Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Minnihlutatungumál, reiðufé og málfarsspjall
    Samíska og fleiri minnihlutatungumál eru í brennidepli á ráðstefnu sem nú stendur yfir í Hveragerði. Eydís Inga Valsdóttir verkefnastjóri Nordplus á Íslandi veit meira um málið.
    Við fjöllum um reiðufé og hvort það borgi sig að nota seðla í dag, þetta er seinni hluti af viðtali við Gunnar Jakobsson, seðlabankastjóra.
    Anna Sigríður Þráinsdóttir kemur svo til okkar í málfarsspjall um nýyrði og tökuorð.
    55 min
  • Hverfið mitt, undanþágulyf og skjöl Tryggva Gunnarssonar
    Frisbígolfvöllur, hundagerði, vatnsrennibraut, nú eða endurbætur á körfuboltavellinum í hverfinu. Í gegnum verkefnið hverfið mitt geta íbúar Reykjavíkur haft áhrif á nærumhverfi sitt og kosið framkvæmdir sem þeir vilja að borgin ráðist í. 450 milljónum króna er skipt milli hverfa og svo er kosið og vinsælasta verkefninu væntanlega hrint í framkvæmd. Eiríkur Búi Halldórsson, stýrir þessu verkefni og segir okkur frá því.
    Undanþágulyf eru miklu algengari hér en annars staðar á Norðurlöndunum - og ekki vegna lyfjaskorts. Um þetta er fjallað í nýjasta tímariti Læknablaðsins. Anna Bryndís Blöndal, lyfjafræðingur ræðir þetta við okkur.
    Svo lítum við í nokkra kassa á Þjóðskjalasafninu með Hansi Hreinssyni, skjalaverði. Kassarnir eru að þessu sinni úr einkaskjalasafni Tryggva Gunnarssonar, fyrrum alþingismanns, bónda og bankastjóra og ýmislegt sem kemur upp úr krafsinu, meðal annars pípureykjandi apar og nítjándualdardrama af bestu gerð.
    55 min
  • Símtal til Marokkó, skrautmunaskiptimarkaður og PFAS-efni
    Við byrjum þáttinn á því að spjalla við Birtu Árdal Bergsveinsdóttur, hún hefur búið í Marokkó í um áratug, er hluti af samfélaginu þar og hún og fjölskylda hennar leggja nú allt kapp á að koma fólkinu sem missti allt sitt í jarðskjálftanum fyrir viku til hjálpar.
    Sólheimasafn er stundum kallað litla vinalega safnið og þar hafa grænar áherslur lengi ráðið ríkjum. Við förum á skrautmunaskiptimarkað á safninu og ræðum við Guðríði Sigurbjörnsdóttur, deildarstjóra Borgarbókasafnsins í Sólheimum, um ýmislegt fleira sem þar er á döfinni.
    Málfarsmínúta úr smiðju Önnu Sigríðar Þráinsdóttur, málfarsráðunauts.
    Neytendaspjall. PFAS efni eru skaðleg og að finna víða, svo sem í ýmsum gerðum af pönnum, tannþræði, regnfötum og matvælaumbúðum. Brynhildur Pétursdóttir frá Neytendasamtökunum ræddi við við okkur um þau.
    55 min
  • Menguð jörð, áherslur nýs forstjóra, vígahnöttur og umhverfispistill.
    Umhverfisstofnun er að fara af stað með átaksverkefni sem snýr að menguðum jarðvegi. Fólk sem veit af svæðum þar sem úrgangur var brenndur eða olíu hellt niður er beðið að láta stofnunina vita. Kristín Kröyer, sérfræðingur í teymi mengunareftirlits hjá Umhverfisstofnun ræðir þetta verkefni við okkur.
    Sigríður Dóra Magnúsdóttir var í gær skipuð nýr forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Við ætlum að ræða við hana um hennar sýn á þróun heilsugæslunnar til framtíðar og hvernig hún sér fyrir sér að taka á manneklu og öðrum vandamálum sem hafa plagað stofnunina.
    Við hringjum í Sævar Helga Bragason, stjörnufræðikennara sem segir okkur frá vígahnetti sem hann sá við Raufarhöfn í vikunni.
    Stefán Gíslason flytur okkur umhverfispistil á lögfræðilegum nótum. Loftslagsmálaferli eru umfjöllunarefni dagsins og einkum væntanleg fyrirtaka Mannréttindadómstóls Evrópu á máli portúgalskra ungmenna sem hafa stefnt fjölda ríkja fyrir að standa ekki við loforð sín í loftslagsmálum.
    55 min
  • Reiðufé, skipsstrand við Grænland, málfar og örplast
    Eru seðlar og mynt á útleið? Ætti fólk að eiga reiðufé heima hjá sér? Við ræðum þetta við vegfarendur í miðbæ Reykjavíkur og Gunnar Jakobsson varaseðlabankastjóra.
    Í gær bárust fréttir af farþegaskipinu Ocean Explorer, sem tók niðri í Alpafirði við Austur-Grænland. Þarna eru meira 200 manns um borð og skipið situr enn sem fastast. Inga Dóra Guðmundsdóttir í Nuuk hefur fylgst með fréttum af strandinu og ætlar að spjalla við okkur um það á eftir. Koma skemmtiferðaskipa til Grænlands er umdeild þar í landi og mörgum þykir nóg um þá miklu aukningu sem hefur orðið.
    Við heyrum eina málfarsmínútu í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur málfarsráðunautar.
    Edda Olgudóttir kemur til okkar í vísindaspjall. Hún fjallar um örplast í sjávarspendýrum.
    55 min
  • Rauði krossinn í viðbragsstöðu og pistill frá Páli Líndal
    Samfélagið var stutt þennan daginn vegna beinnar útsendingar frá setningu Alþingis.
    Nú er talið að nærri 3000 hafi látist í jarðskjálftanum stóra sem varð í Marokkó á föstudag. Þetta eru miklar hamfarir og afleiðingarnar eru grafalvarlegar. Rauði krossinn bregst alltaf við þegar svona áföll verða og við ræðum það við Sólrúnu Maríu Ólafsdóttur teymisstjóra alþjóðaverkefna hjá Rauða krossinum á Íslandi.
    Páll Líndal umhverfissálfræðingur flytur sinn reglubundna pistil.
    55 min
  • Hamfarir í Marokkó, tækjakostur Vegagerðarinnar og gömul óskalög
    Það er ljóst að jarðskjálftinn stóri sem varð í Marokkó fyrir helgi olli miklu tjóni. Meira en 2000 eru látin og þúsundir slösuðust. Byggingar hrundu, vegir fóru í sundur, skriður féllu og nú er allt kapp lagt á að bjarga fólki. Við ætlum að ræða við Kristínu Jónsdóttur jarðskjálftafræðing um þá krafta sem voru þarna að verki.
    Vegagerðin hefur líklega aldrei verið betur tækjum búin en nú. Í sumar kom ný sending af alls konar afar sérhæfðum tækjum sem eiga að gera stofnuninni betur kleift að meta ástand vega og viðhaldsþörf. Þar á meðal er nýtt falllóð, jarðsjárdróni og kúlnakvörn. Birkir Hrafn Jóakimsson, forstöðumaður stoðdeildar Vegagerðarinnar, segir okkur frá tækjakosti í skemmu og á rannsóknarstofu Vegagerðarinnar í Suðurhraunin í Garðabæ.
    Við heyrum málfarsmínútu og svo kemur Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV til okkar. Hún ætlar að dusta rykið af 70 ára gamalli upptöku úr óskalagaþættinum ?Þetta vil ég heyra? þar sem Gunnar Thoroddsen var gestur.
    58 min
  • Óvinur birkiþélu, orkuskipti í dreifbýli, málfar og dýraspjall
    Náttúrulegur óvinur birkiþélunnar er kominn til landsins - Brynja Hrafnkelsdóttir, skógfræðingur, var í skoðunarferð í skógi við Rauðavatn í fyrradag þegar hún varð vör við glænýja tegund sem enn er ekki ljóst hvað heitir, sníkjudýr sem lifir á birkiþélunni sem plagar birkið síðsumars. Framtíð birkisins virðist töluvert bjartari með tilkomu þessara nýju landnema.
    Hvernig er best að takast á við orkuskipti á landsbyggðinni, hverjar eru áskoranirnar og sóknarfærin og hvernig geta dreifbýl svæði í Evrópu unnið saman? Ottó Elíasson, rannsókna- og þróunarstjóri hjá Eimi,hefur velt þessu mikið fyrir sér en nýlega fengu hann og fleiri stóran Evrópustyrk til að vinna orkuskiptaáætlanir fyrir fimm dreifbýl svæði í Evrópu. Við ræðum við Ottó.
    Málfarsmínútan verður á sínum stað.
    Vera Illugadóttir kemur svo til okkar í lok þáttar með dýraspjall. Fjölbreytt fána dýra sem þar verður rædd eða allavega hljóðin sem þau gefa frá sér.
    55 min
  • Saga pillunnar, ruslamenning og eldur í rafhjólum
    VIð kynnum okkur sögu getnaðarvarnarpillunnar á Íslandi. Sú saga er stórmerkileg en hefur lítið verið rannsökuð fyrr en nýlega. Sagnfræðingurinn Ása Ester Sigurðardóttir gerði meistararannsókn sína um pilluna og á dögunum kom út grein eftir hana í Sögu, tímariti Sögufélagsins. Hún segir okkur frá áhrifum pillunnar á líf íslenskra kvenna, eftir að hún kom fyrst á markað í upphafi sjöunda áratugarins.
    Og svo er það ruslið. Það er um allt og verður sífellt meira. Við ætlum að kynna okkur ruslmenningu þjóðarinnar í sögulegu samhengi. Ágústa Edwald Maxwell fornleifafræðingur hefur rannsakað rusl og meðal annars grafið upp gamla ruslahauga.
    Síðastliðinn sólarhring hefur slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu í tvígang verið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli. Þetta er vaxandi vandamál víða um heim og tengist ekki bara rafhjólum heldur ótal hlutum sem fólk notar dagsdaglega og innihalda lithíum-rafhlöður. Einar Bergmann Sveinsson, fagstjóri forvarnarsviðs Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, kemur til okkar.
    55 min
  • Sameining MA og VMA, Litla saumastofan og bóluefni við malaríu
    Í gær boðaði Ásmundur Einar Daðason, skóla- og barnamálaráðherra til fundar með framhaldsskólunum á Akureyri í menningarhúsinu Hofi, nær fyrirvaralaust, þar sem hann kynnti þá ákvörðun sína að sameina skólana. Ákvörðunin hefur vakið mikil viðbrögð, sérstaklega meðal nemenda MA sem hafa boðað til mótmæla á Ráðhústorginu nú á eftir. Við ræðum við skólameistara skólanna tveggja, Sigríði Huld Jónsdóttur, skólameistara VMA og Karl Frímannsson, skólameistara MA. Að vísu í tvennu lagi því Sigríður var á leið til útlanda.
    Við höldum okkur á Akureyri því við kíkjum í heimsókn á Litlu saumastofuna þar í bæ, þar sem endurnýting er í hávegum höfð. Svava Daðadóttir og Anna Guðný Helgadóttir reka stofuna.
    Málfarsmínúta.
    Mikil þróun hefur verið í þróun bóluefnis við Malaríu sem er landlæg víða í Afríku sunnan Sahara. Edda Olgudóttir fer yfir þetta í vísindaspjalli dagsins.
    55 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners