Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Grænir skátar, matjurtaræktun við fjölbýlishús og vísindaspjall
    Við kynnumst starfsemi Grænna skáta, þið kannist kannski við flöskugáma þeim merktum, starfsemin er umfangsmikil, tvær móttökustöðvar, þrjátíu starfsmenn flestir með skerta starfsgetu og milljónir dósa, að sjálfsögðu - þetta er ógurlegt umstang en fer langt með að fjármagna skátastarf á Íslandi. Við ræðum við Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóra, Júlíus Aðalsteinsson, rekstrarstjóra og fleiri.
    VIð ræðum við Auði Ottesen á Selfossi. Hún er garðyrkjufræðingur og smiður og formaður samtakanna Umhverfi og vellíðan. Auður ætlar að segja okkur frá áhugaverðu verkefni sem snýr að lóðum fjölbýlishúsa. Möguleikum á matjurtaræktun við fjölbýlishús og rannsóknir sem tengjast þeim.
    Við heyrum eina málfarsmínútu og svo kemur Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjall.
    55 min
  • Tóm Laugardalslaug, Dofri, Seðlabanka mótmælt 1973 og málfar
    Laugardalslaugin er tóm. Þar er hvorki vatn né fólk þessa dagana vegna endurbóta. Árni Jónsson er forstöðumaður laugarinnar og hann tók á móti Samfélaginu þar í morgun og sagði frá því sem þar stendur til. Og það er margt.
    Svo ætlum við að rifja upp viðtal sem við áttum við Bjarna Bjarnason snemma á þessu ári. Hann var þá við það að hætta störfum sem forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur. En hann sagði okkur þá allt um gufuborinn Dofra sem var verið að gera upp. Þessa afkastamiklu og mikilvægu vinnuvél sem hefur borað ófáar holurnar í leit að heitu vatni og gufu - og þar áður olíu, eins og Bjarni segir okkur frá. Þegar við ræddum við Bjarna var borinn í skemmu í Hafnarfirði en nú eru fram­kvæmd­ir hafn­ar við að koma Gufu­born­um Dof­ra fyr­ir á nýju fræðslu-, upp­lif­un­ar- og úti­vist­ar­svæði við Elliðaár­stöð.
    Svo rifjum við upp 50 ára gamla upptöku úr safni RÚV með Helgu Láru Þorsteinsdóttur.
    Málfarsmínútan er líka á sínum stað.
    55 min
  • Loftslagsaðlögun, Sundabraut, málfar og Guð blessi Ísland
    Loftslagsbreytingar ógna innviðum, náttúru og mannslífum á Íslandi og við því þarf að bregðast. Stjórnvöld kynntu á dögunum tillögur að aðlögunaráætlun, Loftslagsþolið Ísland. Hlutverk sveitarfélaganna er stórt í því samhengi. Við ræðum það við Hrönn Hrafnsdóttur, sérfræðing í loftslagsmálum hjá Reykjavíkurborg.
    Við tölum um Sundabraut. Vegagerðin heldur þessa dagana opna kynningarfundi um þá risastóru framkvæmd. Helga Jóna Jónasdóttir verkefnisstjóri Sundabrautar hjá Vegagerðinni fer yfir áætlanir, stöðuna og framkvæmdirnar.
    Við heyrum málfarsmínútu frá Önnu Sigríði Þráinsdóttur og í lok þáttar ræðum við ákveðin tímamót, afmæli fyrirbæris sem komið er á unglingsaldur og rótum aðeins í sameiginlegum minningasjóði vegfarenda sem við rákumst á í grennd við Efstaleiti 1 í Reykjavík. Það eru nefnilega 15 ár frá frægu ávarpi Geirs H. Haarde sem lauk með orðunum Guð blessi Ísland.
    55 min
  • Skaðaminnkun og mismunandi aðferðir við moltugerð
    Svala Jóhannesdóttir, sérfræðingur í skaðaminnkun, var meðal þeirra sem horfðu á innslag Kveiks á þriðjudaginn var, um ópíóíðafaraldurinn á Íslandi og aðstæður fólks í mikilli neyslu. Við ræðum við Svölu um stöðuna og það sem henni finnst þurfa að breytast til þess að fólk eigi séns.
    Við fjöllum um moltugerð og tilraunaverkefni á vegum Reykjavíkurborgar en í framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi - þar sem meðal annars eru þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk, er verið að framleiða moltu í sérstakri vél - en borgin er líka að framleiða moltu í stórum stíl uppi í Álfsnesi. Við ræðum við Eyjólf Einar Elíasson, matreiðslumann og forstöðumann eldhússins á Vitatorgi - og Gunnar Dofra Ólafsson, samskiptastjóra hjá Sorpu.
    Stefán Gíslason flytur loftslagspistil.
    55 min
  • Bólusetningar, gámadýfingar, málfar og vísindaspjall um nóbelsverðlaun
    Við tölum um bólusetningar og bóluefni. Nú hefur verið ákveðið að bjóða öllum börnum í 7. Bekk bóluefnið Gardasil sem er notað sem vörn gegn hpv veirum, sem geta meðal annars valdið krabbameinum. Áður var annað bóluefni aðeins gefið stúlkum. Kamilla Sigríður Jósefsdóttir yfirlæknir bólusetninga hjá sóttvarnalækni ætlar að útskýra þetta fyrir okkur og ræða við okkur almennt um bólusetningar barna og ungmenna.
    Hvernig standa verslanir sig í að koma í veg fyrir sóun? Getur verið að lausnin við rýrnandi kaupmætti heimilisins liggi í ruslagámi við næstu matvöruverslun? Við ræðum við Hlyn Steinsson, gámadýfingamann, um framboðið í gámunum - en líka um ruslahagkerfið, deilihagkerfið og sóun í víðara samhengi.
    Málfarsmínútan verður á sínum stað og svo kemur Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjall.
    55 min
  • Miðtaugakerfislyf, mannkostamenntun og matarsóun
    Við fjöllum um lyfjarannsóknir með aðstoð zebrafiska og hvernig Karl Ægir Karlsson prófessor við Háskólann í Reykjavík og félagar í 3Z ehf. eru að búa til nýja þekkingu á því sviði. Við höfum áður fjallað um rannsóknir þeirra á ADHD og lyfjum sem gagnast við því en nýverið var birt grein sem fjallar um hvernig stökkbreytingar í ákveðnu geni sem áður hefur verið sýnt fram á að leiða til ofvirkni í zebrafiskum leiði einnig til hvatvísi. Karl Ægir sest hér eftir smástund.
    Í menntavísindum er nú mikið fjallað um farsæld. Liður í því að auka farsæld barna er sérstök námsgrein, mannkostamenntun. Hvað felst í henni? Á skólakerfið markvisst að kenna börnum það að vera góðar manneskjur? Við ræðum við Önnu Halldórsdóttur um lokaverkefni hennar í listkennslufræðum sem ber yfirskriftina leitin að týnda tónskáldinu.
    Umhverfisstofnun hefur birt niðurstöður nýrra rannsókna á matarsóun á Íslandi. Þar kemur meðal annars fram að tæpur helmingur allrar matarsóunar á sér stað í frumframleiðslu matvæla en um 40% á heimilum. Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun segir okkur allt um þessar rannsóknir.
    55 min
  • Líffræðileg fjölbreytni, slóðar á hálendinu og ungmennaeftirlitið
    Líffræðilegur fjölbreytileiki á alls staðar undir högg að sækja og hnignun tegunda er bæði hröð og ógnvekjandi. Fyrir þremur árum skipaði hópur líffræðinga samráðsvettvanginn Biodice og hefur síðan unnið að því að auka skilning, rannsóknir, umræðu og aðgerðir í tengslum við líffræðilegan fjölbreytileika á Íslandi. Ragnhildur Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá Náttúruminjasafni ætlar að ræða við okkur um lífríkið í kringum okkur og málstofu sem fer fram RIFF kvikmyndahátíðinni á morgun.
    Fréttir af 14 tonna trukki sem tætti upp land í Þjórsárverum hafa vakið mikla athygli enda sláandi myndir sem við sáum af því í sjónvarpsfréttum í gær. Daníel Freyr Jónsson, sérfræðingur í náttúruverndarteymi Umhverfisstofnunar, sagði í hádegisfréttum að ferðamaðurinn hafi ekki ekið utan vegar - þarna séu slóðar. Aksturslag hans sé þó langt frá því að vera til fyrirmyndar. En hvenær er slóði slóði og hvenær eru menn utan vegar? Við ræðum nánar við Daníel á eftir. Akstur utan vega á sinni könnu
    Málfarsmínúta.
    Við bregðum okkur á Þjóðskalasafnið eins og við gerum reglulega. Að þessu sinni tekur Benedikt Eyþórsson á móti okkur í lestrarsal safnsins en hann er fagstjóri upplýsingaþjónustu. Ástandsárin og unmennaeftirlitið til umfjöllunar.
    55 min
  • Sæsnigillinn svartserkur, refsilaus dómur og Ig nóbelsverðlaunin
    Við fræðumst um nýjan landnema, sæsnigil sem nýlega fannst í fjöru við innanverðan Breiðafjörð og hefur ekki fundist áður í Norður-Atlantshafi. Snigillinn er um margt sérstakur og ýmsar spurningar sem brenna á þeim Svanhildi Egilsdóttur, sérfræðingi hjá Hafrannsóknastofnun sem fyrst uppgötvaði kvikindið og Áka Jarli Lárussyni, stofnerfðafræðingi hjá sömu stofnun.
    Dómur yfir manni sem mun ekki sæta neinni refsingu fyrir heimilisofbeldi vakti athygli í vikunni. Maðurinn játaði brot sín en er talinn ósakhæfur þegar hann framdi þau. Hann var þó ekki dæmdur í neins konar geðræna meðferð og þolandinn gengur um með öryggishnapp. María Rún Bjarnadóttir lögfræðingur hjá ríkislögreglustjóra kemur til okkar til að ræða þennan málaflokk í aðeins víðara samhengi.
    Vera Illugadóttir kemur svo til okkar, eins og oft á föstudögum að vísu ekki að ræða um dýr, heldur rannsóknir sem unnið hafa til verðlauna.
    55 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners