluti upp, gúgglar þá og skoðar. Brynjar sagði okkur frá ýmsum munum á föstudag og nú ætlum við að heyra seinni hluta þess viðtals, þar sem meðal annars er fjallað um muni sem fundist hafa á Hrafnagili þar sem var stór herspítali; til dæmis naglabandaolíu, varalit og bollastell.
    Við heimsækjum líka Þjóðskjalasafn Íslands eins og svo oft á mánudögum. Að þessu sinni ætlum við að skoða bréfaskipti frá þriðja og fjórða áratug síðustu aldar vegna styttunnar af Leifi Eiríkssyni heppna. Indriði Svavar Sigurðsson, skjalavörður ætlar að sýna okkur bréfin og rekja fyrir okkur söguna.
    55 min
  • Grenndargralið, hamfarir í jarðsögunni, málfar og svín á golfvelli
    Á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar hafðist fjöldi breskra og bandarískra hermanna við í Eyjafirði. Þar voru skotæfingasvæði, braggabyggð, flugvöllur og spítali svo dæmi séu nefnd og ótal munir og minjar frá þessum tíma grafnir í jörðu. Brynjar Karl Óttarsson, sagnfræðingur, kennari og grúskari tilheyrir hópi fólks sem grefur þessa hluti upp, gúgglar þá og skoðar og heldur úti vefsíðunni grenndargral.is.
    Sævar Helgi Bragason, rithöfundur með meiru, ræðir um tunglið, árekstra loftsteina við jörðina og ýmsar hamfarir.
    Málfarsmínúta úr smiðju Önnu Sigríðar Þráinsdóttur.
    Vera Illugadóttir ræðir um svín sem valda vandræðum á golfvelli í Arizona.
    55 min
  • Launamunur kynjanna, bransaveisla og umhverfispistill um sjókvíaeldi
    Alls konar launamunur kynjanna er staðreynd. En hvað er á bak við allar prósenturnar? Hvernig er launamunur metinn og hvernig metur samfélagið virði ólíkra starfa? Virkar jafnlaunavottun eða festir hún einfaldlega kynbundinn launamun og vanmat á störfum kvenna í sessi? Helga Björg Ragnarsdóttir framkvæmdastýra Jafnlaunastofu ræðir um þetta.
    Hrefna Helgadóttir, kynningarstjóri ÚTÓN, Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, segir okkur frá svokallaðri bransaveislu sem verður haldin í aðdraganda tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves sem hefst í næstu viku og ræðir þróun tónlistarbransans og útrás íslenskrar tónlistar.
    Umhverfispistil frá Sæunni Júlíu Sigurjónsdóttur í Ungum umhverfissinnum, hún fjallar um eldisáform í Seyðisfirði.
    55 min
  • Virkjanaviðhorf, ný skip og gömul, málfar og ræktun líffæra
    Helmingur landsmanna telur að íslenskt samfélag þurfi að nýta sem flesta virkjunarkosti en ekki hvaða kosti sem er og ekki í hvaða tilgangi sem er. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar Félagsvísindastofnunar þar sem aðaláherslan var á vindorkuver og alveg skýrt að fólk vill fáa stóra vindorkugarða í stað margra lítilla - ef það vill virkja vindinn yfirleitt. Við ræðum við Kjartan Ólafsson, félagsfræðing hjá stofnuninni, um könnunina.
    Nýtt hafrannsóknaskip er nú í smíðum í Vigo á Spáni. Nýja skipið, sem mun heita Þórunn Þórðardóttir, tekur við af elsta skipi stofnunarinnar; Bjarna Sæmundssyni. Við heimsækjum Bjarna í Hafnarfjarðarhöfn í Samfélaginu í dag og ræðum við forstjóra Hafrannsóknastofnunar, Þorstein Sigurðsson um þau Þórunni og Bjarna.
    Málfarsmínútan verður á sínum stað í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur.
    Edda Olgudóttir kemur svo til okkar í vísindaspjall. Hún ætlar að velta fyrir sér ræktun á líffærum.
    55 min
  • Kvennaverkfall, Tómas á toppnum og umhverfissálfræði
    Það hefur ekki farið framhjá mörgum að konur og kvár leggja niður störf í dag. Tugir samtaka kvenna, hinsegin fólks og launafólks standa að verkfallinu. Þar á meðal eru Stígamót og fyrir hönd þeirra er Drífa Snædal í framkvæmdastjórn Kvennaverkfallsins. Við hringdum í Drífu sem var að gera sig klára fyrir stóran útifund við Arnarhól. Kynbundinn launamunur verður þar í forgrunni og ólaunuð störf kvenna, en einnig baráttan gegn kynbundnu ofbeldi.
    Við hringjum líka langlínusímtal til Himalaya-fjallanna. Þar er Tómas Guðbjartsson skurðlæknir að venjast loftinu í nærri fimm þúsund metra hæð áður en hann heldur á tind fjallsins Imja Tse. Hann segir okkur frá því og læknastörfum í 5000 metra hæð.
    Við fáum svo pistil frá Páli Líndal umhverfisálfræðingi.
    55 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners