Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Kolefnismarkaðir, snjallsímar í skólum og umhverfissálfræði
    Við kynnum okkur kolefnismarkaði sem eru alls konar, og í sókn bæði hér á landi og erlendis. Hrafnhildur Bragadóttir aðjúnkt við Lagadeild HÍ, er vel heima í því máli og skipuleggur málþing sem fer fram á Þjóðminjasafninu á morgun.
    Hvers vegna vill UNESCO, ásamt ýmsum öðrum, svo gott sem banna snjalltæki í skólum? Hermundur Sigmundsson prófessor í lífeðlisfræðilegri sálfræði fer yfir hvaða áhrif snjalltæki hafa á börnin okkar, hvað gerist raunverulega í heilanum á þeim við notkun slíkra tækja og hvernig best er fyrir kennslusamfélagið og foreldra að bregðast við í ljósri nýjustu rannsókna. Fanney Birna Jónsdóttir ræðir við hann.
    Í lok þáttar heyrum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi, þetta er endurtekinn pistill frá síðastliðnu hausti en Páll mætir hér með glænýja pistla frá og með næsta þriðjudegi.
    55 min
  • Auðlindagarðurinn, barnabókasafn, málfar og Þjóðskjalasafnið
    Í Svartsengi starfrækir HS Orka jarðvarmavirkjun eins og flestir vita. En þar er líka unnið að því að fullnýta það sem fellur til við orkuvinnsluna, varma, koltvísýring, ylsjó og margt fleira, í Auðlindagarðinum sem svo er kallaður. Bláa lónið er líklega augljósasta dæmið um hvernig þetta fer saman. Við heimsóttum Svartsengi fyrr í sumar og ræddum þar við Dagnýju Jónsdóttur, hún er deildarstjóri Auðlindagarðsins.
    Við kynnum okkur Félag um barnabókasafn, þar eru nokkrar hugsjónakonur sem sumar hafa unnið að því í tugi ára að láta drauminn um íslenskt barnabókasafn verða að veruleika. Það hafa ýmsar hindranir verið í veginum - sú stærsta lítur að fjármagni til þess að koma bókunum úr pappakössunum í framtíðarhúsnæði.
    Svo heimsækjum við Þjóðskjalasafn Íslands eins og hefð er fyrir. Þar tekur á móti okkur Ragnhildur Anna Kjartansdóttir, skjalavörður. Hún ætlar að sýna okkur merkileg skjöl frá upphafi átjándu aldar og rýna í þau með okkur.
    Málfarsmínútan verður svo á sínum stað.
    55 min
  • Hernámsárin, zebrafiskar, málfar og syngjandi lemúrar
    Við ræðum við tvo grúskara sem hafa mikinn áhuga á seinni heimstyrjöldinni og hernámsárunum á Íslandi. Þeir hafa báðir skoðað dauðsföll tengd veru setuliðsins hér á landi. Gauti Páll Jónsson hefur skoðað sérstaklega bílslys tengd hernum, þau voru furðumörg og það dóu bæði fullorðnir og börn. Gísli Jökull Gíslason lögreglumaður hefur legið yfir gömlum málum, meðal annars máli ungrar stúlku sem lést í kjölfar árásar hermanns.
    Við tölum við sameindalíffræðinginn Söru Sigurbjörnsdóttur í dýraspjalli dagsins. Hún vinnur með sebrafiskum, sem geta víst gefið okkur mikilvægar upplýsingar sem gætu nýst við þróun á lyfjum við slitgigt.
    Við fáum eina málfarsmínútu í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur.
    Svo kemur hin eina sanna Vera Illugadóttir til okkar í lok þáttar. Hún ætlar að segja okkur frá frændum okkar lemúrum.
    55 min
  • Rannsóknarstofa Vegagerðarinnar, blóðgjafir, ruslarabb og Stefán Gísla
    Það er ekkert tilviljanakennt við vegagerð, eins og komast má að þegar rannsóknarstofa Vegagerðarinnar er heimsótt - þar eru gerðar að því er virðist endalausar prófanir á steinefnum, allt gert til að örugglega verði settur saman hinn fullkomni vegur sem standist álag umferðar og veðurs. Jarðfræðingurinn Erla María Hauksdóttir tók á móti Samfélaginu sýndi græjurnar og grjótið og vísindin að baki.
    Alþjóðlegi blóðgjafadagurinn var í gær og ýmislegt gert í tilefni af honum til að minna á mikilvægi þess að gefa blóð og hvetja nýja blóðgjafa til að drífa sig í blóðbankann. Við ætlum að ræða blóðgjöf og blóðgjafa við formann blóðgjafafélags Íslands, Davíð Stefán Guðmundsson
    Við fáum svo í lok þáttar umhverfispistil frá Stefáni Gíslasyni.
    55 min
  • Veðurathuganir um allan heim, meindýr, málfar, ruslarabb og streita
    Íslendingar hugsa mikið um veður, skoða spár og fréttir - enda veður hér válynd og óútreiknanleg. Íbúar heimsbyggðarinnar eru allajafna ekki svona upptekin af veðrinu, en það er líka meðal annars vegna þess að víða skortir einfaldlega rannsóknartæki til að safna upplýsingum og vinna úr þeim, vara við þegar hættur steðja að. Nú er unnið að því að þétta net veðurathugunarstöðva meðal annars í Afríku og karabíska hafinu - þetta hjálpar auðvitað fólki á þessum svæðum mjög - en þetta skiptir allan heimin líka máli - líka okkur Íslendinga - til dæmis er viðstöðulaus rigningatíð hér sunnanlands möglega afleiðing sandstorma í Sahara eyðimörkinni. Já veður og veðurkerfi tengjast og virða engin landamæri. Jórunn Harðardóttir rannsóknarstjóri hjá Veðurstofu Íslands sest hjá okkur.
    Við heimsækjum Skógræktina við Mógilsá. Þar hittum við Brynju Hrafnkelsdóttur skordýrafræðing. Hún ætlar að fræða okkur um hvernig meindýrin koma undan hörðum vetri og hráslagalegu vori.
    Málfarsmínúta
    Ruslarabb um brauðpokafestingar.
    Vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur, hún segir okkur frá rannsóknum um hvaða áhrif streita hefur á heilastöðvarnar sem stjórna áti.
    55 min
  • Fiskveiðiráðgjöf, loftmengun og að lifa eins og kóngur í eggi
    Hafrannsóknastofnun kynnti fyrir helgi úttekt sína á ástandi nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár. Og þar er sjálfbær nýting lykilhugtak. Ákveðnar tegundir eru í aðalhlutverki þarna sem fyrr, þorskur og ýsa eru t.d. í betra standi en í fyrra - það er lögð til aukning um 1% í aflamarki þorsks og heil 23% í ýsu. En líka samdráttur í ýmsum öðrum tegundum. Þorsteinn Sigurðsson forstjóri Hafrannsóknastofnunar ætlar að ræða við okkur um ráðgjöfina, vísindin þar að baki og markmiðið um sjálfbæra nýtingu.
    Aðalheiður Jóhannsdóttir prófessor í umhverfisrétti og Gunnlaug Helga Einarsdóttir efnafræðingur hafa kært heilbrigðisnefnd Reykjavíkur til innviðaráðuneytisins fyrir aðgerðaleysi í tengslum við mikla loftmengun í Reykjavík - við ræðum við Aðalheiði í þættinum og heyrum hvaða leiðir þær eru að þræða til að koma málinu í farveg en það er óhætt að segja að ekki sé verið að gera almennum borgurum einfalt að bregðast við ógn gegn lýðheilsu.
    Málfarsráðunautur RÚV kemur svo til okkar í spjall um orðatiltæki, sem fólk ruglast oft á, til dæmis algengt að tveimur orðatiltækjum sé slegið saman - það getur verið fyndið - og vandræðalegt, en stundum kemur bara eitthvað nýtt og fallegt út úr þessu öllu saman.
    55 min
  • Unnin matvæli, málstol, málfar og roðskór fortíðar
    Við ætlum að kynna okkur það sem upp á ensku hefur verið kallað ?ultra processed foods? - það eru mjög mikið unnin matvæli sem innihalda allskyns efni sem vissulega eru æt, en flokkast kannski ekki endilega sem matur í eiginlegum skilningi. Undanfarið hafa komið í ljós ýmsar vísbendingar um að þessi meðferð á matnum okkar sé heilsuspillandi og í nýrri bók eftir breska lækninn Chris Van Tulleken eru nýjustu rannsóknir um matvæli af þessu tagi teknar saman og því lýst hvernig risafyrirtæki markaðssetja vörur sem geymast lengi, eru bragðgóðar og allt að því ávanabindandi. Við ræðum þetta við Bryndísi Evu Birgisdóttur, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands.
    Málstol er máltruflun sem getur haft áhrif á máltjáningu og málskilning, lestur og skrift. Talmeinafræðingar geta aðstoðað þau sem þjást af málstoli sem er talið að séu yfir 100 á ári á Íslandi - og nú ætla talmeinafræðingar allsstaðar að úr heiminum að koma saman á næstunni og rýna í málstol meðferðir við því og rannsóknir. Við ræðum við Ester Sighvatsdóttur yfirtalmeinafræðing á Landspítalanum.
    Við heyrum eina málfarsmínútu og fáum svo heimsókn frá safni RÚV. Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri ætlar að leyfa okkur að heyra áhugaverða upptöku úr safninu.
    55 min
  • Útskriftarnemar, brotið og bramlað, málfar og dýrasvif
    Flestir framhaldsskólar hafa útskrifað sitt fólk. Útskriftarárgangurinn í ár á að baki athyglisverð ár - covid setti tóninn í byrjun en hvernig endaði þetta allt saman og hvað ber framtíðin í skauti sér? VIð setjumst niður með tveimur nýútskrifuðum, það eru þau Erla Rúrí Sigurjónsdóttir úr Flensborg og Egill Breki Scheving úr Borgarholtsskóla.
    Sumarið er gjarnan tími fyrir ýmis konar leiki og sprell. Eitt af því sem býðst í Skemmtigarðinum í Grafarvogi er svokölluð Útrás þar sem fólk getur fengið brjóta og bramla alls kyns hluti, svo sem diska, glös og annað postulín, jólaskraut, sjónvörp, borð og bekki og svo mætti lengi telja. En hvaðan koma þessir hlutir og hvernig endurspegla þeir samfélag okkar og neysluhyggjuna sem oft virðist allsráðandi? Samfélagið bregður sér upp í Grafarvog hér á eftir og ræðir við Snorra Helgason framkvæmdastjóra Skemmtigarðsins.
    Málfarsmínúta er á sínum stað og svo er Dýraspjall, að þessu sinni er rætt við Hildi Pétursdóttur, sérfræðing hjá Hafró en hún er sérfróð um svokallað dýrasvif, sem eru smá en mikilvæg öllu lífríki hafs.
    55 min
  • Tilraunastöðin að Keldum, fjallasögur og umhverfispistill.
    Starfsemi Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum er umfangsmikil, hún kemst helst í fréttirnar þegar grunur leikur á riðusmiti í sauðfé en það er ótal margt annað sem þar fer fram og margt sem sem fyrir augu ber. Ýmsir sérfræðingar á sviði líffærafræði, örverufræði, ónæmisfræði, sníkjudýrafræði, sameindalíffræði, veirufræði og fisksjúkdóma starfa þar við þjónustu og rannsóknir í þágu heilbrigðiseftirlits. Við bregðum okkur upp í botn Grafarvogs í þættinum og hittum þar fyrir Sigurð Ingvarsson forstöðumann Keldna.
    Meðlimir íslenska alpaklúbbsins eru almennt að gera frekar svala hluti þegar kemur að útivist og fjallamennsku, bæði heima og erlendis. En til hvers að gera svala hluti ef það er ekki hægt að segja frá þeim - til þess er ársrit alpaklúbbsins sem er að koma út og hefur aldrei verið veglegra - fjöldi greina um sigra, og ósigra, áföll, slys, lærdóm og lífsstíll. Við ætlum að ræða við Ágúst Kristján Steinarsson, ritstjóra ársritsins
    Svo er umhverfispistilinn á sínum stað, það er Bryndís Marteinsdóttir plöntuvistfræðingur sem flytur okkur hann að þessu sinni.
    55 min
  • Neytendur blekktir, steinkista Páls biskups, málfar og heilahrörnun
    Enn og aftur upplifa neytendur og almenningur sig blekkt þegar kemur að sorphirðumálum og umbúðum - mjólkufernurnar okkar sem allir héldu að væru endurunnar, enda merktar sem slíkar, eru svo ekkert endurunnar. Og það er bara eins og þetta sé að koma öllum á óvart, Sorpu og hinum úrvinnslufyrirtækjunum, Mjólkursamsölunni og Úrvinnslusjóði. Úrvinnslusjóði sem borgar öllum hinum fyrir að endurvinna og endurnýta og á að hafa eftirlit með að það sé gert. Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna ræðir við Samfélagið.
    Í gær var steinkista Páls biskups Jónssonar opnuð og beinin úr henni flutt á Þjóðminjasafnið til frekari rannsókna. Páll biskup hefur hvílt í þessari kistu öldum saman, síðan árið 1211 en hún fannst við fornleifauppgröft í Skálholti árið 1954. Þá var kistan opnuð og beinum Páls komið fyrir í litlum trékistli sem svo var látinn aftur ofan í steinkistuna. Tækninni hefur svo fleygt fram og fornleifafræðingar Þjóðminjasafnsins vilja nú kanna ástand beinanna og gera rannsóknir á þeim áður en það verður of seint því núverandi aðstæður eru jú ekki kjöraðstæður fyrir varðveislu jarðneskra leifa. Beinunum verður svo skilað aftur í Skálholt en þá stendur til að betrumbæta geymsluaðstæður. Kristján Björnsson vígslubiskup og Joe Walser fornleifafræðingur segja frá.
    Málfarsmínúta.
    Vísindaspjallið er svo á sínum stað, Edda Olgudóttir kemur til okkar og segir okkur frá nýjum rannsóknum um vítamín og heilahrörnun
    55 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners